Skagablaðið - 27.05.1987, Síða 5
Opna Þ&E öldungamótiö í golfi:
Einn Skagamaður
á verölaunapall
Skagamenn áttu einn mann á verð-
launapalli í opna Þorgeirs & Ellerts öld-
ungamótinu í golfi, sem fram fór á sunnu-
dag. Vigfús Sigurðsson varð í 3. sæti í
keppni með forgjöf.
Það var Knútur Björnsson, Golf-
klúbbnum Keili, sem sigraði í keppni án
forgjafar en Þórður Sigurðsson, Golf-
klúbbi Borgarness, sigraði í keppni með
forgjöf. Lék hann á 61 höggi nettó. Ann-
ar varð Karl Jóhannsson, Golfklúbbi
Reykjavíkur, á 65 höggum nettó og 3.
Vigfús á sama höggafjölda.
Varað við sölu
gass til bama
Nú hefur verið dreift í allar verslanir
hér á Akranesi plaggi frá heilbrigðisráð-
herra, þar sem greint er frá banni á sölu
kveikjaragass. Gasið má aðeins selja á
bensínstöðvum og þá aðeins fólki, sem
náð hefur 18 ára aldri.
Bannið við sölu gassins kemur til af því
að mikil brögð hafa verið að því, sér í lagi
á höfuðborgarsvæðinu, að unglingar hafi
„sniffað" af gasinu til að komast í vímu.
Alvarlegur heilaskaði getur hæglega or-
sakast af slíku fikti.
Að sögn lögreglunnar hér á Akranesi
hefur ekkert borið á „sniffi“ hjá ungling-
um hér í bæ svo vitað sé.
Árekstur hjá
SR en lítió tjón
Smávægilegur árekstur varð á athafna-
svæði Sementsverksmiðju ríkisins á mið-
vikudaginn. Um var að ræða bifreið í eigu
verksmiðjunnar og einkabifreið. Tjón
varð óverulegt og meiðsli engin á fólki.
SKAGABLAÐIÐ
KEMUR NÆST
ÚT FIMMTU-
DAGINN 4. JÚNÍ
Auglýsingarverð
hækkarum5%
Frá og með 1. júní hækkar grunnverð
auglýsinga í Skagablaðinu um rúm 5%.
Kostar dálksentimetrinn þá 185 krónur.
Verð blaðsins hækkar í dag um 5 krónur
og kostar þá kr. 60 miðað við 8 síður.
Áform eru uppi um að stækka blaðið á ný
í 12 síður í haust og mun verð þess þá
hækka til samræmis.
Ungur Skagamaður lýkur Kantorspróf i frá Tónskóla þjóðkirkjunnar.
, JEtli þetta sé ekki
eins konar köllun“
■ segir Friðrik Vignir Stefánsson, sem stundað hefur tónlistamám í 18 ár og er
ekkert á þeim buxunum að hætta
Ungur Skagamaður, Friðrik Vignir Stefánsson, efnir á morgun til
burtfarartónleika í Hallgrímskirkju í Reykjavík í tilefni þess að hann er
að Ijúka Kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar. Orgeltónleikar
Friðriks Vignis hefjast kl. 17 á morgun. Skagablaðið ræddi stuttlega
við tónlistarmanninn unga og innti hann fyrst eftir því hvenær hann
hefði hafið tónlistamám.
Friðrik Vignir með skiltið á Tónlistarskóla Akraness fyrirofan höfuðið.
Þar steig hann sín fyrstu spor í orgelnáminu.
„Ég var sjö ára þegar ég fór
fyrst í Tónlistarskólann hér á
Ákranesi," sagði Friðrik Vignir.
„Upphaflega ætlaði ég að fara
beint í orgelnám en var kurteis-
lega bent á að ég hefði nú tæpast
vald á slíku. Það varð því úr að ég
byrjaði að læra á píanó en fór síð-
an yfir í orgelið þegar ég var 9
ára.“
Köllun
- Hvað kom til að gutti á þess-
um aldri hafði svo mikinn áhuga á
að læra á orgel?
