Umbrot - 11.07.1975, Blaðsíða 10
15. landsmót U.M.F.Í.
í tilefni af 15. landsmóti
U.M.F.I. heimsótti UMBROT
nokkra af keppendunum frá
ungmennafélaginu Skipaskaga
á Akranesi og ræddi stuttlega
við þá um mótið og undirbún-
ing þess. Einnig ræddi blaðið
við Garðar Óskarsson, formann
u.m.f. Skipaskaga.
Guðjón Guðmiundsson, sund:
Hefur þú tekið þátt í mörg-
um landsmótum?
Tveimur, á Eiðum og á
Sauðakróki.
Hver telur þú að muni sigra
í stigakeppninni í sundi?
Það er nú erfitt að spá, en
ég vona að við verðum fram-
arlega. Við vorum númer tvö
síðast og ég á von á að við
verðum ekki neðar nú.
Hafið þið á að skipa jafn-
sterku liði nú og á síðasta
landsmóti ?
Já, það held ég, jafnvel sterk
ara.
Hvernig líst þér á að keppa
í nýju lauginni?
Mér líst ágætlega á það, en
hætt er við að vatnið verði
dálítið kalt.
Guðjón Guðmundsson, blak:
Nú er keppt í blaki í fyrsta
sinn á Landsmóti. Veistu eitt-
hvað um styrkleika hinna lið-
anna?
Nei, ég þekki þau ekkert
nema liðið úr Borgarfirðinum,
sem er allsterkt, og mun það
að einhverju leyti verða skip-
að leikmönnum héðan af Akra
nesi sem hafa í vetur verið
við nám í Samvinnuskólanum
og keppa þeir fyrir U.M.S.B.
Hvernig álítur þú styrkleika
U.M.S.B.-liðsins vera. saman
borið við ykkur?
Ég býst við að þeir séu mun
sterkari, þeir hafa keppt miklu
meira. Við höfum svo til ekk-
ert keppt, höfum verið í þessu
aðallega okkur til ánægju og
skemmtunar.
Hvar villt þú spá ykkur sæti
í keppninni?
Það er best að spá engu, en
sjá hvað setur, við þekkjum
ekki okkar eigin styrkleika.
Hallfríður Helgadóttir, ha.nd-
bolti:
Hafið þið æft vel fyrir lands
mótið?
Við höfum æft vel síðasta
mánuð.
Nú hafið þið leikið einn leik
í undankeppninni, við U.M.S.K.
Hverju villt þú spá um árang-
ur ykkar í mótinu eftir þann
leik?
Ég veit það ekki. Okkur var
sagt að þetta væri sterkt lið
og að við mættum vera ánægð-
ar með að hafa ekki tapað
stærra og ég fann eftir leik-
inn að áhuginn hjá stelpunum
varð miklu meiri og við öðluð-
umst meira sjálfstraust.
Hvernig er aðstaðan fyrir
handboltakeppni á olíumalar-
vellinum ?
Aðstaðan er orðin góð núna
eftir að búið var að leggja
nýtt lag á hann.
Er ekki spenningur að taka
þátt í svona móti?
Jú, áhuginn er mjög mikill
hjá okkur öllum og við gerum
það sem við getum.
Hallbera Jóhaiuiesdóttir, sund
og handbolti:
Þú hefur keppt á Landsmóti
áður, þá í sundi og frjálsum
íþróttum. Hvernig leggst hand-
boltakeppnin í þig?
Allvel. Stelpurnar eru mjög
áhugasamar og við ætlum að
gera okkar besta til að ná góð-
um árangri.
Viltu spá um úrslit?
Nei, ég held ég treysti mér
ekki til þess.
Hver hefur þjálfað ykkur?
Jón Runólfsson, og erum við
mjög ánægðar með að hafa nú
loksins fengið þjálfara sem
hefur verulegan áhuga.
Nú tekur þú lika þátt í
sundkeppninni. Hefur mikið af
sundfólkinu tekið þátt í lands-
móti áður?
Já, við tókum flest þátt í
síðasta landsmóti.
Helga Hauksdóttir, frjálsar
íþróttir:
Gekk þér ekki mjög vel á
síðasta landsmóti?
Jú, nokkuð vel, ég varð í
öðru sæti í hástökki.
Hefur þú æft vel að undan-
fömu?
Ég hef lítið æft undanfarin
tvö ár.
Hvernig er æfingaaðstaðan
hér ?
Hún hefur vægast sagt eng-
in verið, en nú fyrir landsmótið
virðist þetta allt vera að kom-
ast í' gott lag.
Hvað með þjálfara?
Ja, það er nú það. Hann hef-
ur enginn verið og er það mjög
alvarlegur hlutur, sem þyrfti
að bæta úr. Þetta hefur m.a.
valdið því að lítill áhugi er
fyrir frjálsum íþróttum hér á
Akranesi, en með bættri að-
stöðu skulum við vona að á-
hugi aukist fyrir þessum í-
þróttum.
Björgvin Helgason, frjálsar
íþróttir:
Þú keppir nú í fyrsta sinn
á landsmóti. í hvaða grein
frjálsra íþrótta tekur þú þátt í?
Ég keppi í 400 m hlaupi og
hástökki.
Hvað má keppa í mörgum
greinum ?
Það er í þrem greinum
frjálsra íþrótta, þrem í sundi
og í boltaíþróttum.
Hefur þú undirbúið þig vel
fyrir mótið?
Já, nokkuð vel nú eftir ára-
mótin.
Hvernig hagar þú æfingum
þínum?
Við höfum yfirleitt verið
tveir saman og haft mikinn
stuðning hvor af öðrum, en að
sjálfsögðu er númer eitt að
hafa góða þjálfara. Ég æfði
seinni partinn í vetur með lR,
undir tilsögn Guðmundar Þór-
arinssonar og hafði mjög gott
af.
Ertu kvíðinn?
Nei, það er ég ekki, ég held
að það sé alveg ástæðulaust.
Maður reynir að gera sitt
besta, rneira er ekki hægt.
Hvaða möguleika telur þú
frjálsíþróttafólk frá Akranesi
hafa á landsmótinu?
Það er mjög erfitt að segja,
maður hefur ekkert til að miða
við og þess vegna treysti ég
mér ekki að koma með neina
spá.
Guðrún H róðmarsdóttir, sund:
Þú ert yngsti keppandi Skipa
skaga á landsmótinu. Hvað ert
þú gömul?
Ég er þrettán ára.
Ertu spennt fyrir mótinu?
Já, ég er ægilega spennt.
Eru æfingar oft í viku?
Já, við höfum æft á hverj-
um degi nema á sunnudögum.
Hvað varstu gömul þegar þú
byrjaðir að æfa sund?
Ég byrjaði áð æfa ellefu ára
gömul.
Nú verður keppt í 25 m sund
laug. Er ekki mikil viðbrigði
að keppa í henni, miðað við
okkar laug, sem er ekki nema
12l/2 metir?
Já, það eru geysileg við-
brigði. Það er vitanlega mjög
erfitt að fara allt í einu að
keppa í svo stórri laug, en ég
hef áð vísu keppt í svona stórri
laug í Reykjavík og hef þess
vegna smjörþefinn af því.
Hvernig leggst keppnin í
þig?
Ég veit það ekki, en eg er
bjartsýn. Ég trúi því að við
verðum í einhverjum af þrem
efstu sætunum.
10