Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019FRÉTTIR Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar Fyrirtækjamenning er stórt atriði þegar kemur að því að ná fram auknu jafnrétti í íslenskum fyrirtækjum, að mati Guðrúnar Ragnarsdóttur vara- formanns FKA, en hún heldur utan um hreyfiaflsverkefnið Jafnvæg- isvogina fyrir FKA. Þar er miðað að því að jafna hlut kvenna í fram- kvæmdastjórnum fyrirtækja. „Þetta snýst mikið um menningu. Í sumum fyrirtækjum er karllægari menning en í öðrum, en svo er þetta líka spurn- ing um að taka ákvörðun um að breyta þessu,“ segir Guðrún. Á dögunum var haldinn morg- unverðarfundur í Kauphöllinni um málefnið þar sem framsöguerindi héldu Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Páll Harðarson forstjóri Kauphallarinnar og Ágústa Björg Bjarnadóttir mannauðsstjóri Sjóvár. Á fundinum voru einnig kynntar niðurstöður hringborðs- umræðna sem FKA stóð fyrir þar sem átta fulltrúar úr skráðum og óskráðum félögum voru fengnir að borði. „Ágúst Björg nefndi í erindi sínu gott dæmi af sínum vinnustað, þar sem tekin var meðvituð ákvörðun hjá forstjóra og framkvæmdastjórn um að tryggja að kynjahlutföll væru jöfn á öllum stigum.“ Guðrún segir að meðal þess sem þurfi að huga að í þessu tillliti sé að orða atvinnuauglýsingar þannig að þær höfði jafnt til karla og kvenna. „Þegar lögin um kynjakvóta í stjórnum voru sett þá voru væntingar um að fleiri konur myndu togast upp í skipuritinu líka. Því miður varð það ekki raunin. Í dag er hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum skráðra félaga 22% og 26% í 100 stærstu íslensku fyrirtækjunum. Við viljum sjá hlut- fallið verða 40/60.“ Guðrún segir að þegar ákvörðun hafi verið tekin um að jafna hlutföllin, fari menn að horfa með allt öðrum gleraugum á hlutina. Það taki hins- vegar tíma. Ekki boð og bönn „Fjörutíu fyrirtæki hafa skuld- bundið sig til að taka þátt í jafnvæg- isvogarverkefninu, og ætla að breyta þessu á innan við fimm árum. Sum eru komin alla leið, en önnur eru á leiðinni. Við viljum fá fyrirtæki með okkur í þessa vegferð í stað þess að setja boð og bönn.“ Páll Harðarson segir aðspurður í samtali við ViðskiptaMoggann að góð stemmning hafi verið á morgunverð- arfundinum. „Maður fær alltaf ein- hver ný sjónarmið út úr svona fund- um. Oft birtast þá þættir sem eru ekki ljósir nema þeim sem verða fyrir þeim sjálfir, með neikvæðum áhrif- um. Aukið jafnræði getur náðst með því að huga að fyrirmyndum, starfs- lýsingum eða hugmyndum um hvaða þekking eigi að liggja að baki ákveðnum störfum. Þessvegna tel ég mjög mikilvægt að fyrirtæki fari ít- arlega og kerfisbundið í gegnum starfsumhverfi sitt, með tilliti til þess hvernig jafnvægið er á vinnustaðn- um. Einn í rýnihópnum notaði hug- takið forréttindablinda, sem lýsir því vel þegar menn átta sig ekki á hlut- unum og gera eitthvað ómeðvitað.“ Páll segir að góður hugur sé grunnur að öllu, en hann einn og sér sé ekki nægur. Þurfa karlmenn að láta sig þessi mál meira varða? „Já, heilt á litið mættu karlar vera meira inni í þessari umræðu. Á svona fundum um jafnrétti á vinnustöðum eru konur til dæmis undantekn- ingalaust í miklum meirihluta.“ Fyrirtækjamenningin er stórt atriði Hreyfiaflsverkefnið Jafnvægisvogin stefnir að því að árið 2027 verði hlut- fallið á milli kynja 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hlutfall kvenna í fram- kvæmdastjórnum fyr- irtækja í Kauphöll Íslands er aðeins 22%. FKA, Félag kvenna í atvinnulífinu, vill ná hlutfallinu upp í 40/60. Undanfarna mánuði hefur mátt greina merki kólnunar víða í hag- kerfinu. Deilur á vinnumarkaði og óvissa um rekstur WOW air hafa verið nefnd sem helstu sökudólg- arnir og komu einkennin m.a. fram í töluverð- um samdrætti í sölu nýrra bíla auk þess að róð- urinn þyngdist í smásöluverslun. Diðrik Örn Gunnarsson segir að í svona árferði hætti stjórnendum til að skera fyrst