„Það er nú það. Ætli þetta sé
ekki einhvers konar köllun.
Bílgarmar
fjarlægðir
Þessa dagana er lögreglan að
undirbúa í samráði við bæjaryfir-
völd herferð gegn þeim bfleigend-
um, sem geymt hafa númerslausa
og óskráða bflgarma á götum úti.
Slfkt er bannað samkvæmt reglu-
gerð.
Að sögn lögreglu hafa menn
vikuna til að gera hreint fyrir sín-
um dyrum. Vitað er af fjölda
númerslausra bíla á götum úti,
sem ekki verður hikað við að fjar-
lægja á kostnað eigenda geri þeir
það ekki sjálfir fyrir tiltekinn
tíma.
Þá mun nokkuð um það, að
menn geymi bílgarma sína inni á
lóðum, þar sem erfiðara er að
hrófla við þeim. í slíkum tilvikum
verður að reyna að höfða til sam-
kenndar fólks gagnvart nágrönn-
um því tæpast getur það talist til
garðprýði að hafa ryðgaða bíl-
druslu til skrauts.
Opiö hús í „Grundó“
Grundaskóli efndi um fyrri helgi til opins húss í skólanum, þar
sem gestum gafst kostur á að kynna sér húsakynni og starfsemi
skólans, auk þess sem hluti vetrarstarfs nemendanna var til sýnis.
Til þess að skemmta gestum brugðu nemendur á leik og þegar
Skagablaðið bar að garði var kór nemenda að syngja. Meðfylgj-
andi mynd sýnir kórinn syngja undir stjórn Flosa Einarssonar.
Reyndar kynntist ég sem barn
konu, sem spilaði mikið á gamal-
dags orgel og hún kenndi mér eig-
inlega nóturnar. Þegar ég kom í
skólann gat ég spilað einföld lög á
hljómborðið með einum fingri.
Það hjálpaði til og eflaust hafa
kynnin af þessari konu haft eitt-
hvað að segja.“
- Samkvæmt þessari lýsingu
þinni ertu búinn að vera að læra á
píanó og orgel í 18 ár, er ekki
kominn neinn námsleiði í þig?
„Nei, það er af og frá. Auðvitað
verður maður stundum þreyttur
en tónlistin veitir manni svo mikla
fyllingu að slík tímabil gleymast
fljótt. Það er hægt að fá ótrúlega
útrás við það að spila á orgel.
- Ertu þá kannski að hugsa um
framhaldsnám erlendis?
„Já, ég get ekki neitað því að ég
hef verið að velta slíku fyrir mér.
Ég er jafnvel að gæla við að kom-
ast að í Finnlandi. Menn hafa ver-
ið að fara til Frakklands og Þýska-
lands til framhaldsnáms í orgel-
leik en ég held að það gæti verið
gaman að reyna fyrir sér annars
staðar.“
- Hvernig er það með orgel-
verkin, sem leikin eru nú á
dögum, eru þetta einvörðungu
eldri verk eða eru einhver nútíma-
verk með í dæminu?
„Jú, það eru nú samin verk fyrir
orgel enn í dag og reyndar er
dálítil vakning í þeim efnum en sú
tónlist er ekki beint mjög lík
þeirri, sem gömlu meistararnir
voru að semja hér fvrr á öldum.“
Auglýsið
í Skagablaðinu
Friðrik við orgelið í Hallgrímskirkju.
Ótæmandi möguleikar
- Hvað hefur orgelið að þínu
mati fram yfir píanó t.d.?
„Það er æði margt. Orgelið hef-
ur miklu breiðara tónsvið og á stór
orgel er hægt að spila ótrúlegustu
verk. Möguleikarnir eru nánast
ótæmandi.“
- Hve stór eru orgelin hérlendis
yfirleitt?
