Morgunblaðið - 10.04.2019, Side 4
Í VIÐSKIPTAFERÐINA
Lífið er of stutt til að eiga venjulega
ferðatösku. Það gerir skreppitúrana
út í heim miklu skemmtilegri að
spássera um flugstöðvar, lestar-
stöðvar og hótelganga með glæsi-
legan farangur í eftirdragi. Og gott
ef það slær ekki örlítið á flughræðsl-
una ef taskan kostar meira en flug-
miðinn.
Franska tískuveldið Louis Vuitt-
on svipti nýlega hulunni af nýjustu
kynslóð ferðatöskulínunnar Hori-
zon. Var iðnhönnuðurinn Marc
Newson fenginn til að gera töskur af
nokkrum stærðum og gerðum, jafnt
með hefðbundu LV-mynstri og með
nýstárlegra útliti í djörfum litum.
Töskurnar eru gerðar úr há-
tækni-tauefni sem mótað er eftir
kúnstarinnar reglum og er bæði
lauflétt og vatnshelt.
Horizon-töskurnar eru ekki fyrir
blanka bakpokaferðalanga og kosta
frá 2.800 dölum vestanhafs, eða
jafnvirði liðlega 330.000 kr.
ai@mbl.is
Fokdýr ferðafélagi
ERT ÞÚ
AÐ RÁÐA?
Vantar þig háskólamenntað starfsfólk?
Kynntu þér sumarátak
Vinnumálastofnunar og BHM
á vinnumalastofnun.is
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019FRÉTTIR
Komið er að nýjum kafla hjá
Kristni Jónassyni en hann tók ný-
lega við formennsku í stjórn
Lánasjóðs íslenskra sveitarfélaga
eftir að hafa setið í stjórn sjóðsins
frá árinu 1999 og verið varafor-
maður frá 2005.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Helstu áskoranir lánasjóðsins á
hverjum tíma eru að útvega sveit-
arfélögum og stofnunum þeirra
nægt lánsfé á hagstæðum kjörum.
Það hefur gengið vel og skiptir
verulegu máli í rekstri sveitar-
félaganna. Jafnframt er reglu-
verkið á fjármálamarkaðnum allt-
af að verða flóknara og þyngra og
þar er töluverð áskorun í rekstri
sjóðsins.
Hvaða hugsuður hefur haft
mest áhrif á hvernig þú starfar?
Það var Guðlaugur Bergmann
heitinn vinur minn en hann ráð-
lagði mér, þegar ég var að byrja í
starfi bæjarstjóra, að ef ég ætlaði
að endast í mínu starfi mætti ég
ekki láta það hafa of mikil áhrif á
mig þótt einhver væri ósáttur við
störf mín því það væri eðlilegur
fylgifiskur vinnunnar. Það sem
skipti mestu máli væri að reyna
að gera rétt á hverjum tíma og
hlusta á eigið innsæi.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Það hef ég gert með því að
sækja fundi, námskeið og fyrir-
lestra um ýmis málefni. Jafnframt
hef ég farið utan nokkrum sinnum
til að kynna mér starfsemi sveit-
arfélaga í öðrum löndum en þar er
af mörgu að taka. Það er alltaf
gott að sjá og heyra hvað aðrir
eru að gera og jafnframt að kynna
sér hvað hefur tekist vel og hvað
ekki í þeirra rekstri.
Hugsarðu vel um líkamann?
Bæði já og nei, ég fer í göngu-
ferðir alla daga og hreyfi mig
mjög mikið. Hvað mataræðið
varðar er ég örugglega ofalinn og
gæti gert betur í þeim málum. Ég
drekk bæði kók og mjólk í miklum
mæli, kókið mætti nú missa sín og
mér skilst að mjólkin sé frekar
fyrir ungt fólk og kálfa.
Hvað myndirðu læra ef þú
fengir að bæta við þig nýrri
gráðu?
Ég var aldrei mikill námsmaður
og fór í skóla til að auka mögu-
leika mína á vinnumarkaði, en ég
hafði alltaf meira gaman af því að
vinna. Ef ég ætlaði að bæta við
mig námi held ég að ég myndi
vilja læra meira um náttúru Ís-
lands enda nýt ég þess mjög að
stunda útivist í íslenskri náttúru.
Svo væri gaman að læra að
syngja en frá því ég man eftir
mér hef ég alltaf haft gaman af
söng.
Hvað gerirðu til að fá orku og
innblástur í starfi?
Það geri ég með því að vera í
góðum samskiptum við fjölda
fólks um allt land og jafnframt að
vera mjög virkur í samstarfi sveit-
arfélaga.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráður í einn dag?
Það er ég með á hreinu, sem
Vestfirðingur. Eftir að hafa alist
upp við mjög slæmar samgöngur
myndi ég setja lög sem gerðu
vegagerð um Teigsskóg að veru-
leika. Það á enginn að búa við þær
samgöngur sem íbúar á sunnan-
verðum Vestfjörðum búa við.
SVIPMYND Kristinn Jónasson, formaður Lánasjóðs sveitarfélaga
Regluverkið verður æ flóknara
Morgunblaðið/Hari
Væri Kristinn einráður myndi hann leggja veg um Teigsskóg í hvelli.
NÁM: Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum
1985 og rekstrarfræðiprófi árið 1992 frá Samvinnuháskólanum.
STÖRF: Að námi loknu tók ég við starfi fjármálastjóra hjá Kaup-
félagi Dýrfirðinga og Fáfni 1993 til 1995. Fluttist síðan til Hellis-
sands 1995 og tók við stöðu fjármálastjóra hjá Hraðfrystihúsi
Hellissands. Það var svo 4. júlí 1998 sem ég tók við starfi bæjar-
stjóra í Snæfellsbæ og hef gegnt því starfi síðan.
ÁHUGAMÁL: Ég hef mjög gaman af alls konar útivist og fer í
gönguferðir alla daga, spila golf yfir sumartímann, eltist við
sauðfé á haustin og fram eftir vetri og fer til rjúpna til að fá í jóla-
matinn. Einnig hef ég gaman af því að ferðast með fjölskyldunni
og ekki er verra ef ég kem við einum og einum golfhring.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er kvæntur Helgu Valdísi Guðjóns-
dóttur rekstrarfræðingi og við eigum tvö börn, Thelmu sem
stundar nám við Háskóla Íslands í læknisfræði og Kristin Jökul
sem er nemandi við Verslunarskóla Íslands.
HIN HLIÐIN
ÁHUGAMÁLIÐ
CXC Motoin Pro-kappaksturs-
hermirinn er leikfang fyrir þá sem
kunna að meta spennuna sem fylgir
því að aka hratt, þjálfa viðbragðið og
ná fullkomnu valdi á flókinni braut –
en tíma ekki að leggja út fyrir kapp-
akstursbíl með öllu tilheyrandi.
Hreyfanlegir armar líkja eftir
þyngdarkraftinum sem ökumaður
upplifir á brautinni og þrír skjáir
fylla út í sjónsviðið. Vélarhljóðið
streymir út um öfluga hátalara og er
viðbragð stýris og pedala alveg ekta.
Tækið kostar frá 49.000 dölum hjá
www.cxcsimulations.com. ai@mbl.is
Til að æfa
spanið
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT