Skagablaðið - 09.06.1988, Qupperneq 11
Skagablaðið
11
í brennidepli
Fullt nafn? Jón Pálmi
Pálsson.
Fæðingardagur? 27. júlí
1954.
Fæðingarstaður? Siglu-
fjörður.
Fjölskyldurhagir? Kvæntur
Katrínu Leifsdóttur, á þrjú
börn.
Bifreið? Subaru árgerð
1984.
Starf? Bæjarritari.
Fyrri störf? Bæjarritari á
Siglufirði.
Helsti veikleiki? Ekki mitt
að dæma um það.
Helsti kostur? Læt aðra
dæma um það.
Uppáhaldsmatur? Blóð-
steikt nautafile með góðu
rauðvíni.
Versti matur sem þú færð?
Hræringur.
Uppáhaldsdrykkur? Bjór
og gott viský.
Uppáhaldstónlist? Flestar
tegundir tónlistar nema sin-
fóníur.
Uppáhaldsblað/tímarit/
bók? Morgunblaðið.
Uppáhaldsíþróttamaður?
Enginn sérstakur.
Hvaða stjórnmálamanni
hefurðu mestar mætur á?
Bresku járnfrúnni.
Uppáhaldssjónvarpsefnið
þitt? Fréttir.
Leiðinlegasta sjónvarps-
efni að þínu mati? Óperur.
Uppáhalds útvarps- og
sjónvarpsmaður? Ómar
Ragnarsson, Sigrún Stefáns-
dóttir.
Uppáhaldsleikari? Bill
Cosby.
Besta kvikmynd sem þú
hefur séð? Jörð í Afríku.
Hvernig eyðir þú frístund-
um þínum? Með fjölskyld-
unni.
Fallegasti staður á Islandi?
Heiðarleika og hreinskilni.
Hvað metur þú mest í fari
annarra? Óstundvísi.
Hvað angrar þig mest í fari
annarra? Óstundvísi.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta og hvers
vegna? Margaret Thatcher
vegna stórkostlegs stjórn-
málaferils.
Hvaða námsefni líkaði þér
verst við í skóla? Þýsku.
Hvað myndirðu vilja fá í af-
mælisgjöf? Garðhúsgögn.
Hvað veitir þér mesta
afslöppun? Heitt bað.
Hvaða mál myndirðu setja
efst á blað ef þú værir einráð-
ur í einn dag? Einfalda stjórn-
kerfið, ríkisbáknið.
Áskornn atvinnumálanefndar til stjómvalda:
Stór hluti Akumesinga
gæti misst vinnu sína
- óvíst um framtíð margra fyrirtækja á Akranesi,
segiríáskonminni
Atvinnumálanefnd Akraness fullyrðir m.a. í áskorun sinni til stjóm-
valda að óvíst sé um framtíð margra fyrirtækja í iðnaði og þjónustu á
Akranesi. Nefndin segir einnig að stór hluti vinnandi fólks á Akranesi
gæti misst atvinnu sína á næstu vikum ef stjórnvöld sitja aðgerðalaus.
Atvinnumálanefnd sendi
stjórnvöldum áskorun sína um
það bil sem gengisfelling og bráða-
birgðalög ríkisstjórnarinnar voru
að skella á.
Nefndin bendir á að starfsskil-
yrði undirstöðuatvinnugreina
bæjarbúa og um leið allra lands-
manna hafi versnað mjög undan-
farin tvö ár.
í áskorun sinni rekur nefndin
áhrif fastgengisstefnunnar á stöðu
útflutningsfyrirtækja, áhrif verð-
bólgu, hækkun olíuverðs og lækk-
un fiskverðs á mörkuðum erlend-
is.
„Fiskverð erlendis hefur
almennt lækkað og ferskfisksalan
jafnvel talin vera farin að koma í
bakið á okkur hvað varðar sölu á
fullunnum fiski. í ár tala forsvars-
menn fiskvinnslufyrirtækja um
tap af stærðargráðunni 15-20% af
tekjum.
