Fjarðarpósturinn - 26.11.2015, Qupperneq 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Félagar í Lionsklúbbum um
allt land munu bjóða lands
mönnum fría blóðsykurmælingu
um þessar mundir í tilefni af
alþjóðadegi sykursjúkra sem var
14. nóvember. Markmið blóð
sykurmælinga er að greina
hugsanlega sykursýki. Á síðasta
ári mældu Lionsmenn blóð
sykurinn í nær fjögur þúsund
manns og var um 50 manns
ráðlagt að leita læknis í kjölfarið.
„Við viljum með þessu vekja
athygli fólks á hættunni af því að
ganga með dulda sykursýki.
Mælist blóðsykurinn sjö eða
hærri ráðleggjum við fólki
eindregið að leita læknis. Með
ferð getur borið því meiri árangur
sem sjúkdómurinn greinist fyrr,
segir Jón Bjarni Þorsteinsson,
heimilislæknir og félagi í Lions.
Til eru tvær tegundir sykursýki.
Sykursýki af tegund 1 leggst
aðallega á ungt fólk sem ekki
hefur sterka ættarsögu. Sykursýki
af tegund 2 leggst hins vegar
einkum á fullorðna sem oft hafa
sterka ættarsögu. Helstu einkenni
sykursýki af gerð 2 eru þorsti, tíð
þvaglát, þreyta, sjóntruflanir og
sveppasýkingar og kláði á
kynfærum. Þeim sem hafa þessi
einkenni er eindregið ráðlagt að
hafa samband við lækni.
Mælingar í Firði
Lionsklúbbarnir þrír í Hafnarf
irði verða með fríar blóðsykurs
mælingar í Firði á laguardag kl.
10 til 16.
Kennarar eru misjafnir eins og
þeir eru margir og eftir margra
ára reynslu sem kennari og
móðir þá hef ég komist að þeirri
niðurstöðu að ef kennari getur
sýnt barni virðingu og kærleika
þá er barninu borgið, svo einfalt
er það í mínum huga.
Sonur minn er með einn slíkan
umsjónarkennara og reyndar tvo,
þær Boggu og Tinnu. Þær eru
báðar þeim hæfileikum gefnar
að geta sett sig í spor nemenda
sinna og eiga auðvelt með að
sýna þeim væntumþykju og
skilning.
Þær tóku við ótrúlegum
árgangi og breyttu honum í einn
þéttasta og flottasta árgang
skólans. Hvernig gerðu þær það?
Jú með því að hlusta á og virða
fyrir sér þá einstaklinga sem þær
höfðu í höndunum og með því
að berjast ekki á móti straumn
um heldur vinna með honum.
Gott dæmi um það er mikill
áhugi nemendanna á svo köll
uðum puttabrettum. Þessi putta
bretti voru farin að trufla mikið
í kennslustundum. Í stað þess
að banna brettin þá fóru þær þá
leið að leyfa nemendunum að
byggja stóran puttabrettagarð
sem allir hafa ánægju af. Þetta
kallar maður að vera
lausnamiðaður og með opinn
huga og það eru þær svo
sannarlega og eiga hrós skilið.
– Takk.
Sigríður Elísabet Ragnars
dótt ir, móðir barns í
Öldutúnsskóla
Bréf til blaðsins
Framúrskarandi
umsjónarkennarar
Sannleikurinn um Kató
Meirihluti Sjálfstæðisflokks
og Bjartrar framtíðar er ekki
fyrsti meirihlutinn í Hafnarfirði
sem þarf að hagræða í rekstri,
þótt ætla mætti annað af mál
flutningi þeirra.
Fyrri meirihluti Sam
fylkingar og Vinstri
grænna þurfti ekki
síður að hugsa vel um
budd una við gríðarlega
erfiðar aðstæður eftir
hrun. Það er hins vegar
töluverður munur á
aðferðafræði og for
gang sröðun vinstri
manna og hægri.
Ólík forgangsröðun
Á árunum eftir hrun var víða
leitað fanga og skorið niður svo
mörgum fannst nóg um. Meðal
þess sem gert var var að sameina
lítinn leikskóla öðrum svo halda
mætti honum gangandi og standa
þannig vörð um grunnþjónstu
við barnafólk. Um var að ræða
þann leikskóla sem við köllum í
daglegu tali Kató.
Fyrrverandi meirihluti vildi
standa vörð um Kató og fór því
þessa leið. Hún var vissulega
umdeild eins og gefur að skilja
þegar um slíka sameiningu að
ræða. Kató var hins vegar ekki
lagður niður. Þar hafa verið allt
að 36 börn á hverju ári þar til nú
í haust. Ástæðan fyrir því að á
Kató eru í vetur einungis 24 börn
er sú að einhvers staðar var tekin
ákvörðun um að taka ekki inn
börn þar sl. haust. Sú
ákvörð un finnst þó
hvergi formlega bókuð
í fundargerðum
fræðslu ráðs eða bæjar
stjórnar.
