Umbrot - 11.07.1975, Side 14
Reynir Már Samúelsson:
Svar við bréfi
A
— í»órðar Ægis Oskarssonar
Sæll komrad Þórður.
Ég varð undrandi er ég las grein
þína í síðasta tbl. UMBROTS, já, ég
varð undrandi að sprenglærður maður
sem þú skyldir láta frá þér svona þras.
Hafi ég átt Silfurhestinn skilið fyrir
mína ,,í svo fáum orðum“ grein, átt þú
Gullkálfinn skilið fyrir að hafa getað
teygt þína yfir heila blaðsíðu. Grein
þín einkennist af sömu pestinni og sýkt
hefur málflutning skoðanabræðra þinna
á opinberum vettvangi áður, einkenni
þessarar leiðu pestar eru rökþrot, þekk
ingarskortur (vil ekki vita) og hæpnar
fullyrðingar.
..Einangrun einstakra landa og þjóða
er úr sögunni, og hernaöarmáttur stór-
velda ógnar öllum heimi, líka lslandi,“
þetta kallar þú mína staðreynd, alþjóð-
legri staðreynd kann ég ekki að nefna,
eða hvað, lifum við ef til vill enn á
16. öld.
Svo koma ,,3000 manngarmar og
afturbataflugvélatíkur“, sem reyndar
hétu afturbatapíkur síðast þegar ég
vissi og ég eyði ekki meira bleki á.
í næsta greinarhluta á ég fyrst að
hafa látið ,,okkur hafa fyrirgert hlut-
leysinu 1940“, það voru Bretar en ekki
íslendingar sem hernámu landið 1940,
landið var hernumið vegna hernaðarlegs
mikilvægis þess, og það mikilvægi var-
ir enn hvað sem hver segir, einangrun
Islands var rofin 1940 og það er sú
staðreynd, sem bæði þú og aðrir horf-
ast ekki í augu við. Ég minnist þess
líka að hernámi Breta var mótmælt,
og það varð mér víti til varnaðar, í
stað þess að láta hernema landið fyrst,
og mótmæla svo hástöfum, vil ég
tryggja varnir landsins svo það verði
ekki hemumið.
Svo rekur þú flot okkar að feigöar-
ósi og heimtar aðskilnað við ,,NATO-
hy,skið“. Þá loksins fer að rofa til,
fyrst kemur spakleg setning sem ég
er hjartanlega sammála þér um, ,,því
vopn eru engum til gæfu, hvort sem þau
eru til verndar eða árása“. En því mið-
ur, þessi orð eru aðeins vifni um fagra
hugsjón, þau eru ekki hundaskítsvirði í
öfugsnúnum raunveruleika nútímans,
okkur duga ekki hugsjónir gegn byssu
kjöftum frekar en krónur í leit að ást-
inni. Og nú verð ég að viðurkenna
fljótfærni af minni hálfu, ég nefndi tvö
dæmi um víti til varnaðar fyrir inn-
göngu í Varsjárbandalegið, ég valdi ef
til vill ekki bestu dæmin, en hvað um
það, þú hefur sjálfur útilokað Varsjár-
bandalagið, svo ég eyði ekki meiri tíma
í þá sálma.
En hátíöin stóð ekki lengi, nú hall-
ar aftur undan fæti, þú segir orðrétt,
,,Sovétmenn hafa aldrei brotið gerða
samninga við U.S.A.“. í sjónvarpsþætt-
inum Kastljós föstudaginn 2. maí var
ljóslega sýnt fram á þverbrot Sovét-
manna á alþjóðlegum flugumferðar-
samningi, samningur þessi er kenndur
við Chicago og nær til allra loftfara,
líka herflugvéla á friðartímum. Aðilar
að samningi þessum eru m.a. Islend-
ingar, Bandaríkjamenn og Sovétmenn,
þeir síðasttöldu hafa brotið þennan
samning, hér viö land, í áraraðir og
gera enn. Maður ætti aldrei aö segja
aldrei, þegar Sovétmenn eru annars
vegar.
