Skagablaðið - 15.02.1985, Síða 1
5. TBL. 2. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 15. FEBRUAR 1985
VERÐ KR. 30,-
Samkomulag á milli bæjarins og umbjóðenda eigenda Innsta-Vogs landsins næst ekki:
Gerðardómur líklegast lát
inn skera úr um kaupverð
Kaupir Akraneskaupstaður land Innsta-Vogs eða ekki? Þessum
spurningum hefur margsinnis verið velt fram og til baka undanfarna
mánuði og sýnist sitt hverjum. Þeir, sem til þekkja, segja uppsett verð
of hátt, aðrir segja tiiboð bæjarins of lágt. Erfitt hefur verið að fá
nokkrar tölur uppgefnar en nærri lætur að í upphafi hafi tilboð
Akraneskaupstaðar verið helmingi iægra en það verð, sem umbjóð-
andi eigendanna setti upp.
Hugsanleg kaup bæjarins á
jörðinni voru til umfjöllunar á
síðasta bæjarstjórnarfundi. í máli
Ingimundar Sigurpálssonar, bæj-
arstjóra, sem átt hefur í við-
ræðum við umbjóðanda eigend-
anna, kom fram að líklegast
hefðu nú ákveðin þáttaskil orðið
í málinu. Það væri eindregin ósk
eigendanna að verð landsins yrði
sett í gerðardóm og vildu þeir að
úrskurður hans yrði bindandi.
Bærinn er tregur til að gangast inn
á slíka skilmála.
Forsendur
Ingimundur vék einnig að því
að miklu máli skipti á hvaða
forsendu fyrir mati yrði sæst.
Hverjir yrðu útborgunarskilmál-
ar, hver yðri lánstími, hverjir
yrðu vextirnir og við hvað yrði
miðað við mat landsins. Næsta
skrefið sagði Ingimundur vera
samning um gerðardómsmat en í
gerðardómi þessum myndu eiga
sæti þrír aðilar, fulltrúar seljenda
og kaupenda svo og þriðji aðili,
sem báðir sættu sig við.
Jón Sveinsson (F) sagðist ekki
telja rétt hafa verið staðið að
málum í upphafi er hann vék að
samningaviðræðunum í máli
sínu. Jón sagði eðlilegan fram-
gangsmáta hafa verið þann, að
lagt hefði verið fram ákveðið
tilboð bæjarins strax síðasta haust
og síðan beðið eftir gagntilboði.
Þannig hefði fengist ákveðin hug-
mynd um raunverulegan vilja selj-
endanna í málinu. Eins og staðið
hefði verið að málum væri líklegt
að ef að kaupum yrði þyrfti
bærinn að greiða hærri upphæð
fyrir landið en ella.
Eina leiðin
Guðmundur Vésteinsson (A)
var ekki sammála Jóni. Þótt bær-
inn hefði gert ákveðið tilboð væri
enginn sem skyldaði seljandann
til að gera gagntilboð. Taldi Guð-
mundur ekki aðra leið færa en að
leggja málið í mat væri á annað
borð einhver vilji fyrir því að
bærinn keypti landið. Ingimund-
ur taldi einnig tilgangslaust að
leggja fram tilboð í upphafi, þar
sem ljóst hefði verið að mikið bar
á milli.
Engilbert Guðmundsson (AB)
sagðist samsinna Jóni og taldi, að
eðlilegt hefði verið að tilboð hefði
verið gert í upphafi „til þess að
gefa tóninn“, eins og hann orðaði
það. Engilbert kvaðst dálítið rag-
ur við að taka bindandi mati í ljósi
þeirrarreynslu, sem fengist hefði
af slíku annars staðar á undan-
förnum árum.
Ætla að
kaupa8
íbúðir
Stjórn verkamannabústaða fól
á fundi sínum þann 19. janúar
síðastliðinn Jóni Sveinssyni, lög-
fræðingi, að leita eftir samning-
um við Guðmund Magnússon,
byggingameistara, um kaup á 6
íbúðum í blokk, sem verið er að
reisa.
