Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2019 TRATTO model 2811 L 207 cm Aklæði ct. 70 Verð 310.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla SAVOY model V458 L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 310.000,- L 223 cm Leður ct. 10 Verð 435.000,- ESTRO model 3042 L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 249.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,- RELEVE model 2572 L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 315.000,- L 250 cm Leður ct. 15 Verð 459.000,- JEREMY model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 459.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 619.000,- Hefðbundnir pítsubotnar úr hveiti eru ekki hátt skrifaðir hjá þeim sem til- einka sér ketó-mataræði. Pítsa- staðurinn Blackbox í Borgartúni sá þann kost vænstan að þróa sérstakan ketóbotn. „Það eru 9,2 grömm af kol- vetnum í 180 gramma ketó- botninum sem er 10 tommur,“ segir Jón Gunnar Geirdal, einn af eigendum Blackbox, um hinn nýja ketóvæna pítsubotn. Hefð- bundinn pítsubotn staðarins er úr súrdeigi en einnig er hægt að velja glú- tenlausan botn og nú hefur ketó- botn bæst við úrvalið. „Blackbox vildi svara gríð- arlegum vinsældum ketó-matar- æðis og bjóða upp á þennan frábæra val- kost sem passar inn í þennan ramma sem fólk hefur til þess að halda sér í ketónísku ástandi, þ.e. að halda sér undir 20 grömmum af kolvetnum á dag. Það er búið að eyða rúmum þremur mánuðum í að smakka til uppskriftina því við vildum hafa áferðina eins og á pítsubotni og tilfinninguna þannig að það sé ver- ið að borða pítsu.“ Ekki ætti að vera erfitt að velja álegg á pítsuna því á ketó-mataræði eru ostar og kjöt í góðu lagi og flest grænmeti sem vex ofanjarðar. Sætt álegg á borð við ananas þarf þó að láta vera að raða á pítsubotninn eigi pítsan að teljast ketóvæn. Blackbox í Borgartúni hefur þróað pítsubotn fyrir þá sem eru á ketó-mataræði. Morgunblaðið/Ásdís Kolvetnum úthýst af pítsunni Meðal innihaldsefni í ketóvæna pítsu- botninum eru hveitiprótein, sojaprótein, hörfræ, sólblómafræ og sojahveiti. Ketó-mataræðið hefur náð slíkum vinsældum að pítsastaðir verða að aðlagast „Það er engu líkara en að ein- hver Tjarnarsýki hafi gripið um sig meðal skólapilta hér í bæn- um,“ segir í frétt í Morgun- blaðinu frá því apríl 1960. „Í gær sótti lögreglan einn pilt út í Tjörnina á móts við Miðbæjar- skólann. Hafði að sögn, veðjað við unga stúlku, er með honum var, um það hvort hann kæmist yfir Tjörnina,“ segir þar. „Hann svamlaði síðan út í Tjarnarhólmann. Hettumáv- urinn, sem annars er búinn að leggja undir sig hólmann, hrökklaðist undan er garpurinn skreið þar upp. Hann fór svo beinustu leið yfir hólmann og útí aftur, og létti eigi fyrr en hann kom að bakka tjarnarinnar á móts við Miðbæjarskólann. Þar stóð svo unga stúlkan með jakk- ann hans á handleggnum. Hann fór sér í engu óðslega, færði sig úr skónum og rétti meynni hann, svo hún mætti leysa hnútinn. Hann sat svo dá- litla stund, kastaði mæðinni og laugaði fæturnar í gruggugu vatni tjarnarinnar,“ segir þar en þvínæst var farið með piltinn á lögreglustöðina. Honum var sleppt eftir að hafa sagt að þetta hefði bara verið della í sér. GAMLA FRÉTTIN Tjarnarsýki í bænum Skólapilturinn leiddur burt af lögregluþjónum. Margmenni fylgdist með og umferðarhnútar mynduðust á götunni, segir í fréttinni. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Ralph Fiennes leikari Skúli Mogensen fyrrv. forstjóri WOW air Bradley Cooper leikari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.