Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 12.04.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 ✝ Sigrún Ágústs-dóttir fæddist í Reykjavík 1. mars 1942. Hún lést 9. mars 2019 á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni. Foreldrar henn- ar voru Sigurlaug Jónsdóttir frá Húsagarði í Land- sveit, f. 21. júlí 1912, d. 16. októ- ber 2007, og Ágúst Pétursson frá Skammbeinsstöðum í Holt- um, f. 11. ágúst 1911, d. 8. ágúst 1997. Systkini Sigrúnar eru Jón Garðar Ágústsson, f. 1941, kvæntur Ingimundu Lofts- dóttir, f. 6. mars 1906, d. 28. nóvember 1990, frá Bessastöð- um á Heggstaðanesi, og Aðal- steinn Teitsson, f. 20. febrúar 1909, d. 14. janúar 1957, frá Víðidalstungu í Víðidal. Sig- rúnu og Bessa varð ekki barna auðið en þau fóstruðu um níu ára skeið systkinin Bjarneyju, f. 25. október 1977, og Pál Helga, f. 27. maí 1979. Eftir landspróf vann Sigrún hjá endurskoðendum og á lögfræðistofu þar til hún hóf störf við bókhald hjá Orkustofn- un 1969. Haustið 1978 var hún ráðin ritari Hjörleifs Guttorms- sonar í iðnaðarráðuneytinu. Þar starfaði hún hjá fjórum ráð- herrum til 1985 að hún fluttist í menntamálaráðuneytið. Hún var svo ritari fimm mennta- málaráðherra þar til hún fór á eftirlaun haustið 2007. Útför Sigrúnar fór fram í kyrrþey 20. mars 2019. dóttur, f. 1940, Svava Ágústs- dóttir, f. 1943, gift Kristni Gunnars- syni, f. 1942, Hörð- ur Gunnar Ágústs- son, f. 1945, kvæntur Hönnu Larsen, f. 1941, Steingerður Ágústsdóttir, f. 1948, gift Þórði Guðmundssyni, f. 1945, og Áslaug Ágústsdóttir, f. 1950. Sigrún giftist 31. desember 1971 Bessa Aðalsteinssyni, f. 11. september 1943. Foreldrar hans voru Guðný Ingibjörg Björns- Það var mesta gæfa mín í lífinu að kynnast Sigrúnu þegar hún kom til starfa á Orkustofnun 1969. Það tók þónokkurn tíma fyrir okkur að ná saman, mest vegna þess að ég þorði ekki að reyna við þessa flottu, freknóttu stelpu, þó svo að ég væri bálskot- inn í henni. Það kom svo fljótt í ljós að við áttum býsna vel saman þó að ólík værum. Hún var sterk- ur karakter, fjörug og mann- blendin, ég frekar þungur á bár- unni. Það fór enda svo að það var hún sem bað mín fjórum dögum fyrir jól 1971. Þá þurfti hraðar hendur til að drífa þetta af fyrir áramót, enda aðaltilgangurinn, að hennar sögn, að fá skattafslátt á næsta ári. Ég var svo heppinn að hún féll algjörlega fyrir hálendi Íslands sem hún hafði ekki séð mikið af áður. Henni fannst skemmtileg- ast að ferðast þar um og var víða farið. Smám saman höfðum við farið nánast um allt land enda alltaf heima á sumrin. Um fimm- tán ára skeið áttum við breyttan jeppa sem notaður var til ferða- laga árið um kring, m.a. í vetr- arferðir í snjó og á jöklum. Þar á meðal var vikuferð á Grímsfjall í vorferð Jöklarannsóknafélagsins, í rjómablíðu alla dagana. Óhætt er að segja að Sigrún hefði notið sín betur við meira skapandi störf en þau sem urðu hennar ævistarf. Hún var mjög listræn en skorti kannski sjálfs- traust til að fara út á slíkar braut- ir. Afar vinsælt var að fá hana til að hjálpa fólki að skipuleggja innbú, hengja upp myndir og ann- að af því tagi. Á yngri árum mál- aði hún á postulín og eru ótal