Næst kemur svo hugvekja um and-
legt ástand mitt, og bent á mótsagnir
í máli mínu. Ég bendi þér aöeins á
kæri frændi, að það er „viss kostur við
íslendinga hve lítið þeir hugsa um
hernað og hermál yfirleitt“, en þekking
sakar aldrei, hversu lágkúrulegt sem
málefnið er í augum manns, sérlega
þegar um er að ræða jafn mikilvægt
mál og öryggismál þjóðar, bús og
barna.
Og enn höldum við áfram, og sjá,
allt í einu erum við komin til Vietnam,
þessari klausu svarar þú svo sjálfum
þér, þú segir orðrétt: ,,Þaö þýöir ekki
að tala um stórveldastyrjöld um leið
og talað er um minniháttar útþenslu-
stríð. Sú styrjöld sem Island yrði
þátttakandi S, ef svo illa færi, yrði
14
einmitt stórveldastyrjöld, heimsstyrj-
öld, til þess benda allar líkur, og varð-
andi ,,Reykjanesbrautina“, langar mig
að benda þér á að til þess að geta ógn-
að loftleiðinni Bandaríkin—Island,
þarf hraðfleygar orustuþotur, en slíkum
vélum fylgir sá ókostur að þær hafa
lítið flugþol, og eru alls ekki færar
um að gegna sínu hlutverki 3000 km
frá flugvöllum sínum.
Svo kemur fullyrðing um hernaðar-
þróun stórvelda sem er hæpin í fyllsta
máta, þú hefðir átt að láta „hernaöar-
sérfræðinginn" um þá sálmana, meiri
hluti hernaðarþróunar í dag er miðaður
við hefðbundna styrjöld, eða til hvers
heldur þú að öllum þessum milljörðum
dollara og rúbla sé eytt til smíða á
orustuþotum, skriðdrekum, tundur-
spillum og handvopnum, bara til aö
eyða þeim? Flest þessi vopn í smíði
í dag eru mjög fullkomin, svo fullkomin
og dýr, að í flestum tilfellum eignast
smærri þjóðir þau ekki fyrr en þau
hafa verið í notkun þó nokkurn tíma
meðal stórveldanna.
Og nú þegar kjarnorkubábyljan hef-
ur heltekið huga þinn, eru ,,3000 mann-
garmarnir og afturbataflugvélatíkurn-
ar“ allt í einu orðin svo mikilvæg, að
það tekur því að eyða á þau, ekki
einni, heldur „nokkrum langdrægum
eldflaugum og sprengjum“ af dýrmæt-
um birgðunum í austri.
Næst kemur svo skýrsla um ósam-
lyndi innan NATO, því miður eru þaö
sannindi, en hitt vill gleymast í hita
dagsins, að NATO eru fyrst og fremst
hagsmunasamtök, sem eiga að tryggja
varnir aðildarríkja sinna. Slíkum sam-
tökum er varla ætlandi aö leysa landa-
mæradeilur einstakra ríkja eða efna-
hagsvanda. Ég ætla ekki að afsaka
Breta hér eða annars staðar, fyrir yfir-
gang þeirra í landhelgismálinu, hann
var vítaverður og brot á NATO samn-
ingnum, en hvernig skyldu þeir hafa
hagað sér ef enginn slíkur samningur
hefði veitt þeim aðhald?
Næst kemur spurning sem mér er
ljúft að svara, enda svörin augljós ef
um málið er hugsað og upplýsinga leit-
að. Hlutleysi er eftirsóknarverður kost
ur, utanríkisstjórnmál verða auöveldari
viðfangs, og ríkin verða óháð öllum
varnarbandalagsskuldbindingum, því
er það að þessi ríki hvert með sína sér-
stöðu hafa ákveðið að vera hlutlaus. En
hafa ber í huga að hlutleysi á friðar-
tímum er öllum ríkjum mögulegt, spum
ingin er um það, hvort hlutleysi nægi
þegar ófrið ber að höndum.
