Morgunblaðið - 12.04.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2019
Á HLÍÐARENDA
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
KR er enn á lífi í undanúrslitaeinvígi
sínu gegn Val um Íslandsmeistara-
titil kvenna í körfubolta eftir 87:85-
sigur á Hlíðarenda í gærkvöldi. Stað-
an í einvíginu er nú 2:1, Val í vil. Með
sigri hefði Valur tryggt sér sæti í úr-
slitum og sent KR í sumarfrí, en það
var ekki á dagskránni hjá KR-ingum,
sem spiluðu afar vel á erfiðasta úti-
velli landsins.
Lykill KR-inga var glæsileg nýting
fyrir aftan þriggja stiga línuna, eða
48 prósent. 15 af 31 skoti fyrir utan
línuna rataði ofan í körfuna á meðan
aðeins 32 prósent af skotum fyrir
innan fór ofan í. Kiana Johnson,
bandarískur leikstjórnandi KR, skor-
ar oft meira en í gær. Hún gerði 14
stig og komu 10 þeirra af vítalínunni.
Hún gerði hins vegar virkilega vel í
að búa til sóknir sem enduðu með frí-
um samherja fyrir aftan þriggja
stiga línuna. Hún las leikinn hárrétt
og hélt áfram að mata liðsfélaga sína
og þá sérstaklega Ástrós Lenu Ægis-
dóttur sem skoraði úr 7 af 11 þriggja
stiga skotum sínum.
Það segir allt sem segja þarf að
Valur skoraði úr 29 skotum utan af
velli og KR 26 skotum. KR fékk að
meðaltali fleiri stig fyrir hverja
körfu. Þótt það hafi virkað í gær,
getur KR ekki treyst á svona nýt-
ingu fyrir utan þriggja stiga línuna í
hverjum leik. KR þarf enn að vinna
tvo leiki til viðbótar gegn gríðarlega
sterku Valsliði. Sigurinn í gær ætti
að gefa KR byr undir báða vængi,
en sært Valslið er stórhættulegt.
Sóknarleikur Valskvenna var
nokkuð góður, þrátt fyrir tapið. Þær
náðu að spila sig í góð færi hvað eft-
ir annað og var nýting þeirra fyrir
innan tveggja stiga línuna góð. Í
vörninni gekk hins vegar bölvan-
lega að koma í veg fyrir opin skot
KR-inga. Valur tapaði síðast í lok
nóvember, einmitt gegn KR. Mót-
lætið fór sérstaklega illa í Darra
Frey Atlason, þjálfara Vals. Það er
stundum erfitt að tapa þegar þú ert
ekki vanur því og Darri missti
stjórn á skapi sínu í fjórða leikhluta
og var réttilega rekinn út úr húsi.
Hann skildi liðið sitt eftir í slæmri
stöðu, undir í leiknum, og án þjálf-
ara fyrir mikilvægan lokakafla í
undanúrslitaeinvígi. Darri er ungur
og lærir vonandi af þessu.
KR fann leið til að vinna Val
KR enn á lífi eftir sigur á Hlíðarenda
Fyrsta tap Vals síðan í nóvember
Morgunblaðið/Eggert
Stigahæst Vilma Kesänen skorar tvö af 23 stigum sínum í gær.
Ensku liðin Arsenal og Chelsea
standa ágætlega að vígi með að
komast í undanúrslit Evrópudeild-
arinnar í knattspyrnu en fyrri leik-
ir átta liða úrslitanna fóru fram í
kvöld.
Arsenal lagði ítalska liðið Napoli
á heimavelli, 2:0, þar sem Aaron
Ramsey skoraði eftir 15 mínútna
leik eftir sendingu frá Ainsley Mait-
land-Niles og tíu mínútum síðar
skaut Lucas Torreira í varnarmann
Napoli og í netið. Þar við sat þrátt
fyrir ágæt færi beggja liða.
Chelsea fór til Prag og lagði
þar Slavia að velli, 1:0. Allt stefndi
þó í markalaust jafntefli en Marcos
Alonso skoraði sigurmarkið á 86.
mínútu eftir sendingu frá Willian.
Portúgalinn Joao Félix varð
yngstur til að skora þrennu í Evr-
ópudeildinni þegar Benfica vann
heimasigur á þýska liðinu Eint-
racht Frankfurt, 4:2, í Lissabon.
Hann er 19 ára og 152 daga gamall
og bætti met Króatans Marko Pjaca
frá árinu 2014 um 67 daga en Pjaca
skoraði þá þrennu fyrir Dinamo
Zagreb í 4:3 sigri á Celtic frá Skot-
landi. vs@mbl.is
Ensku liðin standa vel
AFP
Mark Arsenal fagnar fyrra markinu sem Aaron Ramsey skoraði.
Origo-höll, undanúrslit kvenna, þriðji
leikur, fimmtudag 11. apríl 2019.
