Fjarðarpósturinn - 26.11.2015, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Hún er undarleg og ískyggileg
staðan sem komin upp í kjara
deilum í álverinu í Straumvík.
Slökkt verður á kerjum ef verður
af boðuðu verkfalli og upplýst
hefur verið að ekki sé víst að
kveikt verði á þeim aftur og
álverinu verði jafnvel lokað. Þetta er mjög sérstök
staða í ljósi þess að upplýst hefur verið að álverið í
Straumsvík sé mun hagkvæmara en mörg önnur álver
í eigu Rio Tinto Alcan. Einnig í ljós tugmilljarða taps
á misheppnuðum straumstækkunartilburðum. Þá
mátti ekki slökkva á kerjunum við stækkunina, það
yrði allt of dýrt. Þó á sinn hátt megi skilja afstöðu
eigenda að vilja ráða um það hvort vinna við álverið
sé unnin af starfsmönnum eða þjónustuð af verktökum
þá er með ólíkindum að sverfa eigi til stáls í raun
aðeins til að hafa „heimild“ til að bjóða út ákveðna
verkþætti. Álverið í Straumsvík hefur verið gríðarlega
mikilvægt fyrir atvinnustarfsemi og uppbyggingu í
Hafnarfirði í gegnum árin og hefur félagið státað sig
af í skýrslum að kaupa gríðarlega mikla þjónustu í
sínu nærumhverfi. Í tengslum við álverið hafa
fjölmörg þjónustufyrirtæki eflst og jafnvel þjónustað
álver víða um heim, fyrirtæki sem jafnvel voru
stofnuð af fyrrverandi starfsfólki í álverinu. En enginn
er ómissandi og það er gríðarlega mikilvægt fyrir
sveitarfélag eins og Hafnarfjörð að vera ekki háð einu
fyrirtæki. Í Hafnarfirði eru gríðarlega öflug fyrirtæki í
málmiðnaði og í þjónustu við fiskiðnaðinn og áliðnað
inn. Það er í mikilli andstöðu við þá frétt sem dregin
var upp í fréttum RÚV á mánudag þegar viðtal var
tekið við bæjarstjóra. Trúi ég ekki að það hafi verið
haft eftir bæjarstjóra að staðan væri eins og henni var
lýst – fyrirtæki á flótta úr Hafnarfirði. Ekki veit ég
hvar menn hafa þær upplýsingar en þó Fiskistofa og
lyfjaverksmiðja Actavis hverfi á braut þá kemur
annað í staðinn og það er ekki eins og við búum á
einangruðu atvinnusvæði, fólk sem vinnur hjá þessum
fyrirtækjum býr jafnt í Reykjavík sem í Hafnarfirði.
Fjarlægi menn ekki húsnæði sín hefur Hafnarfjarðar
bær áfram fasteignaskatta og gjöld af viðkomandi
hús næði hvort sem þar er starfsemi eða ekki. Annað
en forseti bæjarráðs sagði í sama fréttatíma.
Fáir vilja álverið í Straumsvík burt og ekki er hægt
að afneita þeim áhrifum sem það hefur í okkar
bæjarfélagi en það á heldur ekki að láta erlend
stórfyrirtæki komast upp með það að hóta með
lokunum til þess eins að ná hagstæðari kjarasamn
ingum.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf.
kt. 480307-0380
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Áb.maður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagur 29. nóvember
Messa og sunnudagaskóli
kl. 11
Prestur: Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir.
Starf eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13.30 - 15.30
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 29. nóvember
1. sunnudagur í aðventu
Sunnudagaskóli kl. 11
Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri.
Kveikt á fyrsta aðventukertinu!
Aðventukvöld kl. 17
Fjölbreytt dagskrá. Fram koma:
Gissur Páll Gissurarson tenór.
Kór Víðistaðasóknar
Barnakór Víðistaðakirkju
Helga Þórdís Guðmundsdóttir.
Ræðumaður:
María Gunnarsdóttir, guðfræðingur
og æskulýðsfulltrúi kirkjunnar.
Verið velkomin!
Fimmtudagur 26. nóvember
Náttúruleg
safnaðaruppbygging (NSU)
Kynning á niðurstöðum könnunar NSU
og umræður um safnaðarstarfið kl. 19:00.
Boðið upp á súpu fyrir fund, kl. 18:30.
Allir velkomnir!
www.vidistadakirkja.is
Sunnudagur 29. nóvember
1. sunnudagur í aðventu
Hátíðarguðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11
Annríki - þjóðbúningar og skart, tekur þátt í
guðsþjónustunni og sýnir þjóðbúninga
Barbörukórinn syngur aðventusálma
og ættjarðarlög.
Föstudagur 27. nóvember
Jólafundur kvenfélagsins kl. 19
Matur, skemmtiatriði, happdrætti o.fl.
Mánudagar
10-12 ára starf kl. 16.30-18
Fimmtudagar
Foreldramorgnar kl. 10-12
www.hafnarfjardarkirkja.is
Fyrsti sunnudagur í aðventu:
Sunnudagaskóli kl. 11
Aðventustund kl. 13
Örn og Erna leiða sönginn.
Fermingarbörn og foreldrar taka þátt.
Sjá nánar á www.frikirkja.is
og á Facebook
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n