Fréttablaðið - 24.05.2019, Qupperneq 18
Í hádeginu í dag verður í annað sinn haldið alheimsloftslags-verkfall, sem er fjórtánda
loftslagsverkfallið í Reykjavík og
fertugasta loftslagsverkfallið sem
Greta Thunberg heldur. Síðast
mættu á annað þúsund manns
á Íslandi og Sigurður vonast til
þess að gera enn betur í dag, því
þó að skólakrakkar séu á leiðinni
í sumarfrí fari loftslagsvandinn
ekki í sumarfrí.
Kröfur verkfallsskipuleggj-
endanna eru að ríkið leggi meira
fjármagn í aðgerðir gegn loftslags-
breytingum. „Vísindamenn hafa
talað um að það þurfi að gera það
strax, en á síðustu árum er losun
eiturefna út í umhverfið samt að
aukast. Ástandið er ekki enn farið
að skána. Við köllum eftir því að
það verði lýst yfir neyðarástandi,
við þurfum að kljást við ástandið
sem slíkt. Við erum alls ekki búin
að leysa málið. Þess vegna munu
loftslagsverkföllin halda áfram
en í smærra sniði í sumar. Síðan
Þótt skóla-
krakkarnir séu
farnir í sumarfrí
verða áfram
loftslagsmót-
mæli á föstu-
dögum.
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Loftslagsvandinn fer ekki
í frí, verkföllin halda áfram
Sigurður Loftur
Thorlacius með
gjallarhornið í
loftslagsverk-
falli á Austur-
velli.
Unga fólkið er
duglegast að
mæta á mót-
mælin
Loftslagsvandinn
varðar okkur öll,
ekki bara unga
fólkið, þótt það
sé duglegast að
mæta í loftslags-
verkföllin. Þetta
segir Sigurður
Loftur Thorlacius
sem hefur staðið
að skipulagningu
fjórtán loftslags-
verkfalla á síðast-
liðnu skólaári.
tökum við aftur við af fullum
krafti í haust, nema auðvitað
að við sjáum einhverjar alvöru
aðgerðir í loftslagsmálum og að
það sé verið að reyna að leysa
þetta.
Fólki verður velkomið í sumar
að koma á föstudögum í hádeg-
inu á Austurvöll eða fyrir utan
þinghúsið. Einhver úr skipulags-
hópnum verður alltaf á staðnum
með skilti.“
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður
Vinstri grænna, gerði loftslags-
vandann að ræðuefni sínu á
þingi þann 30. apríl síðastliðinn.
Þingmennirnir Logi Einarsson,
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,
Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón
S. Brjánsson, Guðmundur Andri
Thorsson, Helga Vala Helgadóttir
og Oddný G. Harðardóttir f luttu
tillögu til þingsályktunar um
að útbúa svokallaðan grænan
samfélagssáttmála, sem eigi að
stuðla að sjálf bærni landsins og
umhverfisvænu hagkerfi, eins og
kemur fram á vef Alþingis.
„Ég er ánægður að sjá að þing-
menn séu allavega farnir að ræða
eitthvað af tillögum okkar.“ Í kjöl-
far fundar með forsætisráðherra
sem skipuleggjendur verkfallanna
áttu, var ákveðið að þingmenn
myndu mæta á fund unga fólksins
sem tekur þátt í skólaverk-
föllunum. Það hefur hins vegar
frestast eitthvað og Sigurður hefur
áhyggjur af því að fundinum verði
frestað fram yfir sumarfrí. „Maður
reynir alltaf að vera bjartsýnn, en
það er bara svo margt sem þarf að
gera miklu betur en hefur verið
gert. Það er staðan.“
Ég er ánægður að
sjá að þingmenn
séu allavega farnir að
ræða eitthvað af til-
lögum okkar. Maður
reynir alltaf að vera
bjartsýnn, en það er
bara svo margt sem þarf
að gera miklu betur en
hefur verið gert.
Sigurður Loftur Thorlacius
NÆRING, HEILSA OG LÍFSSTÍLL
Föstudaginn 31. maí gefur Fréttablaðið út sérblaðið Næring, heilsa og lífsstíll.
Blaðið mun ná afar vel til allra þeirra sem hafa áhuga á hreyfingu, útivist og hollu
og næringarríku mataræði.
Í blaðinu verður fjallað um allt mögulegt sem viðkemur heilsusamlegum lífsstíl auk
áhugaverðra viðtala við fólk sem hefur snúið við blaðinu og öðlast betra líf með
hreyfingu og heilnæmu mataræði.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir
Arnar Magnússon, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst i a að d gurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggð þér gott uglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
1
2
-9
B
8
4
2
3
1
2
-9
A
4
8
2
3
1
2
-9
9
0
C
2
3
1
2
-9
7
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K