Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.4. 2019
LÍFSSTÍLL
Glæsilegir skartgripir
innblásnir af íslenskri sögu
G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R
Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is
Fyrir einn hamborgara
160 g af 12% nautakjöti, beint frá býli
hvítlaukssósa, heimatilbúin
sultaður laukur
salat með heimatilbúnu pestói
nýbakað veganborgarabrauð
dijonsinnep
Tindur ostur
SULTAÐUR LAUKUR
6 rauðlaukar
100 ml eplaedik
100 g púðursykur
Saxið niður rauðlauka og eldið í
olíu á lágum hita í potti. Bætið við
eplaediki ásamt púðursykri og lát-
ið malla.
VEGANHVÍTLAUKSSÓSA
100 ml kjúklingabaunavatn
sítrónusafi úr ¼ sítrónu
½ msk eplaedik
2 kramdir hvítlauksgeirar
steinselja, salt og pipar eftir smekk
600 ml olía
Setjið í hrærivél 100 ml af kjúkl-
ingabaunavatni, sítrónusafa og epla-
edik, steinselju, salt og pipar ásamt
hvítlauk. Hellið síðan hægt út í 600
ml af olíu meðan hrært er áfram.
VEGANBORGARABRAUÐ
(15-20 stk)
500 g vatn
75 g sykur
10 g salt
15 g þurrger
50 g Ljóma-smjörlíki
750 g brauðhveiti
Setjið allt saman í hrærivél (með
hnoðkrók) og látið hnoðast í 10-
12 mínútur á meðalhraða.
Látið standa á borði með plast
yfir í 2 x 15 mínútur og hnoðið
saman á milli.
Viktið niður í 80 gramma
stykki, hnoðið upp í kúlur og setjið
á plötu. Breiðið plast yfir og látið
hefast í 1½ klukkustund.
Valmöguleiki: Úða með vatni og
dreifa sesamfræjum létt yfir
brauðin.
Bakið við 220°C í 12-14 mín-
útur.
Grillið borgarann í um fjórar
mínútur á hvorri hlið og setjið svo
ost ofan á. Grillið líka brauðið.
Setjið þá hvítlaukssósuna ofan á
brauðið, salat með pestói, kjöt,
sultaðan lauk og sinnep og lokið
svo með hinu brauðinu.
Fjallaborgari
Fyrir eina pítsu
60 g reyktur silungur frá Geiteyjar-
strönd, skorinn í þunnar sneiðar
harðsoðið egg, skorið í báta
piparrótarsósa, heimatilbúin, eða hvít-
laukssósa
salat með heimatilbúnu pestói
skalottlaukur, pikklaður
ferskt dill
ferskt ófrosið súrdeig án viðbætts gers
PIKKLAÐUR SKALOTTLAUKUR
Skerið skalottlauk í þunnar sneiðar og
látið liggja í heitum legi af ediki, vatni og
sykri (1:1:1) og bíðið þangað til kólnar.
Setjið pestóið á súrdeigið og bakið í
nokkrar mínútur á hæsta hita. Takið
út og bætið við salati og öllum hinum
hráefnunum.
Geiteyjar-
strönd –
súrdeigspítsa
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is