Umbrot - 11.07.1975, Blaðsíða 2
Heiðtirsborgaraskjalið . . .
Framhald af bls. 1.
eins og hann er og hefur ætíð
verið.
Ég hef hér að framan í ör-
stuttu máli gert grein fyrir
prestsstarfi sr. Jóns hér á Akra
nesi, sem að allra dómi hefur
verið unnið með ágætum.
Eftir er þá að minnast á
hinn þáttinn í lífi hans, sem
réði úrslitum þess, að við erum
hér saman komin í dag. Það
er forustustarf hans í málefn-
um Byggðasafnsins í Görðum.
Byggðasafnið var opnað við
hátíðlega athöfn þann 13. des.
1959. Áður hafði sr. Jón um
mörg ár unnið að undirbúningi
safnsins með söfnun muna.
Safnið er fyrst og fremst orðið
til fyrir dugnað hans og þraut-
seigju. Enginn almennur skiln
ingur var til fyrir gildi slíkrar
stofnunar, áður en hann hófst
handa og lét engar úrtölur á
sig fá. Honum var ljósara en
flestum öðrum:
„Að fortíð skal hyggja,
ef frumlegt skal byggja,
án fræðslu þess’ liðna,
sést ei, hvað er nýtt“.
Þessi snjöllu orð skáldsins
hafa orðið sr. Jóni hvatning
í hinu mikla menningarstarfi,
sem eftir hann liggur í Görð-
um. Það leynir sér ekki að
hann hefur farið sínum nær-
fæmu listamannahöndum um
safnið og lagt alla sál sína í
störfin þar. Ekki aðeins í söfn
un muna og niðurröðun þeirra,
heldur hefur hann teiknað sjálf
ur fjölda mynda af gömlum
bæjum í hreppunum hér fyrir
ofan Akranes, eftir ljósmynd-
um eða fyrirsögn eldri manna,
sem svo langt muna. En safn
þetta er fyrir ’Akranes og
hreppana sunnan Skarðsheiðar
í Borgarfjarðarsýslu, eins og
kunnugt er. Safnið í Görðum er
nú tvímælalaust eitt af merk-
ustu byggðasöfnum landsins.
Þetta safn, í hinum nýju húsa-
kynnum gegnir þegar mikil-
vægu menningarsögulegu hlut-
verki og á eftir að gera enn
meira, er tímar líða. Þegar
gestir koma hér á Akranes
er Byggðasafnið í Görðum,
eitt af því, sem sjálfsagt þykir
að sýna og er stolt bæjarbúa.
Safn þetta væri vart til, án
dugnaðar og einbeitni sr. Jóns,
mér liggur við að segja þráa.
Og enn er horft til hans um
uppbyggingu safnsins um mörg
ókomin ár. Enn er þar mikið
verk að vinna fyrir frjóan
anda og listrænar hendur“.
Því næst var sr. Jóni af-
hent heiðursborgaraskjalið.
Það er forkunnar fagurt, gert
úr geitaskinni og fóðrað að
innan með flaueli. Á forhlið
þess er mynd af gamla byggða
safninu og minningartruninum.
Sigfús Halldórsson, tónskáld
og listamaður skrautritaði
skjalið. Textinn sem ritaður
er, hljóðar þannig:
„Bæjarstjórn Akraness
hefur einróma kjörið þig
heiðursborgara Akraness
sem vott virðingar og þakk-
lætis fyrir iangt og farsælt
starf á Akranesi og sérstak-
lega fyrir forystu þína í mál
efnum Byggðasafnsins að
Görðum“.
Undir þennan texta rituðu
bæjarstjórnarmenn og bæjar-
stjóri.
Þegar afhendingu var lokið
ávarpaði heiðursborgarinn við-
stadda og sagði:
„Háttvirta bæjarstjóm Akra
neskaupstaðar, góðir kirkju-
gestir, kæru vinir.
Ég get ekki að því gert, —
mér voru sporin nokkuð erfið
upp kórþrepin að þessu sinni.
