Fréttablaðið - 24.05.2019, Side 36
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Elskuleg frænka okkar,
Ingibjörg Steinunn
Kristjánsdóttir
frá Borgarnesi,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu
Skjóli 16. maí sl. verður jarðsungin frá
Áskirkju föstudaginn 24. maí kl. 11.00.
Sigurþór Jóhannesson Árný Ásgeirsdóttir
Kristrún Jóhannesdóttir
Unnur, Erla, Eva, Albert
og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ragna Kristín Karlsdóttir
frá Garði,
lést á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku
Ólafsfirði sunnudaginn 12. maí.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
laugardaginn 25. maí kl. 14.
Hulda Gerður Jónsdóttir Aðalsteinn Friðþjófsson
Magnús Símon Jónsson Silvia Putta
Hólmfríður Sólveig Jónsdóttir Gísli Heiðar Jóhannsson
Helena Reykjalín Jónsdóttir Vilhjálmur Sigurðsson
Rögnvaldur Karl Jónsson Björg Traustadóttir
Harpa Hlín Jónsdóttir Magnús Rúnar Ágústsson
Rithöfundar eru fólk sem fær borgað fyrir að detta út, fyrir athyglisbrest, borgað fyrir að gleyma sér, þann-ig er dagurinn hjá mér. Ég týnist mikið, dett milli
vídda, til dæmis bara við að horfa á
kaffikorginn skolast til í hvítum vask-
inum. Ég var í slíku fráhvarfi frá heim-
inum þegar síminn hringdi og mér var
sagt að ég væri listamaður bæjarins um
sinn. Það er tvist í afstæðri sögu sem ég
sá ekki fyrir,“ segir Bjarni M. Bjarnason
rithöfundur sem var valinn Bæjarlista-
maður Garðabæjar í vikunni.
Bjarni kveðst hafa fengið í faðminn
blóm og bækur. „Menn lesa mig eins og
opna bók og vita hvað ég vil. Ég er búinn
að skoða eina bókina, Allt eitthvað sögu-
legt, það er ljósmyndabók eftir Báru
Kristinsdóttur. Myndirnar eru teknar á
verkstæði í Garðabæ og eru af öldnum
vinnufélögum, Elíasi Guðmundssyni
og samstarfsmanni hans. Þetta eru
myndir sem lýsa æviskeiði þeirra með
því að sýna hluti veðraða af tímanum.
Jón Kalman tók saman texta með töfra-
glefsum úr því sem þeir segja, það eru
fá orð sem þó draga upp mynd af ævi
– orð til dæmis um ástarsögu sem hófst
eftir Vestmannaeyjagosið, en hvarf svo,
undarlega, eins og reykur. Þetta er ljóð-
ræn og falleg bók og eitt af því sem kom
mér skemmtilega á óvart þennan dag,
ég vissi ekki einu sinni að hún væri til.“
Auk þess kveðst Bjarni hafa verið
svo heppinn að fá að taka í höndina á
sagnfræðingi bæjarins, Steinari J. Lúð-
víkssyni. „Steinar horfði, dáleiðandi og
stillilega, djúpt inn í fortíðina að baki
mér, sagði, eins og miðill, að við húsið
okkar hérna í bænum hefði verið sjoppa
og bensíndæla. Nokkuð sem skýrir
ryðguðu olíurörin sem skjótast hér og
hvar upp úr grasinu milli blóma. Í þessu
ljósi hef ég í dag ekki upplifað mig sem
listamann bæjarins, heldur sem bens-
ínafgreiðslumann um miðja síðustu
öld, að veiða upp úr ferðalöngum sögur
af næstu bæjum. Það kæmi mér ekki á
óvart að ég ætti eftir að upplifa mig sem
slíkan næsta árið og fyrir það er ég afar
þakklátur Menningar og safnanefnd-
inni. Það er ótrúlegt hvernig hægt er að
koma manni í samband við upprunann
nú til dags.”
Eins og rithöfundum er tamt er Bjarni
að skrifa. „Ég er að vinna skáldsögu og
líka ritgerðir, nú síðast um Drauma-Jóa
sem fæddist 1861, ef ég man rétt, og bjó
á Sauðaneskoti á Langanesi fyrstu árin,
veiktist tvisvar af taugaveiki í æsku en
starfaði svo sem sauðahirðir og vinnu-
maður. Hann var berdreyminn og var
efni í fyrstu dulsálarrannsóknina á
Íslandi sem Ágúst H. Bjarnason gerði.
