Umbrot - 11.07.1975, Blaðsíða 8

Umbrot - 11.07.1975, Blaðsíða 8
Ég nefni þenhan þátt til um hugsunar, vegna þess eindæma hirðuleysis sem lóðin í kring um Elliheimili Akraness ber með sér, og þeirrar ögrandi lítilsvirðingar sem vistmönnum er sýnd með þessari aðbúð, og minnist ég þá helst viðhorfa almennings til sveitarómaganna á fyrsta áratug þessarar aldar. Að vísu er það Bæjarstjórn Ákraness sem hefur þarna for- ustuna en aðrir bæjarbúar virð ast þessu samþykkir athuga- semdalaust. Þessi yfirlýsing er mér ekki sársaukalaus, því persónulega hef ég ekki kynnst hér nema góðu fólki, en í þessu tilfelli sýna verkin merkin, svo að ekki verður um villst. Til frekari skýringa ætla ég að birta afrit af bréfi, er ég skrifaði bæjarstjórn vorið 1972. Akranesi, 22. maí 1972. Virðulega Bæjarstjórn! Hinn 29. apríl síðastliðinn bárust frá heilbrigðisnefnd til- kynningar til okkar bæjarbúa um lóðahreinsun og er það sannarlega að gefnu tijefni, Raunar ætti engum að þurfa að segja slíkt og þá síst á vor- in þegar náttúran skrýðist sínu fegursta og minnir okkur á skyldur okkar við hana. Eigi að síður kemur það augljóslega fram, að þessi tilmæli fá ekki þann hljómgrunn hjá viðkom- andi aðilum sem ætla mætti, en þeir eru sem betur fer miklu fleiri sem hafa ánægju af að fegra umhverfi heimila sinna og setja með því þann menn- ingarsvip á bæinn, sem um- hverfi hans verðskuldar, en í þessu tilfelli sem mörgum öðr- um vekur það meiri athygli sem miður fer. Ég vil benda á eftirtaldar lóðir, sem eru okkur bæjar- búum til skammar og er svo sannarlega tími til kominn, að bæjarstjórn hlutist til um. Akraneskirkja er bæjarprýði eins og allir mega sjá (1972). Hún sýnir' heilbrigðan metnað og skyldurækni þeirrar kyn- slóðar sem reisti hana og ein- staka umhyggju og ræktarsemi þeirra sem nú hugsa um hana og nánasta umhverfi hennar. Öðru máli er að gegna um næsta nágrenni kirkjunnar. Þar blasa við 2 húsalóðir og er að minnsta kosti önnur þeirra ein vanhirtasta lóðin í Akranesbæ og þó víðar væri leitað. Af hinni var fjarlægt hús síðast- liðið vor með þeim ummerkj- um, sem raun ber vitni (sú lóð hefur nú verið lagfærð). Fyrr nefnd lóð er búin að vera í ó- breyttu ástandi þau tæp 3 ár, sem ég hef átt hér heima, að öðruleiti en því, áð nokkrir járnfleinar sem stóðu upp úr fornum mannvirkjum hafa ný- lega verið lagðir út af, vænt- anlega til eilífrar hvíldar. Vegurinn til kirkjugarðsins er fjölfarinn eins og allir vita. Auk þess eiginlega hlutverks sem hann gegnir er á þeim slóð 8 um myndarlegt byggðarsafn, þar sem sóknarpresturinn okk ar fyrrv. hefur sýnt lofsvert átak með að koma í fram- kvæmd. Einnig er í kirkjugarð- inum eftirtektarvert minnis- merki sem talið er vera á þeim stað sem Garðakirkja stóð og presturinn hefur ásamt fleirum látið reisa. Það er svo margt skráð og óskráð, sem sá maður hefur gjört fyrir Akranesbæ, auk síns göfuga embættis, og vil ég í því sambandi geta hins glæsi lega minnismerkis sjómanna, sem reist var hér fyrir nokkr- um árum, þær framkvæmdir studdi hann einnig með ráðum og dáð. Allt þetta ásamt fleiru talar sínu máli um dugnað og framsýni þessa mæta manns. Meðfram veginum til kirkju- garðsins hafa verið gróður- settar nokkrar trjáplöntur. Þéttari og skipulegri finnst mér að þær mættu vera en sjálfsagt eru þarna slæm rækt unarskilyrði og næðingur sem valda því að þær hafa ekki náð betri þroska. Með tilliti til þess hlutverks, sem vegurinn gegnir, hlýtur það að vera bæði tilfinninga- og menninga- mál okkar allra að halda hon- um og umhverfi hans svo vel við sem best má verða. Einhverjir sómamenn hafa látið það eftir sér að reisa húsa kumbalda örskammt frá veg- inum og í nágrenni bæjarins. Sennilega eru þetta gripahús, að minnsta kosti eru þarna nokkrar mykjuvörður sem gefa það til kynna, en þær væru áreiðanlega sjálfsagðari full- nýttar á skógræktarsvæðinu. Trúlega er erfitt að gera þeim mönnum, sem þarna eiga hlut að máli skiljanlegt, hvílík ómenning þetta er, en það ætti að vera lágmarkskrafa að þeir hefðu þessar byggingar snyrtilegar og einnig að ganga þannig frá áburðarhaugum (í þróm) að þeir væru ekki eins áberandi óþrifnaðarauglýsingar fyrir augum vegfarenda sem raun ber vitni. Og þá kem ég að viðkvæm- asta máli okkar gamla fólks- ins sem er Elliheimili Akraness og því ömurlega ástandi sem við augum blasir þar, með tilhti til nútímamenningar og þeirra úrbóta sem bæjarfélagið hefur ráð á. Ég ætla að