gripir til eftir hana, mest innan fjölskyldunnar. Þar á meðal er tólf manna kaffistell með íslenskri jurt á hverju pari, bolla og diski, engin tvö pör eins. Þegar ljóst var orðið að okkur tækist ekki að eignast barn sam- an reyndum við að fá barn eða börn ættleidd að utan. Það ferli var komið á lokastig vorið 1984 þegar við vorum beðin að taka tvö móðurlaus systkini í fóstur. Þau Bjarney og Páll Helgi komu til okkar í apríllok og voru hjá okkur í níu ár. Mjög kært varð með okk- ur og þessum börnum. Það var því algerlega gegn okkar vilja að fóstrinu lauk og tóku þau málalok mjög á okkur bæði, en mun meira á Sigrúnu. Upp úr því tóku við tíðari ferðir til útlanda, m.a. til Kína, Egypta- lands og Suður-Afríku, auk ým- issa styttri ferða, en sú lengsta var farin 2012. Sigrún hafði ákveðið að vera að heiman á sjö- tugsafmælinu þannig að Eyjaálfa kom fljótt upp sem áfangastaður. Þangað höfðum við lengi ætlað hvort eð var. Úr varð frábær fimm vikna ferð með enskri ferða- skrifstofu. Sigrún greindist með Alzheim- er-sjúkdóminn snemma árs 2016 en fyrstu einkennin urðu ljós að- eins um tveimur árum fyrr. Ári eftir greiningu var hún á deild L4 á Landakotsspítala en áður í dag- þjálfun í Hlíðabæ í um fjóra mán- uði. Síðustu 18 mánuðina var hún svo á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Alls staðar var afar vel um hana hugsað og færi ég öllu starfsfólki á þessum stöðum mínar innileg- ustu þakkir. Í þríleik Jóns Kalmans Stef- ánssonar um „strákinn“ segir eitthvað á þá leið að hinir látnu öðlist framhaldslíf í minningum þeirra er eftir lifa. Og ekki vantar minningar um hana Sigrúnu mína. Bessi. Elsku Sigrún mín. Nú er sá dagur kominn sem ég hef óttast hvað mest, að þú næðir að kveðja áður en ég næði að kveðja þig. Ég hef byrjað á mörg- um bréfum til þín í gegnum tíðina en aldrei náð að klára, en núna kemur bréfið mitt til þín. Alveg frá upphafi hefur þú átt svo rosalega stóran part í hjarta mínu sem þú munt alltaf eiga. Þú gafst mér heimili þegar ég átti það ekki, þú gafst mér ást þegar ég þarfnaðist þess hvað mest og þú gafst mér von þegar ég hafði enga. Því mun ég aldrei gleyma og fyrir það verð ég þér ævinlega þakklátur. Þú fórnaðir öllu fyrir mig – ég áttaði mig ekki á því þá en sé það svo vel í dag. Þolinmæðin, kær- leikurinn og væntumþykjan sem þú gafst mér blasir við mér í dag. Alveg frá upphafi var ég rosa- legur mömmustrákur og sleit mig sjaldan langt frá þér. Alltaf vildi ég fara með þér hvert sem leið þín lá, þegar þú fórst að hitta vinkon- ur þínar, hvort sem þið voruð að spá í bolla eða tala um daginn og veginn, eða hanga yfir pottunum hjá þér meðan þú varst að elda. Já, ég bókstaflega hékk í pilsfald- inum hjá þér. Það komu þó tímar þegar ég fann að ég særði þig mikið, til dæmis þegar ég kom ekki heim á réttum tíma og lét ekki vita af mér, þegar ég borðaði allar kök- urnar sem þú hafðir bakað kvöld- ið áður og ætlaðir að fara með á foreldrafundinn og öll hin atvikin þegar ég gerði eitthvað af mér. Ég gleymi aldrei stingnum sem ég fékk í hjartað við það, því þú varst allra síðasta manneskjan sem ég vildi særa. Þú átt svo mikið í mér og þeim manni sem ég er