Ef við tökum frændur okkar Ira fyrir
fyrst, þá er her þeirra meira til aö
sýnast, en lega landsins er slík aö inn-
rás í það skoðast sem árás á breska
ljónið, sem enn getur bitiö hressilega
frá sér, þó vígtennurnar séu ekki eins
hvassar og áður. Svo kemur Austurríki
þeir eru á því svæði sem í hernaði
kallast „einskis manns land“, mitt á
milli tveggja risa. Þeirra her er lítill
og illa vopnum búinn, svo þeirra úrræði
var að sigla milli skers og báru. Næst
kemur Sviss, þeirra her er ágætlega
vopnum búinn, en það sem meira er
um vert, landið er einstaklega vel í
sveit sett hvað landvarnir snertir, um-
kringt fjöllum á alla vegu. Og lestina
reka svo Svíar. Þeir eru hertæknilega
í fremstu röð þjóða, enda vinnur 8
hver vinnufær Svíi beint eða óbeint
við vopnaframleiðslu. Svíar leggja
mikla rækt við her sinn og treysta
honum fullkomlega til aö tryggja varn
ir landsins. Hvert þessara skilyrða upp
fyllir Island?
Næst bendir þú mér á siglingaleiö
sem ég á að hafa ákveöiö, mergurinn
málsins er sá, aö ég benti á siglinga-
leiðir milli Evrópu og Bandaríkjanna,
það vill svo til aö bæði Noregur og Dan
mörk tilheyra Evrópu svo og NATO,
skyldi hún ekki liggja um svipaðar
slóðir við Island, siglingaleiðin til þess
ara landa og Rússíá. Annaö langar mig
að benda þér á, en það er það, aö á
ófriðartímum er siglingaleiöum gjam-
an hagrætt eftir því, sem þurfa þykir,
og þá reynt að sigla sem næst strönd-
um til að njóta stuðnings flugvéla frá
landi. Þetta var gert í seinni heims-
styrjöldinni og gafst vel. Sigldu þá skip
frá Bandaríkjunum fyrst N-A upp að
íslandsströndum, en síðan í S-A átt til
Bretlandseyja.
Og enn höldum við áfram, og nú
eiga fjölmiðlar NATO í Keflavik að
hafa verið orsökin til þess, hve góðan
hljómgrunn „Varið land“ hlaut meðal
almennings. Hvað um þá Islendinga
sem ekki njóta þessara fjölmiðla, norð-
lendinga, aust- og vestfirðinga auk
margra á Suður og Vesturlandi. Það er
með þessa fullyrðingu, eins og aðrar
sem NATO-andstæðingar hafa látið frá
sér fara um „Varið land“, að tæplega
er hún bjóðandi fullorðnu fólki, og alls
ekki til þess fallin að bæta málstað
sem þegar er bágborinn.
Nú kemur svo rúsínan í pylsuend-
anum, „óskatitlarnir" mínir standa
mér sem sagt enn til boða, og líklega
hef ég með þessari grein áunnið mér
þá, mikið held ,ég að það hljóti að
vera gaman að geta útdeilt svona titl-
um eftir eigin geðþótta. Enda ertu
ekki einn á báti, því orð þessi, sem í
grein minni eru innan tilvitnunar-
merkja eru upphugsuð af skoðana-
bræðrum þínum, og á blað sett í Þjóð-
viljanum, þessu til staðfestingar bendi
ég lesendum á 16. tbl. Þjóðviljans 20.
janúar 1974. Orð þessi eru ákaflega
gott dæmi um hvernig ráða gripið er
til, innan raða NATO-andstæðinga, þeg
ar rökin þrýtur.
Og svo kemur pólitíkin, sem alla er
að gera vitlausa,. mér er þegar skipað
í flokk og sagt að hafa pólitíska skoðun.
Er ekki ‘hægt að ræða varnarmálin
málefnislega án þess að hafa þólitíska
skoðun? Er maður skyldugur að til-
heyra pólitískri stefnu til aö geta haft
skoðun á ákveönu máli?
