Umbrot - 10.05.1978, Side 14
UMBROT
Miðvikudagur 10. maí 1978 Verð kr. 150
Rykið er allt að kæfa
Verður Kirkjuhvoll
gerður að heimavist?
Ibúar við Garðagrund höfðu
samband við blaðið og báðu um
að koma þeirri málaleitan á
framfæri við bæjaryfirvöld að
þau sæju sér fært að vökva,
svo ekki sé nú talað um að ryk-
binda Garðagrundina. 1 þurru
veðri, eins og verið hefur und-
anfarið, er nánast ólíft þarna
innfrá vegna ryks. Húsin eru
full af ryki og ógerningur er
að hengja út þvott því hann
verður jafn skítugur og hann
var áður en hann fór í þvotta-
vélina, og erfitt er að láta smá-
Undanfarna mánuði hafa ver-
ið starfandi 9 lögregluþjónar á
Akranesi, þar af tveir lausráðn-
ir. Nú hefur sá áttundi verið
fastráðinn, en níundi maðurinn
var látinn hætta 1. maí sl.
Hér áður fyrr voru lögin
þannig úr garði gerð að einn
lögreglumaður skyldi vera á
hverja 500 íbúa og með þvi móti
ættu þeir að vera níu hér.
Samkv. lögum sem nú eru í
gildi eiga að vera sjö lögreglu-
Aðfaranótt 30. apríl gerðist
sá óvenjulegi atburður í Akra-
neshöfn, að einhverjir óboðnir
gestir komu niður á bryggju og
gerðu sér lítið fyrir og leystu
landfestar bátanna Sigurvonar,
Sif og Sigurborgar. Um kl. 5.30
að morgni voru skipstjórar
þessara báta ræstir út og er
þeir komu niður á bryggju
börn vera úti vegna þessa
vandamáls.
Þetta er auðvitað fyrst og
fremst hugsunarleysi hjá þeim
aðilum sem sjá eiga um vökvun-
ina, þeir vilja auðvitað ekki að
þetta sé svona (eða er það?),
en einhvernveginn dettur þetta
nú samt uppfyrir hjá þeim.
Við skulum sjá hvort þetta
er ekki rétt tilgáta, en ef svo
er ekki þá þarf að gera ein-
hverjar sérstakar ráðstafanir
til að fá þetta verk framkvæmt.
þjónar hér á Akranesi, en eru
nú orðnir átta frá 1. maí sl.
Erfiðlega hefur gengið að ná
sambandi við fulltrúa í Dóms-
málaráðuneytinu til að fá upp-
lýsingar um mál þetta, en
óneytanlega virðist þetta vera
afar furðuleg ráðstöfun, þegar
það er haft í huga að stefnt er
að því að vakt lögreglunnar
verði látin ná yfir allan sólar-
hringinn, en nú er hún aðeins
frá kl. níu að morgni til kl.
hálf fimm að nóttu.
voru bátarnir reknir upp í f jöru.
Einnig var búið að losa land-
festar hafnsögubátsins og ýmsu
drasli hafði verið hent í sjóinn,
s.s, brettum, tógi o.fl. Logn var
þessa umræddu nótt og urðu
engar skemmdir á bátunum.
Að sögn yfirhafnsögumanns
hefur svipað atvik komið fyrir
áður. Mál þetta er í rannsókn.
Nú munu vera í gangi við-
næður við dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið um að fá prestsetr-
ið að Kirkjuhvoli keypt með það
fyrir augum að nýta það sem
heimavist fyrir fjölbrautaskól-
ann. Heimavist fyrir skólann er
mjög aðkallandi og þarf að vera
komin í gangið næsta haust.
Húsmóðir á Háteignum hafði
samband við blaðið og bað það
að koma á framfæri þeim ósk-
um til viðkomandi aðila að þeir
sæu sér fært að ganga þannig
frá Háteignum að sandfok
minnki. Þannig er mál með
vexti að í vetur var gatan graf-
in upp vegna þess að verið var
að leggja lagnir í hús sem þar
hefur verið í byggingu. Síðan
var mokað ofan í skurðinn eins
og venja er, en þar sem jarð-
vegurinn er mjög sandborinn
hefði þurft að dreifa malarlagi
ofan á.