í dag. Ég heyrði í þér, jafnvel þótt þér hafi kannski ekki fundist ég hafa hlustað á þig á sínum tíma; ég heyrði í þér og bý að því enn þann dag í dag. Öll þessi ár sem við áttum saman eru mér svo dýrmæt, allar þessar stundir, öll þessi ferðalög og öll þessi samvera. Ég fer alltaf á ein- hvern fallegan og sérstakan stað í huga mér þegar ég hugsa til baka um þennan tíma sem þú gafst mér. Svo gerðist ýmislegt sem ég hélt að ég hefði þroska til að tak- ast á við en ég hafði það ekki held- ur festist í hringiðu sem enn í dag gerir mig ringlaðan. Þetta varð langt tímabil sem tók á og hefur tekið mikið á öll þessi ár með ótal hugsunum um „ef og hefði“. Ég hef saknað þín svo ótrúlega mikið og hugsað mikið um þig í gegnum tíðina. Ég get ekki útskýrt af hverju við endurnýjuðum ekki kynnin – eins mikið og mig langaði til þess – en það þýðir lítið að dvelja í for- tíðinni heldur vil ég frekar gera það sem ég get gert í dag, reynsl- unni ríkari. Ég vil samt segja hvað mér þykir þetta allt leitt, sérstaklega að þú hafir ekki fengið að kynnast stelpunum mínum, þessum stelp- um sem þú átt svo heilmikið í. Ég hef reynt að gefa þeim það sem þú gafst mér; algjöran for- gang, tíma, ást og risastóra bóm- ull til að vefja utan um þær. Minning þín mun lifa með mér og með stelpunum að eilífu, minn- ingin um yndislegu konuna sem passaði svo vel upp á pabba þeirra, minningin um hana Sig- rúnu. Þinn Páll (Palli). Elsku Sigrún mín. Ef ég bara gæti snúið við núna, farið aftur í tímann, bankað upp á hjá þér og tekið utan um þig, setið hjá þér, sagt þér frá öllu, hlustað á þig, hlegið með þér og grátið. Haldið í höndina á þér þegar þú varst veik. Það syrgir mig mjög að hafa ekki náð að segja þér hversu dýr- mæt þú hefur verið í mínu lífi. Hversu þakklát ég er fyrir að þú hafir komið inn í mitt líf á þeim tímapunkti sem ég þurfti einmitt á þér að halda. Ég man þegar ég hitti þig fyrst, þá sat ég og leiraði þegar þú birtist, settist hjá mér og fórst að leira með mér. Þar fann ég strax þína góðu og notalegu návist og ég man hvað ég hlakkaði til að sjá þig aftur. Fljótlega eftir það varstu orðin mamma mín. Þú varst kletturinn minn og fyrirmynd. Þú leiddir mig í gegn- um mörg þroskaskeið og varst alltaf svo ráðagóð þegar ég leitaði til þín. Ég er svo stolt og þakklát fyrir að hafa fengið að vera dóttir þín og bý nú að því veganesti sem þú gafst mér. Við systkinin hefðum ekki get- að verið heppnari með foreldra, þið opnuðuð fallega heimilið ykk- ar, gáfuð okkur hlýju, öryggi og ást. Þið gáfuð okkur allt það sem ég vil gefa börnunum mínum í dag. Fallegar minningar um þig munu alltaf ylja mér. Hvíldu í friði elsku mamma. Þín Bjarney. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér, ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt sem sólskinsdagur, samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu, ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þetta fallega ljóð segir svo margt um hana Sigrúnu, elsku stóru systur mína, sem lést 9. mars sl. á hjúkrunarheimilinu Sóltúni eftir snögg veikindi. Það eru svo margar minningar sem koma upp hjá mér núna eftir hennar dag. Við vorum mjög