Umbrot - 10.05.1978, Qupperneq 9
um langt skeið var póstur. 1906 rífur
Tlallf;r. Tómasson bæinn og byggir á
sama stað hús er hann nefnir Gríms-
staöi, þaö hús var 1947 flutt að
Vesturgötu 71.
37 Efri-Gata, byggt 1883 af Magnúsi
Jónssyni. 1942 var húsið rifið. Þar er
nú Bræðraborg, við Skólabraut 2 og 4.
38 Mörk, byggt timburhús bar 1889
af Sveini Guðmundssyni hr.stj. 1906
rífur Sveinn gamla húsið og byggir
núverandi hús þar, en 1943 var það
verulega stækkað af Áma Árnasyni
lækni og stendur við Skólabraut 8.
39 Vinaminni, byggt þar timburhús
1894 af Ásbimi Ólafssyni. 1909 rífur
Guðjón Tómasson húsið og byggir hús
það, sem fyrir stuttu var rifið og stóð
við Skólabraut 13.
40 Lykkja, byggð fyrst af Ingimagn
Eirikssyni. 1909 byggir Helgi Guð-
brandsson svo hús það sem nú stend-
ur við Skólabraut 20.
41 Melshús, byggt fyrst 1698, fyrst
nefnt Sómasæti, en líkl. eftir 1813
Melshús. 1922 byggir Sigurður Jónsson
syðri bæinn, en hann siðar fluttur að
Presthúsabraut 21.
42 Nýlenda, fyrst byggð rétt eftir
1800. 1899 byggir Ingjaldur Ingjalds-
son timburhús, sem nú stendur við
Suðurg. 35. 1931 byggir Teitur Bene
diktsson þar steinhús, nú við Suður-
götu 37.
43 Skarðsbúð. 1889 er þar byggt timb-
urhús af Sigmundi Guðbjarnasyni,
rifið fyrir mörgum árum. Þessa húss
var fyrst getið 1785.
44 Oddsbær, byggður 1881 af Oddi
Guðmundssyni. 1904 fer hann í eyði.
Síðar var þar byggt húsið Sólbakki,
sem nú stendur við Akursbraut 17.
45 Halakot, byggt 1857 af Lýði Jóns-
syni. 1934 lagðist bærinn í eyöi og
var rifinn skömmu síðar.
46 Geirmundarbær, fyrst byggður
1813 af manni að nafni Geirmundur.
Gamla bæinn reif Hinrik Gíslason og
byggði hús það, sem stendur við
Suðurgötu 48.
47 Hlið, byggt 1855 af Sigmundi Jóns
syni. Hlið stóð áður á Halakotsbökk-
um, en stendur nú við Suðurgötu 52.
— Sandgerði, byggt 1855 af Gísla
Gíslasyni. 1926 byggir Svavar Þjóð-
björnsson steinbæ þann, er stóð við
Suðurgötu 60, en núverandi Sandgerð-
ishús er við Akursbraut 24.
48. .Melur, fyrst byggöur af Tóbías
Sigurðssyni. 1923 var þar byggður
steinbær, er stendur við Suðurgötu 64.
49 Ivarshús, byggt fyrst í „stekkjar
stæöi“ hinnar upphaflegu Skipaskaga-
jarðar af Brynjólfi biskup. 1903 bygg-
ir Sigmundur Guðbjarnason timbur-
hús er stóð við Suðurgötu 68, en hef
ur verið flutt að Presthúsabraut 29.
50 Bjarg I, byggt fyrst 1852 af Hall-
dóri Jóhannessyni. 1906 byggir Bene-
dikt Tómasson þar timburhús, sem
aö stofni stendur enn við Laugar-
braut 9.
51 Bjarg II. 1883 byggir Einar Guð-
mundsson þar lítið timburhús, en 1909
reif Einar gamla bæinn og byggir
hús það, sem enn stendur við Laug-
arbraut 7.
52 Ármót, byggt 1900 af Magnúsi
ólafssyni. 1930 byggir Jón Ottesen
þar timburhús, sem nú stendur við
Skólabraut 23.
53. .Bergþórshvoll, byggt þar timbur-
hús 1897 af Bergþóri Árnasyni, rifið
1955, er Þórður Guðjónsson byggir
þar tveggja hæða steinhús, er stend-
ur við Skólabraut 29.
54 Vegamót, byggð 1843 af Gesti
Gestssyni og þá nefnt Gestsbær, en
1876 flytur Magnús Vigfússon þangað
og breytir nafninu í Vegamót. 1882
byggir Þórður Þórðarson timburhúsið
sem nú stendur við Skólabraut 35.
55 Gneistavellir, byggðir 1884 af
Bjarna Guðmundssyni. 1905 byggir
Bjarni þar timburhús. 1922 byggir
Hjörtur Bjarnason ofan á gamla hús-
ið, þar stendur nú stórt steinhús, við
Kirkjubraut 7, en gamla húsið var
flutt að Presthúsabraut 22.