„Þau eru nú fremur smá miðað
við orgel sem notast er við erlend-
is. Ég held að stærsta orgel lands-
ins sé að finna á Akureyri. Það er
að ég held 48 radda. Svo vill til, að
það er einmitt Skagamaður,
Bjöm Steinar Sólbergsson, sem er
Vel heppnað maraþon*
badminton um helgina
Þau voru að vonum þreytt en ánægð krakkarnir, sem efndu til mara-
þonbadmintonsins í íþróttahúsinu frá kl. 10 á föstudagsmorgun til kl. 16
á laugardag. Alls léku þau sleitulaust í 30 klukkutíma og söfnuðu vel
á annað hundrað þúsund krónum upp í væntanlega smíði og uppsetn-
ingu ljósa í nýja íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum, sem Badmintonfélag
Akraness ætlar að annast.
AKUMESmGAR ■
PÍÆRS VEITAMENN
Athugið að umhoð Samvinnutrygg-
inga á Akranesi hefur fengið nýtt
símanúmer. fiýja númerið er
SAMVINNU
TRYGGINGAR
3388
UMBODIÐÁAKRMESL
organisti þar.“
- Nú ertu búinn að sitja á skóla-
bekk í fjölda ára, er orgelnámið
frábrugðið öðru tónlistarnámi?
„Já, það er það í sjálfu sér að
mörgu leyti. Eitt af því sem við
þurfum t.d. að læra er að gera við
minniháttar bilanir, sem hrjáð
geta hljóðfærin. Þá þurfum við að
læra allt um uppbyggingu mess-
unnar út frá tónlistinni og einnig
þurfum við að læra sálmafræði.
Sjálfur hef ég sökkt mér í það því
ég er að vinna að lokaritgerð sem
fjallar um samanburð á gömlu
íslensku sálmunum. Það er heil-
mikil stúdía.“
- Svo aftur sé vikið að námi
Friðriks Vignis í lokin má geta
þess, að síðustu 3 árin hefur hann
verið í læri hjá Herði Áskelssyni.
Áður lærði hann hjá Hauki Guð-
laugssyni og Fríðu Lárusdóttur
við Tónlistarskóla Akraness.
Samhliða náminu hefur hann m.a.
annast kórstjórn og sinnt starfi
organista við Innra-Hólmskirkju.
Á tónleikunum í Hallgríms-
kirkju á morgun leikur hann verk
eftir Bach, Couperin, Frank og
Jón Þórarinsson. Sem fyrr segir
hefjast tónleikarnir kl. 17 hjá
þessum unga en staðfasta tónlistar-
manni. Skagablaðið óskar honum
velfarnaðar í framtíðinni og góðr-
ar ferðar er hann heldur utan til
náms í haust.
Lokað vegna sumarleyfa
Viðskiptavinir athugið! Verkstæðið við Suðurgötu verður lokað um
óákveðinn tíma vegna sumarleyfa.
Að sjálfsögðu verður boðið uppá alla þjónustu á verkstæðinu við
Dalbraut og geta viðskiptavinir snúið sér þangað.
HJOIBARÐAVIÐGERÐIN SF.
Dalbraut 14, sími 1777
Sláttuvélar - vélorf
Kantskerar og fleira til garðverka. Þjónustu-
fyrirtæki á uppleiö. Opið alla virka daga frá Tækjaleígan Akranesi
kl. 17 til 20 og í hádeginu, laugardagafrákl. Vesturgötu 48 - Sími 2614
10 til 17.
EÓSTSENDÚM. Jersl.OÐINN
< , ‘ Kirkjubraut 5, sími 1986.
LEIIíJAAÁMSKEID
Leilsjanámskeiðm viiisælu hefjast uæstkomaudi ináiiii-
dag. Xámskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 7-11 ára.
Sérstakt námskeið verður fvrir 6 ára börn og er skráð
í þau á sama stað.
A uámskeiðuuum er boðið upp á leiki, gönguferðir, áti-
grill, sigliugu og farið verður á liestbak.
Skráning fer fram á Bæjarskrifstofuuni Kirkjubraut
28. Aámskeiðsgjabl er kr. 1000 og greiðist við skráningu.
Æsiírijfísxr.rxn.
4
5