Ég bið ykkur skilja mig. Á-
stæðan fyrir því er, að ég finn
mig vera mjög ómaklegan þess
heiðurs, sem bæjarstjórnin hef-
ur sýnt mér — og forseti henn-
ar hefur innsiglað svo fagur-
lega hér í helgidóminum - fyr-
ir hennar hönd. — Maður
skyldi aldrei slá á framrétta
bróðurhönd, - og vel veit ég
það, að sú hönd, sem mér hef-
ur verið rétt nú, er slík, - að
baki heill og einlægur hugur
og vinarþel. Fyrir því er ég
djúpt snortinn og innilega
þakklátur.
Enginn er neitt af sjálfum
sér. „Af náð Guðs er ég það,
sem ég er,“ er sígild játning.
Eigi maður ekki að Guð sinn -
og einnig góða menn - kemst
maður lítið - öllu heidur ekkert
áfram á lífsleiðinni, er að
gagni komi í neinu tilliti. Mín
hamingja í lífinu hefur verið
að fá að lifa með Guði mín-
um, fundið handleiðslu hans
við hvert fótmál, hann mátt-
ugan í mér óstyrkum, - og
samferðamönnum mínum, sem
staðið hafa við hlið mér á
þann veg, sem frekast er hægt
að vonast til og biðja um. Það,
sem ég kann að hafa gert á
betri lund á lífshlaupi mínu, er
ekki mitt eigið, allt er það
náðargjöf, sem lífið hefur rétt
mér, gjöf, sem mér hefur
verið trúað til að fara þannig
með og ávaxta, er til hamingju
mætti leiða og blessunar í sem
mestum mæli. Hvort svo hef-
ur orðið er ekki mitt að dæma.
- Ég er í skuld við mennina,
í enn stærri skuld við Drott-
inn minn og Guð minn. Honum
gef ég dýrðina, honum ber
lofgjörðin, - og hjartans besta
þökkin meðbræðrum míhum -
fyrr og síðar, sem verið hafa
mér skilningsríkir vinir, gert
mér það mögulegt að mér hef-
ur auðnast að fá að sjá marg-
ar af óskum mínum og vonum
rætast. -
Akurnesingar - vinir mínir -
hafa jafnan frá fyrstu nánum
kynnum frá löngu liðnum ár-
um átt stóra rúmið í hjarta
mínu - og eðlilega. - Ykkar
vinátta - yngri og eldri - hefur
verið mér og mínum sá arinn
- það Ijós á leið árin mörg,
sem aldrei verður fullþakkað.
Guð blessi ykkur, vinir, fyrir
það. - Hjá ykkur mun hugur
minn dvelja það sem eftir er
- í bænum mínum um vernd
og handleiðslu á hverri tíð.
Fráleitt væri, að láta þessa
stund líða hjá án þess að hug-
urinn dveldi hjá henni - og
sérstaklega, sem gengið hefur
sporin með mér langleið af
ævi minni - konunni minni.
Ávöxtur lífsstarfsins - miklu
hefði hann orðið fátæklegri,
draumarnir færri, er fengu að
líta dagsins ljós, ef ég hefði
ekki notið þess, sem hún hef-
ur gefið mér. Fyrir því er hann
fyrir mér sá heiður, sem mér
hefur verið sýndur, einnig
hennar - sem sveigur lagður
henni um enni. Þann sveig
kýs ég mér að mega kyssa.
Ég lýk orðum mínum með
endurtekinni alúðarþökk til
ykkar allra í bæjarstjóm Akra
ness fyrir þann virðingarvott,
sem ég hefi notið af ykkar
hendi. Af fyrr sögðu hlýjar
hann mér og hvetur mig jafn-
framt til að endurgjalda í
verki meðan heilsa og líf end-
ist - í þeim mæli, er ég frekast
fæ í té látið bæjarfélagi okk-
ar til menningarauka, hags og
blessunar.
Ykkur öllum, sem sýnt haf-
ið okkur hjónunum vinsemd
með nálægð ykkar og þátttöku
í þessari athöfn, færum við
okkar innilegustu þökk.“
Sr. Bjöm Jónsson sóknar-
prestur las upp bréf til sr.
Jóns frá biskupi Islands, herra
Sigurbimi Einarssyni, en hann
gat ekki verið viðstaddur þessa
athöfn vegna embættisverka.
Að endingu flutti sr. Bjöm
tónbæn fyrir altari og sung-
inn var sálmurinn Faðir and-
anna.
Fjölmenni var við athöfn-
ina og eins og áður segir var
hún öll hin virðulegasta og
bæjarstjóm Akraness til mik-
ils sóma.