56 Akbraut. 1899 byggir Sigurður
Halldórsson þar timburhús, rifur það
1925 og byggir steinhús það, sem
stendur við Kirkjubarut 6A.
57 Ólafsvellir, byggt fyrst 1872 af
Ólafi Jónssyni. 1902 byggja synir
Ólafs, Bjarni og Jón þar stórt timbur-
hús. 1937 reif Bjarni húsið og byggir
steinhús, sem nú stendur við Akur-
gerði 22.
58 Kringla. 1873 byggir Guðmundur
Erlendsson þar bæ. 1902 byggir Jón
Helgason og bærður hans hús það,
sem stendur við Mánabraut 21.
59 Uppkot, byggður þar torfbær af
Halldóri Jónssyni, 1902 rífur Halldór
bæinn og byggir timburhús ásamt syni
sínum, Jóni, þar byggt aftur 1928 og
stendur við Suðurgötu 92.
60 Bakkakot, 1884 byggður þar torf-
bær af Guðmundi Guðmundssyni, 1905
byggir Jón Jónsson þar lítið timbur-
hús, 1941 byggir Jóhann Guðnason þar
steinhús, sem stendur viö Suðurg. 100.
61 Bakkagerði, þar fyrst byggður lít-
ill torfbær 1894 af Teiti Brynjólfssyni,
og stóð hann neðanvert við Leirgróf.
rifinn fyrir mörgum árum.
62 Bæjarstæði, Bjami Brynjólfsson
byggði þar fyrst lítinn torfbæ 1898,
rifur hann síðan 1908 og byggir þá 1926
hús það, sem nú er við Suðurgötu 106.
63 Torfustaðir, byggðir 1896 af Ól-
afi Birni Hannessyni, 1905 var byggð-
ur þar timburbær, síðar endurbættur
og stendur við Suðurgötu 105.
64 Hákot, torfbær byggður þar 1864
af Jóni Pálssyni, 1874 byggir Jón þar
hús með steinveggjum, húsið stóð við
Kirkjubraut 28, en hefur nú verið
flutt upp að Skarðsheiði.
65 Efstibær, fyrst byggður 1860, þá
efsti bær á eignarlóð Skagans, syðri
bærinn átti eignarlóð við Suðurgötu,
rifinn fyrir nokkrum áram, en vestari
bærinn, byggður af Birni Guðmunds-
syni, stendur við Kirkjubraut 22.
66 Árnabær, byggður 1895 af Árna Sig
urðssyni, og stóð við Kirkjubraut 11,
rifinn 1931, er Árni Árnason læknir
byggir þar stórt steinhús, er K.S.B.
verslaði síðar.
Suðurvellir, byggðir 1885 af Sig-
urði Guðmundssyni, 1926 var húsið rif-
ið og það sama ár byggt steinhús, sem
er við Akurgerði 17.
67 Bræðraborg, byggð 1897 af Jósef
Jósefssyni og sonum hans, 1929 var
gamla húsið rifið og byggð tvö áföst
hús, sem eru við Heiðarbraut 12 og 14.
68 Austurvellir, byggðir 1884 af Magn-
úsi Vigfússyni, hét áður Austurvöllur,
1907 byggir Bjarni Gislason Austur-
velli II, við Akurgerði 15, og Vigfús
Magnúss. Austurvelli I, við Akurg. 13.
69 Hábær I, þar byggður fyrst torf-
bær 1882 af Magnúsi Gíslasyni, 1902
byggir Magnús þar timburbæ, er
stendur við Akurgerði 9. — Hábær II,
byggður 1884 af Eyjólfi Sigurðssyni,
síðar nefndur Bræðratunga og stóð
við Akurgerði 11, fór i eyði 1945, 1947
er húsið flutt upp fyrir Garða, síðar að
Presthúsabraut 30.
70 Hóll, byggt þar timburhús 1896 af
Jónasi Guðmundssyni, 1935 byggt þar
stórt steinhús af Erlendi R. Teitssyni
og stendur við Akurgerði 10.
71 Sandabær, byggður 1841, líklega
af Ólafi Bergþórssyni, leggst í eyði
1908.
72 Traðarbakki, 1856 er þar fyrst
byggður bær af Jóni Guðlaugssyni,
1903 byggir Magnús Guðmundsson þar
timburhús, 1946 er þar byggt steinhús
og stendur við Akurgerði 5.
73 Marbakki, byggður 1884 af sr.
Helga Sigurðssyni, 1925-26 byggir Ein-
varður Guðmundsson hús það sem
stendur við Vesturgötu 85.
74 Merkigerði, byggður þar torfbær
1892 af Magnúsi Hallssyni, rifinn 1909,
er Jörgen Hansson byggir timburhús
það, sem stendur við Kirkjubraut 25.
75 Guðnabær, byggður 1893 af Guðna
Guðmundssyni, 1932 reif Jón Guð-
mundsson bæinn og byggir hús það,
sem stendur við Kirkjubraut 21. —
Norðurkot, 1893 er þar byggður torf-
bær af Jóni Helgasyni, fer I eyði 1907.
