Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 31

Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Ástríkur, félagi hans Stein-ríkur og aðrir íbúar Gaul-verjabæjar eru með ást-sælustu persónum myndasagnasögunnar og bækur þeirra félaga Goscinnys og Uderzos löngu orðnar sígildar. Árið 2014 var frumsýnd vel heppnuð tölvugerð teiknimynd, Ást- ríkur á Goðabakka, sem Alexandre Astier skrifaði handritið að eftir samnefndri bók og leikstýrði. Nú snýr Astier aftur með nýja mynd sem hann skrifaði líka handritið að og leikstýrði með Louis Clichy. Hún er litlu síðri en sú fyrri og mjög í anda bókanna, oft fyndin og persón- urnar skrautlegar sem endranær. Eftir því sem ég kemst næst er þessi teiknimynd ekki byggð á bók en það gæti verið rangt hjá mér. Dag einn þegar Sjóðríkur seiðkarl er að tína jurtir í töfradrykkinn góða dettur hann niður úr tré og meiðir sig illa á fæti. Seiðkarlar eiga ekki að detta úr trjám segir hann og tilkynn- ir Ástríki og félögum að hann þurfi nú að finna arftaka sinn, einhvern sem hægt sé að treysta fyrir upp- skriftinni að töfradrykknum góða. Þessu frétta aðrir seiðkarlar af og þeirra á meðal einn illa innrættur sem einsetur sér að stela uppskrift- inni og selja Rómverjum. Sjóðríkur, Ástríkur og Steinríkur halda ásamt öllum körlum þorpsins í leiðangur og leita að ungum seið- karli. Á meðan verja konurnar Gaul- verjabæ með því að drekka töfra- drykkinn og gefa körlunum ekkert eftir þegar kemur að því að lumbra á rómverskum hermönnum. Þegar drykkurinn klárast kemur babb í bátinn og vandinn eykst svo enn þegar hinn vondi seiðkarl herjar á Gaulverja eftir að hafa drukkið aðra útgáfu af töfradrykknum en þá hefð- bundnu. Það er gaman að heyra gömlu kempurnar Ladda og Sigga Sigur- jóns tala inn á myndina fyrir þá Sjóðrík og Ástrík og leitun er að jafnreyndum og skemmtilegum mönnum hér á landi þegar kemur að talsetningu teiknimynda. Talsetn- ingin er mjög vel heppnuð á heildina litið en henni stýrði Tómas Freyr Hjaltason. Teiknarar myndarinnar eru ekki öfundsverðir af því að þurfa að feta í fótspor hins mikla Uderzos með sinn einkennandi teiknistíl og bráðfyndnu persónur en þeim tekst það vel og Uderzo, orðinn 91 árs gamall, hlýtur að vera sáttur við þá. Sagan er ágæt þó hana skorti spaugilegar „fullorðins“ vangaveltur á borð við þær sem finna mátti í fyrri mynd Astiers, um fólksflutninga frá sveit í borg og nýmóðins lifnaðar- hætti Rómverja. Þessi mynd er meira í anda hinna fjölmörgu teikni- mynda sem enda oftar en ekki með riastóru skrímsli sem þarf að berjast við. En það er fullt af góðu gríni, skemmtilegum persónum og átökum í hinum kunnuglega reykjarmekki Uderzos þar sem lumbrað er hressi- lega á Rómverjum sem liggja eftir eins og hráviði. Þá er Sesar að vanda kostulega ergilegur yfir hinu ósigr- andi smáþorpi í Gallíu. Leikstjórar og handritshöfundar gæta þess að aðdáendur fái það sem þeir vilja og yljar manni t.d. um hjartarætur að sjá hvert víkinga- skipið á fætur öðru sökkva í sæ. Líkt og í bókunum er þetta mun meiri karla- en kvennaheimur en konurn- ar í þorpinu fá þó stærra hlutverk en vanalega sem er þróun í rétta átt og í takt við tímann. Seiðkarl í leit að lærlingi Svínafréttir Sjóðríkur fær glóðvolgar fréttir frá villisvínum en líkt og aðrir seiðkarlar talar hann svínamál. Háskólabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó og Smárabíó Ástríkur og leyndardómur töfradrykkjarins bbbmn Leikstjórn: Alexandre Astier og Louis Clichy. Frakkland, 2018. 85 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Audiences and Innovative Practice, NAIP við tónlistardeild Listahá- skóla Íslands. NAIP er evrópskt meistaranám í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi sem sett var á fót til að mæta auknum kröfum sam- félagsins um hæfni tónlistarmanna til að starfa við fjölbreytilegar og þverfaglegar aðstæður. Sveiflast milli tónlistar og tals Bragi segir að hann hafi fengist við tónlist og leiklistartengd verk- efni á sviði og í kvikmyndum ásamt því að setja á svið söngleikinn Barry and his Guitar í Bretlandi og Íslandi. Bragi lék m.a. í myndinni Andið eðlilega eftir Ísold Uggadótt- ur. Hann kenndi tónmennt í Álf- hólsskóla og kennir nú börnum leik- list í Leynileikhúsinu. „Næsta verkefni er að ná mér í meiri reynslu til þess að þróa Þegar öllu er á botninn hvolft áfram. Ég valdi að fara listabrautina vegna þess ég hef alltaf sveiflast á milli sýniþarfar og þess að vilja segja sögur,“ segir Bragi og bætir við að lífið sé fullt af sögum sem gaman sé að