Morgunblaðið - 12.04.2019, Side 24

Morgunblaðið - 12.04.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. EM 2020 Ívar Benediktsson iben@mbl.is Eins og sakir standa er ekki útlit fyrir að tap íslenska landsliðsins í handknattleik fyrir landsliði Norð- ur-Makedóníu í Laugardalshöllinni í fyrrakvöld, 33:34, komi í veg fyrir að landsliðið tryggi sér þátttökurétt í lokakeppni EM á næsta ári. Meira þarf að bera út af hjá íslenska liðinu í þeim þremur leikjum sem það á eftir svo leikmenn sitji eftir með sárt ennið. Hinsvegar getur tapið orðið til að íslenska liðið verði ekki í efsta sæti riðilsins þegar öllum leikjum verður lokið. Það gæti þýtt að íslenska landsliðið færist ekki upp í annan styrkleikaflokk úr þeim þriðja þegar dregið verður í riðla fyrir lokakeppnina í sumar. Tvö efstu lið hvers af átta riðlum undankeppninnar tryggja sér keppnisrétt í lokakeppni EM. Auk þess þá fara fjögur af átta liðum sem verða í þriðja sæti riðlanna einnig áfram. Sem stendur þá er ís- lenska liðið í öðru sæti þriðja riðils á eftir Norður-Makedóníu. Óvæntur sigur Tyrkja á Grikkjum varð til þess að að Grikkir komust ekki að upp að hlið Norður-Makedóníu og Íslands með fjögur stig. Grikkir og Tyrkir hafa tvö stig. Sigur breytir stöðunni Framundan hjá íslenska landslið- inu er annar leikur við Norður- Makedóníumenn í Skopje á sunnu- daginn. Flautað verður til leiks kl. 18 að íslenskum tíma. Vinni íslenska liðið með a.m.k. eins marks mun endurheimtir það efsta sætið. Enn betra væri að vinna með a.m.k. tveggja marka mun og hafa þar með betur í innbyrðisleikjum við Norð- ur-Makedóníumenn, komi til þess að lið þjóðanna verði jöfn að stigum þegar riðillinn verður gerður upp í júní. Tapi íslenska liðið leiknum eða geri jafntefli halda Norður- Makedóníumenn efsta sætinu fram að lokaleikjunum í um miðjan júní. Hinn 12. júní sækir íslenska lans- liðið það gríska heim til Kozani í norðurhluta Grikklands. Fjórum dögum síðar mætir íslenska lands- liðið tyrkneska landsliðinu í Laug- ardalshöll. Tveir sigrar, einn sigur og jafntefli eða jafnvel einn sigur ásamt tapi í lokaleikjunum tveimur mun tryggja íslenska liðinu annað sæti riðilsins og þar með öruggt sæti í elleftu lokakeppni EM í röð. Íslenska landsliðið hélt í morgun til Skopje, höfuðborgar Norður- Makedóníu. Reikna má með að við ramman reip verði að draga fyrir Íslendinga. Norður-Makedón- íumenn hafa ekki lagt í vana sinn að tapa á heimavelli í hinni glæsilegu Boris Trajkovski-íþróttahöll. Í und- ankeppni EM 2018 tapaði íslenska landsliðið fyrir Norður-Makedón- íumönnum með fimm marka mun í íþróttahöllinni, 30:25, fyrir framan tæplega sjö þúsund háværa áhorf- endur. Níu leikmenn íslenska lands- liðsins í dag tóku þátt í þeirri við- ureign. Engin regla er þó án undantekninga og 18. mars 2009 vann íslenska landsliðið, þá einnig undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar, sigur á Makedón- íumönnum í Skopje, 29:26 í und- ankeppni EM 2010. Aron Pálm- arsson fór á kostum í leiknum, aðeins 18 ára gamall. Ýmislegt þarf að bæta Til að vinna leikinn á sunnudag- inn er ljóst að íslenska landsliðið verður að leika mikið betri varn- arleik en það gerði í Laugardalshöll í fyrrakvöld. Til viðbótar verður einnig að vera fyrir hendi mark- varsla. Hún var ekki upp á marga fiska í Laugardalshöll á mið- vikudagskvöld, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þegar íslenska lands- liðið vann Norður-Makedóníu á HM í janúar sl., 24:22, var varnarleik- urinn til fyrirmyndar auk þess sem Björgvin Páll Gústavsson varði allt hvað af tók. Ekki má gleyma sóknarleiknum. Hann var góður á löngum köflum í fyrrakvöld, ekki síst vegna þess að Aron Pálmarsson fór hamförum. Fleiri sóknarmenn verða að leggja í púkkið á sunnudaginn. Ekki er hægt að ætlast til þess að Aron geti átt tvo viðlíka stórleiki í röð þótt frábær handknattleiksmaður sé. Eins og kemur fram í grein hér fyrir neðan þá skipti Guðmundur Þórður úr markvarðarparinu áður en hann hélt til Makedóníu í morg- un. Djörf ákvörðun hjá Guðmundi og sennilega sú stærsta sem snýr að markvörðum landsliðsins síðan hann ákvað að velja Björgvin Pál Gústavsson umfram Birki Ívar Guð- mundsson fyrir Ólympíuleikana í Peking fyrir 11 árum. Ómar Ingi Magnússon fær ekki leikbann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk á síðustu sekúndum leiksins í fyrrakvöld. Hvers vegna rautt og víti? Margir hafa velt fyrir sér af hverju Ómar Ingi fékk rautt spjald á síðustu sekúndum leiks Íslands og Norður-Makedóníu í fyrrakvöld eft- ir að dæmd voru á hann skref. Ástæðuna er finna á bls 36 í leik- reglubókinni, regla, 8:10, c-liður: „Ef að boltinn er úr leik á síðustu 30 sekúndum leiksins og leikmaður eða starfsmaður liðs kemur í veg fyrir eða tefur framkvæmd kasts mótherja, til þess að hindra þá í að ná skoti á mark eða að fá upplagt markfæri, skal útiloka hinn brotlega leikmann/starfsmann og vítakast skal dæmt til handa mótherjunum. Þetta á við um allt sem veldur trufl- un (s.s., með lítilli líkamlegri snert- ingu, stöðva sendingu, trufla mót- töku bolta, sleppa ekki bolta).