byrja með því, að birta frétt sem birtist í blaðinu MAGNA hinn 29. apríl síðast- liðinn undir fyrirsögninni „Bókasafnið á Akranesi í nýj- um húsakynnum“. Þar kemur fram að nokkur hluti þessa húss verði fyrst um sinn not- aður fyrir framhaldsdeildir Gagnfræðaskólans. Þetta eru að sjálfsögðu gleðifréttir fyrir bæjarbúa, því að sönn mennt- un er gull sálarlífsins fyrir þá sem bera gæfu til að njóta hennar á eðlilegan hátt. Ég leyfi mér að birta hér orðréttar nokkrar línur úr fyrrnefndri frétt, en þar stend ur meðal annars: „Árið 1969 skaut þeirri hugmynd upp í bæjarstjórninni að gera athug- un á því, hvort ekki væri rétt að taka húsið undir elliheim- ili. Sú athugun var þó fljótlega kveðin niður og húsið opnað öllum bæjarbúum til menning- arlegs þrifnaðar og mikils sóma o.s.frv." Ég er sjálf á sömu aldurs- grein og íbúar elliheimilisins og ætla ég sem einstaklingur að leyfa mér að gera hér nokkr ar athugasemdir við þessa skorinorðu yfirlýsingu og byrja með því að þakka þeim sem í bæjarstjórn Akraness áríð 1969 skutu upp hugmyndinni viðvíkjandi elliheimilinu og gáfu með því til kynna að íbú- ar þess ættu rétt á nýtískuleg- um húsakosti og að víðar ríkti vandræðaástand í menningar- málum bæjarfélagsins, en þeim, sem í fyrrgreindri frétt var svo hátíðlega sagt frá. Mér skildist að þarna hafi komið fram, að meirihluti bæj- arstjórnar hafi verið á önd- verðum meiði við raunsæjan minnihluta. Þar hafi litlar eða engar rökræður farið fram og að eftir orðalagi setningarinn- ar „sú athugun var þó fljót- lega kveðin niður“ hafi sá tal- að, sem valdið hafði, án ábyrgð- artilfinningar. Við skulum nú athuga elliheimilið og þau menningarlegu þrif í umhyggju bæjarstjórnar, sem við sjáum þar. Síðastliðið sumar var talið eitt hið sólríkasta og fegursta það sem af er þessari öld, og að sjálfsögðu reyndu allir bæj arbúar að njóta þess eftir kringumstæðum. Ég lagði þá oft leið mína að elliheimilinu og virti fyrir mér umhverfið. Þar var litla breytingu að sjá frá vetrardvalanum, aðra en þá, að jörðin grænkaði jafn hægfara og óræktaðir úthagar. Ekkert var neikvætt að sjá utanhúss sem húsmóðirin telst bera ábyrgð á. Ég virti fyrir mér það heimafólk, sem ég sá þama og sýndist mér það bera með sér að aðhlynning þess væri góð eftir aðstæðum. Aft- ur á móti mátti sjá ýmis vafa- söm menningarþrif í umhyggju bæjarstjórnar fyrir þessu fólki, og kem ég nú að því. Lóðin er stór og að því er mér virtist vel fallin til rækt- unar en enginn hluti hennar í mannsæmandi umhirðu. I smá- geil framundan annarri hlið hússins voru gróðursett nokk- ur sumarblóm, álíka mörg og venjulega eru sett á leiði í kirkjugarðinum. Annan gróður var þarna ekki að sjá utan heimanjóla og annars illgresis. 2 blómasölustaðir eru á Akranesi, sem ég veit um auk þeirrar blómaræktar, sem er á vegum bæjarins. Garðyrkjufólk er í þjónustu bæjarins, en lítið erindi hefur þetta fólk átt á lóð elliheimilisins. Þá er að telja útivistarþæg- indi þessa fólks, en þau eru 1 trébekkur sem sennilega rúm- ar 4 menn. Mér er sagt að fjöldi vistmanna sé á milli 15- 20 manns og ef það reynist rétt, verður þetta fólk að hafa vaktaskipti á þessu 4 manna sæti til þess að njóta útivist- ar. Á meðan bæjarbúar, þeir sem áttu heimangengt, notuðu veðurblíðuna sumarið 1971 til skemmtiferða landshluta á milli, þá mátti vistfólk Elli- heimilis Akraness rangla í til- gangsleysi um þessa landauðn sem umlykur heimili þeirra og hafði ekki einu sinni sæti til að njóta næðis og láta hugann reika til liðinna daga, þegar það háði sína ströngu lífsbar- áttu fyrir börnum sínum og lagði oft nótt við dag til þess að vinna fyrir því veganesti handa þeim, sem því var sjálfu fyrirmunað að njóta vegna fá- tæktar, og á ég þar við mennt unina. Launin til þessa fólks hjá nútíma menningarþrifa samfél- aginu mæla með sér sjálf. Ég óska þess heilshugar að bæjarstjórn Akraness beri gæfu til þess, að verk hennar megi framvegis mótast af göf- ugri mannréttindahugsjón, frjálsri hugsun og heilbrigðri skynsemi. Vinsamlegast, Þuríður Gísladóttir, Suðurgötu 29 3 ár eru liðin síðan þetta bréf barst til bæjarstjórnar og enn hefur ekkert verið gert til að fegra umhverfi elliheimilis- ins. Vorið 1974 voru lagfærðar Frh. á. bls. 17 Þuríður Gísladóttir: Til umhugsunar

x

Umbrot

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Umbrot
https://timarit.is/publication/1333

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.