Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Varastu öll gylliboð sem eiga að færa þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi. Sláðu ekki af kröfunum þegar þú endurnýjar heima hjá þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Þótt allt virðist ganga þér í haginn skaltu hafa það bak við eyrað að gott er að leggja fyrir þegar vel gengur. Fjölskyldan tekur því fagnandi að sjá meira af þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt átök og óreiða sé allt í kring- um þig máttu ekki láta neitt trufla áform þín. Leyfðu öðrum að njóta glaðværðar þinn- ar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú mátt ekki láta leiðindi þín bitna á þínum nánustu. Spurðu sjálfa/n þig að því hvort þú þurfir raunverulega á öllum þessum fötum að halda. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er nauðsynlegt að þú gefir þig alla/n í að leysa verkefni dagsins. Þú þráir að komast í frí og lætur þann draum líklega rætast fljótlega. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Tækniframfarir eða aðrar nýjungar í vinnunni geta aukið afköst þín og gert vinnuumhverfi þitt þægilegra. Hafðu hægt um þig þangað til þú nærð áttum í ástamál- unum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þetta er ekki rétti tíminn til að efast um eigið ágæti. Stattu af þér storminn og þá munt þú standa uppi sem sigurvegari. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Óvænt tækifæri berst upp í hendurnar á þér og nú hefur þú enga afsök- un fyrir að nýta þér það ekki. Settu mörk, annars sogast orka þín út í tómið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Leitaðu leiða til að auka tekj- urnar og ef kominn er tími til að þú fáir kauphækkun skaltu fara fram á hana. Mundu að nægur svefn er undirstaða góðrar heilsu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú gætir þurft að ganga gegn vilja hóps sem þú átt samskipti við. Vertu þér meðvitandi um alla möguleika sem þér bjóðast í lífinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Verkefnin eru svo sannarlega ekki af skornum skammti og hið sama gildir um hjálpfúsar hendur. Ekki efast um sjálfa/n þig, eða getu þína. 19. feb. - 20. mars Fiskar Samstarfsfólk þitt er reiðubúið til að aðstoða þig í dag. Gaumgæfðu líf þitt og kannaðu hvort þú vilt breyta til. Hvað með áramótaheitið? Ertu búin/n að gleyma því? Guðmundur Arnfinnsson yrkir áBoðnarmiði: Svo mælti hún Oddfríður Alda, sem orðin var konan hans Valda: „Ég þarf ekki á yður, Ólafur smiður, né öðrum sem stendur að halda.“ Ólafur Stefánsson lætur fara vel um sig í sólarlöndum og yrkir um það sem fyrir augu ber: Hann skyrhvíta skankana hristi og skeggið í bjórfroðu missti; þar skein sól um allt alveg skrilljónfalt þegar brítuna á barnum hann kyssti. Hér fór Ólafur í smiðju Káins, en kunningi hans, er sat við drykkju með honum inni á knæpu einni, lenti í orðasennu við innlenda konu nokkra („brítu“), og varð eigi að samningum með þeim; en „brítur“ nefnast á vesturíslensku konur þær, sem eru af blönduðu kyni (sbr. enska orðið „Half-breed“). Leiddist Káin þjark þetta og kastaði fram vísu þessari: Aldrei að jagast við erlendar þjóðir á Íslandi var okkur kennt. Vertu ekki að ragast við „brítuna“, bróðir, borgaðu fimmtíu cent. Hér stælir Káinn vísuna hans Bobbys Burns: Einn hefur ket en ekkert étið getur annar éta óspart má en – ekkert ketið hefur sá. Flestir kunna þessa vísu Hann- esar Hafstein: Fegurð hrífur hugann meira’ ef hjúpuð er svo andann gruni enn þá fleira’ en augað sér. „Breytt, en ekki til batnaðar“ er yfirskriftin í ljóðabók Káins: Hver vill heimta af henni meira, hún er ber. Og andann grunar ekkert fleira en augað sér. Káinn orti í hænsnahúsinu: Haninn galar hátt og snjallt, hæna ræður þylur; þau eru að tala um eitt og allt, sem enginn maður skilur. Káinn var höfundur þess bragar- háttar sem kallast „hringhend hlunkhenda“: Það, sem ég meina, sérðu, sko! – vera ekki að neinu rugli; bara reyna að drepa tvo steina með einum fugli. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af sólskini og því sem augað sér Í klípu „ÉG NENNTI EKKI Á NÁMSKEIÐIÐ Í SAMSKIPTATÆKNI EN HANN BAUÐST TIL AÐ FARA MEÐ MIG.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG VEIT AÐ ÞÚ ERT EKKERT SÉRLEGA MIKIÐ FYRIR AÐ HNEPPA MÖRGUM HNÖPPUM.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vonast til þess að dag einn taki hún eftir þér. ÉG HEF VERIÐ AÐ ÍHUGA LÍF MITT SKO, ÞAÐ GETUR VERIÐ ERFIÐARA AÐ HÖNDLA VELGENGNI EN ÓFARIR HVAÐ UM ÞAÐ? HVAÐ EF ALLT FER VEL? SVO LENGI SEM ÞAÐ ER PÍTSA Í BOÐI … BÍDDU, HVAÐ? SÆKIÐ FRAM OG BERJIST FYRIR KONURNAR YKKAR! HMM. ÞETTA HREYFÐI EKKI VIÐ ÞEIM. SÆKIÐ FRAM OG BERJIST FYRIR KONUR ÓVINARINS! SKO ÞIG Örfáa daga og einhverja dagspartafær Víkverji það á tilfinninguna að það sé að koma vor. Jafnóðum er slegið á putta Víkverja og hann þarf að fara út að skafa snjó af bílnum og moka stéttina. x x x Víkverji veit að það kemur vor áendanum, þar á eftir kemur blessað sumarið, svo haustið og aftur vetrar. Skilin milli árstíða eru ekki eins skýr og þau voru áður fyrr. Hvað skyldi valda því? x x x Fyrst er auðvitað um að kenna hlýn-un jarðar og að heimur versnandi fer. Næst má kenna aldri um; Vík- verji sé það þroskaður að minning- arnar séu hjúpaðar ljóma fortíðar þar sem allt var einfaldara og betra. x x x Matarsóun og plast koma iðulegaupp þegar rætt er um loftslags- mál. Til að stemma stigu við matar- sóun er farið að selja tilbúna matar- skammta sem sóttir eru eða sendir heim til viðskiptavina. Það eina sem þarf að gera er að taka upp úr kassa hráefnin, sem pakkað er inn í plast hverju fyrir sig, og elda. x x x Það sem fæst með slíku fyrir-komulagi er að fjölskyldur, sér í lagi þar sem fáir eru í heimili, þurfa ekki að kaupa fullan poka af gulrót- um, heilan vorlauk, kíló af kartöflum auk kílós af hakki, sem er allt of mikið magn til að búa til mat fyrir tvo ein- staklinga. Í hraða nútímans er svo hætta á að ekki gefist nægjanlegur tími til þess að nýta hráefnið áður en það skemmist og því hent. x x x Tímasparnaður og minni matar-sóun er gott mál. En allt plastið og umbúðirnar sem notuð eru til þess að minnka matarsóun gera að öllum líkindum meira ógagn en gagn. Vík- verji er hræddur um að umhverfis- málin verði ekki lengur leyst á þægi- legan hátt heldur verði jarðarbúar að taka á honum stóra sínum og hugs- anlega gefa eitthvað eftir af „sjálf- sögðum“ lífsgæðum. vikverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins.“ (Jóh: 8.12)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.