Skagablaðið - 20.11.1985, Side 10
„Spumingin var um að
hrökkva eða stökkva“
- segja þau Nína og Daníel um kaupin á versluninni Portinu
„Nei, þetta var sko alls ekki
neitt undirbúið, kom mjög
skyndilega upp á,“ sögðu þau
hjón Nína Aslaug Stefánsdóttir
og Daníel Daníelsson, eigendur
verslunarinnar Nínu, sem
keyptu í síðustu viku verslunina
Portið af Finnboga Gunnlaugs-
syni og hafa á mettíma komið
þar upp sérverslun með barna-
fatnað. Skagablaðið ræddi stutt-
lega við þau í gær.
— Hvernig bar kaupin að?
„Við vissum ekki fyrr til en
fasteignasali hafði samband við
okkur og bauð okkur verslunina
til kaups. Við vorum nú ekki
nema mátulega trúuð á þetta í
fyrstu og héldum að hann væri
að grínast með okkur. Það var
hins vegar ekki.“
— Og þið slóguð strax til?
„Já, við gerðum það eftir að
hafa íhugað málið í skamman
tíma. í svona stöðu er spurningin
um að hrökkva eða stökkva og
við ákváðum að slá til.“
— Var ekkert mál að kaupa
eina verslun sisona?
„Jú, mikil ósköp. Það skyldi
enginn halda að við hefðum
teygt okkur undir koddann og
snarað út þeim peningum sem til
þurfti. Á meðal þess sem „fauk“
var bíllinn. Við göngum núna í
vinnuna eða förum á vörubíln-
um.“
— Eruð þið bjartsýn á að
þetta gangi?
„Já, viðerum það, en auðvitað
verður reynslan að skera úr um
framhaldið. Að kaupa húsnæðið
og setja á stofn barnafataverslun
er eitt, annað er að láta rekstur-
inn ganga upp.“
— Nú heyrast þær raddir að
þið séuð með „yfirgang", hafið
þið heyrt slíkt?
„Mikil ósköp, já já. En þetta
er ekki spurning um annað en að
treysta rekstrargrundvöll versl-
unarinnar sem við vorum með.
Það gefur auga leið að margar
litlar tískuverslanir eiga erfiðara
með að halda velli en færri
öflugar. Með færri verslunum
verður vörustreymið væntanlega
örara og endurnýjun þaraf leið-
andi meiri. Þjónustan eykst því
við þetta.“
Þau Nína og Daníel opnuðu
verslunina Nínu fyrir 3 árum og
hefur verslunin alla tíð vakið
athygli fyrir glæsilegan fatnað og
gott vöruúrval. Úrvalið í nýju
barnafatabúðinni er í takt við
það sem gerist í næta húsi (þ.e.
í Nínu), mikið og gott. Skaga-
blaðið óskar þeim hjónum til
hamingju með áfangann og árn-
ar þeim velfarnaðar með hina
nýju verslun sína.
Nína og Daníel í nýju barnafataversluninni.
„Þetta hefur verið virki-
lega skemmtilegur tími“
- segir Finnbogi Gunnlaugsson, sem hefur nú seit Portio
Finnbogi Gunnlaugsson hefur
selt verslun sína Portið Nínu
Áslaugu Stefándóttur og Daníel
Daníelssyni. Við höfðum sam-
band við Finnboga til að forvitn-
ast um hvers vegna hann ogkona
hans, Droplaug Róbertsdóttir,
hætta starfseminni og selja versl-
unina?
„Ég er búinn að starfa við
verslun í 12 ár og þar af höfum
við hjón verið í 5 ár með eigin
verslun. Nákvæmlega 5 ár þann
15. nóv. sl. Við teljum tímabært
að breyta til, þetta er orðinn
góður skammtur. Þetta hefur
verið virkilega skemmtilegui
tími og við komum til með að
sakna margs þegar við nú
hættum," sagði Finnbogi.
Hann vildi koma á framfæri
þakklæti til allra viðskiptavina
þeirra í gegnum tíðina og allra,
sem þau hjón hafa átt viðskipti
við.
Nokkrar skemmdir í óveðrinu um helgina:
Þrjú gróðurhús
skemmdust í
veðurofsanum
- plötur fuku af þökum, grindveik brotnuðu
og eitt og annað gekk úrskeiðis
í óveðrinu sem gekk yfir um
síðustu helgi var eitt og annað
sem fór úr skorðum og voru
hópar manna frá lögreglunni,
Björgunarsveitinni Hjálpinni og
Björgunarsveit skáta í að aðstoða
fólk eða bjarga hlutum sem fuku
um. Einnig var mikið af starfinu
fólgið í að koma í veg fyrir að
óhöpp yrðu.
Hjá lögreglunni fréttum við, að
ein 3 gróðurhús hafi fokið, girð-
ingar brotnað, plötur fokið af
húsum og töluvert hafi verið um
að rúður hafi brotnað vegna fjúk-
andi hluta. Tilkynning kom í
útvarpinu þar sem fólk var varað
við að vera á ferli vegna platna
sem virtust vera að losna.
Við fréttum af einni stúlku sem
fauk um koll og mun hafa meitt
sig eitthvað. Á tímabili þá leit út
fyrir að járnið væri að losna af
Mörkinni ogfuku a.m.k. 3plötur.
Lögreglan skoðaði húsið eftir að
veðrið gekk niður og taldi hún að
húsið væri varhugavert og er það
mat í athugun hjá byggingafull-
trúa.
Svanur Geirdal, yfirlögreglu-
þjónn, sagði að Björgunarsveitin
Hjálpin og björgunarsveit skáta
hefðu veitt dyggilega aðstoð og
gengið vasklega fram í að bjarga
því, sem bjargað varð.
Aðalfundur bad-
mintonfélagsins
Aðalfundur Badmintonfélags
Akraness verður haldinn mánu-
daginn 25. nóv. kl. 20 í íþrótta-
vallarhúsinu. Venjuleg aðalfund-
arstörf. Fólk er hvatt til að koma
því alltaf vantar gott fólk til starfa.
W}
Ef ykkur liggur
eitthvað á hjarta
þá er síminn:
2261
ingamar
Til sölu 2 tonna trilla með
díselvél, kraftblökk og dýpt-
armæli. Einnig á sama stað
60 grásleppunet. Uppl. í
síma 1901 eftir kl. 19.
Til leigu 3ja herbergja íbúð.
Laus strax. Uppl. f síma 1671
eftir kl. 20.
Til sölu 26“ svart/hvítt
Nordmende-sjónvarp í góðu
ásigkomulagi. Ennfremur
barnabílstóll og kerru-
poki. Uppl. í síma 2743.
10