76 Kirkjuvellir, byggt þar fyrst 1867
af Ara Jónssyni, 1906 byggði Kristján
Danlelsson þar timburhús, þar stend-
ur nú Sjúkrahúsið.
77 Steinsstaðir, byggðir 1898 af Skúla
Sigvaldasyni, Steinn Jónsson byggir
þar timburhús 1898-99, siðar var því
oft mikið breytt, stóð við Kirkjubr. 36.
78 Sigurvellir, byggðir 1893 af Mel-
kjörinu Sigriði Jónsdóttur, fóru í eyði
1940.
79 Hóll efri — Hjarðarhóll, byggður
1900, 1933 reif Valdimar J. Guðmunds-
son gamla bæinn og byggði þar stein-
hús, sem nú stendur við Stiilholt 16.
80 Kirkjubær, byggður 1890 af Siguröi
Sigurðssyni, 1902-3 byggir Guðjón
Þórðarson þar timburbæ, sem siðar
hefur verið endurbættur, og stendur
nú við Kirkjubraut 35.
81 Smiðjuvellir, byggðir fyrst 1868
af Jörundi Þorsteinssyni.
82 Klöpp, byggður þar fyrst torfbær
af Oddi Guðmundssyni, 1908 byggir
Jón Jónsson þar timburhús og 1934-35
byggir Jón þar aftur og stendur það
hús við Heiðarbraut 41.
83 Tjöm — Tjarnarhús,, 1897 er þar
fyrst byggt timburhús af Jóni Jóns-
syni, 1909 byggir Jón þar aftur timb-
urhús, sem stendur við Heiðarbraut 36
84 Litlabrekka, byggt 1865 af Ölafi
Magnússyni, 1912 er byggt þar stein-
hús, sem stendur við Heiðarbraut 33.
85 Brekkukot, 1889 byggir Þórunn
Þórðardóttir þar torfbæ, það hefur
síðan verið mikið endurbætt og stóð
við Heiðarbraut 31, en gamla húsið
hefur verið flutt að Presthúsabraut 35.
86 Brekkubær, byggður fyrst 1800, þá
kallað Pagrabrekka, 1907 byggði Þórð-
ur Jónsson gullsm. þar timburhús, sem
var rifið fyrir allmörgum árum og
stóð á lóð Barnaskólans.
87 Vorhús, byggð 1896 af Jóni Sig-
urðssyni, stóð þar sem nú er Hjarðar-
nes, við Merkigerði 16.
88 Hausthús — Bergstaðir, 1898 er
byggður þar torfbær af Jóni Sigurðs-
syni, Jón Magnússon byggir síöan hús
það, sem stendur við Merkigerði 10.
89 Mýrarholt — Mýrarhús, fyrst
byggður þar torfbær 1891 af Guð-
mundi Ólafssyni, 1905 byggir Kristján
Ólafsson þar timburhús og nefnir Mýr-
arhús, 1937 reif Ólafur Kristjánsson
gamla húsið og byggði þar steinhús,
sem stendur við Vesturgötu 125.
90 Götuhús, fyrst getið 1826, 1862 og
lengst af úr því eru þar tveir bæir,
1908 byggir þar Ásmundur Ólafsson,
það siðar rifið og þar eru nú fisk-
verkunarhús.
91 Bær, byggður 1890 af Ásmundi
Guðmundssyni, fer í eyði 1903, stóð
nálægt þar sem Valdastaðir stóðu síö-
ar, við Vesturgötu 107.
92 Litlibakki, byggður 1877 af Helga
Sveinssyni og endurbættur 1903, 1927
rífur Þorgeir Jósefsson húsið og bygg-
ir hús það, sem nú stendur viö Vest-
urgötu 103.
93 Traðarkot, rifið fyrir allmörgum
áram. 94 Presthúsabúð. 95 Presthús. 96
Jaðar, rifinn rétt eftir 1930.
Hér hefur stuttlega verið rakin saga
þeirra húsa, sem merkt eru inn á kort-
ið Mikið vantar þó á, að hér sé um
fullkomna upptalningu að ræða, bæði
vegna þess að ekki er hægt að hafa
þáttinn lengri svo og vegna ónógra
heimilda, en vonandi verður hægt að
bæta eitthvað úr þvi í næsta þætti. Þá
verður birt kort af þeim gömlu húsum
sem enn standa. Það er viðbúið að hér
hafi einhverjar villur slæðst með, og
bið ég vinsamlegast um ábendingar
þar um, auk þess sem ég óska eftir
hvers kyns fróðleik um hin gömlu hús
á Skaga. — Þ.J.
Akraneskaupstaður
VINNUSKÚLI
Vinnuskóli verður starfræktur í sumar,
fyrir börn fædd 1964 iog 1965.
Umsóknir barna þurfa að berast fyrir
20. maí nk., en umsóknir um stöður
flokksstjóra fyrir 10. maí nk.
Nánari upplýsingar eru veittar á bæjar-
skrifstofunni.
Bæjarritari
9