Fréttablaðið - 24.05.2019, Page 1

Fréttablaðið - 24.05.2019, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 9 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 4 . M A Í 2 0 1 9 Kýrnar á Hvanneyri í Borgarfirði léku við hvurn sinn fingur er þeim var hleypt út í sumarið í gær. Leikskólabörn úr Andabæ fylgdust með fjörinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fleiri myndir frá Hvanneyri er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS tilboðsdagar 13. – 26. maí heia norge! sendum frítt í póstbox allt að 60% afsláttur REYKJAVÍKURBORG Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar keypti sérfræðiþjónustu fyrir 395 milljónir króna án útboðs á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta kemur fram í innkauparáði borgar- innar í gær. „Það lítur út fyrir að borgarfull- trúar meirihlutans hafi ekkert lært. Þessi framkoma gagnvart skattgreið- endum í Reykjavík er ólíðandi,“ segir Björn Gíslason, fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í innkauparáði. Þessi tiltekna upphæð á þessu ári hjá umhverfis- og skipulagssviði er rúmlega 80 milljónum króna hærri en í fyrra er sviðið keypti þjónustu fyrir 313 milljónir króna án útboðs. Björn Gíslason segir ískyggilegt til þess að hugsa, eftir mikla umræðu í tengslum við innkaup Reykjavíkur- borgar, að talan fari hækkandi. Talan væri mun lægri ef gerðir hefðu verið rammasamningar. Alls keypti umhverfis- og skipu- lagssvið sérfræðiþjónustu frá 32 fyrirtækjum. Upphæðirnar eru frá rúmlega einni milljón króna upp í tugi milljóna fyrir einstaka verkefni. VSÓ Ráðgjöf er með hæstu upp- hæðina, 38 milljónir á þriggja mán- aða tímabili. Athygli vekur að í mars fékk Arki- búllan ehf. 1,5 milljónir án útboðs, en það er sama stofan og stóð að hönnun og verkefnastjórnun braggaverkefnisins á Nauthólsvegi 100. Sabine Leskopf, formaður inn- kauparáðs, segir alla sammála um að þörf sé á rammasamningi. Málið hafi ekki verið klárað á fundinum í gær og hafi hún óskað eftir frekari upplýsingum frá umhverfis- og skipulagssviði. – ab / sjá síðu 6 Greiddu 395 milljónir fyrir sérfræðinga án útboðs Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar keypti sérfræðiþjónustu fyrir 395 milljónir króna án útboðs á fyrstu þremur mánuðum ársins. Innri endurskoðun borgarinnar hefur ítrekað bent á mikilvægi rammasamninga til að lækka kostnað. Það lítur út fyrir að borgarfulltrúar meirihlutans hafi ekkert lært. Þessi framkoma gagnvart skattgreiðendum í Reykjavík er ólíðandi. Björn Gíslason, fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í innkauparáði Reykja- víkurborgar HEILBRIGÐISMÁL Tölur um skrán- ingu dauðsfalla af völdum Alz heimer segja ekki til um réttan fjölda sem sjúkdómurinn dregur til dauða. Í tölum frá Landlæknisembættinu má sjá mikla aukningu á fjölda þessara einstaklinga. Árið 1996 voru þeir 12 en árið 2018 voru þeir 192. Steinunn Þórðardóttir, yfirlæknir heilabilunareiningar Landspítal- ans, segir skýringuna að mestu vera breytingar á skráningum dauðsfalla. „Menn voru á því að Alz- heimer gæti ekki verið dánarorsök en þetta er búið að breytast mikið á undanförnum árum,“ segir hún. „Rétt um 1990, sennilega nokkru fyrr, þá var mér sagt að ég hefði skráð á dánarvottorð þann fyrsta sem hefði dáið úr Alzheimer á Íslandi,“ segir Jón G. Snædal, yfir- læknir í öldrunarlækningum á Landspítala. Skrá þurfi rétt svo þjónustan verði góð. – bdj / sjá síðu 4 Fjölgun í skráningu Alzheimer-dauðsfalla Steinunn Þórðar- dóttir yfirlæknir. 2 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 1 2 -6 5 3 4 2 3 1 2 -6 3 F 8 2 3 1 2 -6 2 B C 2 3 1 2 -6 1 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.