Morgunblaðið - 12.04.2019, Blaðsíða 30
30 ÚTVARP | SJÓNVARP
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019
Eins og fram hefur
komið á þessum vett-
vangi þá missi ég
helst ekki af Vikunni
með Gísla Marteini í
Ríkissjónvarpinu. Sá
ágæti þáttur er á hinn
bóginn þeirrar nátt-
úru að hann fer í sex
mánaða sumarfrí og
tveggja mánaða
jólafrí, auk þess að
víkja stundum fyrir
teppalögðum sparkleikjum, og þá þarf maður að
finna sér annað að gera. Ekki er maður víst
lengur gjaldgengur á galeiðunni.
Upp á síðkastið hefur rokkþátturinn Füzz (les-
ist: Föss) á Rás 2 í umsjá Ólafs Páls Gunnars-
sonar komið gríðarlega sterkur inn í mitt líf.
Þar svífur vönduð stemning yfir vötnum; eðal-
músík, létt spjall við rokkelska hlustendur og
góður almennur andi. Slagorð þáttarins eru líka
til útflutnings; eins og „margt smátt gerir ekki
rassgat“ og „hvað er þetta jass? Meira Füzz!“
Allar götur frá því að Siggi Sverris lokaði
Plötuskápnum og Inga Þór var sópað burt af
Næturvaktinni hef ég verið að leita að „mínum
þætti“ í útvarpinu og nú hef ég fundið hann.
Füzz er raunar orðinn svo mikilvægur partur af
föstudagskvöldunum á sveitasetri mínu að ég
veit ekki einu sinni hvort Gísli Marteinn er kom-
inn í sumarfrí.
Ljósvakinn Orri Páll Ormarsson
Margt smátt
gerir ekki rassgat
Óli Palli Fæddur til að
vera í útvarpi.
Morgunblaðið/Golli
RÚV
11.00 EM í fimleikum
14.00 92 á stöðinni
14.25 Séra Brown
15.10 Augnablik – úr 50 ára
sögu sjónvarps
15.25 Ísþjóðin með Ragnhildi
Steinunni
15.50 Í saumana á Shake-
speare – David
Harewood
16.45 Fjörskyldan
17.20 Landinn
17.55 Táknmálsfréttir
18.05 KrakkaRÚV
18.06 Hvergidrengir
18.30 Sögur – Stuttmyndir
18.35 Krakkafréttir
vikunnar
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Can’t Walk Away
21.15 Vikan með Gísla
Marteini
22.00 Ástardalurinn. Bannað
börnum.
23.35 Room. Bannað
börnum.
01.25 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok
Sjónvarp Símans
08.00 Dr. Phil
08.45 The Tonight Show
Starring Jimmy Fallon
09.30 The Late Late Show
with James Corden
10.15 Síminn + Spotify
12.00 Everybody Loves
Raymond
12.20 The King of Queens
12.40 How I Met Your Mother
13.05 Dr. Phil
13.45 Family Guy
14.10 Top Chef
15.00 Ally McBeal
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves
Raymond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Dr. Phil
18.15 The Tonight Show
Starring Jimmy Fallon
19.00 Younger
19.30 The Voice US
21.00 Transformers: Dark of
the Moon
23.35 Tropic Thunder
01.20 The Tonight Show
Starring Jimmy Fallon
02.05 NCIS
02.50 NCIS: New Orleans
03.35 The Walking Dead
Stöð 2
Hringbraut
Omega
N4
Rás 1 92,4 93,5
07.00 Blíða og Blær
07.30 Friends
07.50 Brother vs. Brother
08.35 Gilmore Girls
09.15 Bold and the Beautiful
09.35 Restaurant Startup
10.20 Splitting Up Together
10.40 The Night Shift
11.25 Deception
12.10 Feðgar á ferð
12.35 Nágrannar
13.00 Næturvaktin
13.25 Næturvaktin
13.50 Næturvaktin
14.25 Brad’s Status
16.05 Paris Can Wait
17.45 Bold and the Beautiful
18.05 Nágrannar
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Ísland í dag
19.10 Sportpakkinn
19.20 Veður
19.25 Making Child Prodigies
19.55 Made of Honor
21.35 The Commuter
23.20 American Made
01.15 All the Money in the
World
03.25 The Foreigner
05.15 Friends
20.00 Lífið er lag (e)
20.30 Fasteignir og heimili
(e)
21.00 21 – Úrval á föstudegi
endurt. allan sólarhr.
13.00 Joyce Meyer
13.30 The Way of the Master
14.00 Michael Rood
14.30 Gegnumbrot
15.30 Máttarstundin
16.30 John Osteen
17.00 Á göngu með Jesú
18.00 Benny Hinn
18.30 David Cho
19.00 Charles Stanley
19.30 Joyce Meyer
20.00 Country Gospel Time
20.30 Jesús Kristur er svarið
21.00 Catch the Fire
22.00 Times Square Church
23.00 La Luz (Ljósið)
23.30 The Way of the Master
24.00 Freddie Filmore
19.00 Að Austan
19.30 Landsbyggðir
20.00 Föstudagsþátturinn
endurt. allan sólarhr.
06.45 Morgunbæn og orð
dagsins.
06.50 Morgunvaktin.
07.00 Fréttir.
07.30 Fréttayfirlit.
08.00 Morgunfréttir.
08.30 Fréttayfirlit.
09.00 Fréttir.
09.05 Í ljósi sögunnar.
09.45 Morgunleikfimi.
10.00 Fréttir.
10.03 Veðurfregnir.
10.13 Óskastundin.
