Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019
Spenntar Stúlkur frá Ballettskóla Guðbjargar biðu spenntar eftir því að stíga fram og hefja dansinn í Dúkkuverkstæðinu þar sem þær tóku þátt í barnamenningarhátíð Seltjarnarness í gær.
Eggert
Hér í landi er það
sér til gamans gert og
dægrastyttingar að
fara á hersamkomur og
miðilsfundi þar sem
gerðar eru spekálur
þar sem andvaralaus
vantrúarskríllinn, sem
er við fótskör meistar-
anna, skemmtir sér.
Ein slík samkoma var
haldin í Þjóðmenning-
arhúsi. Þar var rætt
um orkupakka og skaðsemi þess að
orka væri á samkeppnismarkaði.
Þar sat miðillinn í forgrunni og miðl-
aði visku.
Það þurfti ekki nema rétt að líta á
mynd af söfnuðinum til að taka af-
stöðu.
Og svo leggst dýralæknir í bar-
áttu við margföldun og deilingu,
sennilega hvort tveggja honum of-
raun.
Aðrar samkomur eru þó tilkomu-
og áhrifameiri, en það eru samn-
ingafundir um kaup og kjör, þar sem
fulltrúar alþýðunnar, þó með lítið
kjörfylgi að baki sér, taka sér vald til
að gera kjarasamninga, ákveða
stýrivexti og jafnvel lengd lánstíma
á fasteignalánum. Þeir kjarasamn-
ingar eiga að ná til allra stéttar-
félaga, upp úr og niður úr, án þess að
þeir launþegar sem hvergi koma
nærri og eiga ekki formlega aðild að
samningi fái rönd við reist.
Þau sem undirrituðu kjarasamn-
ingana framfluttu glæsilegar ræður,
sem voru í senn af himneskum krafti
og jarðneskum. Skammir og brigsl-
anir heimsins snertu þau ekki, því
þau voru svo glöð í lausnara sínum,
sem hafði frelsað þau frá lystisemd-
um og djöfulsins spilverki.
Hvað er fyrir mig?
Þegar kjarasamningar voru
undirritaðir komu fulltrúar eldri
borgara og spurðu hina nýju frels-
ara: „Hvað er í þessum
kjarasamningum fyrir
okkur?“ Eðli málsins
samkvæmt er ekkert í
kjarasamningum fyrir
flesta eldri borgara,
nema hjá þeim sem eru
í B-deild Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins, á
svokallaðri eftirmanna-
reglu.
Á sama veg spyrja
öryrkjar: „Hvað er í
þessum kjarasamn-
ingum fyrir okkur?“
Það er alls ekkert í
þessum kjarasamningum fyrir ör-
yrkja. Sem betur fer. Það er nefni-
lega þannig að hin ýmsu hagsmuna-
samtök hafa ekki misst rétt til að
koma að samningum um örorkubæt-
ur og önnur réttindamál. Kjör
flestra ellilífeyrisþega ráðast af af-
komu lífeyrissjóða.
Eldri borgarar eru í verri stöðu
því fulltrúar þeirra stéttarfélaga,
sem þeir áttu aðild að fara að hluta
til með vald yfir lífeyrissjóðum, og
þeir kunna að nota, eða öllu heldur
misnota, eignir þeirra í skiptimynt
til kjarabóta fyrir þá sem eru á
vinnumarkaði, á kostnað þeirra sem
eru á eftirlaunum.
Að drekka sig drukkinn
Á vakningasamkomum, hvort
heldur er hjá annars heims miðlum,
ellegar hjá Herkellingum, drekka
menn sig drukkna í Honum. „Sjáið
víngarðsmanninn, erfiðarann, þann
hinn mikla Jesúm Krist yðar frels-
ara, hann er að troða reiðiþrúgu
guðs þreyttur og örmagna, svitinn
rýkur af hans blessaða höfði.“
Nú er hinn nýi frelsari endurbor-
inn í mörgum verkalýðsfrelsaranum.
Verkalýðsfrelsararnir ætla að
ákveða stýrivexti Seðlabankans.
Þeir ætla jafnvel að ákvarða lána-
kjör á húsnæðismarkaði. Þar hefur
áður ríkt frelsi en nú skulu lán alls
ekki fylgja skilmálum, sem um semj-
ast milli lántaka og lánþega.
Sálarmiðlar, dr. Lára og dr. Indr-
iði, okkar tíma, munu eiga að ráða
lánstíma og stéttarfélagafrelsarar
munu ákvarða vexti.
Framboð lánsfjár kemur eftir sem
áður frá lífeyrissjóðum. Sjóðfélagar
munu borga fyrir þær veitingar sem
í boði verða.
Greiðslubyrði lána
„En við sem stöndum andspænis
lambinu, með hjörtun full af for,
hvað höfum við til að leggja fram á
móti þessum blessuðu innýflum þar
sem út koma blóð og vatn? Þið
standið hér á þessari stund frammi
fyrir hásæti lambsins, hjá blóðlækn-
um fríða sem einn getur þvegið ykk-
ur af öllum ykkar sálarkýlaskíta-
pestarkaunum.“
Það kann að vera að við sem göng-
um fram í þeirri dulinni að sá sem
rannsakar hjörtun og nýrun og lúng-
un muni ekki þekkja þekkja vor
hjörtu og nýru og lúngu. Hið nýja
mat er oss ókunnugt með öllu. Vér
skiljum ekki hina nýju fyrirgefn-
ingu.