„Hjóðhátíð”
Framhald af bls. 9
nauðsynleg er. Við stefnum nú
að fjölþættri iðnvæðingu, og er
það vel, sé það gert án þess
að vega að hinum hefðbundnu
atvinnugreinum, er þjóðin hef-
ur stundað og hafa verið og
em lífæðar hennar.
Sú var tíðin að menntun var
forréttindi þeirra, er meira
máttu sín. Enn er langt í land
að allir eigi jafn greiðan að-
gang að menntun, þ.e. hver
geti aflað sér menntunar í ná-
grenni sinnar heimabyggðar.
Allir hafa gert sér þess fulla
grein, að hvers konar mennt-
un, og ekki hvað síst verk-
menntun, er snar þáttur í vel-
megun þjóðar og það, sem til
hennar er lagt, skilar sér ríku-
lega aftur.
Góðir hátíðargestir!
Við lifum í alsnægtaþjóðfél-
agi þrátt fyrir mörg ytri og
innri aðsteðjandi vandamál. Is-
lensk þjóð hefur oftlega, þeg-
ar erfiðleikar hafa steðjað að,
sýnt það að hún ber gæfu til
þess að standa saman. Við skul
um vona að svo verði enn.
Þrátt fyrir skoðanamismun um
leiðir, viljum við öll stuðla að
heilbrigðu, þróttmiklu og far-
sælu íslensku þjóðlífi.
Við viljum skila góðu dags-
verki, betra landi, sjálfstæðara
landi til framtíðarinnar.
Kínverskt máltæki segir:
„Ein kynslóð sáir til trésins,
önnur situr í skugga þess“.
Megi íslensk þjóð bera gæfu
til þess að sá af heilindum, í
einingu, af framsýni og af kær
leika. Þá mun komandi kyn-
slóð njóta ávaxtanna í gjöfulu
landi, farsælu landi, sjálfstæðu
landi.
Til þess hjálpi okkur Guð.
Landsmótið . . .
Framhald aí bls. 11
segja að þetta hafi verið djörf
ákvörðun, þar sem íþrótta-
mannvirki voru hér ekki næg,
þó þau sem til staðar voru,
væru mjög góð. En hitt er
annað, eins og komið hefur á
daginn, að þar sem landsmót
hafa verið haldin, hafa þau
skilið eftir sig varanleg íþrótta
mannvirki.
Undirbúningur mótsins hefur
þá gengið vel?
Við höfum fengið mjög góð-
ar undirtektir hjá bæjaryfir-
völdum og reyndar bæjarbúum
öllum, og það stóra átak sem
gert hefur verið, sýnir að hug-
ur hefur fylgt máli og er ég
mjög þakklátur fyrir hönd fél-
ags okkar.
Hvað með fjárhagshliðina?
Þetta mót fjármagnast fyrst
og fremst af aðgangseyri. Ef
veðurguðirnir verða okkur hlið-
hollir, þá teljum við að sú
hlið komi að notum. Þannig að
við fáum aðgangseyri sem dekk
ar kostnaðinn. Eins og ég sagði
áðan hafa bæjaryfirvöld sýnt
okkur mikinn velvilja og með
því að fá þessi íþróttamann-
virki til afnota með afar lág-
um leigukjörum, þá tel ég að
grundvöllurinn sé mjög góður.
Ég vil nota þetta tækifæri
og þakka öllum sem stuðlað
hafa að því, að það hafi orðið
að veruleika að landsmótið er
haldið hér, og vona að það
verði okkur Akumesingum til
sóma í hvívetna.
Predikun . . .
Framhald af bls. 5
mettaði 5000 manns á fimm
brauðum og tveim fiskum, eftir
að hann hafði gjört þakkir og
blessað yfir brauðið og fisk-
ana.
Ég fór að hugleiða drauminn
meðan ég var í kirkjunni, og
þegar presturinn blessaði yf-
ir söfnuðinn frá altarinu, þótt-
ist ég finna kraft bænarinnar
og hinna blessandi handa, sem
mundu fylgja okkur út yfir
gröf og dauða.
Héðan biðjum við guð að
blessa heimili okkar, ástvini
okkar lífs og liðna, blessa
land okkar og þjóð, blessa allt
mannkyn.
AMEN.
2