í samkeppnis- og útflutnings-
iðnaði hefur hallað undan fæti all-
an þennan tíma nema náðst hafi
verulegar verðhækkanir á fram-
leiðslunni, en það er yfirleitt
þrautin þyngri að ná umtalsverð-
um verðhækkunum á iðnvarningi,
ekki síst þar sem staðið er í sam-
keppni við iðnþróuðustu láglauna-
svæði heimsins, eins og gerist í
mörgum greinum iðnaðar, t.d. í
fataframleiðslu. í þeirri grein hafa
íslensk fyrirtæki bókstaflega
hrunið á þessum tveim árum,“
segir í áskoruninni.
Áskorunin var rituð og sam-
þykkt af Ragnheiði Þorgrímsdótt-
ur, Rúnari Péturssyni, Bimi Kjart-
anssyni, Kjartani Guðmundssyni
og Valgeiri Guðmundssyni.
Almenn hlutaQár-
söfnun í Fjárfestingar-
félagi Vesturlands
Almenn hlutaQársöfnun í Fjárfestingarfélagi Vesturlands stendur yfir.
Stofnun öflugs fjárfestingarfélags hér í kjördæminu gerir heimamönnum
kleift að hafa meiri áhrif en ella á atvinnuuppbyggingu svæðisins.
Til þess að þetta takist vel þarf að nýta þekkingu og reynslu þeirra sem
standa að atvinnurekstri á Vesturlandi. Hlutafjárkaup eru frádráttarbær til
skatts að vissum skilyrðum uppfylltum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar hjá viðkomandi sveitastjórum eða í
síma 71318.
FRMKVÆMDMEMD MSTOFNW
FJÁRFESTIPÍGARFÉLA GS
Akraneskaupstaður -Tæknideild
ÚTBOÐ
SORPHAUGAR AKRANESI, GÆSLA OG URÐUN
Tilboð óskast í gæslu og urðun sorps á sorphaugum Akraness við Garðasel. Verkið tekur til
eftirfarandi þátta:
1. Gæsla, sorpmóttaka, urðun með vinnuvél, móttaka aðflutts efnis.
2. Flutningur og taka malarefnis, ásamt viðhaldi plana og brauta.
Verkið er boðið út til eins árs.
Útboðsgögn eru afhent á Tæknideild Akraneskaupstaðar, Kirkjubraut 28, gegn 5000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en þriðjudaginn 21. júní 1988, kl. 11:00. Verða þau
þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þar mæta.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða að hafna þeim öllum.
BÆJARTÆKNIFRÆÐINGUR
Lijjaog
þýddljóð
Hörpuútgáfan gaf nýverið
út tvær bækur, Lilju Eysteins
Ásgrímssonar og Ljóðaþýð-
ingar Yngva Jóhannessonar.
Báðar hafa þessar bækur
áður komið út hjá Hörpuút-
gáfunni.
Lilja er talin vera ort af
Eysteini Ásgrímssyni munki
um miðja 14. öld og er þar
sögð saga heimsins frá sköp-
un til dómsdags. Allir kann-
ast við orðtakið „öll skáld
vildu Lilju kveðið hafa“ og
segir það sína sögu um sess
Lilju í íslenskum bókmennt-
um.
Gunnar Finnbogason
cand. mag. annaðist þessa
útgáfu, sem er 113 blaðsíður.
Skýringar fylgja hverju
kvæði.
Ljóðaþýðingar Yngva
Jóhannessonar komu fyrst út
árið 1973. Þar er að finna þýð-
ingar á ljóðum ýmissa höfuð-
skálda, en ljóðin eru þar einn-
ig á frummálinu, þannig að
bera má saman frumútgáfu og
þýðingu.
HÆTTULEG
KYNNI
(FATALATTRACTION)
Þá er hún komin, myndin
sem allir hafa verið að bíða
eftir. Hættuleg kynni var til-
nefnd til 6. óskarsverð-
launa.
★ Besta kvikmynd ársins
★ Besti kvenleikari í aðal-
hlutverki
★ Besti leikstjóri
★ Besti kvenleikari í
aukahlutverki
★ Besta kvikmyndahandrit
★ Besta klipping
★ Glenn Close fékk óskar-
inn fyrir frábæran leik
í myndinni.
Aðalhlutverk: Michael
Douglas, Glenn Close, Anne
Archer.
Sýnd fimmtudag, föstudag
og sunnudag kl. 21.