Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.05.2019, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 24.05.2019, Qupperneq 24
Stjórn Skokkhóps Hauka sér um skipulagningu hlaupsins undir formennsku Rann- veigar Haf berg. Hlaupið byrjar á Ásvöllum í Hafnarfirði, þaðan liggur leiðin upp að og kringum Hvaleyravatn, og um náttúru- perlur í upplandi Hafnarfjarðar. „Við erum venjulega með tón- listaratriði og fleiri skemmtiatriði í kringum hlaupið og það gerir stemninguna enn skemmtilegri að fólk hefur verið duglegt að koma, bæði til að hvetja eða hlaupa. Við erum alltaf löngu búin að panta rosalega gott veður, sem hefur tekist hingað til. Það verður að sjálfsögðu gott veður í ár, ég lofa því bara hér og nú,“ segir Anton.  Í ár ákvað stjórnin okkar að aðeins 500 manns kæmust í hlaupið að hámarki og Anton hvet- ur fólk að drífa sig í að skrá sig þar sem þegar eru margir búnir að því. Hlaupið er vinsælt hjá erlendum hlaupurum jafnt sem helstu hlaupurum landsins, enda er gefinn ITRA-punktur fyrir þá sem klára 22 kílómetra leiðina. „Til að komast í sum, stór hlaup erlendis, þarftu að vinna þér inn ákveðið marga ITRA-punkta. Þetta hlaup gefur einn punkt, en það eru þrjár vegalengdir sem hægt er að hlaupa í Hvítasunnuhlaupinu, 14 kíló- metra hlaup, 17 og hálfs kílómetra og svo 22 kílómetra hlaupið. Menn geta valið sér vegalengd við hæfi.“ Annars er hlaupið góð æfing fyrir til dæmis þá sem ætla að hlaupa Laugavegshlaupið þann 13. júlí í ár. „Flestir sem fara í Laugavegs- hlaupið hlaupa í Hvítasunnu- hlaupinu til að undirbúa sig, en Hvítasunnuhlaupið bíður upp á hækkun og lækkun, malarstíga og Fyrsta sinn á Íslandi notuð fjölnota drykkjarmál í hlaupi Eitt fyrsta utanvegahlaup ársins er Hvítasunnuhlaupið, sem verður hlaupið í ár þann 10. júní. „Hlaupið er í mjög fjölbreyttri náttúru og alltaf gríðarlega skemmtilegt og ægilega mikil stemn- ing,“ segir Anton Magnússon í Skokkhópi Hauka og upphafsmaður Hvítasunnuhlaupsins. Anton Magnússon hlaupari og einn skipuleggjanda Hvítasunnuhlaupsins. Myndir frá Hvítasunnuhlaupinu 2018. Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á 100 km liðakeppni sem er skipt upp þannig að fjórir kepp- endur hlaupa 25 km hringinn, þannig gildir samanlagður tími þeirra í liðakeppni en að sjálfsögðu virkar tíminn þeirra líka sem ein- staklings tími. „Þjóðsagan segir að Jóra í Jórukleif, tröllskessa mikil sem fór víða um Suðurland, hafi eina nótt, úrill í skapi, étið toppinn á Henglinum. Það á að skýra rofið sem er í toppi fjallgarðsins.“ Byrjunarreitur allra vegalengda og mótsstjórn verður við veit- ingastaðinn Skyrgerðina í hjarta Hveragerðis. Styttri vegalengd- irnar eru í kringum Hveragerði og upp að Hamrinum sem er gríðar- lega fallegur hraunhamar yfir bænum. 25 km vegalengdin er upp Reykjadalinn að Ölkelduhnjúk og í kringum hann. Vegleg drykkjar- stöð verður á Ölkelduhálsi. 50 km Liðakeppni í Hengill Ultra hlaupinu Hengill Ultra Trail keppnin verður haldin áttunda árið í röð þann 6.-7. september næstkomandi. Eins og í fyrra verða hlaupnir í 5, 10, 25, 50 og 100 km sem er lengsta utanvegahlaup á Íslandi. Glaður hópur hlaupara. Enn er góður tími til að skrá sig í hlaupið. hlauparar fara hins vegar áfram inn að Hengli, yfir fjallgarðinn, niður Sleggjubeinsskarð þar sem er salerni og vel útbúin drykkjar- stöð og þaðan til baka. Þeir sem hlaupa 100 km fara þá leið tvisvar. Útsýnið frá Hengli er algjörlega einstakt og er þessi hlaupaleið ein sú fallegasta sem hægt er að finna á Íslandi. Gjafapoki með óvæntum glaðningi frá samstarfsaðilum er innifalinn í skráningu fyrir alla þá sem munu skrá sig fyrir miðnætti 3. september. Eftir það verður ekki hægt að skrá sig til leiks nema í 5 og 10 km hlaup. Allir sem hlaupa 50 km og 100 km fá sérstakan „finisher“ fatnað merktan þessum merkilega áfanga. Hengill Ultra er síðasta stóra hlaup sumarsins og má því segja að þetta verði sannkölluð uppskeru- hátíð íslenskra hlaupara. grasstíga, mjóa stíga, breiða stíga og allt þar á milli.“ „Hluti ágóða Hvítasunnuhlaups- ins ár hvert rennur til styrktar Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, en þau sem standa fyrir henni hafa notað upphæðina í viðhald og endurnýjun á göngustígum, sem nýtist síðan öllum náttúru- hlaupurum, enda er svæðið gríðar- lega vinsælt svæði til æfinga,“ segir Hreiðar Júlíusson, hlaupaþjálfari og stjórnarmaður í Skokkhópi Hauka. Anton segir að það sé stefnt að því að gera hlaupið vistvænt, í ár verður til dæmis ekki boðið upp á einnota drykkjarmál á drykkjar- stöðum. „Öllum sem taka þátt í hlaupinu verður gefið margnota glas sem er hægt að brjóta saman. Menn verða að vera með drykkjar- málin sín ef þeir ætla að fá vatn á drykkjarstöðum. Þetta fyrir- komulag er aðeins byrjað erlendis, en Hvítasunnuhlaupið er líklega fyrsta hlaupið á Íslandi til að fram- kvæma þetta.“ Skipuleggjendur Laugavegshlaupsins tilkynntu að þeir myndu hafa sama fyrirkomu- lag. Eftir hlaupið verður svo boðið upp á veitingar, heita súpu og Hleðslu, og verðlaun verða afhent. „Hlaupið er haldið í samstarfi við Sportís, í verðlaun eru alls konar vörur frá þeim eins og hlaupaskór til dæmis, ásamt fjölda vinninga frá öðrum góðum styrktaraðil- um“ segir Anton. Þá er bæði mögu- leiki á að vinna verðlaun fyrir árangur í hlaupinu og að vinna útdráttarvinninga fyrir þátttöku. 6 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RÚT AÐ HLAUPA Myndir frá Hvítasunnuhlaupinu 2018. MYNDIR/RAGNHILDUR AÐALSTEINSDÓTTIR. 2 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 1 2 -6 F 1 4 2 3 1 2 -6 D D 8 2 3 1 2 -6 C 9 C 2 3 1 2 -6 B 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.