Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 16
unnum í fyrsta skipti á Cannes
með kvikmyndinni Hrútum eftir
Grím Hákonarson. Þá stóð Isa-
bella Rosselini á sviðinu og sagði
með skrítnum hreim „The winner
is, Hrútar“. Þá fékk ég gæsahúð.
Einnig sá ég myndina Kona fer í
Stríð hér í fyrra þar sem fagnaðar-
látunum og lófaklappinu ætlaði
aldrei að linna þegar hún vann til
verðlauna á frumsýningunni. Þá
var stórkostlegt að fylgjast með
kvikmynd Hlyns Pálmasonar,
Hvítur, hvítur dagur, þar sem
Ingvar E. Sigurðsson var að vinna
verðlaun sem besti leikarinn, en
myndin hlaut einnig fleiri verð-
laun. Ég get sagt með sanni að
hvert sem ég fer, þá er mjög mikill
áhugi á íslenskum kvikmyndum
og því ber að fagna,“ segir Ása.
Grét í bíó
Þegar hún er spurð hvort ein-
hverjar myndir séu að slá í gegn
núna, svarar hún því játandi. „Ég
sá mynd eftir stórleikstjórann
Ken Loach sem heitir Sorry We
Missed You. Ég grét á sýningunni,
sem hefur ekki gerst í nokkur ár
og myndin situr í mér. Ég hef séð
alveg frábærar kvikmyndir sem ég
Ása hefur starfað hjá Bíó Paradís í sex ár og segist vera í draumastarfinu enda eru
áhugamálin kvikmyndir, sjón-
varpsþættir, uppistand og mynd-
list ásamt fleiru. Hún segist líka
hafa sérstakan áhuga á fólki. „Það
er eitthvað við góðar sögur sem
kveikir í manni neista. Heimurinn
er grimmilegur og því er mikil-
vægt að koma erfiðum og flóknum
sögum á framfæri,“ segir hún.
Það hefur verið mikill upp-
gangur hjá Bíó Paradís en það er
fyrsta listræna kvikmyndahúsið
hér á landi. Þar eru partísýningar,
prjónasýningar og alls kyns
gamlar og nýjar kvikmyndir
sýndar. „Íslendingar ólust upp
með amerískum bíómyndum. Í
Bíó Paradís fær fólk aðgengi að
öðrum kvikmyndum, norrænum,
evrópskum og í raun frá öllum
heimshornum. Það er mikil veisla.
Auðvitað tekur tíma að byggja
upp „Arthouse“ eins og það kallast
á ensku, en við greinum mikinn
áhuga. Við erum líka að sýna költ
klassík alla sunnudaga á veturna
þar sem þeir Hugleikur Dagsson,
Sigurjón Kjartansson og Sjón stýra
valinu og nýr listamaður er valinn
hvern sunnudag til þess að endur-
gera plaköt,“ segir Ása.
Þá má ekki gleyma sýningunum
fyrir skólabörn undir leiðsögn
Oddnýjar Sen. „Tilgangurinn er
að veita börnum og unglingum
möguleika á að kynnast kvik-
myndum sem hafa alþjóðlega
gæðastimpla, eru margar klass-
ískar perlur frá öllum skeiðum
kvikmyndasögunnar, lykilkvik-
myndir sem hafa skapað sér sess
innan kvikmyndasögunnar. Þetta
er gríðarlega mikilvægt fyrir
komandi kynslóðir og við erum
afar stolt af því að stuðla að auknu
aðgengi og kvikmyndalæsi.“
Vinsælar myndir
Þegar Ása er spurð um vinsælustu
myndirnar nefnir hún Paradís:
„Ást sem fjallar um kynlífstúrisma
í Afríku. Hún sló svo rækilega
í gegn að við þurftum sífellt að
bæta við sýningum enda stór-
kostleg mynd. Önnur sem ég man
eftir var Force Majure eftir Ruben
Östlund, gamanmynd sem fjallaði
um miðaldra karlmann í tilvistar-
kreppu. Annars erum við að sýna
klassískar nostalgíumyndir á
hverjum föstudegi sem geta verið
mjög vinsælar.“
Ása segir að starfið sé gríðar-
lega fjölbreytt. „Það er eins og við
Hrönn Sveinsdóttir framkvæmda-
stjóri séum með kvikmyndahá-
tíð 365 daga ársins. Við vinnum
gríðarlega vel saman, jafnt heima
sem á ferðalögum. Við vorum
einmitt að minnast þess þegar
við vorum staddar hér í Cannes
í fyrsta skipti fyrir sex árum og
ræddum við bandaríska dreif-
ingaraðila amerískrar geimveru-
myndar sem báru í okkur drykki
og dýr kampavín. Ég sagði að þetta
væri einhver misskilningur, við
værum listrænt kvikmyndahús
en þeir svöruðu bara nei, nei, þið
borgið ekki fyrir drykkina hér.
