Skagablaðið - 20.11.1985, Page 4
SH| X SPEKINGAR 1 SPÁ \
A 3
Friðrikka Bjarnadóttir Jón Karl Einarsson.
Árangurinn hans Örnólfs í getraunaleiknum ætlar að verða erfið
hindrun þeim spekingum sem fylgt hafa í kjölfarið. Lárus Arnar
Fétursson, harðjaxlinn í tannlæknastéttinni, varð að bíta í það súra
epli að bíða lægri hlut í viðureign sinni við Friðrikku Bjarnadóttur.
Hún nældi sér í 4 rétta en tannlæknirinn fékk aðeins þrjá. Hann náði
því aðeins að halda velli í tvær vikur eins og Hrefna Guðjónsdóttir,
sem hann ruddi úr vegi áður en hann féll fyrir Friðrikku. Örnólfur sat
hins vegar ósigraður í 7 vikur!
Eins og vænta mátti tilnefndi Lárus Arnar fulltrúa „sterkara“
kynsins til þess að etja kappi við Friðrikku. Það er enginn annar en
Jón Karl Einarsson, fyrrum skólastjóri tónlistarskólans. Jón Karl
hefur aðeins einu sinni tapað áður á lífsleiðinni að eigin sögn og þá
fyrir heilum 15 árum.
Spár þeirra Jóns Karls og Friðrikku fara hér á eftir:
Friðrikka Jón Karl
Birmingham - Liverpool 2 2
Conventry - West Ham 1 2
Everton - Nottingham Forest 1 1
Leicester- Manch. United 2 2
Manch. City - Newcastle X X
Oxford - Ipswich X 1
Sheffield Wed. - Southampton 1 1
Tottenham - QPR 1 X
Watford - Luton X X
Blackburn - Charlton X 2
Hull- Wimbledon 2 X
Sunderland - Brighton X 1
„Mjög lærdómsrík ferð
hjá okkur í alla staði“
- segir Jón Gunnlaugsson um feró sendinefndar frá Akranesi á
sýningu um rekstur og uppbyggingu íþróttamannvirkja í Köln
„Þetta var mjög lærdómsrík
ferð í alla staði og á þessari
sýningu í Köln sáum við marga
mjög athyglisverða þætti í upp-
byggingu nútíma íþróttamann-
virkja,“ sagði Jón Gunnlaugsson
er Skagablaðið ræddi við hann í
gær, en Jón er nýlega kominn
heim ásamt þeim Jóni Runólfs-
syni og Helga Hannessyni af
mikilli sýningu í Þýskalandi.
„Það athyglisverðasta á sýning-
unni var kannski að komast að
raun um það að sundlaugar í dag
eru meira byggðar upp sem
skemmtigarðar fremur en sund-
laugar einar og sér, þ.e. með
vatnsrennibrautum og öðru til-
heyrandi,“ sagði Jón. „En þarna
var fleira forvitnilegt. Margs kon-
ar orkusparandi hugmyndir voru
þarna á ferð, t.d. í tengslum við
endurnýtingu frárennslisvatns og
sérstakar yfirbreiðslur yfir sund-
laugar til þess að halda varmanum
betur í vatninu. Þá er ónefnt
gervigrasið, sú tegund sem myndi
henta til þess að leggja ofan á
malarvelli."
Sýningin, sem þremenningarnir
sóttu stóð í 4 daga en sjálf ferðin
tók 6 daga. Hún er haldin annað
hvert ár í Köln og skipulögð af
áhugahópi um uppbyggingu og
rekstur íþróttamannvirkja.
— En hvað kom til að farið var
á sýninguna í ár?
„Undanfarin ár hefur ekki ver-
ið talin ástæða til þess að skoða
þessa sýningu en þar sem hér eru
nú í byggingu bæði sundlaug og
íþróttahús þótti viðeigandi að fara
núna. Þarna voru um 20 íslend-
ingar, arkitektar og hönnuðir auk
forstöðumanna íþróttamann-
virkja og ég held að allir hafi lært
mikið af sýningunni,“ sagði Jón.
Sendu miða
á leikinn
Tengsl Skagamanna og
Kölnar eru sterk, ekki síst
vegna Evrópuleikja IA við
IFC Köln á liðnum árum.
Þegar þeir þremenningarnir
komu á hótel sitt eitt kvöldið
í ferðinni beið eftir þeim
umslag frá Kölnar-félaginu. í
því voru þrír boðsmiðar á
leik liðsins og með fylgdi bréf
undirritað af Hannes Löhr,
stjóra félagsins. Þótti þessi
sending sýna vinarhug í verki
og hitt, að vel væri fylgst með
Skagamönnum í stórborg-
inni.
Auglýsið
í Skagablaðinu
Dýrasýning í Slvsa-
vamarfélagshúsinu
Bréfdúfufélag Akraness efnir til sýningar á dúfum og öðrum dýrum
í húsi Slysavarnarfélagsins við Sunnubraut og hefst hún kl. 14 á
sunnudag. Félagsmenn leggja sjálfir til dúfur og leggja kapp á að til
sýnis verði sem fjölbreytilegast úrval en Ingimar Garðarsson í Dýralífi
leggur til önnur sýningardýr. Þarna er kjörið tækifæri fyrir unga sem
aldna, sem hafa áhuga á dúfum og öðrum dýrum að líta inn.
Hæfileikakeppni í Fjölbraut sl. fimmtudag;
Fjölmenni vitni að
sigri Bús in speis
Mikið fjölmenni — talið að
gestir hafi verið fast að 300 —
varð vitni að því er hljómsveitin
Bús in speis bar sigur úr býtum í
hæfileikakeppni innan veggja
Fjölbrautaskólans á Akranesi á
fimmtudagskvöld í síðustu viku.
Upphaflega áttu 6 hljómsveit-
ir að mæta til leiks en ein náði
aldrei alla leiðina upp á svið.
Mjög voru sveitirnar misjafnar
að gæðum en áhorfendur, sem
og sérstaklega valin dómnefnd,
voru sammála um að Bús in
speis hefði verið besta sveitin —
jafnvel þótt hún hefði átt grun-
samlega góðan aðgang að hljóð-
blandara kvöldsins, betri en aðr-
ar sveitir.
Með öllu ólíðandi
draslarahattur
Jón Pétursson skrífar:
I rokinu núna um helgina urðu þær skemmdir inni á íþróttavelli, að
skúr, sem notaður var undir sælgætissölu í sumar, fauk á grindverkið
sem er umhverfis nýju laugina og braut tvo steypta staura, sem halda
uppi skjólgirðingunni.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skúrar af þessu tagi eru á foki þarna
inni á íþróttavelli því fyrir örfáum árum fauk annar skúr sömu
tegundar og áður var getið um og fór sá skúr alveg í mylsnu. Svona
draslaraháttur hjá þeim, sem ráða ríkjum á vellinum, er með öllu
ólíðandi.
Meðfylgjandi mynd var tekin af skúrnum og þeim skemmdum sem
hann olli á girðingunni.
4