Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.4. 2019
LÍFSSTÍLL
Það er notaleg stemning á Kaffi Laugalæksem stendur við samnefnda götu. Inn-réttingar eru skandinavískar og á einum
vegg er blómlegt veggfóður sem gefur staðnum
hlýlegan blæ. „Þetta eru norrænar plöntur,
jurtir eins og rabarbari, fjólur og baldursbrár,“
segir Kristín Björg Viggósdóttir sem á og rekur
Kaffi Laugalæk ásamt manni sínum Birni
Haukssyni. Staðinn opnuðu þau haustið 2016.
Einnig er þar gallerí og barnahorn í sérsal en
Kaffi Laugalækur er í fallegu húsnæði þar sem
áður var Verðlistinn. Uppi á lofti er svo hostel
sem Björn rekur ásamt bróður sínum.
„Við byrjuðum með þá hugmynd að vera
kaffihús en erum í raun orðin bæði veitinga-
staður og bar. Við köllum þetta stundum kaffi-
matbar, en hér er opið frá morgni til kvölds alla
daga,“ segir Kristín.
Allir aldurshópar
„Það er nóg að gera hjá okkur og við erum með
góðan fastakúnnahóp,“ segir hún og Björn bætir
við að dögurðurinn um helgar sé ákaflega vinsæll.
„Hingað koma alls konar klúbbar; sauma-
klúbbar og fjölskylduhópar. Það er mjög breið-
ur aldurshópur, allt frá gamla fólkinu niður í
börnin. Svo á kvöldin kemur fólk að fá sér bjór,“
segir hann.
„Við erum hverfisveitingahús og svo er þetta
eins konar félagsmiðstöð á kvöldin. Við sjáum
líka stundum fólk skrifa og sjáum svo síðar að
búið sé að gefa út bók eftir viðkomandi,“ segir
hún.
Listaháskóli Íslands er í nágrenninu og segj-
ast þau fá bæði marga nemendur og kennara
þaðan. „Svo eru margir fyrrverandi nemendur
að sýna hérna í galleríinu. Það eru sýningar
kortlagðar út árið.“
Beint frá býli
Á matseðlinum eru súrdeigspítsur, hamborgari,
veganborgari, súpur og kökur, svo eitthvað sé
nefnt.
„Við reynum að hafa hráefnið beint frá býli
og stílum inn á að hafa fjöldskylduvænan mat-
seðil,“ segir Björn.
„Við erum með mestu gæðin í kaffi, tei og
kjöti. Margir réttir eru nefndir eftir því hvaðan
þeir eru en við leggjum mikið upp úr því að vera
í nánu samstarfi við birgjana okkar. Sumt hrá-
efnið er beint úr hverfinu og annað frá sveita-
bæjum á Íslandi. Grænmetið er blandað því það
er ekki alltaf hægt að fá það beint frá býli,“ seg-
ir hann.
Maturinn er bæði fallegur á að líta og afar
bragðgóður; það getur blaðamaður vottað!
Morgunblaðið/Ásdís
Félagsmiðstöð-
in í Laugalæk
Hjónin Kristín Björg Viggósdóttir
og Björn Hauksson leggja mikið
upp úr ferskum mat beint frá býli.
Kaffi Laugalækur laðar til sín fjölskyldur, saumaklúbba, söng-
hópa, rithöfunda, listunnendur og almenna svanga og þyrsta
borgara. Staðurinn er allt í senn; kaffihús, bar og veitingastaður
enda kalla eigendur staðinn stundum kaffimatbar.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Bollakökurnar líta vel út!
Það er nóg að gera í eldhúsinu á Kaffi Laugalæk.
Easy2Clean
Mött veggmálning
sem létt er að þrífa
Þvottheldni og slitstyrkur Easy2Clean
málningarinnar er algjör
bylting á markaðinum.
Óhreinindi og fita skilja ekki eftir
sig ummerki og litur og áferð
málningarinnar helst óbreytt eftir þrif.
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig.
Tilboð: 10 lítrar 11.900 kr
200 g suðusúkkulaði
130 g smjör
100 g sykur
3 egg
1 tsk vanillusykur
½ tsk lyftiduft
35 g maizenamjöl
KREM
25 g smjör
½ dl rjómi
200 g myntusúkkulaði
Stillið ofninn á 175°C á undir- og
yfirhita. Smyrjið 24-26 cm smellu-
form. Myljið suðusúkkulaði í pott
ásamt smjöri. Bræðið við vægan
hita og hrærið í, takið síðan af og
látið kólna aðeins. Bætið sykri og
eggjum í og hrærið vel þar til orðið
slétt. Sigtið því næst ofan í hveiti,
vanillusykur og lyftiduft og hrærið
þar til slétt. Hellið deiginu í smellu-
formið og bakið í 40-50 mínútur
neðarlega í ofninum en passið að
kakan haldist blaut í miðjunni.
Hráefnið í kremið er sett í pott
við vægan hita og hrært þar til
súkkulaðið er bráðnað og er slétt
og glansandi.
Leyfið kökunni og kreminu að
kólna nokkuð og smyrjið svo
kreminu yfir. Þessi uppskrift er að-
löguð frá Eldhússögum.com.
Piparmyntu-
súkkulaðikaka