Fréttablaðið - 24.05.2019, Side 14
FÓTBOLTI The Times greinir frá því
að Arsenal og Chelsea hafi selt um
sex þúsund miða á úrslitaleikinn
í Evrópudeildinni sem fram fer í
Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Munu félögin ætla að skila inn
afganginum af miðunum til UEFA.
Völlurinn í Bakú tekur 68.700
manns í sæti. Arsenal hefur selt
3.500 miða en Chelsea
um 2.000. Arsenal gaf út
yfirlýsingu þegar félagið
fékk úthlutað miðum á
úrslitaleikinn og kvart-
aði sáran yfir hvað félag-
ið fékk fáa miða.
Stórir styrktar-
aðilar eru einnig
sagðir vera að
fara skila inn
þ ú s u n d u m
miða en erf-
itt ferðalag
og verðlag í
borginni Bakú
þy k i r f æ l a
fjölmarga frá.
Ef Arsenal vinnur endar liðið í
Meistaradeildinni þrátt fyrir að
enda í fimmta sæti deildarinnar
og verða þeir í potti 1 þegar dregið
verður í Meistaradeildina á næsta
ári. Chelsea er þegar komið þangað
en þetta yrði fyrsti titill Maurizio
Sarri sem knattspyrnustjóra.
Bent hefur verið á að staðsetn-
ingin á þessum úrslita-
leik sé ekki UEFA
bjóðandi og einnig
hefur komið í ljós
að stuðningsmenn
hafa fengið aðeins
36 þúsund miða á
úrslitaleikinn
undanfarin
tvö ár af
151 þús-
u n d u m
s e m í
boði eru.
A ð r i r
miðar fara
til styrktar-
aðila. – bb
Enginn vill til Bakú
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason,
landsliðsmaður í fótbolta, segir í
löngu samtali við Hjörvar Hafliða-
son í hlaðvarpi hans Dr. Football
að hann búist við að vera áfram hjá
Augsburg næsta tímabil. Síðustu
skilaboð sem hann hafi fengið áður
en hann fór til Íslands væri að félag-
ið vildi framlengja við sig. „Félagið
bauð mér samning í janúar sem ég
setti til hliðar. Ég er ótrúlegt en satt
rólegur yfir þessu, á meðan ég er
meiddur. Ég vil bara ná mér góðum
og mun setjast niður með þeim
þegar ég kem aftur út. Hjá mér er
ekkert stress og ég býst við að spila
með Augsburg á næsta tímabili,"
segir Alfreð sem verð-
ur ekki með íslenska
landsliðinu geg n
Albaníu og Tyrk-
landi í komandi
landsleikjum vegna
meiðslanna sem hafa
verið að hrjá
hann. – bb
Býst við að spila
með Augsburg
FÓTBOLTI Samkvæmt tölfræðiupp-
lýsingum frá Paddy Power Games
gáfu dómarar í ensku deildinni
Liverpool fæstu gulu spjöldin miðað
við brot rauða hersins. Liverpool
fékk aðeins 39 gul spjöld á leik-
tíðinni úr 315 brotum sem er aðeins
13 prósent hlutfall. Burnley braut
360 sinnum af sér en fékk 76 spjöld
og hlýtur gullið í þessum vafasama
flokki sem grófasta lið deildarinnar.
Tölfræðin sýnir þannig að leik-
maður Burnley er 70 prósent lík-
legri til að fá spjald fyrir brot en
leikmaður Liverpool. Nabi Keyta
fékk ekki eina áminningu þrátt
fyrir sín 25 brot og heldur ekki
Aaron Ramsey leikmaður Arsenal
sem braut 21 sinni af sér. Sá gró-
fasti var varnarmaðurinn Fabian
Schar hjá Newcastle sem
braut 28 sinnum af
sér á tímabilinu og
fékk 12 áminningar.