Fjölgun barna í
Suðurbæ
Nú hefur meirihluti
Sjálf stæðisflokks og
Bjartrar fram tíðar
ákveðið að loka Kató
og það þrátt fyrir skýran vilja
foreldra til að halda rekstri starfs
stöðvarinnar áfram. Bent hefur
verið á að með brotthvarfi Kató
mun Suðurbærinn verða það
hverfi í bæn um sem vantar hvað
mest leikskólapláss. Börn um fer
fjölgandi í hverfinu og ef fram
fer sem horfir mun annað hvert
barn þurfa að sækja leikskóla
utan hverfis. Svipað vandamál
hefur verið uppi á Völlum en
með tilkomu nýs leikskóla við
Bjarka velli mun staðan lagast
þar til muna, en versna í Suður
bæ.
Villandi umræða
Meirihluti Sjálfstæðisflokks
og Bjartrar framtíðar hefur
ítrekað reynt að afvegaleiða um
ræðuna með því að flagga tölum:
fáum börnum og miklum
rekstrarkostnaði. Börnunum sáu
þau sjálf um að fækka svo það
skrifast alfarið á meirihlutann
enda væru 36 börn á Kató án
þeirra afskipta en ekki 24.
Varðandi reksturinn þá hefur
verið fullyrt að það sparist 43
milljónir króna við að loka
þessari starfsstöð. Það er hins
vegar ekki alls kostar rétt því af
þessum 43 milljónum eru tæpar
30 launakostnaður sem hverfur
ekki við lokun Kató heldur færist
með börnunum á þá leikskóla
sem þau fara. Leikskólabörnum
fylgir nefnilega starfsfólk og
starfsfólki þarf að borga laun
sama á hvaða leikskóla það
starfar.
Þegar nú liggja fyrir tölur sem
sýna að í raun þurfi að fjölga
leik skólaplássum í þessum
bæjarhluta en ekki fækka og að
sparnaðurinn með lokun þessarar
starfsstöðvar sé í raun miklu
minni en fullyrt hefur verið, þá er
í raun óskiljanlegt að ekki skuli
fallið frá þessum áformum. Við
Adda María
Jóhannsdóttir
Setning: Auður S. Arndal, formaður Foreldrafélags Álftanesskóla
Álftaneskórinn undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar flytur nokkur lög
Nemendur úr 9. bekk Álftanesskóla í Dansskóla Birnu Björns sýna dans
Nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar, Álftanesi, leika nokkur lög á flautur, undir stjórn
Lindu Margrétar Sigfúsdóttur
Tristan Snær Víðisson og Svandís Ósk Einarsdóttir í DÍH sýna latíndansa
Tískusýning - nemendur úr 5. bekk sýna eigin hönnun - Grænfánaverkefni Álftanesskóla
Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju syngur nokkur lög undir stjórn Helgu Lofts-
dóttur við undirleik Önnu Magnúsdóttur
Stúlkur í 2.-3. bekk Álftanesskóla á námskeiðinu Dansfjör dansa Freestyle-dansa
Jóna Valborg Árnadóttir les úr nýútgefinni barnabók sinni, Vinabókinni
Guðrún Óla Jónsdóttir, keppandi í The Voice Ísland, syngur nokkur lög
Alda Dís Arnardóttir, sigurvegari Ísland Got Talent 2015, syngur nokkur lög
Hraðbingó Lions - allir spila - ókeypis bingóspjöld - veglegir vinningar
Kveikt á jólatrénu úti og jólasveinar mæta á svæðið
Lionsklúbburinn Seyla og Lionsklúbbur Álftaness bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingar.
Hægt er að panta sölu- og kynningarborð fyrir 27. nóv. í gegnum netfangið godgerdadagur@gmail.com.
Hvert söluborð kostar 4000 kr. Upphæðin rennur óskipt til góðs málefnis.
Líknarsjóður Álftaness tekur á móti AUKApakkanum og Rauði krossinn tekur á móti fatapokanum.
DAGSKRÁ
12.30-13.00
13.00 - 13.30
13.30-14.00
14.00 - 14.30
14.30 - 15.00
15.00 - 15.30
15.30 - 16.00
16.15 -16.45
Íþróttamiðstöðinni Álftanesi,
laugardaginn 28. nóvember kl. 12.00 – 16.00
Handverksmarkaður, hönnunarvörur, kaffisala og fleira
Kynnir: Ingrid Kuhlman
ALLIR VELKOMNIR
Jóla- og góðgerðadagurinn
Foreldrafélag Álftanesskóla
og hin ýmsu félagasamtök
Nemendur úr 10. bekk Álftanesskóla
verða með kaffisölu.
Nemendur úr 7. bekk verða með dekurhorn.
Nemendur úr 6. bekk verða með
jóla merkimiða til sölu.
Nemendur úr 4. bekk verða með lukkuhjól
og allur ágóði mun renna til góðra málefna.
DANS OG
SÖNGUR
LUKKU-
HJÓL
KAFFI-
SALA
slíka forgangsröðun hljóta að
vakna spurningar um það hvað
þessi ákvörðun snúist um í raun
og veru!
Þjónusta skert við
barnafjölskyldur
Að lokum er rétt að geta þess
að ef kemur til lokunar á Kató
verða það alls fjögur leikskóla
úrræði sem meirihluti Sjálf
stæðis flokks og Bjartrar fram
tíðar hefur lokað á einu ári. Nú
þegar hefur ungbarnaleik skól
anum Bjarma verið lokað, fimm
ára deild í Hvaleyrarskóla lögð
niður og til stendur að loka
Kaldárselsdeild Víðivalla ásamt
Kató.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Samfylkingar
Sykursýkismælingar
Lionsfélaga í Firði