Skagablaðið


Skagablaðið - 12.10.1989, Blaðsíða 5

Skagablaðið - 12.10.1989, Blaðsíða 5
Skaqablaðið Skagablaðið Söfnuðu fyrir Höfða Þessar tvær ungu stúlkur komu á rit- stjórn Skagablaðsins fyrir stuttu eftir að hafa efnt til hlutaveltu fyrir Dvalarheimilið Höfða. Þær Rakel Sigurðardóttir (t.v. á mynd) og Jónína Margrét Sigmundsdóttir söfnuðu kr. 2.258 með hlutaveltu að Skarðsbraut 3. Peningunum komu þær tii skila að Höfða. Landssamtök heimavinnandi Stofnfundur Landssamtaka heimavinn- andi fólks verður haldinn að Holiday-Inn laugardaginn 14. október 1989, kl. 13.30. Landssamtökunum er ætlað að veita stjórnvöldum aðhald og vinna að leiðrétt- ingu á kjörum og réttindum heimavinn- andi. Markmið samtakanna er að ná fram leiðréttingu í lífeyrissjóðsmálum, skattamálum, tryggingamálum og á öðrum þeim sviðum, þar sem heimavinnandi fólk hefur ekki notið réttar á við annað vinn- andi fólk. Meðal efnis á stofnfundinum eru ávörp heiðursgesta, Jóhönnu Sigurðardóttur, fél- agsmálaráðherra, og Davíðs Oddssonar, borgarstjóra í Reykjavík, Ólafur Ólafsson, landlæknir, flytur fyrirlestur um mannvernd, Guðjón Á. Kristjánsson, form. Farmanna- og fiskimannasambands- ins, fjallar um stöðu sjómannskonunnar og bóndakonunnar, Þuríður Pálsdóttir fjallar um málefni ekkna og ekkla. Auk þessa verður fjallað um ýmis önnur mál. I lok fundarins verða síðan pallborðsum- ræður undir stjórn Ólínu Þorvarðardóttur og Guðjóns Arngrímssonar. Þar sitja fyrir svörum þingmenn og ráðherrar, einn frá hverjum stjórnmálaflokki. Allir sem hafa áhuga á þessum málum eru velkomnir á fundinn. Harður slagur í tvímenningnum Mikil og hörð keppni er strax eftir fyrsta kvöldið í þriggja kvölda tvímennings- keppni Bridgefélags Akraness, sem hófst sl. fimmtudag. Það eru þeir Ingi Steinar Gunnlaugsson og Einar Guðmundsson sem leiða slag- inn eftir fyrsta kvöldið með 197 stig. f öðru sæti eru þeir Guðmundur Sigurjónsson og Arnar Sigurðsson með 195 stig, þriðju eru þeir Árni Bragason og Alfreð Viktorsson með 194 stig. í fjórða sæti koma svo þeir Einar Gíslason og Ómar Sigurðsson með 189 stig og í 5. sæti eru Þorgeir Jósefsson og Þórður Björgvinsson með 180 stig. Myndbandaleigan Ás flytur um set Myndbandaleigan Ás hóf sl. fimmtudag starfsemi í nýju hús- næði að Kirkjubraut 11, þar sem verslunin Valhöll var áður til húsa. Þeir Áss-menn eru ekki með öllu óvanir Kirkjubrautinni því leigan var um tíma til húsa aðeins neðar í götunni. neð flutningunum hefur öll aðstaða þeirra Áss-manna breyst til mikilla muna. Húsnæð- ið er mun stærra og sem dæmi um breytinguna má nefna að í húsnæðinu, sem leigan hafði til umráða að Suðurgötu 103, mátti koma fyrir um 1000 titlum í hill- um en nú er pláss fyrir um 2800 titla að sögn þeirra Hreins Björnssonar og Magnúsar Ing- ólfssonar. Þá hefur bílastæðum fjölgað stórlega við flutningana því Ás hefur nú afnot af stóru bílastæði bakatil við leiguna. Innangengt er af stæðinu í leiguna. Auk þess að reka stóra mynd- bandaleigu eru seldar hijómplöt- ur í leigunni og er ætlunin að auka úrval þeirra eftir flutning- ana. Jafnframt reka