endursegja og færa í stílinn. Bragi segir söngleikjaformið henta sér vel. „Þegar ég hef sungið mikið lang- ar mig hætta því og þrái að flytja texta og svo öfugt,“ segir Bragi sem segir allt að verða klárt fyrir sýn- inguna í Mengi við Óðinsgötu á sunnudag kl. 20. Einlægur Bragi Árnason gerir upp mótunarár þrítugsaldursins í söngleik sem fjallar um þroskasögu ungs manns í brösulum heimi sviðslistanna. Málverkið „Salvator Mundi“ eða Bjargvættur heimsins, sem eignað hefur verið listmálaranum Leo- nardo da Vinci og var í vörslu lista- safnsins Louvre í Abu Dhabi, er týnt, ef marka má fréttir hinna ýmsu fjölmiðla nú í vikunni. Mál- verkið sýnir Jesú krist og seldist fyrir metfé í nóvember árið 2017, rúmar 450 milljónir dollara, en jafnhá upphæð hafði þá ekki verið greidd á uppboði fyrir verk eins af gömlu meisturunum. Skömmu síðar bárust fréttir af því að sérfræðinga greindi á um hvort da Vinci væri höfundur verksins og m.a. talið að hann væri það aðeins að hluta. Og nú berast fréttir af því, m.a. á vef New York Times, að skv. heim- ildarmönnum innan safnsins sé verkið þar hvergi finnanlegt. Til stendur að sýna verkið í safninu í haust og vonandi finnst það áður en að sýningu kemur. Bjargvættur heimsins horfinn Horfinn Bjargvættur heimsins. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 7/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 16:00 Sun 7/4 kl. 16:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Lau 13/4 kl. 12:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 26/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Sun 2/6 kl. 13:00 Sun 14/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas. Lau 8/6 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 13:00 Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 5/4 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30 Lau 13/4 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30 Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Lau 6/4 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30 Mið 22/5 kl. 19:30 Fös 12/4 kl. 19:30 Fim 9/5 kl. 19:30 Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 5/4 kl. 18:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 17:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 15:00 Lau 6/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 17:00 Sun 7/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 17:00 Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Fim 11/4 kl. 19:30 Mið 24/4 kl. 19:30 Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 Fös 26/4 kl. 19:30 Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Loddarinn (Stóra Sviðið) Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 10/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið) Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 5/4 kl. 19:30 Lau 6/4 kl. 19:30 Fös 5/4 kl. 22:00 Lau 6/4 kl. 22:00 Dimmalimm (Brúðuloftið) Lau 6/4 kl. 14:00 Lau 13/4 kl. 15:00 Lau 27/4 kl. 15:30 Lau 6/4 kl. 15:30 Lau 27/4 kl. 14:00 Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Fim 30/5 kl. 19:00 37. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Sun 2/6 kl. 19:00 38. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas. Mið 5/6 kl. 19:00 39. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Fim 6/6 kl. 19:00 40. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Mið 22/5 kl. 19:00 33. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Fim 23/5 kl. 19:00 34. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Sun 26/5 kl. 19:00 35. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Mið 29/5 kl. 19:00 36. s Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk! Elly (Stóra sviðið) Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Ríkharður III (Stóra sviðið) Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas. Allra síðasta sýning! Kvenfólk (Nýja sviðið) Lau 6/4 kl. 20:00 Lokas. Allra síðasta sýning! Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Fös 10/5 kl. 20:00 13. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Sun 12/5 kl. 20:00 14. s Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Mið 15/5 kl. 20:00 15. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Club Romantica (Nýja sviðið) Fös 5/4 kl. 20:00 8. s Lau 13/4 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar. Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Bæng! (Nýja sviðið) Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Alltof mikið testósterón Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.