Skagablaðið - 27.11.1985, Síða 2
Smáauglýs-
ingamar
Til sölu Dual plötuspilarl,
magnari 2x30 wött, Sharp
kassettutæki, tveir Dynaco
hátalarar, 60 watta. Verð 10
þúsund. Uppl. í síma 1056
eftir kl. 18.
Barnfóstrur. Viðerum hérna
tvær sem tökum að okkur að
passa um helgar á kvöldin.
Uppl. ísímum2092og 2463,
Herdís og Ólöf.
Til sölu hjónarúm plusslagt
með áföstum náttborðum,
útvarpi og vekjaraklukku.
Snyrtiborð, stóll, rúmteppi og
tveirvegglampar í stíl. Einnig
á sama stað barnaþríhjól til
sölu. Uppl. í síma 2904.
Til sölu rafmagnsspírall og
vatnshitakútur 11001. Uppl. í
síma 2192 eftir kl. 18.
Til sölu 8m/m kvikmynda-
sýningarvél Fuji super8. Ný-
leg vél og lítið notuð. Uppl. í
síma 1682 eftir kl. 19.
Til sölu sófasett, ný yfir-
dekkt. Uppl. í síma 1997.
Til sölu mjög fallegur ekta
leðurjakki. Stærð M. Uppl. í
síma 1406 á kvöldin.
Til sölu vel með farinn Lada
Sport, árgerð 1980. Ekinn 86
þús. km. Nánari upplýsingar
gefa dúlíus eða Róbert í síma
91-42677.
Ung stúlka óskar að taka 2ja
herbergja íbúð á leigu strax.
Einhver fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Á sama stað óskast
bílskúrtil leigu. Uppl. í síma
2826.
Til sölu Poodle-hvolpar, 7
viknagamlir. Kostakr. 4.000
stykkið. Uppl. í síma 2576 til
klukkan 19.
Til sölu rafmagnsritvél af
Olivetti gerð. Áætlað verð 8
þús. Uppl. í síma 1205.
Gerið góð kaup. Aðeins örfá
stykki eftir úr síðustu send-
ingu. Lyklakippur, hálsmen
og armbönd á ótrúlegu verði.
Uppl. í síma 1382.
Til sölu er Simo-barnakerru-
vagn. Uppl. í síma2827 eftir
kl. 19.
Óska eftir að kaupa notað
mótatimbur. Uppl. í síma
2503 eða 2395.
Til sölu svart/hvítt Nord-
mende sjónvarp 26“. Er í
góðu lagi. Uppl. í síma2743.
Til sölu saurtaklefi með öllu.
Uppl. í síma 2277 á kvöldin.
Orðsending frá Skagablaðinu til bæjarbúa:
Vinsamlega hreytið ekki
ónotum í sölubörn okkar
Ekki fer hjá því að fréttir Skagablaðsins falli bæjarbúum misvel
í geð eins og eðlilegt má telja. Af og til gerist það því miður að
sölubörn Skagablaðsins verða fyrir því að hreytt er í þau ónotum
vegna innihalds blaðsins þegar þau bjóða það til sölu í húsum
bæjarins.
Það eru því vinsamleg tilmæli ritstjórnar Skagablaðsins að þurfi
bæjarbúar að ausa úr skálum reiði sinnar vegna eins eða annars í
blaðinu snúi þeir sér beint til hennar en láti skapið ekki bitna á
sölubörnunum.
Bréfdúfufélagið:
Vel heppnuð
dúfusýning
Bréfdúfufélag Akraness gekkst
fyrir dúfu- og dýrasýningu í SFA-
húsinu að Sunnubraut á sunnu-
daginn. Á sýningunni gat að líta
fjölmargar dúfnategundir auk
ýmissa smærri dýra og veittu fé-
lagar í BFA upplýsingar um fugl-
ana og önnur þau dýr, sem á
sýningunni voru. Meðfylgjandi
mynd var tekin á sýningunni.