Það eru tvö hugtök, sem aldrei
eru nefnd í umræðu um húsnæðislán
í kjarasamningum.
Það eru ávöxtunarkrafa og nú-
virði. Það eru þau hefðbundnu tæki
til að meta dýrleika lánsfjár. Í þess
stað eru komin „summufræði“, þar
sem lagðar eru saman heildar-
greiðslur á lánstíma, án þess að hug-
að sé að tímavirði lánsfjár. Það er
eins og ölvaðir erkibiskupar hafi lát-
ið í haf á konunglegri freigátu.
Það er einnig með öllu óljóst hvert
verður framboð lánsfjár í þessum
hugarheimi hins nýja hreina vín-
viðar.
Nú um stund lána lífeyrissjóðir
um 80% af lánum til húsnæðiskaupa
á Íslandi. Sumt lána þeir beint, ann-
að lána lífeyrissjóðir um farvegi
Íbúðalánasjóðs og enn annað lána
lífeyrissjóðir með sérvörðum skulda-
bréfum í gegnum hefðbundna
banka. Verður þetta í boði áfram?
Vonandi munu lífeyrissjóðir gæta
hagsmuna sinna sjóðsfélaga, þeirra
sem treysta því að lífeyrisgreiðslur
verði ekki skertar vegna óábyrgrar
hegðunar sálarhirða sinna. Þá þarf
ekki að spyrja; „hvað er í þessum
kjarasamningum fyrir okkur?“
Þessi lánaviðskipti hafa gengið vel
fyrir sig án þess að Todda trunta eða
Hanna halta hafi haft afskipti af
hlutum, sem þeim koma ekki við.
Vor synd
Vér sem lítum á vora synd, vora
stórkostlegu synd fyrir guði, með
því að greiða umsamdar greiðslur á
gjalddaga, þá viljum vér óska að sem
flestir gætu orðið aðnjótandi þess
frelsis og þeirrar sönnu gleði sem
maður verður aðnjótandi ef maður í
sannri auðmýkt beygir sín holdsins
og hjartans kné við krossinn. Vér
þurfum ekki annan kross.
Nú verða afborganir okkar hækk-
aðar, að öðru óbreyttu um 35% með
því að stytta lánstíma. Vér sem vilj-
um taka lán til bifreiðakaupa og
greiða upp á fimm árum með verð-
tryggðum kjörum, megum aðeins
greiða skemmst upp á 10 árum. Ef
vér greiðum upp lánið innan 10 ára,
þá er framinn glæpur, en sennilega
mun skorta refsiheimildir.
Í töflu hér til hliðar sjást greiðslur
af mismunandi lánum, með mismun-
andi lánaskilmálum, með sömu
ávöxtunarkröfu og sama núvirði, á
fyrsta ári lánstímans. Er ekki rétt
og eðlilegt að lántaki og lánveitandi
semji sín á milli um greiðslukjör í
syndinni? Tekið skal fram að hægt
er að greiða aukaafborganir án
kostnaðar fyrir lántaka. Það er önn-
ur synd.
Vínviður hreini
Áður en vér fáum ráðrúm til að
koma til sjálfra vor í leiðslu kjara-
samninga um lánskjör og vexti þá
skulum við syngja saunginn sem er
bersýnilega valinn til þess saman-
burðar sem Todda trunta gerði á
Jesú Kristi og hinu eina sanna
brennivíni:
Þú vínviður hreini, ó eilífi eini,
ég ein er sú greinin sem fest er við
þig.
Í gleði og harmi með himneskum
armi,
minn hjartkæri Jesú, þú umvefur mig.
Margt í texta greinarinnar er stol-
ið og staðfært. Önnur stúlknanna,
með hjörtu full af drullu, sagði mér
sína upplifun.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason
» Á vakningasam-
komum, hvort held-
ur er hjá annars heims
miðlum ellegar hjá Her-
kellingum, drekka menn
sig drukkna í Honum.
Vilhjálmur
Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Sálarkýlaskítapestarkaun
Fyrsta árs greiðsla af 1 mkr. húsnæðisláni
M.v. 3% raunávöxtun, 3% verðbólguálag og 6,09% ávöxtunarkröfu á ári
Óverðtryggt lán
með jöfnum ársgreiðslum
Venjubundið
verðtryggt lán
Lánstími Jafngreiðslulán Jafnar afborganir og vextir Jafngreiðslulán
40 ár 67.216,84 kr. 85.900,00 kr. 44.560,25 kr.
25 ár 78.896,95 kr. 100.900,00 kr. 59.150,71 kr.
Verðbólguálag greitt um leið og það reiknast Verðbólguálag greiðist á eftirstöðvum lánstímans