þeir Magnús og Hreinn tækjaleigu. Um leið og Skagablaðið óskar þeim félögum til hamingju með nýja húsnæðið árnar það Mynd- bandaleigunni Ási velfarnaðar í viðskiptum um ókomna tíð. Foreldra- fræðsla Heilsugælustöð Ákraness efnir á næstunni til 5 vikna námskeiðs fyrir verðandi for- eldra. Námskeið sem þetta hefur ekki verið haldið í nokk- urn tíma en hefst nú mið- vikudaginn 18. okt. Allar nánari uppl. eru veittar á Heilsugæslustöðinni. Fíimakeppni Knattspymufélags Ik Þorgeir I Blert varð sigurvegari Sigurlið Þorgeirs & Ellerts með verðlaunin. Aftari röð frá vinstri: Þorgeir Jósefsson, Guðjón Guðmunds- son, Einar Einarsson, Valgeir Barðason, Víðir Pálmason og Stefán Viðarsson. Fremri röð: Kolbeinn Árnason, Haraldur Gylfason, Ellert Ingvarsson og Lárus Skúlason. Á myndina vantar Guðjón Þórðarson, Engilbert Jóhannesson, Sigurð Mýrdal og liðsstjórana Benjamín Jósefsson og Ragnar Sigurðsson. Þorgeir & Ellert hf. bar sigur úr býtum í firmakeppni Knatt- spyrnufélags ÍA í knattspyrnu utanhúss — rétt eina ferðina er kannski nær að segja. Lið Þ&E hefur verið vaskasta firmalið bæjarins svo árum skiptir og starfsmenn lagt metnað sinn í að halda heiðri fyrirtækisins á lofti, jafnt í verki sem leik. Verðlaun f mótinu voru af- hent sl. föstudagskvöld í fél- agsaðstöðunni á Jaðarsbökkum. Var þar kátt í hjalla hjá leik- mönnum Þ&E enda full ástæða til. Til þess að fagna áfanganum var boðið upp á kampavín og snittur, sem Þorgeir & Ellert hf. lagði til. Rest slysin verða á haustmánuðum Nú fer í hönd sá tími, sem er hvað hættulegastur fyrir hinn gang andi vegfaranda og sérstaklega fyrir börnin okkar. Samkvæmt skýrsl um um umferðarslys þá eru það haustmánuðirnir, september og okt óber, sem skera sig úr hvað varðar fjölda slysa. Börnin sem eru að hefja sína Kenna þeim að þekkja gang ' Hreinn Björnsson og Magnús Ingólfsson í hinu nýja húsnæði Mynd- bandaleigunnar Ass. rfyrstu skólagöngu þurfa að varast margar hætturnar, ný við- horf til umferðarinnar. Þau hafa oft á tíðum ekki kynnst öðrum vettvangi en sínu nánast um- hverfi. Þau hafa jafnvel getað notað götuna við heimili sitt sem leikvöll, en það er að sjálfsögðu mjög hættulegt þó umferð sé lítil. Þetta getur haft þær af- leiðingar að börnin telji sér ekki hættu búna á götunni. Hættusvæði - ekki leiksvæði Víða eru engar gangbrautir og börn venjast því að fara yfir götuna þar sem þau koma að henni hverju sinni. Það þarf að fá börnin til að skilja það að gatan er og verður aldrei leikvöllur heldur hættusvæði, þrátt fyrir góðar merkingar, gangbrautir, takmörkun ökuhraða og aðrar öryggisráðstafanir. Það er mjög brýnt að leiðbeina börnunum, og ekki síst núna þegar skólinn er að byrja. Fara með þeim og velja öruggustu og heppilegustu leiðina í skólann. brautarmerkingar og hvernig þau eiga að bera sig að við að fara yfir gangbrautir. Bráðlega mun lögreglan fara í skólana til að fræða börnin uin umferðina. Sú fræðsla sem lög- reglan veitir er og á aðeins að vera til viðbótar þeirri fræðslu sem barnið á að fá heima. Án samvinnu við foreldra, ef for- eldrar taka ekki sinn hlut