Morgunblaðið - 10.04.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 10.04.2019, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 11FRÉTTIR Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Lang- vinsælastur hollusta í hverjum bita Íslensk fyrirtæki hafa náð miklum árangri í að skapa verðmæti úr hliðarafurðum sjávarútvegsins en gæta þarf betur að markaðshliðinni og draga það ekki of lengi að skala framleiðsluna upp. Þetta segir Hörður Krist- insson, rann- sókna- og ný- sköpunarstjóri hjá Matís, en hann heldur inn- gangserindi ráð- stefnunnar Fish Waste for Profit sem haldin verð- ur í dag og á morgun á Grand hót- eli Reykjavík. „Síðastliðin 15-20 ár höfum við séð ný líftæknifyrirtæki verða til í kringum fullnýtingu sjávarafurða og mörg þeirra í dag í fremstu röð á sínu sviði,“ segir Hörður og nefn- ir notkun afskurðar og beingarða til að gera prótín fyrir fæðubótarefni, vinnslu kollagens og framleiðslu lækningavara úr fiskroði, og fram- leiðslu ensíma sem eru notuð í allt frá snyrtivörum yfir í lækninga- vörur. „Þá heldur þróunin áfram með hefðbundnar vörur eins og lýsi, sem Íslendingar hafa framleitt í áratugi. Er verið að blanda lýsinu saman við lækningavörur og fram- leiða nýjar útfærslur eins og kald- unnið og kaldhreinsað lýsi.“ Hörður bendir á að flest eða öll fyrirtækin á þessu sviði séu vel rek- in og engin ástæða til annars en að vera bjartsýnn um framtíð þeirra. „Framleiðslan er enn tiltölulega smá í sniðum en ekki hægt að deila um verðmætasköpunina og eru þessar nýju vörur, gramm fyrir gramm, langtum verðmætari en hnakkastykki og flök. Þótt hefð- bundnar vörur myndi enn mikinn meirihluta útflutningsverðmætis sjávarfangs, þá getum við vænst þess að vörur gerðar úr hliðar- afurðum myndi æ stærri skerf af útflutningstekjum sjávarútvegsins.“ Skortir markaðsþekkingu Það er margt sem hjálpar við markaðssetningu þess hráefnis sem líftæknifyrirtækin hafa þróað og bendir Hörður á að um sé að ræða hágæðavöru sem framleidd er úr hreinu og náttúrulegu hráefni. „Okkur hefur gengið vel á tækni- og vísindasviðinu en það er að koma í ljós að markaðsþekkingin mætti vera meiri. Væri ráð að reyna að fá markaðsfólk og hönnuði fyrr að borðinu, og reyna að skilja markaðinn og neytandann áður en lagst er í vöruþróun og rannsóknir. Hefur íslenskum frumkvöðlum hætt til að byrja á hinum endanum, en reyna síðan að búa markaðinn til eftir á.“ Segir Hörður að gæði, hreinleiki og lífvirkni vörunnar hjálpi líka að- eins upp að vissu marki. „Framleið- endur þurfa einnig að geta keppt í verði og þess vegna er áríðandi að fjárfesta í að skala upp framleiðsl- una þar sem því verður við komið. Í því sambandi væri líka áríðandi að leggja meiri áherslu á að nýta upp- sjávarafurðir í framleiðsluna og þar með taka risastökk í magni, auk þess sem gefa ætti gaum þeim möguleikum sem skapast með nýt- ingu hliðarafurða sem verða til við framleiðslu á eldisfiski.“ Hörður minnir líka á að sá ár- angur sem náðst hefur hafi m.a. byggst á góðu aðgengi að styrkjum samhliða fjárfestingu rótgróinna sjávarútvegsfyrirtækja í nýrri teg- und framleiðslu. „AVS-sjóðurinn spilaði þar stórt hlutverk og áhyggjuefni að hann skuli hafa dregið saman seglin á undanförnum árum. Það kom mikið stökk í ný- sköpun í kringum nýtingu hliðaraf- urða þegar AVS kom til sögunnar og ljóst að sá peningur sem settur hefur verið í rannsóknir og þróun mun skila sér margfalt til baka.