nán- ar, þó svo að átta ár væru á milli okkar, vorum reyndar frekar lík- ar bæði í útliti og skapgerð. Hún var afskaplega skemmti- legur karakter, var algjör bóhem á yngri árum, en róaðist talsvert eftir að hún kynntist sínum eðal- manni, honum Bessa. Við brölluð- um margt saman, fórum í göngu- ferðir með hundana mína og svo kom hún yfirleitt til mín hvern föstudag í mörg ár þegar Bessi var að hitta félaga sína yfir bjór. Hún keyrði hann og sótti, og það kom nú fyrir að hún fann ekki símann í veskinu þegar hann Sigrún Ágústsdóttir ✝ Bára ÞorbjörgJónsdóttir fæddist í Reykjavík 20. september 1943. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold í Garðabæ 2. apríl 2019. Foreldrar henn- ar voru Jón Þor- bergur Jóhann- esson og Ragna Sigurgísladóttir, bæði látin. Systkini Báru voru Hrefna, Helga, Sverrir og hálf- bróðir Sveinn Theodór, þau eru öll látin. Bára var gefin í fóstur til hjónanna Önnu Margrétar Jóns- dóttur og Björns Jónatanssonar í Stykkishólmi við skilnað for- eldra sinna, þá fjög- urra ára gömul, og ólst hún þar upp. Hún giftist Ein- ari Bjarna Bjarna- syni, f. 16. júlí 1938, þann 7. júlí 1962. Börn þeirra eru 1) Arndís Einars- dóttir, f. 1960, gift, Róberti Kristjáns- syni, börn Arndísar af fyrra hjónabandi a) Sandra Björk Ragnarsdóttir, gift Sigurði Júlíusi Sigurðssyni, eiga þau fjögur börn, a) Arndísi Elvu. b) Björgvin Atla. c) Bjarn- eyju Eir. d) Önju Marý. b) Símon Elvar Rúnarsson. 2) Bjarni Einar Einarsson, f. 1962, sambýliskona Eydís Garðarsdóttir, börn þeirra a ) Garðar, b) Bergdís Lind. 3) Björn Anton Einarsson, f. 1964, kvæntur Gróu Linddísi Dal, börn þeirra a) Sveinn Dal, kvæntur Alexu Herrera, þau eiga soninn Emerick Dal en fyr- ir á Sveinn soninn Bjarna Anton Dal. b) Stefán Hrannar Dal, gift- ur Hildi Ýri Haraldsdóttur og eiga þau soninn Björn Ágúst Dal. c) Bára Dal, gift Lárusi Gunnólfssyni, eiga þau Linddísi Lilju Dal og Evu Sóleyu Dal. 4) Heimir Skúli Einarsson, f. 1966, sambýliskona Aðalheiður Jóhannesdóttir, eiga þau Hug- rúnu Líf og Heiðar Loga, en fyr- ir á Heimir Rakel Patriciu. 5) Anna Margrét Einars- dóttir, f. 1979, gift Gunnlaugi Reyni Sverrissyni, eiga þau börnin a) Emilíu Björk. b) Bene- dikt Einar. c) Vigdísi Ýri. Útför Báru Þorbjargar fer fram frá Garðakirkju á Álfta- nesi í dag, 12. apríl 2019, klukk- an 15. Við kveðjum hana Báru okkar með mikilli þökk. Við söknum glaðra stunda, smitandi hláturs og þessarar hlýju sem einkenndi hana alltaf. Í fyrrasumar hittumst við fjórar saman í síðasta sinn. Og enn hlógum við að sömu vitleys- unum, rifjuðum upp skammar- strikin, ferðalögin í sumar- bústaðina og svo upphafið, þegar átta ungar konur, allar með lítil börn ákváðu að stofna sauma- klúbb og hittast reglulega. Fyrstu árin var þetta alvöru saumaklúbb- ur, borðin svignuðu undan tertun- um. Við saumuðum, prjónuðum, hlógum og lífið var dásamlegt. Smátt og smátt varð þetta bara vettvangur fyrir okkur til að tala saman, trúa hópnum fyrir vanda- málunum og deila gleðistundun- um. Bára þurfti snemma að hafa fyrir lífinu. Margir Hólmarar muna hana fyrst í Björnssjopp- unni, Það var skúr á horninu á Eg- ilshúsi sem þá kallaðist Settuhöll. Í