Skagablaðið - 09.06.1988, Blaðsíða 5
Skagablaðið
SPARIÐ
Það borgar sig að kanna
kjarapallatilboðin hjá okkur.
Akraneskaupstaður
- Bæjarritari
Laus staða
Starf gangavarðar við Grundaskóla er hér með
auglýst til umsóknar. Nánari upplýsingar veita
skólastjóri Grundaskóla og bæjarritari. Umsóknum
skal skilað á bæjarskrifstofuna fyrir 10. júní á eyðu-
blöðum sem þar fást.
BÆJARRITARI
Vísur
Oft var nauðsyn nú er þörf
naumt erframlag skorið
Á Höfða mega ei stöðvast störf
- söfnum fyrir vorið.
Nú er hafið verðugt verk
við það gleðjast flestir
styrkjum framtak, viljasterk
sannir vinir, bestir.
Leggjum góðu máli lið
látumfé í sjóðinn
Oft er frjálsa framlagið
íframtíð mesti gróðinn.
Allir eiga litríkt lof
er leggja máli gengi
Öldunganna heiðurs hof
hér mun standa lengi.
Valgarður L. Jónsson skrífar um Höfða:
Hér er byggt á bjargi
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið að byggingu annars áfanga
á Höfða, af heilum hug og hollri
hönd. Þarna er byggt á bjargi í
orðsins fyllstu merkingu.
Nokkur tími fór í að sprengja
klöppina, sem á er byggt og undir-
búa grunn. Oft máttu þessir ungu
menn vinna við erfið veðraskil-
yrði á s.l. vetri. Þetta hlaut að
tefja verkið. Þrátt fyrir allt er
þessum fyrsta áfanga byggingar-
innar nú lokið. Hálfnað er verk þá
hafið er, var virt orðtak hér
fyrrum, vonandi heldur það sfnu
gildi enn.
Þótt verklegum grunni og þar
með fyrsta áfanga sé lokið, er
stórt átak eftir. Næsti áfangi þarf
að verða stór og vel að verki stað-
ið og til þess vandað, því það ber
að vanda, sem lengi skal standa.
Það er ætíð svo í lífinu þegar
mikið stendur til og orku hugs og
handa er krafist, þá þarf að hald-
ast hönd í hönd, svo allt komist
heilt í höfn. Þannig hefur það ver-
ið og þannig vinnast sigrar fram-
tíðarinnar. Samtakamátturinn
ræður oft farsælum úrslitum. Ég
tel mjög mikilvægt að næsti bygg-
ingaráfangi verði sá, að byggja
húsið upp fokhelt í einu átaki.
Tvíverknaður til tafa
Ekki fer á milli mála að þannig
kemur kostnaðurinn best út. Tví-
verknaður er alltaf til tafa og eyk-
ur kostnað. Ég geri mér fulla grein
fyrir, að hér geti orðið erfiður
hjalli á vegi, en ekki óyfirstígan-
legur.
Þess vegna er öllum unnendum
Höfða, og þeim sem þessa stofnun
eiga, nauðsyn að leggja málum
lið. Fólk segir stundum „ég er
ekki aflögufær og get lxtið lagt í
púkkið." í þessu felst mikill mis-
skilningur, hér gildir orðtakið
„safnast þegar saman kemur.“
Nú þegar hefur gjafafé til verks-
ins borist, þar mætti minnast stór-
gjafa. Þegar einstaklingar, sem
lifað hafa við láglaunakjör og
kynnst sárri fátækt gefa úr eigin
vasa eitt hundrað þúsund krónur í
einu lagi í þessa framkvæmd, þá
sést hver hugur býr að baki.
Það er þessi hugur fólks, sem
framgangur og farsæld verksins
byggist á að ótrúlega miklu leyti.
Ef allur fjöldinn íbúa þessara
byggða, sem hér eiga hlut að máli,
hafa þennan hug til verksins, þá
hlýtur að verða ánægjulegt að
gera þessa þörfu byggingu að
veruleika. Auðvitað eiga þessir
stórtæku gefendur, sem ríða fyrst-
ir á vaðið með hugrekki og kjark,
ómældar þakkir skyldar. Upphaf-
ið veldur miklu, það er hægara að
styðja en reisa.
Rausnarframlög
Það hefur sýnt sig að það eru
fleiri en einstaklingar sem leggja
byggingunni lið með rausnarfram-
lögum. Ég þykist full viss, að þetta
sé rétta byrjunin, fjöldinn komi á
eftir. Skrautleg gjafabréf, í ýms-
um upphæðum, eru fyrir augum
fólks í bönkum bæjarins og á
skrifstofu Höfða.
Þau eiga að bera gefendum
þakklæti, sem lengi skal munað og
minnst, nöfn gefenda ber einnig
að skrifa niður í bók, sem yrði
geymd um ókomna tíð á Dvalar-
heimilinu Höfða. Og víðar mun
gj afa minnst á virðulegan hátt sem
vera ber, því sú fórn og vilji sem
að baki býr á að hljóta þökk og
virðingu, minna má það ekki
vera.
Vonandi verða margir til að
leggja þessu þarfa máli lið með
því að leggja eitthvað af mörkum
og eignast skrautlegt gjafabréf.
Ef einhver skyldi halda að
gamla fólkið gangi hér fram með
kröfugerð og láti ekkert af hendi
sjálft, þá er það mikill misskiln-
ingur. Gamla fólkið lætur aldrei
standa uppá sig, stundum er gjöf-
in stærst af minnstum efnum.
Unnið fyrir kynslóðir
Hitt ber fólki einnig að hafa
hugfast, að ellin er stundarfyrir-
brigði. Þeir semn eru aldnir að
árum í dag, víkja fyrr en varir af
sviðinu og skila af sér til næstu
kynslóðar, sem verður komin í
Fyrsta hluta annars áfanga Höfða er nú lokið oghvetur greinarhöfund-
ur Skagamenn tilþess að leggja verkinu liðþannigað húsið verðifokhelt
nœsta sumar.
þessi sömu spor fyrr en varir og
þannig koll af kolli. Því er verið að
vinna verk fyrir kynslóðir, ekki
aðeins kynslóð.
Ég þekki þá heiðursmenn, sem
um framkvæmdir sjá, að því að
vinna að heilum hug og góðum
vilja. Ég veit þeir vilja húsið upp í
einum áfanga og tilbúið fokhelt í
byrjun næsta árs. Það er mark-
miðið.
Það er heiður okkar allra að
standa að baki þeirra og gera
gagn, svo sá draumur verði að
veruleika. Þá ætti framhaldið að
verða léttara.
Akranesi 25 maí 1988
Valgarður L. Jónsson
ESSO ULTRA
Obufélagið hf. ESSO
Breiðargötu 1 - S 11894
Smurstöðin
Smiðjuvöllum 2 - S 12445
Næst þegar þú lætur Birgi á
Smurstöðinni skipta rnn olíu á
bílnum þínum biddu hann þá
um Ultra olíima írá ESSO.
Við varðveitum vélarafíið
með gæðavörum.
Varðveitið vélaraflið með
nýju „Léttleikandi olíunni“
frá ESSO