Þetta var sem sagt ekki gert,
Flotbryggja
Nú mun hafa verið ákveðið
að gera tilraun með að nýta
Ferju II sem flotbryggju fyrir
trillubáta fram til 1. sept. nk.
Til að þetta geti orðið þarf m.a.
að strekkja net yfir lestarop
ferjunnar og fjarlægja yfir-
bygginguna.
Áður hafði verið gert tilboð
í ferjuna að upphæð kr. 150.000
til brotajárns, en því tilboði var
hafnað.
Listar Alþýdu-
og Framsóknar-
flokks
Birtir hafa verið listar
Alþýðuflokks og framsóknar-
flokks við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar sem fram fara eftir
rúman hálfan mánuð. í fimm
efstu sætunum eru:
Framsókn:
Daníel Ágústínuss., aðalbókari
Ölafur Guðbrandsson, vélvirki
Jón Sveinsson, lögfræðingur
Bent Jónsson, skrifstofustjóri
Ingibjörg Pálmadóttir, hjúkrun-
arfræðingur.
Alþýðuflokkur:
Ríkharður Jónss. málarmeistari
Guðmundur Vésteinsson, trygg-
ingafulltrúi
Rannveig Edda Hálfdánardótt-
ir, húsmóðir
Sigurjón Hanness., húsasmíða-
meistari
Önundur Jónsson, prentari.
Einnig hefur komið til tals að
nota gamla elliheimilið fyrir
heimavist en um það atriði eru
ekki allir sammála og vilja sum-
ir að það hús verði notað fyrir
æskulýðsstarfsemi. Kaup á
Kirkjuhvoli gætu því orðið til
þess að leysa úr báðum þess-
um vandamálum.
og þegar hvasst er, þá smýgur
sandurinn alls staðar inn og
ekki nóg með það, heldur stór
skemmir hann einnig gróðurinn
í kring.
Húsmóðirin sagðist margsinn-
is vera búin að kvarta yfir
þessu við þæjaryfirvöld, en ár-
angur af þeim viðræðum kvað
hún alls engan.
Aðalbókari
Eins og fram hefur komið
áður, sagði Ingólfur Steindórs-
son nýlega upp starfi sínu sem
aðalbókari hjá Akraneskaup-
stað. Nú hefur Gunnari Sig-
urjónssyni, Háholti 10, Akra-
nesi verið veitt þetta starf til
reynslu í eitt ár.
Loka
Merkigerði
Umferðarnefnd hefur sam-
þykkt að loka Merkigerði við
Kirkjubraut til reynslu. Lokað
skal með keðju og búkkum.
— Götunni skal lokað frá kl.
20.00 til kl. 8 (að morgni)
föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Þetta er gert til að reyna
að minnka hávaða til sjúkra-
hússins, en hávaði hefur oft
verið svo mikill þar að sjúkling-
ar hafa átt erfitt um svefn.
Sýning
Næst komandi föstudag verð
ur sýning á skólavinnu nemenda
Barnaskóla Akraness.
Sýningin verður opnuð kl. 16
og henni lýkur kl. 22.
UMBROT
í sumarfrí'
Þetta blað er það síðasta sem
kemur út að sinni. Sá háttur
var hafður á í fyrra að gefa út
blað í maí og síðan ekki fyrr
en í september. Þetta gafst vel
og verður því gert aftur þetta
árið og stefnt að útkomu aftur
í haust.
Gamli tímiinn þokar fyrir þeim nýja. — Sigurbjörn tók þessa
mynd þegar ívarshúsin voru rifin fyrir nokkrum vikum.
Fækkun í lögregluliði
Bátarnir fá ekki að
vera í friði í höfninni
Sandfok
veldur óþægindum