Skoðun mín er sú, að hægt sé að
gera öll mál pólitísk ef menn ætla sér,
það sem á því græðist er það, að á
bak við hugmyndafræðiþrugl er hægt
aö skýla sér þegar rökin þrýtur, í
stjórnmálum geta menn hagrætt
sannleikanum eftir vild án þess að bera
hnekki á mannorði sínu. Er það leiðin
til að höndla þennan „eilífa sannleika
málsins“. Sannleikur er afstætt hug-
tak, og auk þess langar mig að benda
þér og þínum líkum á, að í lýræðisríki
sem Islandi, er það fólkið, hinn þögli
meirihluti sem ákveður, en ekki upp-
þornaðar hugmyndafræðikreddur.
Síðasta liðnum í grein þinni nenni
ég ekki að eyða mörgum orðum á,
enda nóg komið, en engu er líkara en
þú hafir aldrei hugsað um meðalveg á
nokkru máli.
Nú þegar ég þykist hafa svarað því
sem svara þarf í grein þinni, langar
mig að reyna að upplýsa þig nánar
um hlutverk NATO hér á landi. Aðal-
hlutverk varnarliðsins er að reka rat-
sjárstöðvar, halda úti kafbátaleit með
flugvélum, og fylgjast með flugvélum,
sem ekki tilkynna sig hér við land,
sem sagt eftirlitsstörf. Til þessa nota
þeir fullkominn útbúnað, Island er þaö
mikilvægt fyrir vestrænt öryggi, að hér
er ekki notað neitt rusl eins og þú
lætur að liggja.
Með baráttukveðju, komrad Þórður.
Þökk fyrir birtinguna.
Reynir Már Samúelsson.
FRÁ BlÓHÖLLINNI
Kvikmyndir sem sýndar verða
landsmótsdagana 11.-13. júlí
KAKATE-MEISTARINN
Ein hinna ofsaspennandi
karatemynda, sem framleiddar
eru í Hong Kong, Shaw Bros.
— Tekin í Scope og. með East-
manlitum. -— Leikstjóri Cheng
Chang Ho.
Aðalhlutverk:
Lo Lieh og Wang Ping
Sýnd föstudaginn 11 júlí
kl. 7, 9 og 11.
FOXY BKOWN
Foxy Brown er mikill hörku-
kvenmaður og hatar hverskonar
spillingu, en þó sérstaklega
eiturlyf og allt sem þeim við-
kemur. Þar hefur hún þó erfiðan
bagga, því bróðir hennar, Link,
er á kafi í þessu, og fær hún
heldur lítið að gert.
Aðalhlutverk:
Pam Grier, Antonio Fargas
og Peter Brown.
Sýnd laugardaginn 12. júlí
kl. 5, 7, 9 og 11.
TARSAN OG TYNDA
GULLBORGIN
Spennandi mynd í litum.
Sýnd Sunnudaginn 13. júlí
kl. 3. — Miðasala frá kl. 2,30.
STARDUST
Bresk músikmynd með hljóm-
listarmanninum DAVID ESSEX
í aðalhlutverki.
Aðalhlutverk:
David Essex, Adam Faith
og Larry Hagman.
Sýnd sunnudaginn 13. júlí
kl. 5, 7, 9 og 11.
BLÓÐLEIKHÚ SIÐ
Lionheart fær aðkenningu af
brjálæði, gengur á fund gagn-
rýnendanna og „krefst af þeim
verðskuldaðrar viðurkenning-
ar,“ en þeir gera óspart gys að
honum, og örvæntingu gripinn
fremur hann sjálfsmorð að
þeim ásjáandi.
Aðalhutverk:
Vincent Price, Diana Rigg
og Ian Hendry.
Sýnd mánudaginn 14. og
þriðjudaginn 15. júlí kl. 9.
Bönnuð innan 16 ára.
ATHUGH) BREYTTAN SÝNINGARTlMA!
Hver mynd verður aðeins sýnd einn dag!