sjoppunni fékkst sælgæti en fyrst og fremst hinn unaðslegi bleiki ís. Bára fór snemma að að- stoða fóstra sinn og hún var flink að skafa ísinn niður í kramarhús- in, þó hún næði varla ofan í ísk- istuna. Það var nauðsynlegt að borga og flýta sér út, því að þennan dýrðlega ís varð að borða áður en hann bráðnaði, annars varð hann að bleiku vatni. Hún var svo falleg með ljósa hárið og oftast með fléttur. Hún var líka mjög dugleg að læra, var alltaf meðal efstu í sínum bekk. Við vitum að hana langaði mikið til að fara í menntaskóla. Það lýsir góðum gáfum hennar, að um tíma tók hún útlendinga í stunda- kennslu í íslensku. En hún varð að annast fóstra sinn og fóstru, Björn og Önnu, í veikindum þeirra. Var það henni mjög erfitt. Þau tóku hana að sér þegar hún var þriggja ára og hún ólst upp hjá þeim í Stykkishólmi, í Settuhöllinni sem þau áttu að hluta. En ung féll Bára fyrir ungum sveitastrák frá Hömluholti í Eyjahrepp, sem kom á sjó í Hólminum. Hann Einar Bjarnason var líka mikill „sjarm- ör“. Þau byrjuðu að búa í Settu- höllinni og eignuðust fimm börn. Þau voru glæsilegt par og einstak- lega flott á dansgólfinu. Og glæsi- leg var hún alla tíð. Svo eftir böllin var haldið áfram heima hjá þeim, teppinu rúllað af stofunni og dans- að. Bára var alger snillingur í höndum. Hún klippti, greiddi og snyrti margar konur fyrir hátíð- arstundir. Handavinna af öllu tagi var henni list. Hún gat saumað fal- leg föt nánast úr engu. Hún vann líka mikið utan heimilisins en samt Bára Þorbjörg Jónsdóttir Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og dóttir, VIGFÚSÍNA B. PÁLSDÓTTIR, lést þriðjudaginn 9. apríl á Landspítalanum, Hringbraut. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 27. apríl klukkan 14. Jóhann Kiesel Páll Heimisson Daniel Bagarean Jóhann Bergur Kiesel Sigrún Bessý Guðmundsdóttir Dagbjört Ýr Kiesel Kristinn Magnús Pétursson Birgir Páll Kiesel Kristinsson Guðrún Magnúsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS GEORG SIGURODDSSON rafmagnstæknifræðingur, Sóltúni 28, Reykjavík, lést á Landspítalanum að morgni þriðjudagsins 9. apríl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 16. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Guðrún Ragnheiður Þorvaldsdóttir Guðrún Anna Magnúsdóttir Fanney Magnúsdóttir Ragnheiður H. Magnúsdóttir Magnús Logi Magnússon barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BALDUR INGIMAR SIGURÐSSON frá Vesturhlíð í Skagafirði, lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks þriðjudaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju miðvikudaginn 17. apríl klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á deild 5 á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks. Margrét S. Pétursdóttir Hrafnhildur Baldursdóttir Sigurður Baldursson Sigurður U. Baldursson Þórunn Eyjólfsdóttir Gunnar M. Baldursson Margrét Hilmarsdóttir Pétur Heiðar Baldursson Halla Björk Marteinsdóttir Baldur Ingi Baldursson María Ósk Haraldsdóttir Sigrún J. Baldursdóttir Óli Olsen Guðrún B. Baldursdóttir Borgþór Bragi Borgarsson Hilmar A. Baldursson Aðalbjörg Hallmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.