Þeir töluðu um hversu margir
hefðu komið til Íslands að skoða
geimverur við Snæfellsjökul árið
1996,“ segir Ása og hlær að minn-
ingunni. „Hérna í Cannes horfir
maður stöðugt á kvikmyndir.
Þetta er besta tækifærið til að sjá
sem mest. Ég vakna á hverjum degi
og get ekki beðið eftir að sjá og
upplifa nýja kvikmynd,“ segir hún.
Ísland vekur athygli
„Íslensk kvikmyndagerð er að
gera það mjög gott á alþjóða-
vísu. Ég gleymi því ekki þegar við
Ása er í sjötta skiptið á kvikmyndahátíðinni í Cannes og er búin að sjá fjöldann allan af nýjum kvikmyndum.
Leikarar úr myndinni Once Upon A Time in Hollywoood, Leonardo DiCaprio,
Margot Robbie, Daniella Pick, leikstjórinn Quentin Tarantino og Brad Pitt.
Kvikmyndin Rocket Man vakti mikla athygli. Hér eru þeir Sir Elton John og
Taron Egerton, söngvari og leikari, sem fer með hlutverk poppstjörnunnar.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764
| Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen,
solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
vona að við getum fært íslenskum
kvikmyndahúsagestum. Annars er
Once Upon a Time in Hollywood í
leikstjórn Tarantinos að slá í gegn
eins og greint hefur verið frá, enda
var klappað í heilar sjö mínútur
eftir frumsýninguna og myndin
hlaðin stjörnum. Svo er mikið
talað um Elton John-myndina,
Rocket Man, en eftir frumsýn-
inguna á henni var óvænt partí á
ströndinni með tónlistaratriðum.
Það var mjög skemmtilegt.
Stjörnurnar allt í kring
Það er stórkostleg upplifun að vera
hér í Cannes. Ég get eiginlega ekki
líst því betur en að ævintýrin séu
ávallt handan við hornið, maður
hittir alltaf einhvern áhuga-
verðan,“ upplýsir Ása og þá er
ekki úr vegi að spyrja hvort hún
hafi hitt einhverja fræga núna.
„Í fyrra gengum við Pétur Gunn-
arsson, maðurinn minn, fram á
Woody Harrelson. Það var mjög
skrýtið. Ég var á sama veitingastað
og Tarantino eitt kvöldið núna og
það var mjög sérstakt en ég hafði
náttúrlega ekki mikið tilefni til
að ræða við hann, enda er þetta
bara fólk þótt stjörnur séu. Mig
langaði þó að ræða við hann því
hann var eitt sinn á Íslandi að sýna
uppáhaldskvikmyndirnar sínar
sem mótuðu hann sem listamann.
En það samtal átti sér ekki stað,“
segir Ása og bætir við að stjörn-
urnar haldi sig mikið út af fyrir
sig. „Rauði dregillinn í ár hefur
verið hlaðinn stjörnum eins og
Bill Murray, Adam Driver, Chloë
Sevigny, Tilda Swinton, Selena
Gomez, og Tom Waits. Svo voru
það Leonardo DiCaprio, Brad Pitt,
Margot Robbie og Tarantino og
svo mætti lengi telja. Það er mikill
spenningur fyrir verðlaunaaf-
hendingunni og hver hreppir Gull-
pálmann á Cannes 2019.“
Glamúr og lúxus
Ása segir að jafnan sé mikill
glæsibragur á hátíðinni. Það geti
hins vegar verið krefjandi enda
mikill hraði. „Þetta er stórkost-
legt allt saman og fólk er oftast
alveg uppgefið eftir hátíðina.