Aðrir á toppnum
yfir grófa menn þurfa
ekki mikið að koma á
óvart. Harry Arter
fékk 10 gul úr 25
brotum og Phil
Bardsley fék k
níu gul úr 22
brotum – geri
aðrir betur. – bb
Liverpool slapp
oftast með
skrekkinn
FÓTBOLTI Fyrrverandi unglinga-
þjálfari Southampton og Peter-
borough, Bob Higgins, var í gær
fundinn sekur um 45 brot gegn
23 drengjum. Fórnarlömbin voru
mörg hver samankomin í réttar-
salnum og brotnuðu margir niður
þegar dómarinn byrjaði að lesa
dóminn. Sex atriðum var vísað frá
en níðið stóð yfir frá 1971 til ársins
1996. Higgins sat sviplaus á meðan
fórnarlömb hans grétu fyrir aftan.
Meðal annars sem kom fram var að
ef drengirnir neituðu að gera það
sem Higgins vildi var þeim refsað á
ýmsan hátt á æfingum og í leikjum.
„Hann hafði ægivald yfir drengjun-
um sem dýrkuðu hann og vissu að
hann hefði mikla stjórn yfir framtíð
þeirra,“ sagði saksóknari. – bb
Bob Higgins
dæmdur fyrir
kynferðisbrot
Aðalfundur ÍFR 2019
ÍFR 45 ára
Aðalfundur Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík
verður haldinn laugardaginn 1. júní. 2019 kl. 14.00
í íþróttahúsi félagsins að Hátúni 14.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórnin
HANDBOLTI „Þetta var í raun besti
leikur okkar í úrslitakeppninni, það
small gjörsamlega allt hjá okkur.
Sverrir var frábær í vörninni og í
markinu átti Sölvi frábæran dag.
Sóknarlega var Elvar magnaður og
það komu allir með eitthvað,“ sagði
Patrekur Jóhannesson, þjálfari
Íslandsmeistara Selfoss, eftir að hafa
stýrt liðinu til sigurs í úrslitum Olís-
deildar karla gegn Haukum.
„Liðið sem fór í úrslitin 1992 var
frábært og gerði frábæra hluti en
okkur tókst að brjóta múrinn og
skrifa nafn Selfoss í sögubækurnar,“
sagði Patrekur um afrekið.
Þetta var fyrsti Íslandsmeistara-
titill félagsins á kvöldi þar sem allt
gekk upp sem Selfyssingar ætluðu
sér. Þetta var kvöldið þeirra og
mátti sjá á fagnaðarlátunum eftir
leik gleðina skína úr augum hvers
manns sem var mættur. Fagn-
aðarlætin lifðu fram á nótt og héldu
áfram í gær þegar Selfyssingar heim-
sóttu fyrirtæki og skóla í bænum
með bikarinn, líka þau fyrirtæki
sem gáfu frí fyrir hádegi til að fagna
Íslandsmeistaratitlinum.
„Maður heyrði af einhverjum
fyrirtækjum sem gáfu frí fyrir
hádegi, það var alveg tilefni til þess
að fagna og við fögnuðum þessu
eitthvað fram á nótt. Fólk er búið að
bíða eftir þessu í langan tíma, maður
fékk að heyra í fólki sem mundi vel
eftir þeim leik,“ sagði Sverrir Páls-
son, akkerið í vörn Selfyssinga og
lykilmaður í leiknum léttur.
Atli Ævar Ingólfsson hafði það á
orði við Fréttablaðið að leikmenn
Hauka hefðu verið eins og kálfar í
örmum Sverris sem er bóndasonur
og því ýmsu vanur.
„Jú, jú, maður hefur dregið nokkra
kálfa út það er kannski eitthvað til
í því,“ sagði hann hlæjandi þegar
undirritaður bar þessi orð undir
hann. kristinnpall@frettabladid.is
Okkur tókst að brjóta múrinn
Sigurhátíðin hófst við pulsubarinn og stóðu fagnaðarlætin fram á nótt. Nokkur fyrirtæki á Selfossi veittu frí fyrir hádegi daginn eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Selfyssingar fengu hetjulegar móttökur þegar þeir keyrðu yfir Ölfusbrúna og á sigurhátíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Selfyssingar eru Íslands-
meistarar í fyrsta sinn
í sögu félagsins og var
fagnað fram eftir nóttu
á Selfossi, 27 árum eftir
að Selfoss lék síðast til
úrslita og þurfti að
horfa á eftir titlinum.
2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
1
2
-7
4
0
4
2
3
1
2
-7
2
C
8
2
3
1
2
-7
1
8
C
2
3
1
2
-7
0
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K