af öllu niður hvers kyns markaðs- útgjöld. Það sé þó misráðið og geti reynst fyrirtækjum dýrkeypt sparnaðaraðgerð þegar upp er stað- ið. Diðrik er faglegur framkvæmda- stjóri alþjóðlega samskiptahússins MediaCom á Íslandi og stunda- kennari við HR. Hann bendir á að í niðursveiflum skapist gott tækifæri til að stofna til langtímaviðskipta- sambanda við nýja viðskiptavini og ná þannig stærri skerf af kökunni. „Þetta lærir fólk í inngangskúrsum í markaðsfræðum, en fyrirtæki flaska samt á þessu trekk í trekk og vilja helst engu eyða í markaðsmál þegar þrengir að. Raunin er að þeg- ar hægir á atvinnulífinu verða aug- lýsingar þeim mun áhrifaríkari: á meðan allir aðrir halda að sér hönd- um lækkar birtingarkostnaðurinn og kliðurinn minnkar svo að skila- boðin ná betur til eyrna neytenda,“ útskýrir Diðrik. „Þegar síðan kem- ur aftur uppsveifla þá snýst dæmið við og iðulega tekst stærstu og fjár- sterkustu fyrirtækjunum að gera sig sýnilegri á kostnað þeirra smærri.“ Auglýsingar virka líka í niðursveiflu Bæði þurfa seljendur reglulega að minna á sig til að vera ofarlega í huga neytenda, en eins segir Diðrik að viðskipti með vöru og þjónustu skreppi ekki alveg saman í niður- sveiflu og auglýsingar geri sitt gagn jafnt þegar árar illa og vel. „Ein frægasta rannsóknin á þessu sviði var gerð af McGraw-Hill sem skoð- aði markaðsútgjöld 600 bandarískra fyrirtækja á samdráttarskeiði sem varði frá 1980 til 1985. Í lok tíma- bilsins var meðalvöxtur fyrirtækj- anna borinn saman og kom í ljós að þau sem héldu áfram að auglýsa höfðu stækkað 256% meira en þau sem skáru auglýsingakaupin niður.“ Ein ástæða þess að stjórnendur freistast til að skera markaðs- útgjöldin niður er, að sögn Diðriks, að þeir vanrækja að sinna markaðs- málunum með markvissum hætti og mæla árangurinn. Þegar vel árar, og nóg er af peningum í kassanum, hættir fyrirtækjum til að láta kylfu ráða kasti í auglýsingakaupum og hafa í raun ósköp litla hugmynd um hvað virkar og hvað ekki: stjórn- endur hafi í besta falli óljósa hug- mynd um hvaða markhópa þarf að höfða til, og eftir hvaða leiðum. „Stjórnendur eru með svo margt á sinni könnu og láta mælingar og greiningu á árangri markaðsstarfs sitja á hakanum í uppsveiflu,“ segir Diðrik og minnir á mikilvægi þess að önnum kafnir stjórnendur leiti til birtingarráðgjafa sem eru sér- fræðingar á þessu sviði. Netið ekki lengur töfralausn Á árunum eftir bankahrun komu auglýsingar á netinu sterkar inn á sama tíma og auglýsingar í hefð- bundnum miðlum áttu undir högg að sækja. Sérfræðingar bentu á augljósa kosti auglýsinga á stöðum eins og Google og Facebook: þar væru birtingarnar ódýrar, hægt að gera mjög hnitmiðaðar auglýsinga- herferðir og auðvelt að mæla ár- angurinn. Diðrik segir landslag auglýsinga- markðarins hafa breyst síðan þá, og það sé ekki lengur sama töfralausn- in að kaupa birtingar eingöngu á Facebook eða auglýsingaborða hjá Google: „Í takt við vaxandi eft- irspurn hefur verð auglýsinga á netinu farið hækkandi, og á sama tíma hefur verðskrá hefðbundinna miðla lækkað. Er t.d. í dag orðið 21% ódýrara að auglýsa í sjónvarpi á Íslandi en það var fyrir tíu árum,“ útskýrir hann. „Þá standa auglýs- endum til boða ótalmargar rásir til að ná til viðskiptavinanna svo að það verður varla hjá því komist að ráðast í ítarlega markhópagrein- ingu áður en ákveðið er hvaða leið væri skynsamlegast að fara: að auglýsa í sjónvarpi, útvarpi eða dagblaði, ellegar á Google, Insta- gram eða YouTube.“ Morgunblaðið/Hari Það hefur þrengt ögn að undanfarin misseri en við þannig aðstæður ættu fyrirtæki alls ekki að sleppa útgjöldum til markaðsmála. Gefi í þegar aðrir stíga á bremsuna Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fyrirtæki sem skera niður útgjöld til markaðsmála þegar hægir á hagkerfinu eru að spara eyrinn en kasta krónunni. Diðrik Örn Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.