Glæsibragurinn felst aðallega í
hversu mikil virðing er borin fyrir
frumsýningum á kvikmyndum,
hvað þetta er stórt móment fyrir
alla þá fjölmörgu sem komu að
myndunum. Í Cannes snýst allt um
glamúr, allt frá búðum og hönnuð-
um yfir í snekkjur og veitingastaði.
Þetta er einstök hátíð með mikinn
sjarma. Það er mjög dýrt að vera
hér á Frönsku rívíerunni. Betlar-
arnir eru meira að segja margir í
designer fötum,“ segir hún.
Týndur galakjóll
„Við Hrönn gistum núna í fyrsta
skipti í gamla bænum í Cannes,
þar eru margir spennandi veit-
ingastaðir. Sjávarréttir eru mjög
ferskir og vinsælir. Maturinn er
frábær og ég hef nú þegar borðað
á tveimur stöðum sem eru með
Mich elin-stjörnu.
„Ég var svo óheppin að taskan
mín týndist á leiðinni hingað og
ég þurfti að kaupa mér nauðsyn-
lega hluti og föt. Galakjóllinn
og skór sem mamma mín gaf
mér eru í töskunni og allir mínir
dýrmætustu skartgripir. Ég fékk
skilaboð um að hún væri fundin
en því miður voru það mannleg
mistök og rangar upplýsingar. Ég
hef þá trú að ef ég hugsa jákvætt
og reyni að hlæja að öllum þessum
skrítnu símtölum sem ég hef þurft
að standa í til að finna hana – þá
finnist hún að lokum. Það verður
líklegast ekki fyrr en ég kem
heim.“
Eurovision-partí
Ása segir að það hafi enginn áhugi
verið fyrir Eurovision um síðustu
helgi í Cannes og ekki fundu þær
stöllur bar til að horfa á keppnina.
„Við enduðum í íbúðinni okkar
með pínulítið sjónvarp. Vinir
mínir sem eru á Evrópureisu
keyrðu hingað frá Barcelona til
að horfa á Eurovison með okkur
og áður en við vissum var vænn
hluti Íslendinga sem eru hér í
Cannes kominn til okkar að horfa
á Hatara. Ég efast um að einhver
önnur þjóð hér á Cannes hafi tekið
sér frí eitt kvöld frá þessari einni
stærstu kvikmyndahátíð í heimi
til þess að horfa á Eurovision.“
Þegar Ása er spurð hvað taki
við þegar heim kemur og hvort
eitthvað nýtt sé á döfinni í Bíó
Paradís, segir hún að það sé alltaf
eitthvað nýtt og skemmtilegt að
gerast. „Ég get ekki einu sinni talið
upp allt það sem er nýtt hjá okkur.
Við erum að undirbúa eitt stór-
kostlegasta haust sem við höfum
boðið upp á hingað til. Nýjung-
arnar felast í því hvaða viðburði
við bjóðum upp á eða kvikmyndir
sem við frumsýnum. Það eru tvö
ár síðan við fórum að bjóða upp á
sýningar á nýjum pólskum kvik-
myndum sem eru sýndar á sama
tíma hér og í Póllandi. Þær hafa
slegið rækilega í gegn og við erum
að kanna hvort við getum sýnt lit-
háískar kvikmyndir. Við bjóðum
alltaf upp á íslenskar kvikmyndir
með enskum texta og reynum
að auka framboðið einmitt yfir
sumartímann fyrir erlenda ferða-
menn,“ segir Ása en hún og maður
hennar, Pétur, eiga soninn Hólm-
stein, sem verður ársgamall í ágúst
svo það verður gaman fyrir hana
að koma heim og hitta gullmolann
sinn.
Þá var stórkostlegt
að fylgjast með
kvikmynd Hlyns Pálma-
sonar, Hvítur, hvítur
dagur, þar sem Ingvar E.
Sigurðsson var að vinna
verðlaun sem besti
leikarinn, en myndin
hlaut einnig fleiri verð-
laun.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
1
2
-8
7
C
4
2
3
1
2
-8
6
8
8
2
3
1
2
-8
5
4
C
2
3
1
2
-8
4
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K