Fjarðarpósturinn - 03.12.2015, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
Snjórinn setti fallegan svip á
upphaf aðventu í Hafnarfirði.
Það er gömul hefð að kveikja á
aðventuljósum, einu nýju fyrir
hvern sunnudag í aðventu og
kirkjur bæjarins óma af gleði
söng. Þó Íslendingar fagni jólum
af gömlum trúarlegum sið til að minnast fæðingar
Jésúbarnsins þá er undirbúningur jólanna gjarnan
undir merkjum verslunar og fólk keppist við að finna
gjafir handa vinum og fjölskyldu. Ef ekki handa þeim
má alltaf kaupa eitthvað handa sjálfum sér.
Mikilvægt er að Hafnfirðingar leiti ávallt fyrst í
hafnfirskar verslanir áður en leitað er annað, vilji
menn á annað borð halda verslunum í Hafnarfirði,
hvað þá að þeim fjölgi. Það er ekkert heimóttarlegt
við það að kaupa inn í sínu nærumhverfi, þannig
eflum við okkar bæjarfélag um leið og það styttir
okkur leið og sparar tíma. Kannski er verslunarrekstur
á tíma mótum og ráðrúm til að aðlaga hann að breyttri
umgjörð okkar þar sem svo auðvelt er að kaupa á
netinu. Það gleymist oft að kaupmaðurinn hefur ekki
það hlutverk að selja vörur fyrir sinn birgja, heldur
miklu fremur að veita sínum viðskiptavinum þjónustu.
Það eru jú þeir sem greiða launin hans. Kannski eru
verslanir of rígbundnar í gamalt form að selja
ákveðnar vörur í stað þess að útvega viðskiptavininum
einfaldlega það sem hann vantar. Heildsalar eru hvort
eð er að reyna að koma sínum vörum sem víðast og
engin ástæða að kaupmenn séu birgðarstjórar en geti
þess í stað verið, svipað og netverslanir, með aukið
vöruúrval til sýnis, í möppum eða á skjá og látið
heildsalann koma með vöruna í sinni daglegri yfirreið.
Hafnfirskar verslanir gætu verið leiðandi í nýjum og
bættum viðskiptaháttum og laðað þannig til sín
viðskiptavini.
Það var fallegt um að litast í Jólaþorpinu um helgina
og líflegt var í mörgum verslunum í miðbænum.
Thorsplan var betur skreytt en oft áður og ekki sakaði
snjórinn. Enn vantar þó mikið upp á að gera
Strandgötuna alla að einu jólaþorpi og við sjálfsagða
lokun fyrir bílaumferð vantaði tilfinnanlega meira
aðdráttarafl í syðri enda hennar. Það er vonandi að
með bættum fjárhag bæjarins og aukinni þátttöku
atvinnulífsins megi gera enn líflegri miðbæ á
aðventunni.
Ég ætla ekki að láta hjá líða að ítreka mikilvægi
þess að haldin verði arkitektasamkeppni um skipulag
miðbæjarins til að fá sem bestar hugmyndir um það
hvernig þróa megi miðbæinn til framtíðar. Ég
hreinlega skil ekki hvað hefur staðið í vegi fyrir að
slík samkeppni verði haldin því þörfin er sláandi og
vanhugsaðar endalausar breytingar á einni og einni
lóð eru ekki til þess fallnar að bæta miðbæinn. Vilji
menn hafa miðbæ þá er eins gott að hafa hann flottan.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf.
kt. 480307-0380
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Áb.maður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagur 6. desember
Sunnudagaskóli kl. 11
Stoppleikhópurinn sýnir jólaleikritið
Jólin hennar Jóru.
Aðventuguðsþjónusta
í Haukaheimilinu kl. 20
Barnakór, Unglingakór og kirkjukór
Ástjarnarkirkju syngja.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 6. desember
2. sunnudagur í aðventu
Guðsþjónusta kl. 11
Kór Víðistaðasóknar syngur undir
stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Sunnudagaskóli kl. 11
Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri,
fer fram uppi í suðursal kirkjunnar.
María og Bryndís leiða stundina.
Kaffi, djús og kex að guðsþjónustum loknum
www.vidistadakirkja.is
Sunnudagur 6. desember
2. sunnudagur í aðventu
Aðventu- og
kyrrðarstund kl. 11
Jasstríó
Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari,
Karl Olgeirsson píanóleikari og Jón Rafnsson
kontrabassaleikari flytja aðventu og jólalög
Skátar bera friðarlogann frá Betlehem
til kirkju og tendra friðarljósið.
Mánudagar
10-12 ára starf kl. 16.30-18
Fimmtudagar
Foreldramorgnar kl. 10-12
www.hafnarfjardarkirkja.is
Sunnudagur 6. desember:
Útvarpsguðsþjónusta
kl. 11
Guðsþjónustunni er útvarpað á Rás 1.
Sunnudagaskólinn fellur niður.
Krílakórarnir syngja ásamt kirkjukórnum.
Sjá nánar á www.frikirkja.is
og á Facebook
Brekkan framan við Víðistaðakirkju er gríðarlega
vinsæl meðal krakka sem renna sér þar á sleðum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n