“ Hugi að útrás Ísland virðist hafa náð forystu í sköpun verðmæta úr hliðarafurðum sjávarútvegsins og nefnir Hörður að þótt áhugaverð verkefni séu í gangi t.d. í Noregi og Norður- og Suður-Ameríku séu þau mislangt á veg komin. Það forskot sem Ísland hefur í dag gæti horfið ef aðrar þjóðir taka við sér. „Það hefur ef- laust hjálpað okkur að ná þetta langt hvað boðleiðir á Íslandi eru stuttar og fyrirtæki viljug að taka stökkið án þess endilega að vita hvar þau lenda. En réttu áhersl- urnar og úthugsaðar fjárfestingar í rannsóknum gætu þýtt að öðrum löndum takist að brúa bilið, og greinilegt að þau eru áhugasöm um að nýta betur hliðarafurðir t.d. í fiskeldi og vinnslu uppsjávarteg- unda.“ Er þá kannski ekki seinna vænna að hugsa stórt? Gæti íslenskt hug- vit orðið grunnurinn að risastórum verksmiðjum erlendis sem taka inn ódýrt hráefni úr sjávarútvegi og dæla út verðmætum ensímum, prótínum og lækningavörum? „Það þarf vissulega að skoða mögu- leikana á alþjóðlegu samstarfi,“ segir Hörður en telur samt ekki endilega farsælast að íslensk fyrir- tæki haldi af stað út í heim ein og óstudd. „Þess í stað mætti vinna með stórum aðilum sem þekkja sinn markað og sínar dreifileiðir, en geta nýtt tækniþekkingu okkar til að byggja upp framleiðslu á stórum skala og skapað markað fyrir þess- ar nýju afurðir.“ Gætum glatað forskotinu Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Aðrar þjóðir eru að setja sig í stellingar til að ná í skottið á Íslendingum í að nota líftækni til að skapa verðmætar vörur úr hliðar- afurðum í sjávarútvegi og fiskeldi. Áhyggjuefni er að dregið hefur úr umsvifum AVS-sjóðsins og má ekki bíða of lengi með að fara í útrás. Morgunblaðið/Golli Við færibandið. Hörður segir mikinn árangur hafa náðst á vísindasviðinu en styrkja þurfi markaðshliðina. Hörður Kristinsson Afurðaverð á markaði 9. apríl 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 282,61 Þorskur, slægður 357,47 Ýsa, óslægð 259,66 Ýsa, slægð 245,09 Ufsi, óslægður 77,39 Ufsi, slægður 126,82 Djúpkarfi 210,00 Gullkarfi 267,60 Blálanga, slægð 14,00 Langa, óslægð 165,11 Langa, slægð 175,03 Keila, óslægð 57,52 Keila, slægð 89,74 Steinbítur, óslægður 43,99 Steinbítur, slægður 99,13 Skötuselur, slægður 455,85 Skarkoli, óslægður 166,99 Skarkoli, slægður 356,75 Þykkvalúra, slægð 510,45 Langlúra, óslægð 259,00 Langlúra, slægð 276,00 Sandkoli, óslægður 77,52 Bleikja, flök 1.501,00 Gellur 999,00 Grásleppa, óslægð 170,23 Hlýri, óslægður 114,15 Hlýri, slægður 137,95 Hrogn/ýsa 120,99 Hrogn/þorskur 127,85 Lúða, slægð 470,08 Lýsa, óslægð 7,88 Lýsa, slægð 58,04 Rauðmagi, óslægður 190,23 Skata, óslægð 56,00 Skata, slægð 69,66 Stóra brosma, slægð 50,00 Stórkjafta, slægð 305,00 Undirmálsýsa, óslægð 102,81 Undirmálsýsa, slægð 115,72 Undirmálsþorskur, óslægður 167,55 Undirmálsþorskur, slægður 226,51 Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hyggst í sumar undirbúa og jafnvel hefja tilraunaveiðar á humri í gildr- ur. Humarinn yrði síðan fluttur lif- andi úr landi og boðinn viðskipta- vinum á veitingahúsum, væntanlega að mestu á meginlandi Evrópu til að byrja með. Humarkvóti er í sögu- legu lágmarki og kom fram í ræðu sem Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður VSV, flutti á aðal- fundi félagsins í lok síðasta mánaðar að þetta væri m.a. gert til að bregð- ast við samdrættinum. Fyrir tæpum tíu árum gerði Vinnslustöðin til- raunir með gildruveiðar. Gengu þær þokkalega en þá hafði félagið ekki nægilega góð tengsl við markaðinn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vinnslustöðin hyggst undirbúa að veiða humar í gildrur. Humar í gildrur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.