Fréttablaðið - 24.05.2019, Síða 11
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
3 ÁRA
3000
TRÉ
Viðreisn heldur upp á þriggja ára afmæli og í tilefni dagsins höldum
við út í Þorláksskóga í Ölfusi og gróðursetjum tré til að vega á móti
kolefnisfótsporum kjörinna fulltrúa.
Í kjölfarið bjóðum við til veislu í húsakynnum okkar í Ármúla 42 frá kl. 19.30 þar sem við
fögnum með öllum sem vilja halda upp á afmælið með okkur.
Í þrjú ár höfum við barist fyrir frjálslyndri hugsjón, jafnrétti allra, alþjóðasamstarfi og bættum
efnahag landsmanna með frjálst, opið og fjölbreytt samfélag að leiðarljósi.
Áður en háhraðanettengingar og ýmiss konar streymisþjón-ustur gerðu fólki mögulegt að
stilla sína eigin afþreyingardagskrá
eftir hentisemi, var óhætt að brydda
upp á efnisatriðum úr línulegri sjón-
varpsdagskrá kvöldsins áður í kaffi-
pásum daginn eftir. „Sástu Björgvin
Halldórsson hjá Hemma Gunn í
gær?“ „Hvernig fannst þér Spaug-
stofan taka á kjarasamningunum?“
„Hver heldurðu að hafi skotið JR?“
Þetta er að mestu leyti löngu liðin
tíð. Meira að segja þeir örfáu sjón-
varpsþættir sem fólk bíður eftir
að sjá í línulegri dagskrá—eins og
Game of Thrones—eru ekki almennt
viðurkennd umræðuefni á vinnu-
stöðum daginn eftir frumsýningu
af ótta við að spilla gleði og spennu
þeirra sem eru að spara sér áhorfið.
Fyrir vikið er óskráð regla í sam-
félaginu, sem er virt ofar lands-
lögum, stjórnarskrá, mannrétt-
indum og trúarsetningum, að það
megi alls ekki blaðra í kæruleysi frá
atburðum, framgangi eða söguþræði
í sjónvarpsefni sem einhver gæti
hugsanlega átt eftir að sjá. Önnur
mikilvæg regla sem hefur rutt sér
rúms inni í sjónvarpsherbergjum
og svefnherbergjum landsmanna
er að ef hjón og sambýlingar hafa á
einhverjum tíma ákveðið að hefja
áhorf á sjónvarpsseríu þá séu það
svik sem jaðri við framhjáhald ef
annar horfir lengra áfram í seríunni
án samþykkis makans.
En þó eru einstaka sjónvarpsvið-
burðir sem brjóta upp þessar reglur.
Á Íslandi geta menn sjálfum sér um
kennt ef þeir hafa misst af frumsýn-
ingu Áramótaskaupsins, landsleik í
fótbolta og Eurovision. Þess vegna
er óhætt að tala án viðvörunar um
keppnina í síðustu viku án þess að
skemma spennuna fyrir nokkrum
manni.
Eurovision lýðræðið
Í fyrsta lagi þá er núverandi fyrir-
komulag atkvæðagreiðslunnar
mjög áhugavert út frá lýðræðis-
legu sjónarhorni. Almenningur er
hvattur eindregið til þess að taka
upp síma, hlaða niður smáforriti,
og kjósa. Kjósa, kjósa, kjósa. Manni
líður nánast eins og maður sé að
bregðast lýðræðislegum skyldum
sínum ef maður tekur ekki þátt.
Allir að nýta kosningaréttinn—
það kostar ekki nema 199 krónur
að hringja.
Og það skiptir ekki máli þótt
milljónir Evrópubúa taki upp
símana og kjósi og kjósi—lýðræðið
nær ekki lengra en svo að einungis
helmingur af niðurstöðunni ræðst
af atkvæðum almúgans. Sérskipaðir
hópar fagmanna í hveru landi fá að
ráða jafnmiklu, þótt svo virðist að í
sumum tilvikum hafi þessar faglegu
dómnefndir frekar verið að skoða
landakort en hlusta á lögin.
Jú, fólk fær vissulega að kjósa
um alls konar hluti, og velja sína
fulltrúa—en á bak við tjöldin hafa
„fagmennirnir“ í raun fyrst ákveðið
hvaða valkostir séu boðlegir.
Núna var það þannig í Eurovision
að lagið sem vann hjá dómnefnd-
inni (Norður-Makedónía) endaði
í 15. sæti hjá áhorfendum en lagið
sem vann hjá áhorfendum (Nor-
egur) var í 9. sæti hjá dómurunum.
Ísland endaði sem kunnugt er í 10.
sæti, en hefði verið í 6. sæti ef lýð-
ræðið hefði fengið að ráða niður-
stöðunni án aðstoðar fagmanna.
Getur verið að þeir sem ráða
Eurovision taki mikilvægi keppn-
innar fullhátíðlega—almenningi er
Haltu kjafti, hlýddu og vertu góður
treyst til þess að kjósa valdamesta
mann heims en ekki velja skemmti-
legasta popp-smellinn í skrautsýn-
ingu.
Listamenn og skemmtikraftar
Hin spurningin sem er áhugaverð er
krafan um að þátttakendur í skraut-
sýningunni haldi sig algjörlega fjarri
umdeildum málefnum. Á sýningu
þar sem annað hvert atriði er hlaðið
svo mikilli kynferðislegri spennu að
það hefði fyrir nokkrum áratugum
valdið almennri hneykslan og upp-
þoti—þá snýst eina velsæmisspurn-
ingin um hvort hinir leðurklæddu
íslensku listamenn í kvalalostabún-
ingum sínum hafi storkað sóma-
kennd ísreaelsku gestgjafanna með
því að draga upp úr skónum sínum
litlar fánapjötlur til stuðnings við
þjóð sem nú þegar er viðurkennd
af íslenskum stjórnvöldum. Haldið
börnunum innandyra!!!
Eflaust fannst mörgum það óvið-
eigandi hjá Hatara að stefna framtíð
íslenskrar Eurovision þátttöku í tví-
sýnu með þessum gjörningi, og kalla
yfir þjóðina vandlætingu og reiði
Jons Ole Sand.
Havaríið og taugaveiklunin í
kringum þennan hófstillta gjörning
undirstrikaði að sjálfsögðu réttmæti
þess sem þeir gerðu. Hefði Eurovisi-
on valdabatteríið brugðist eins við
ef Matthías og Klemens hefðu dregið
norska fánann upp úr skónum? Eða
var gerð athugasemd við gay-pride
fánann sem íslenski hópurinn veif-
aði stóran hluta kvöldsins?
Sá er kannski munurinn á lista-
mönnum og skemmtikröftum að
fyrrnefndi hópurinn hlýðir ekki því
sem lagt er fyrir börnin í Vögguvísu
Káins: „Haltu kjafti, hlýddu og vertu
góður. Heiðra skaltu föður þinn
og móður.“ Við völdum þetta árið
að senda listamenn í keppnina en
ekki skemmtikrafta. Það hefði verið
hörmulegt ef þeir hefðu látið kúga sig
til þess að láta ekki í ljós vott af sjálf-
stæðri hugsun.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 2 4 . M A Í 2 0 1 9
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
1
2
-6
A
2
4
2
3
1
2
-6
8
E
8
2
3
1
2
-6
7
A
C
2
3
1
2
-6
6
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K