Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 20
Sigurjón og Stefán segja við
skiptavinina ánægða með skóna.
„Ég er með fjarþjálfun í gangi og
nokkrir af mínum kúnnum eru að
prófa að hlaupa í þessum skóm.
Þeir hafa allir verið mjög ánægðir.
Einn þeirra var með beinhimnu
bólgu og hún hvarf þegar hann fór
að nota skóna. Kannski var hann
ekki í réttu skónum fyrir, en það
er gaman að heyra að On skórnir
hafi virkað svona vel,“ segir
Sigurjón.
„Margir sem hafa keypt skó hjá
okkur hafa átt On áður sem þeir
hafa þurft að kaupa erlendis. Það
er góður hópur af fólki sem þekkti
merkið áður en við fórum að selja
það. Þegar fólk fer í On þá sækist
það eftir því að vera í þeim aftur,“
bætir Stefán við.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Sigurjón finnur
mikinn mun
þegar hann
hleypur í On
skóm FRÉTTA-
BLAÐIÐ/SIGTRYGG-
UR ARI
Viðskiptavinir geta prófað skóna á hlaupabrettum 2XU fötin búa yfir ótrúlegum eiginleikum
Cloudflow eru léttir og þægilegir
hlaupaskór sem gefa meiri dempun
Sportvörum. Hann tekur undir
orð Stefáns. „On skórnir sem ég hef
prófað eru allir mjög léttir og þol
góðir. Þeir endast alveg ótrúlega
vel, allavega enn sem komið er.
Það sér ekki á þeim þó ég sé búinn
að hlaupa yfir 100 kílómetra á
sumum skónum.“
Sigurjón útskýrir að CloudTec®
tæknin á skósólanum virki eins og
ský. Dempunin er ekki bara upp
og niður heldur líka áfram og aftur
á bak. Slík dempun þekkist ekki í
öðrum hlaupaskóm hér á landi.
„Mér finnst mjög gott f læði í
þeim, ef svo má að orði komast.
Skórnir eru mjög þægilegir að öllu
leyti. Svo skemmir ekki fyrir að
mér finnst þeir líta ansi vel út. Þeir
virka alveg þó þú sért að fara á
fund, í matarboð eða hvert sem er,“
segir Sigurjón.
Sportvörur selja bæði hlaupa
skó, hversdagsskó og alhliða
íþróttaskó frá On. Allir skórnir
eru búnir CloudTec® tækninni.
Tæknin er þó misjöfn eftir teg
undum. „Það er til dæmis öðruvísi
CloudTec® tækni í utanvegaskóm
en götuskónum. Það þarf annars
konar grip í utanvegahlaupum og
þeir hjá On gera ráð fyrir því. Þeir
eru líka með keppnistýpur í bæði
utanvegaskóm og götuskóm,“ segir
Sigurjón.
Brettið gefur kraft
Fyrir utan CloudTec® tæknina
hafa On skór aðra sérstöðu sem
kallast SpeedboardTM. Speed
boardTM er vökvafyllt bretti undir
innleggi skósins. SpeedboardTM
og CloudTec® vinna saman að því
að hámarka afköst og þægindi við
hlaupin. Í hvert sinn sem fóturinn
lendir á jörðinni þrýstast efnin
í CloudTec® laginu saman og
SpeedboardTM brettið sveigist og
fyllist orku líkt og þegar bogi er
spenntur. Þegar sveigjan minnkar
losnar orkan úr brettinu og
hlauparinn fær aukinn kraft.
Verkfræðingar þróuðu Speedbo
ardTM til að nýta orkuna sem
myndast við hreyfingu hlauparans
til fullnustu. Þeir vildu finna upp
tækni sem lágmarkaði tap á hreyfi
orku milli skrefa. Eitthvað sem
myndi breyta orkunni í hreyfingu
fram á við. Eftir fjölda tilrauna,
frumgerða og hlaupaprófa varð On
SpeedboardTM til.
„Speedboard virkar eins og
jafnvægisbretti,“ segir Sigurjón.
Það hjálpar þér að stilla þig betur
af í hlaupunum svo þú lendir
rétt. Brettið er líka góð vörn gegn
steinum. Það jafnar álagið svo ef
þú stígur á stein dreifist það um
allan fótinn. Þetta er sérstaklega
gott í fjallahlaupunum, þar sem
hlauparar geta stigið á oddhvassa
steina.“
Hægt að prófa skóna
á hlaupabretti
Allir sem koma í Sportvörur geta
fengið að prófa skóna á tveimur
mismunandi hlaupabrettum.
Bæði hefðbundnu hlaupabretti
og kúptu bretti sem notandinn
knýr áfram sjálfur. Upplifunin
af skónum getur verið misjöfn
eftir því á hvernig undirlagi er
hlaupið og Stefán segir þess vegna
mikilvægt að geta boðið viðskipta
vininum upp á að prófa skóna
almennilega.
Allir starfsmenn verslunarinnar
hafa bakgrunn í íþróttum og við
skiptavinirnir geta því stólað á
mjög góðar og faglegar ráðlegg
ingar um hvaða skór henta þeim
best.
„Við mælum með að fólk prófi
allavega tvær týpur til að fá
samanburð og jafnvel að koma
með sína gömlu skó svo fólk finni
muninn. Það eru alltaf allir vel
komnir að koma að máta og prófa,
en langflestir kaupa skóna þegar
þeir eru búnir að prófa þá. Það er
okkar upplifun. Vonandi heldur
það áfram,“ segir Stefán.
Compression fatnaður
sem bætir frammistöðu
Verslunin Sportvörur býður einn
ig upp á fatnað frá 2XU. 2XU er
leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í
compression fatnaði. Fatnaðurinn
er vísindalega prófaður og þraut
reyndur til að bæta æfingar,
frammistöðu og endurheimt fyrir
allt íþróttafólk. Nýlegar óháðar
rannsóknir sýna að þeir sem nota
compression buxur frá 2XU ná 10,6
sekúndum betri tíma í 5 kílómetra
hlaupi, þeir hafa 2,5% hægari púls,
ná 5% meiri hámarkskrafti, blóð
flæði til lærvöðva eykst um 18%,
vöðvahreyfingar minnka um 19%,
eymsli um 47% og bólgur minnka
um allt að einum sentimetra.
„2XU er með mjög breiða línu.
Hvort sem þú ert í ræktinni, að
hlaupa, í þríþraut eða hjóla þá er
allt til alls til í þessu vörumerki.
Þetta er ekki bara íþróttafatnaður.
2XU er með hversdagsfatnað,
stuðningsfatnað fyrir óléttar
konur, f lugsokka og flugbuxur,
það er í raun bara öll f lóran til.
Þess vegna er gott ef fólk kemur í
verslunina, þá fær það ráðlegging
ar um hvað hentar best og fær líka
tækifæri til að máta fatnaðinn,“
segir Stefán.
„Flestum finnst gaman að koma
í verslunina hjá okkur. Við köllum
hana dótabúð íþróttafólksins.
Verslunin er orðin hálfgerð félags
miðstöð fyrir ákveðna fastakúnna
sem koma aftur og aftur bara til
að skoða. Það er okkar markmið
að fólki finnist gaman að koma í
búðina til okkar. Við vonum að
sem flestir leggi leið sína til okkar
og skoði hvað við bjóðum upp á.“
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RÚT AÐ HLAUPA
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
1
2
-9
6
9
4
2
3
1
2
-9
5
5
8
2
3
1
2
-9
4
1
C
2
3
1
2
-9
2
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K