Skagablaðið - 03.05.1985, Qupperneq 8
AUGLÝSINGA-
SÍMINN ER
2261
ÁSKRIFTAR-
SÍMINN ER
2261
Engin ákvörðun enn
um útboð steypunnar
Haglél, óperur
og söngleikir
—Vel heppnuð ferð Oddfellowa til Vínar
Tilboð í malbikunarfram-
kvæmdir á vegum Akraneskaup-
staðar verða opnuð í dag að því er
Daníel Ámason, bæjartækni-
fræðingur, tjáði Skagablaðinu í
gærdag. Um 9800 fermetrar mal-
biks vora boðnir út fyrir
skemmstu en engin ákvörðun hef-
Tvennt á
sjúkrahús
Tveir árekstrar urðu í síðustu
viku og varð nokkurt tjón í
báðum tilvikum en sem betur fer
ekki meiðsl nema í öðru.
Sá fyrri varð inn við ós og var
tvennt flutt á sjúkrahús eftir hann.
Töluverðar skemmdir urðu í því
tilviki.
Síðari áreksturinn varð á gatna-
mótunum margumræddu, Still-
holti-Kirkjubraut/Kalmansbraut.
Þar átti útlendingur í hlut m.a. en
tjón varð fremur lítið.
Yfir 60 bíða
eftir vistun
Alls munu nú á sjöunda
tug manns bíða etir því að fá
vistun á Dvalarheimilinu
Höfða. Meginþorri þcirra,
sem eru á biðlista, eru ein-
staklingar, alls 50 talsins, en
einnig 7 hjón. Ljóst er af
þessu, að mjög brýnt er að
heimilið verði stækkað en alls
munu 30-40 á biðlistanum
vera í brýnni þörf með vistun.
ur enn veríð tekin um hvort
steypa í götur, sem vinna á við á
vegum bæjarins í sumar, verður
boðin út. Það ræðst mjög af
útkomu malbikstilboðanna, sem
opnuð verða í dag.
Steypuframkvæmdir bæjarins,
þ.e. steypuvinna við götur, var
unnin af Þorgeiri & Helga í fyrra
og þá var verkið ekki boðið út
heldur samið beint við verktak-
ann. Daníel sagði í samtali við
Skagablaðið í gær, að hann væri
ekki í vafa um að almennt væri
hagkvæmara að láta bjóða verk út
en þó gæti það farið nokkuð eftir
eðli framkvæmdanna hverju
sinni.
Umtalsverðar gatnafram-
kvæmdir eru fyrirhugaðar á veg-
um bæjarins í sumar og t.d.
verður unnlð mjög mikið við
nýjar gangstéttir. Steypan virtist í
fyrra mjög samkeppnisfær við
malbikið og nú er bara að sjá
hvemig útkoman úr tilboðunum í
dag verður. Af þeim kann að
ráðast hvort götur verða steyptar
eða malbikaðar.
Vinnudagur í
Grundaskóla
Kennarar Grundaskóla efna á
morgun, laugardag, til vinnudags
með nemendum og foreldrum
þeirra þriðja árið í röð. Verkefni
að þessu sinni verða eins og verið
hefur; hreisnun og snyrting lóðar,
smíði leiktækja, m.a. brunabíls
og rennibrautar, málun á leikvöll-
um o.fl. Inni verður unnið við
plöstun bóka og spila og ýmis
önnur verkefni. Vinnutíminn er
frá kl. 9-12 og 13-16 á morgun.
Það er von kennara skólans, að
sem flestir foreldrar, helst allir,
mæti með bömum sínum við
Gmndaskóla á morgun.
Fimmtíumanna hópur, fé-
lagar úr Oddfellowhreyfing-
unni hér á Akranesi og makar
þeirra, kom um síðustu helgi
heim úr velheppnaðri fjög-
urra daga ferð til Austurríkis.
Var hópurinn héðan í samfloti
við 200 manna hóp úr Reykja-
vík og sökum fjöldans var
verðið á ferðinni afar
hagstætt, tæpar 10.000
krónur, flug og gisting.
Sigurður Ólafsson var einn
þeirra sem fór og tjáði Skaga-
blaðinu að einkar vel hefði
tekist til. Reýndar hefði ekki
sakað að veðrið hefði verið
eilítið betra. „Við fengum
meira að segja haglél einn
daginn,“ sagði Sigurður.
Veðrið hefði þó ekki komið í
veg fyrir að fólkið hefði notið
ferðarinnar í ríkum mæli og
m.a. farið á óperur og söng-
leiki í Vín.
Áreksturinn á gatnamótunum illrœmdu, StillholtlKirkjubrautlKalm-
ansbraut.
Sat óvænt uppi meo mmlega
100 þúsund, en skilaoi öllu
Skagablaöinu, sem og öðrum hérlendum
fjölmiðlum, er sífcllt legið á hálsi fyrír að
birta ekkert nema neikvæðar fréttir. Hér
kemur hins vegar ein, sem hlýtur að teljast
jákvæð í meira lagi.
Það vildi til t síðustu viku þegar starfs-
maður Akraborgar var að búa sig til
heimferðar, að poki, sem m.a. hafði að
geyma innleggstösku mcrkta Landsbankan-
um, var tekinn rétt á meðan hann sneri sér
við. Eins og vænta mátti varð uppi fótur og
fit því ekki sást til þess sem hlut átti að máli.
Lögreglan fékk málið til meðferðar og
hóf þegar rannsókn þess. í raun var þetta
eins og að leita að nál í heystakki því ekki
var við neitt að styðjast. Menn voru því
orðnir harla vondaufir um lausn málsins
þegar pokinn kom í leitimar.
Hafði þá einhver tekið hann í misgripum
en séð þegar heim var komið, að innihaldið
var ekki það sem viðkomandi hugði. f raun
hefði ekkert verið auðveldara en að hirða
peningana í töskunni, en á annað hundrað
þúsund krónur voru þar, og láta síðan sem
ekkert hefði í skorist. Þessi heiðvirði
borgari skilaði hins vegar pokanum með
öllu í, lögreglu sem og Akraborgarmönnum
til léttis.
Segi menn svo, að jákvæðir hlutir gerist
ekki á Akranesi!