11.00 Fréttir.
11.03 Mannlegi þátturinn.
12.00 Fréttir.
12.02 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
12.50 Dánarfregnir.
12.55 Samfélagið.
14.00 Fréttir.
14.03 Brot af eilífðinni.
15.00 Fréttir.
15.03 Sögur af landi.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Grár köttur.
17.00 Fréttir.
17.03 Lestarklefinn.
18.00 Spegillinn.
18.30 Brot úr morgunvaktinni.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Flugur.
19.45 Hitaveitan.
20.35 Mannlegi þátturinn.
21.30 Kvöldsagan: Plágan.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar.
22.15 Samfélagið.
23.05 Lestarklefinn.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
12. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:07 20:51
ÍSAFJÖRÐUR 6:04 21:04
SIGLUFJÖRÐUR 5:47 20:47
DJÚPIVOGUR 5:35 20:23
Veðrið kl. 12 í dag
Suðaustan 10-23 m/s, hvassast með S-ströndinni. Dálítil rigning eða súld,
einkum SA-til, en hægari vindur og þurrt á N- og A-landi. Hiti 7 til 14 stig.
Á laugardag Suðaustan 13-23 m/s, hvassast við S-
ströndina. Rigning en úrkomulítið fyrir norðan.
Á sunnudag (pálmasunnudag) Sunnan 8-13. Rigning
sunnan til, mest suðaustanlands. Hiti 5 til 10 stig.
Limrur fyrir land og þjóð“ heit-ir limrubók eftir Braga V.
Bergmann sem nú er nýútkomin, –
og kærkomin vil ég segja. Hún er
skemmtilega upp byggð og svipar
að því leyti til Eddu Þorbergs
Þórðarsonar að hverri limru
fylgir heimspekileg hugleiðing
eða útskýring, þó ekki sé tekið
fram hvar hún sé ort né klukkan
hvað.
Gömul frænka Braga hafði alla
tíð verið mikill lestrarhestur og
lýsti fyrir honum viðamiklum bók-
menntasmekk sínum:
„Rómönsum fletti ég fyrst í,
fræðin ég seinna varð þyrst í.
Mér gamalli gott er
að grípa í Potter
en enda á Agöthu Christie.“
Bragi segir Íslendinga hömlu-
lausa og spyr: Hvar annars staðar í
heiminum er fólki boðið að borga
jólagjafirnar í mars, þremur mán-
uðum eftir „fjárfestinguna“? Svarið
er hvergi:
Um lúguna þrykkist með þjósti,
þungt er mér nú fyrir brjósti.
Ég gerist ó-glaður,
er glataður maður,
píndur – með gluggapósti.
Enn segir, að línan á milli þess að
vera slóttugur annars vegar og flá-
ráður eða falskur hins vegar geti
verið þunn eða mjó, – sumir komi
aldrei til dyranna eins og þeir eru
klæddir:
Að látast fannst Lárusi best
og lét sem hann kynni við flest
fram eftir ævi
og fannst það við hæfi.
Hann þóttist og lést uns hann lést.
Bragi hefur skemmtilegan inn-
gang að þessari limru enda er ís-
lenskan snúið tungumál:
Í fleirtölu bók verður bækur.
Beygingarvandinn er stækur.
Takmörkuð viska?
Þú verður að giska:
Er kók þá í fleirtölu kækur?
Hér segir frá sviplegu dauðsfalli
Guðfinnu húsfreyju að vetrarlagi:
Á Grímsstöðum Guðfinna bjó.
Hún gekk fram á hengju af snjó.
Á höfuðið skall, valt
og skildi að fallvalt
er lífið – um leið og hún dó,
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skemmtilega kveðið
6 til 9 Ísland vaknar Ásgeir Páll,
Jón Axel og Kristín Sif rífa lands-
menn á fætur með gríni og glensi
alla virka morgna. Sigríður Elva les
traustar fréttir á hálftíma fresti.
9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg
tónlist og góðir gestir reka nefið
inn.
12 til 16 Erna Hrönn Erna Hrönn
spilar skemmtilega tónlist og spjall-
ar um allt og ekkert.
16 til 18 Logi Bergmann og Hulda
Bjarna Logi og Hulda fylgja hlust-
endum K100 síðdegis alla virka
daga með góðri tónlist, umræðum
um málefni líðandi stundar og
skemmtun.
18 til 22 Heiðar
Austmann Betri
blandan af tón-
list öll virk kvöld
á K100.
22 til 2 Bekkj-
arpartí Öll bestu lög síðustu ára-
tuga sem fá þig til að syngja og
dansa með.
7 til 18 Fréttir Auðun Georg og
Sigríður Elva flytja fréttir á heila
tímanum, alla virka daga.
Fjölmiðlakonan og ráðgjafinn
Sirrý Arnardóttir sagði frá Face-
book- bindindi í spjalli við Loga
og Huldu á K100. Tilraunastarf-
semi Sirrýjar hófst við lestur
bókarinnar „Happyness project“
eftir Gretchen Rubyn. Samhliða
lestrinum var hún að skrifa eigin
bók „Þegar kona brotnar – leiðin
út í lífið á ný“. Í bókinni segja
konur úr ólíkum áttum frá kulnun
sinni og leiðinni út í lífið og
vinnumarkaðinn á ný. Allar töl-
uðu þær um neikvæðan saman-
burð við notkun samfélagsmiðla
og því hefði hún ákveðið að prófa
sjálf að hætta á Facebook. Við-
talið og niðurstöðu Sirrýjar er að
finna á k100.is.
Hætti á Facebook