Steini
hættir
Nú mun loks ákveðið að Steinn
Helgason verði ekki áfram þjálf-
ari meistaraflokks kvenna í knatt-
spyrnunni og er þar skarð fyrir
skildi. Steinn hefur náð frábærum
árangri með stelpurnar á undan-
förnum árum og óhætt er að segja
að hann sé að örðum ólöstuðum
maðurinn á bak við hinn glæsta
árangur þeirra. Hver tekur við af
honum mun ennþá óleyst mál.
Auglýsið
f Skagablaðinu
Vegurinn við Berjadalsá hættulegur í snöipum vindi:
Skora á bæjaryfiivöld að
láta málið til sín taka
Lesandi skrifar:
í síðustu viku fauk fólksflutn-
ingabfll út af veginum rétt fyrir
innan Berjadalsá eins og fram
hefur komið í fréttum. Ekki
mun þetta vera í fyrsta skipti
sem bfll fýkur út af veginum á
þessum slóðum og eftir því sem
ég man best hafa fjórir bflar
fokið út af veginum þarna við
ána.
Sem betur fer hefur enginn
þeirra farið út af veginum þar
sem hann er hæstur, þ.e. þar
sem hann liggur yfir sjálfa ána.
I>ar hefur vegurinn verið
hækkaður mikið og í sunnan- og
suðvestanveðrum er þetta hættu-
legasti kaflinn á Akranesaf-
leggjaranum, sem sést best á
þeim útaffokum á bílum sem
þarna hafa orðið á undanförnum
árum. Á þessum kafla á veginum
verður mjög hvasst og misvinda-
samt í sunnanáttum.
Ekki þarf að fjölyrða um það
hvað þarna gæti gerst ef bíll fyki
út af veginum þar sem hann er
hæstur, þ.e. yfir sjálfri ánni. Ég
málið til sín taka. Ég geri mér
grein fyrir að bæjarfélagið á ekki
að sjá um framkvæmdir á vegin-
um en ef þrýstingur kæmi frá
stjórnvöldum bæjarins um þetta
tiltekna verkefni til vegagerðar-
innar teldi ég að það gæti gefið
góða raun. Þessi vegur er þó í
það minnsta mest notaður af
Akurnesingum sjálfum.
myndi telja að ekki mætti drag-
ast öllu lengur að setja handrið
þarna meðfram norðurjaðri veg-
arins á c.a. 100 metra kafla, yfir
og sitt hvoru megin við ána. Slík
handrið eru nokkuð víða með-
fram vegum, þar sem sérstök
slysahætta er talin vera.
Nú vildi ég beina þeim orðum
til bæjarstjórnarinnar að láta
Frá slysstaðnum í síðustu viku.
Spuming
vikunnar
Ert þú farin að huga að
jólaundirbúningi?
Guðrún Halldórsdóttir: — Þaö er
nú mjög lítið.
Anna Soffía Hákonardóttir: —
Já, maður er farinn að huga að
ýmsu sem gera þarf.
Erla Stefánsdóttir: — Nei, ég er
ekki neitt byrjuð á því. Ég er
afskaplega róleg yfir þessu, byrja
ekki fyrr en í desember.
Kristín Sigurðardóttir: — Ósköp
lítið, ég huga ekki að þessu fyrr
en í desember.
Skagablaðió
Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson ■ Blaðamaður og Ijósmyndari: Árni S. Árnason ■
Auglýsingar: Steinunn Árnadóttir (heimasími 2955) ■ Umsjón með dreifingu, áskriftum og
innheimtu: Sigríður Árnadóttir ■ Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Borgarprent ■ Útlit:
Skagablaðið ■ Ritstjórnarskrifstofa er að Suðurgötu 16 og opin alla daga ■ Símar 2261 og 1397
■ Póstfang: Pósthólf 170, 300 Akranes.
2