Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 22
Ég byrjaði svo að
hlaupa og fann það
strax hvað ég naut þess,
þá aðallega að geta
sameinað útiveru og
hreyfingu.
Sandra Dögg Björgvinsdóttir
Fáðu faglega aðstoð við val á göngu-
og hlaupaskóm hjá íþróttafólkinu
í verslun okkar.
Höfðinn / Bíldshöfða 9 / flexor.is
HLAUPTU Á
GÓÐUM SKÓM
göngugreining
hverju pari af skóm í maí
FYLGIR
Sandra Dögg
Björgvinsdóttir
hefur aðeins
verið að hlaupa
í tæplega ár en
hún kláraði sitt
fyrst maraþon nú
á dögunum og
stefnir á fleiri á
þessu ári.
Kaupmannahafnar mara-þonið fór fram í fertugasta skiptið um síðustu helgi
en þar hljóp hin 26 ára gamla
Sandra Dögg sitt fyrsta maraþon.
Sandra hefur búið í Kaupmanna-
höfn undanfarin ár þar sem hún
stundar meistaranám í Brand and
communications management við
Copenhagen Business School.
Útihlaup er tiltölulega nýtt
sport hjá Söndru en hún byrjaði
að hlaupa í fyrra sumar. „Ég var
alltaf í fótbolta og hætti fyrir
rúmum þremur árum og vantaði
nýtt sport eftir það og var svolítið
lengi að finna það. Ég byrjaði svo
að hlaupa síðasta sumar og fann
strax hvað ég naut þess, þá aðal-
lega að geta sameinað útiveru og
hreyfingu.“ Hlaupið um síðustu
helgi var hennar fyrsta maraþon
en hún hafði áður tekið hálfmara-
þon og eitt 30 kílómetra utan-
vegahlaup.
Maraþon og meistaranám
Sandra Dögg sátt og sæl eftir fyrsta maraþonið sitt í Kaupmannahöfn um síðustu helgi.
Sandra Dögg hefur mikinn áhuga á
utanvegahlaupum en þar nær hún að
sameina útiveru, náttúru og hlaup.
Sandra fagnar hér með íslenska og
danska fánann eftir hlaup en hún er
búsett í Kaupmannahöfn þar sem
hún var að ljúka mastersnámi.
Ásta Eir
Árnadóttir
astaeir@frettabladid.is
Hlaup og ritgerðarskrif
Í janúar ákvað Sandra að hún vildi
taka þátt í maraþoni á þessu ári
og hófst þá undirbúningur þrátt
fyrir að hún væri ekki búin að skrá
sig í eitthvað ákveðið maraþon.
„Ég var búin að vera í crossfit frá
október-janúar og eftir að ég ákvað
að hlaupa maraþon þá byrjaði ég
að hlaupa aftur í febrúar og var að
hlaupa um það bil fjórum sinnum
í viku.“ Hún lagði áherslu á að taka
fjölbreyttar æfingar í hverri viku.
„Æfingavikan var oftast þann-
ig upp sett að ég tók einu sinni
til tvisvar í viku venjulegan túr í
kringum 10 kílómetra, einu sinni í
viku hraðaaukningar eða brekku-
spretti og síðan reyndi ég að taka
einn lengri túr ef ég hafði tíma.“
Einnig blandaði hún lyftingum
saman við hlaupaæfingarnar, þar
sem hún telur að styrkur sé ekki
síður mikilvægur fyrir hlaupara.
Rúmum mánuði fyrir mara-
þonið hljóp hún 30 kílómetra
utanvegahlaup og eftir það hlaup
ákvað hún að skrá sig í Kaup-
mannahafnar maraþonið. „Eftir
að ég skráði mig náði ég í raun lítið
að æfa þar sem ég var að leggja
lokahönd á meistararitgerðina
mína og fylgdi því engu sérstöku
prógrammi síðustu vikurnar.“
Fjórum dögum eftir ritgerðar-
skil kláraði hún svo sitt fyrsta
maraþon á tímanum 03:59:55,
glæsilegur árangur.
Mikilvægt að njóta
og hafa gaman
Það eru margir þættir sem að spila
inn í til að ná góðum árangri. „Lyk-
illinn er að hafa gaman af þessu
og það er líka mikilvægt að þekkja
skrokkinn á sér,“ segir Sandra.
Fyrir byrjendur, þá mælir hún með
að njóta þess að vera úti í fersku
lofti að hlaupa. „Ekki endilega
pæla í vegalengdunum, frekar að
miða við einhvern ákveðinn tíma
sem þú ætlar að vera úti að hlaupa
og hlaupa á þeim hraða sem þér
líður vel á og bæta þá frekar í með
tímanum. Síðan er líka ótrúlega
gott að finna sér hlaupafélaga,“
segir Sandra sem telur að góður
félagsskapur sé mikilvægur á erf-
iðum æfingum.
Utanvegahlaupin heilla
Sandra stefnir á f leiri maraþon á
næstunni, jafnvel annað á þessu
ári. „Ég hafði líka mjög gaman af
utanvegahlaupinu sem ég fór í og
mig langar að taka fleiri svoleiðis.
Þar næ ég að sameina útiveru, nátt-
úru og hlaup sem mér finnst hin
fullkomna þrenna.“ Hún er spennt
að taka utanvegahlaup heima
á Íslandi í sumar þar sem þar er
mikið af fallegum hlaupaleiðum í
einstakri náttúru.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RÚT AÐ HLAUPA
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
1
2
-8
2
D
4
2
3
1
2
-8
1
9
8
2
3
1
2
-8
0
5
C
2
3
1
2
-7
F
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K