Skagablaðið - 10.08.1984, Side 4
Skagablaðið
Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson
Ljósmyndir: Árni Árnason
Auglýsingar: Margrét Snorradóttir og Árni Árnason
Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Borgarprent
Útlit: Sigurður Sverrisson.
Ritstjórnarskrifstofa Skagablaðsins er að Skólabraut 12
(áður Studíóval) og er opin sem hér segir: mánudaga frá
kl. 14.30-22, þriðjudaga frá kl. 10-17, alla aðra virka daga
frá kl. 17-19. Móttaka auglýsinga og áskrifta er á sömu
tímum. Síminn er 2261. Sláið á þráðinn eða lítið inn.
Fylgt úr hlaði
Eftir nokkrar fæðingarhríðir, miklar vangaveltur og
langan aðdraganda er fyrsta vikublaðið á Akranesi
orðið staðreynd. Hver framtíð þess verður er að jöfnu
undir aðstandendum blaðsins og ykkur, lesendur góðir,
komið. Aðstandendur Skagablaðsins hafa sett sér það
markmið að gefa út gott vikublað. Þeir eru þess
jafnframt fullvissir, að standi þeir við sinn hluta munu
bæjarbúar ekki láta sitt eftir liggja.
Fjölbreytni
Vafalítið tekur það sinn tíma að koma útgáfu
Skagablaðsins í fastar skorður. Reynsla af útgáfu
vikublaðs hér í bæ er ekki fyrir hendi. Hvernig til tekst
með efnisöflun er því nokkuð óráðið en ætla má, að í
jafnstóru bæjarfélagi og Akranesi ætti að vera nóg að
gerast til þess að halda 8 síðna vikublaði við efnið. Að
sjálfsögðu verður reynt að leita fanga sem víðast og ætti
þetta 1. tölublað að gefa einhverja hugmynd um
efnistök blaðsins, a.m.k. framan af.
Óháð blað
Eins og önnur fréttablöð á Akranesi undanfarin ár
verður Skagablaðið óháð öllum stjórnmálaflokkum.
Það þýðir þó ekki að blaðið hafi ekki sínar eigin
skoðanir á hlutunum. Þá hafa aðstandendur Skaga-
blaðsins boðið fulltrúum stjórnmálaflokkanna í bæjar-
stjórn að rita greinar í blaðið með vissu millibili og er
þess að vænta að fyrsta greinin í þessum flokki birtist að
tveimur vikum liðnum. Allt efni frá lesendum er vel
þegið svo og þarflegar ábendingar.
Áskriftir
Til þess að reyna að treysta rekstrargrundvöll blaðsins
er áformað að selja Skagablaðið í áskrift frá og með 5.
tbl., sem kemur út 7. september að öllu forfallalausu.
Verður því gert öflugt átak til þess að safna áskrifendum
að þessu nýja blaði í þessum mánuði og vonast
aðstandendur þess að þessi nýbreytni mælist vel fyrir.
Þar til áskriftarkerfinu verður komið á verður blaðið
selt í lausasölu.
Auglýsingar
Þótt e.t.v. verði af nógu að taka hvað efni varðar lifir
ekkert blað, hvorki Skagablaðið né önnur, af sölunni
einni. Áskriftir munu vafalítið verða blaðinu mikil stoð
ef vel tekst til en eftir sem áður verða auglýsingar helsta
tekjulindin. Eins og glöggt má sjá hafa auglýsendur á
Akranesi tekið þessu nýja blaði forkunnarvel og er það
von Skagablaðsins að framhaldið verði af svipuðum
toga. Sú skoðun, að auglýsingar borgi sig, á enda æ
vaxandi fylgi að fagna.
Til lesenda
Það er ykkar, lesendur góðir, að kveða upp dóm um
þetta blað. Að sjálfsögðu liggur það ljóst fyrir, að
almenningur kaupir ekki blað, sem honum líkar ekki.
Því viljum við fara þess á leit við ykkur, að þið hafið
samband við okkur, annað hvort bréf- eða símleiðis, og
látið í ykkur heyra hvort heldur ykkur þykir blaðið gott
eða slæmt. Með samstilltu átaki Skagablaðsins og
ykkar, lesendur góðir, er hægt að halda úti góðu og
virku fréttablaði á Akranesi.
pAKRANES - VESTURLAND---
SUMARÚTSALA
á hljómplötum og kassetturn
byrjar á mánudag.
ALLAR VINSÆLUSTU
HEIMILISTÖLVURNAR
TölvunámskeiO 21. og 22. ágúst. ^
Upplýsingar í versluninni.
Skólavörurnar streyma inn daglega.
SKÓLARITVÉLAR OG REIKNITÖLVUR
Munið fjölbreytt úrval af
og vasabrotsbókum.
KODAK OG
FUJI FILMUR
Framköllun
á Kodak- og
Agfapappír.
nýjum tímaritum
LEITIÐ EKKI LANGT
YFIR SKAMMT
BÓKASKEMMAN
Stekkjarholti 8-10 — Sími: 2840
Við bjóðum þrjá ferðamöguleika:
3 dagar (heimferð fimmtudag 4. okt.) Aðeins kr. 9.900
5 dagar (heimferð laugardag 6. okt.) Aðeins kr. 11.850
1 vika (heimferð þriðjudag 9. okt.) Aðeins kr. 14.800
Evrópa verður full
af fótbolta þessa daga
bæði á völlunum
og í sjónvarpinu!
Samvinnuferdir - Landsýn
Upplýsingar og farmiðapant
anir eru í Versl. Óðinn, sími 1986.
SKEUJUM 0KKUR MEÐ
SKAGAMONNUM
Nú fjölmenna allir stuöningsmenn hins frábæra ÍA-liðs og aðrir knattspyrnuáhugamenn á leik
Skagamanna og Belgíumeistara Beveren í Evrópukeppninni í Belgíu. Með hressilegum stuðningi sam-
stillts hóps frá íslandi er lið Akraness til alls liklegt i Ijónagryfjunni i Beveren, þar sem mörg stórlið hafa
orðið heimamönnum að bráö. í ferðinni verður hörkugóð hópstemmning — allir verða saman á hóteli og
allir fá miða í bestu sæti á sama stað á vellinum!
Flogið er til Amsterdam þriðjudaginn 2. október og gist þar allar næturnar á Hótel Victoria, öndvegis
hóteli á besta stað í borginni (öll herbergi með baði og litsjónvarpi). Auk þess er innifalin í verðinu rútuferð
á leikinn ásamt stúkumiða, íslensk fararstjórn og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
4