“ Tækifæri er til þess að snúa við taflinu í Skopje  Annað sæti í riðlinum kæmi í veg fyrir hugsanlega hækkun um styrkleikaflokk Morgunblaðið/Eggert Ósigur Íslensku landsliðsmennirnir voru að vonum daufir í dálkinn eftir hinn dramatíska ósigur í fyrrakvöld. Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, tók þá ákvörðun í gær að veðja á markverðina Ágúst Elí Björgvinsson og Viktor Gísla Hall- grímsson í síðari leiknum við Norð- ur-Makedóníu í undankeppni EM sem fram fer í Skopje á sunnudag- inn. Björgvin Páll Gústavsson og Aron Rafn Eðvarðsson náðu sér ekki á strik í viðureigninni í fyrra- kvöld í Laugardalshöll og var Guð- mundur ómyrkur í máli yfir frammistöðu þeirra. Fjarvera Björgvins Páls er at- hyglisverð vegna þess að hann hef- ur verið aðalmarkvörður landsliðs- ins frá Ólympíuleikunum í Peking 2008. Síðan hefur hann aðeins misst úr einn mótsleik, gegn Þjóðverjum í undankeppni EM í mars 2011 vegna höfuðhöggs. Ágúst Elí, sem leikur með Säve- hof í Svíþjóð, var annar markvörð- ur íslenska landsliðsins á HM í upp- hafi ársins. Viktor Gísli, sem verður 19 ára í júlí, er markvörður Fram. Hann fékk eldskírn sína með A- landsliðinu á fjögurra þjóða móti í Bergen fyrir réttu ári. Guðmundur veðjar á Ágúst Elí og Viktor Mjólkurbikar karla Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð: Ýmir – Afríka ............................................ 6:1 Fram – GG ................................................ 2:1  Ýmir mætir Fram. Elliði – Álafoss.......................................... 8:1  Elliði mætir Mídasi eða Ísbirninum. ÍR – SR...................................................... 5:0  ÍR mætir Skallagrími eða KV. Afturelding – Léttir ................................. 6:0  Afturelding mætir Selfossi eða Þrótti V. Grótta – Álftanes ...................................... 8:2  Grótta mætir KFR eða KH. Evrópudeild UEFA 8-liða úrslit, fyrri leikir: Arsenal – Napoli ...................................... 2:0 Aaron Ramsey 15., sjálfsmark 25. Benfica – Eintracht Frankfurt .............. 4:2 Joao Felix 21.(víti), 43., 54., Ruben Dias 50. – Luka Jovic 40., Goncalo Paciencia 72. Rautt spjald: Evan N’Dicka (Eintracht) 20. Slavia Prag – Chelsea ............................. 0:1 Marcos Alonso 86. Villarreal – Valencia............................... 1:3 Santi Cazorla 36.(víti) – Goncalo Guedes 6., 90., Daniel Wass 90. KNATTSPYRNA Dominos-deild kvenna Undanúrslit, þriðji leikur: Valur – KR ............................................ 85:87  Staðan er 2:1 fyrir Val. NBA-deildin Atlanta – Indiana.............................. 134:135 Brooklyn – Miami............................... 113:94 Charlotte – Orlando ......................... 114:122 New York – Detroit............................ 89:115 Philadelphia – Chicago .................... 125:109 Memphis – Golden State.................. 132:117 Milwaukee – Oklahoma City ........... 116:127 San Antonio – Dallas .......................... 105:94 Denver – Minnesota............................. 99:95 LA Clippers – Utah ................. (frl.) 143:137 Portland – Sacramento .................... 136:131 Lokastaða í Austurdeild: Milwaukee 60/22, Toronto 58/24, Phila- delphia 51/31, Boston 49/33, Indiana 48/34, Brooklyn 42/40, Orlando 42/40, Detroit 41/ 41, Charlotte 39/43, Miami 39/43, Wash- ington 32/50, Atlanta 29/53, Chicago 22/60, Cleveland 19/63, New York 17/65.  8-liða úrslit: Milwaukee – Detroit, To- ronto – Orlando, Philadelphia – Brooklyn, Boston – Indiana. Lokastaða í Vesturdeild: Golden State 57/25, Denver 54/28, Portland 53/29, Houston 53/29, Utah 50/32, Okla- homa City 49/33, San Antonio 48/34, LA Clippers 48/34, Sacramento 39/43, LA La- kers 37/45, Minnesota 36/46, Memphis 33/ 49, New Orleans 33/49, Dallas 33/49, Phoe- nix 19/63.  8-liða úrslit: Golden State – LA Clippers, Denver – San Antonio, Portland – Okla- homa City, Houston – Utah. KÖRFUBOLTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.