Blokk þessi hefur verið lengi í
smíðum og afhending íbúða tafist
verulega eins og skýrt hefur verið
frá í Skagablaðinu. Takist samn-
ingar munu þeir vafalítið flýta
verulega fyrir framkvæmdum við
blokkina.
Jafnframt fól stjórnin Jóni að
finna 2 nýlegar íbúðir á fast-
eignamarkaðnum, 3-4 herbergja,
sem væru heppilegar til kaups og
semja um kaupverð þeirra.
Bjartari at>
vinnuhorfur
Heldur virðist vera að birta yfir
atvinnumálum hér á Akranesi
þessar vikurnar. Stutt er í að verk-
smiðja Henson opni og eru tals-
verðar líkur að nýtt fyrirtæki,
Sjávarréttagerðin sf., taki til
starfa hér áður en langt um líður.
Á fundi atvinnumálanefndar í
janúar gerði Kristján Einarsson
grein fyrir framgangi mála við
undirbúning sinn að stofnun áður-
nefnds fyrirtækis hér í bæ. Um er
að ræða vinnslufyrirtæki, sem
vinnur neysluvöru úr trjónu-
krabba og beitukóngi. Hefur
Kristján þegar lagt fram umsókn
um styrk til Fiskveiðasjóðs.
Atvinnumálanefnd samþykkti
einróma að mæla með umsókn
hans til Fiskveiðasjóðs enda yrði
hér um kærkomna nýjung í at-
vinnulífi bæjarins að ræða ef af
stofnun fyrirtækisins verður.
Nýverið barst atvinnumála-
nefnd bréf frá Kaupstefnunni þar
sem athygli fyrirtækja á Akranesi
er vakin á að sýna afurðir sínar á
sýningunni Heimilið ’85. At-
vinnumálanefnd hefur fengið já-
kvæðar undirtektir nokkurra fyr-
irtækja hér í bæ og leggur jafn-
framt til að hugsanlega mætti
sýna auglýsingakvikmynd Akra-
neskaupstaðar á sýningunni verði
af þátttöku fyrirtækja héðan.
Séð heim að Innsta-Vogi, og landinu, sem um rœðir í fréttinni.
Fræðsla um skaðsemi fíkni-
efna í grunnskólunum í mars
- nemendur í 7., 8, og 9. bekk fá heimsóknir sérfræðinga í skólana
Ákveðið hefur verið að hefja
fræðslu á skaðsemi fikniefna í
skólum bæjarins strax í byrjun
næsta mánaðar. Hefst fræðslan
hjá 8. bekk í Brekkubæjarskóla
dagana 4.-8. mars og síðan verður
henni haldið áfram hjá 7.,8. og 9.
bekkjum Brekkubæjar- og
Grundaskóla.
Það var Steinunn Sigurðardótt-
ir, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, sem vakti máls á fíkni-
efnum og skaðsemi þeirra á fundi
bæjarstjórnar fyrir áramótin í
kjölfar upplýsinga, sem hún hafði
sjálf aflað sér um neyslu efnanna
hér í bænum. Lagði hún við sama
tækifæri fram tillögu þess efnis að
samráð yrði haft við æskulýðs-
nefnd um fræðslu á skaðsemi
efnanna og óskaði jafnframt eftir
því að bæjaryfirvöld tækju tillit til
þessa við gerð fjárhagsáætlunar.
Elís Þór Sigurðsson, æskulýðs-
fulltrúi, hefur á undanförnum
vikum unnið ötullega að því að
afla sér gagna um fíkniefnamál og
verður fræðslan í skólunum unnin
í samráði við SÁÁ. Munu fyrir-
lesarar — fólk sem þekkir vel til
þessara mála — úr Reykjavík
uppfræða æsku bæjarins um það
víti, sem viðjar eiturlyfja eru.
Skagablaðið fagnar því hversu
skjótt hefur verið brugðið við því,
hér er þarfara mál á ferð en
margan grunar. Þá vildi Elís Þór
koma á framfæri þökkum til bæj-
aryfirvalda fyrir að leggja málinu
lið með fjárstuðningi.