Gangur leiksins: 5:5, 15:11, 20:16,
23:20, 29:25, 32:29, 36:35, 40:38,
42:49, 46:55, 53:58, 55:60, 59:65,
61:67, 66:72, 71:77, 81:87, 85:87.
Valur: Heather Butler 25/5 frá-
köst/5 stoðs., Helena Sverrisdóttir
17/11 fráköst/6 stoðs., Simona Po-
desvova 11/12 fráköst, Guðbjörg
Sverrisdóttir 10/4 fráköst, Bergþóra
Holton 6, Hallveig Jónsdóttir 5, Ásta
Júlía Grímsdóttir 4, Dagbjört Karls-
Valur – KR 85:87
dóttir 4, Dagbjört Samúelsdóttir 3.
Fráköst: 30 í vörn, 12 í sókn.
KR: Vilma Kesanen 23, Ástrós Lena
Ægisdóttir 21, Orla O’Reilly 18/13
fráköst, Kiana Johnson 14/6 frá-
köst/11 stoðs./5 stolnir/3 varin
skot, Unnur Tara Jónsdóttir 7/7 frá-
köst, Þorbjörg A. Friðriksdóttir 4.
Fráköst: 24 í vörn, 6 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Egg-
ert Aðalsteinsson, Sigurbaldur Frí-
mannsson. Áhorfendur: 140.
Staðan er 2:1 fyrir Val.
Annað árið í röð mætast Fram og
Valur í úrslitum Íslandsmóts
kvenna í handknattleik. Fram er
meistari síðustu ára en Valur á
heimaleikjaréttinn þar sem liðið
varð deildarmeistari en Fram hafn-
aði í öðru sæti í Olís-deildinni.
Merkileg er sú staðreynd að þessi
Reykjavíkurlið mætast nú í fimmta
skipti í úrslitum frá árinu 2010.
Þennan áratuginn hafa þessi lið átt
sviðið ef frá eru skilin tvö ár þar
sem Grótta braut upp Íslandsmótið
og varð Íslandsmeistari.
Úrslitarimman hefst 23. apríl og
liðin fá því góðan tíma til að undir-
búa sig og safna kröftum. Þá verð-
ur fyrsti leikurinn á Hlíðarenda á
þriðjudegi. Liðin fá aðeins einn leik
á milli fyrstu tveggja leikjanna því
annar leikurinn verður í Safamýri
þriðjudaginn 25. apríl. Þriðji leik-
urinn verður á Hlíðarenda sunnu-
daginn 28. apríl.
Vinna þarf þrjá leiki til að verða
meistari. Ef á þarf að halda verður
fjórði leikurinn í Safamýri miðviku-
daginn 1. maí. Mögulegur odda-
leikur fer fram á Hlíðarenda laug-
ardaginn 4. maí.
Valur vann Hauka 3:0 í undan-
úrslitum og Fram vann ÍBV einnig
3:0 eins og sjá má í umfjöllun á síð-
unni til hliðar.
Fimmta rimma Fram
og Vals síðan 2010
Spænski knattspyrnumaðurinn
Diego Costa, sem leikur með Atlético
Madrid, fékk í gær átta leikja bann fyrir
afar ósæmilegt orðbragð í garð dómara
í leik liðsins gegn Barcelona á dög-
unum. Atlético hefur þegar áfrýjað úr-
skurðinum. Standi hann, mun Costa
ekki leika meira á þessu tímabili en lið
hans á sjö leikjum ólokið í spænsku 1.
deildinni þar sem það er ellefu stigum á
eftir Barcelona í toppslagnum.
Norðmenn léku Svía grátt þegar lið-
in mættust í EHF-Evrópubikar karla í
handknattleik í Arendal í Noregi í dag.
Lokatölur urðu 35:26 eftir magnaðan
síðari hálfleik Norðmanna en Svíar,
undir stjórn Kristjáns Andréssonar,
voru yfir í hálfleik, 16:15. Magnus Jön-
dal var í miklum ham og skoraði 11
mörk úr jafnmörgum skotum.
Hollenski knattspyrnumaðurinn
Arjen Robben óttast að hann hafi spil-
að sinn síðasta leik með Bayern Mün-
chen. Robben hefur verið frá vegna
meiðsla síðan Bayern burstaði Benfica
5:1 í Meistaradeildinni í nóvember en
Hollendingurinn knái, sem er 35 ára
gamall, kveður þýska meistaraliðið í
sumar eftir að hafa spilað með því í
áratug. „Ég hef mínar áhyggjur og er
ekki viss um hvort ég geti spil-
að aftur með Bayern á
þessu tímabili,“ sagði
Robben í viðtali við Sky
Sports News í Þýskalandi.
Hann hefur verið orðaður
við sitt gamla félag
Groningen í Hollandi
og Toronto sem spilar
í banda-
rísku
MLS-
deild-
inni.
Eitt
ogannað