Sérstakt við hann var að það var hægt
að halda uppi samtali við hann meðan
hann svaf. Var hann þá mun málgefnari
en hinn hógværi maður sem hann var í
vöku. Ég hef alltaf haft áhuga á draumum
og fann ýmsa skemmtilega, sem komu
eftir pöntun frá sveitungum hans sem
báðu hann um að athuga eitt og annað,
utan þeirra sjónarsviðs. Drauma-Jói var
svolítið notaður eins og internetið nú
til dags, það var alltaf verið að „gúggla“
í kollinum á honum. Spyrja hann til
dæmis um ættingja sem voru horfnir
til Vesturheims og menn höfðu misst
sambandið við. Hann fór á sálnaflakk,
tékkaði á þeim og hafði nákvæmar
fréttir að færa af húsakosti og fjölskyldu-
högum þegar hann sneri aftur! Sérstakt
við draumana er að þeir eru alltaf fyrir
einhvern annan, aldrei hans draumur
– nokkuð sem kannski er hliðstæða við
starf skáldsagnahöfundarins. Eftir mikla
leit tókst mér þó að finna draum, sem
bara var hans og reyndist allt öðruvísi en
allir hinir, ég velti honum oft fyrir mér.“
Bjarni á tæplega fjögurra ára sögu
að baki sem íbúi í Garðabæ, býr þar
með konu sinni Katrínu Júlíusdóttur,
fyrrverandi ráðherra, og börnum og
kveðst kunna vel við sig. „Ég hafði þráð
garð með stóru tré í miðjunni sem hægt
væri að sitja undir í skugga og lesa. Við
fundum hús í svoleiðis garði, og þar er
stór hlynur. Ég er mjög hrifinn af sól svo
fremi sem ég get verið í skugganum. Það
segir kannski eitthvað um höfunda. Það
er líka mikilvægt að vera í réttri tegund
af skugga og þar stendur hlynurinn sig.
Hann breytir ljósinu í gyllta gullpeninga
sem rigna yfir mann og dagbókina, pen-
inga sem eru eins og aðrir slíkir, ágætir
meðan þeir vara, en horfnir út í loftið
áður en maður veit af.”
gun@frettabladid.is
Rétta tegundin af skugga
Bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2019 er Bjarni Múli Bjarnason rithöfundur. Hann
var í fráhvarfi frá heiminum þegar síminn hringdi og hann fékk fréttir um upphefðina.
Hér situr skáldið og nýkjörinn bæjarlistamaður í rétta skugganum af hlyninum góða. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bjarni bæjarlistamaður 2019 og Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar og for-
maður menningar- og safnanefndar Garðabæjar. MYND/VALDIMAR KRISTÓFERSSON
1882 Ekvador hlýtur sjálfstæði frá Spáni.
1935 Friðrik krónprins Dana gengur að eiga Ingiríði
Svíaprinsessu.
1944 Dómkirkjan í Berlín eyðileggst í sprengjuregni.
1956 Fyrsta Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
er haldin í Lugano í Sviss. Lys Assia vinnur fyrir Sviss með
laginu Refrain.
1958 Mokkakaffi á
Skólavörðustíg er
opnað.
1973 Rúður eru
brotnar í breska sendi-
ráðinu í Reykjavík
þegar hópur fólks
mótmælir landhelgis-
deilunni.
1973 Danir lögleiða
fóstureyðingar.
1988 Umdeild sveitarstjórnarlög eru samþykkt í Bret-
landi þar sem kynning á samkynhneigð í opinberum
skólum er bönnuð í grein númer 28.
1990 Tvö nýbyggð flóttamannaskýli í Kimstad í Svíþjóð
eru brennd.
1993 Erítrea hlýtur fullt sjálfstæði frá Eþíópíu.
2001 Temba Tsheri 16 ára verður yngstur til að ná tindi
Everestfjalls.
2001 Maríukirkja í Breiðholti í Reykjavík er formlega vígð.
2002 George W. Bush og Vladimír Pútín undirrita samn-
ing um takmörkun kjarnavopna í Moskvu.
2002 Marta Lovísa Noregsprinsessa gengur að eiga Ari
Behn í Niðaróssdómkirkju.
2003 Sertab Erener sigrar Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva fyrir Tyrkland með laginu „Everyway That
I Can“. Framlag Íslands er lagið Open Your Heart með
Birgittu Haukdal.
2004 Alþingi samþykkir umdeilt frumvarp um eignarhald
á fjölmiðlum.
2007 Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tekur
við völdum á Íslandi.
Merkisatburðir
2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
1
2
-6
F
1
4
2
3
1
2
-6
D
D
8
2
3
1
2
-6
C
9
C
2
3
1
2
-6
B
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K