Fjarðarpósturinn - 03.12.2015, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015
ys og
leg
di
ku
ú
ið
stólum
standa fyrir landssöfnun
um
söfn-
að
er
auðvelda
heima
nauðsynlegum
breikka
þröskulda,
í
bað-
jafnvel
fé.
sjóður
sem
styrk
er
að
með
fasteign,
vöxt-
árennilegt
við
tekjur
á
hjólastólum
desember
upp
og
gnota
rúllu
fyrir
mánaðarskammtur
kostar
Hægt
rúllu
krónur.
rennur
ið stólum á þig”.
söfnunarinnar
leggja
því
hvert
Til styrktar fólki
sem bundið er við hjólastól.
1. Fólk sem bundið er við hjólastóla fær fjárhagsaðstoð til að breyta híbýlum sínum.
2. Íþróttafélög og önnur félagasamtök fá hér verðugt tækifæri til að styrkja fjárhag sinn.
3. Vitundarvakning um að ganga betur um umhverfið og bera virðingu fyrir náttúru Íslands.
4. Við stuðlum að því að skila landinu hreinna en við tókum við því.
5. Síðast en ekki síst: Með því að gera fólki í hjólastólum kleift að búa heima hjá sér
spörum við skattfé sem annars færi í byggingu og rekstur á hjúkrunarheimilum.
Verkefnið er fimmþætt.
Markmiðið er:
Ein taska inn á hvert heimili í Hafnarfirði. Saman vinnum við létt verk
Landssöfnun hefst
í Hafnarfirði dagana
4. til 7. desember.
Innkaupataska
ásamt sterkum
maispokum undir
heimilisrusl.
Flatahraun 31 - sími: 565 1999
Dalshrauni 17 Hafnarfirði 565 4060
sala@rafgeymar.is www.rafgeymar.is
Slys og
alvarleg
veikindi
Félagasamtökin Við stólum á
þig standa fyrir landssöfnun
sem hefst í Hafnarfirði um
næstu helgi. Tilgangur söfn
unarinnar er að safna fé til að
styrkja fólk, sem bundið er við
hjólastól, til að auðvelda því að
búa áfram heima hjá sér með
nauðsynlegum breytingum á
aðstöðu.
Það þarf til dæmis að breikka
hurðaop, fjarlægja þröskulda,
setja arma á efri skápa í eldhúsi
og á baði, breyta bað og
salerinsaðstöðu og jafnvel
breyta aðgengi að húsinu.
Allt kostar þetta mikið fé. Því
miður er enginn sjóður á vegum
hins opinbera sem þetta fólk
getur sótt styrk í. Það eina sem
er í boði er lán frá Íbúðalánasjóði
að hámarki átta milljónir með
veði í viðkomandi fasteign,
verðtryggt og með 4,2% vöxt
um. Það er ekki árennilegt fyrir
fólk sem bundið er við hjólastól
með skertar tekjur eftir slys eða
erfið veikindi.
Með söfnunarátakinu á að
gera fólki í hjólastólum hægara
um vik á heimilum.
Dagana 4. til 7. desember
mun sölufólk banka upp á hjá
Hafnfirðingum og bjóða til
kaups margnota innkaupatösku
ásamt rúllu af sterkum maís
pokum fyrir heimilisruslið.
Taska og mánaðarskammtur
af maíspokarúllum kostar tvö
þúsund krónur. Hægt er að
kaupa auka rúllu á fimmhundr
uð krónur. Sölufólkið verður
með posa.
Allur ágóði af sölunni rennur
í sjóðinn: „Við stólum á þig“.
Aðstandendur söfnunarinnar
hvetja bæjarbúa til að leggja
góðu málefni lið með því að
kaupa eina tösku á hvert heimili
í Hafnarfirði.
Upplýsingar um söfnunina er
að finna á Facebook undir
heitinu: Við stólum á þig.
Með kaupum á innkaupa
tösku og maispokum leggur þú
þeim lið sem bundnir eru við
hjólastól.