alvar- lega í þessu sambandi, nær um- ferðarfræðslan ekki tilgangi sínum. Við höfum beint þeim tilmæl- um til foreldra að þau láti ekki börn undir 10 ára aldri vera á reiðhjólum sínum í umferðinni eftir að hausta tekur og birtu tek- ur að bregða. Börnin eiga í erfið- leikum með að hafa öryggisbún- að eins og ljós í lagi og eins hitt að oft er erfitt fyrir þau að átta sig á hvort hálka er eða ekki. Oft er ísing að morgni og svo aftur er kólnar með kvöldi. Ökuleyfissvipting Lögreglan fékk fyrir nokkru nýjan radar til hraðamælinga og hafa nú á skömmum tíma verið teknir 11 ökumenn fyrir of hrað- an akstur og hefur hraði mælst allt að 100 km/klst. Þar sem stutt er síðan þessir ökumenn voru teknir hefur ekki verið dæmt í málum þeirra enn, en lögreglan mun örugglega mælast til að nokkrir þessara ökumanna verði sviptir ökuleyfi í einhvern tíma, auk sekta. Þessir ökumenn ættu Einn besti ísinn í bænum! Heit súkkulaði- og karamellu- sósa. SKWMYl KIRKJUBRAUT íbúð til sölu Fjögurra herb. íbúö í blokk til sölu. Uppl. í síma 11029 eftirkl. 17. SLATURTÍÐ Nú er sláturtíðin í fullum gangi og því slátrum við öllum gömlum skuldum. Látið ekki sauma að ykkur því að dráttarvext- ir verða reiknaðir að kvöldi 16. október næst- komandi á öll gjöld sem þá verða í vanskilum við bæjarsjóð. MEÐ KVEÐJU, INNHEIMTUSTJÓRI Þarftu að láta mála? TeK að mér alla alhliða málningarvinnu - vönduð vinna. Upplýsingar í síma 12646. GARÐARJÓNSSON • Kemiskhreinsun • Fatauressun ^ • Þvottahús-þvoum ((( |[||jNi)[gjJ))) allan þvott ^%^ímn2503Æ • Vönduð þjónusta HREINGERNINGARÞJÓNUSTA Tökum okkur allar hreingerningar. Teppa- og húsgagna- hreinsun. Bónhreinsun og gólfbónun. Sjúgum upp vatn. ValurGunnarsson Vesturgötu 163-s 11877 Auglýsið í Skagablaðinu Guðjón Þórðarson var einn leikmanna Þ&E í mótinu en gat ekki verið viðstaddur verðlaun- aafhendinguna. Hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum af löngu færi. Leikurinn fór fram við verstu aðstæður enda var felli bylurinn Hugo í sínu fínasta skarti á meðan. Svo hvasst var þegar leikurinn fór fram að verð- launaafhendingu var frestað. Þetta var fjórði titill Guðjóns í knattspyrnunni í sumar; hann varð fslands- og Akureyrar- meistari með KA og var í sigur- liði Skagamanna í „Pollamótinu“ í sumar. Sannarlega árangursríkt sumar hjá Guðjóni. að leiða hugann að því hvernig fara myndi eða hvað þeir gæti gert ef skyndilega birtist gang- andi vegfarandi, hversu mikla möguleika þeir hefðu til að stöðva ökutæki sitt við eðlileg skilyrði, hvað þá í hálku og bleytu. Gangandi vegfarendur, sýnið þá aðgát sem ykkur ber og fylgið settum reglum. Ökumenn, virðið rétt hins gangandi vegfaranda. Gangandi vegfarandi á ekki að þurfa að hafa það á tilfinningunni að hann sé í háska ef hann hættir sér út á gangbrautina. Svanur Geirdal, yfírlögregluþjónn. Námskeið Hjálparsveit skáta á Akranesi efnir til nám- skeiðs í ferðamennsku og notkun áttavita fyrir rjúpnaskyttur og aðra ferðalanga. Námskeiðið hefst kl. 21 miðvikudaginn 18. okt. í Skátahúsinu við Háholt. KMTTB0RÐSST0FM VESTURGÖTU 48 AKRMES V* m W Knattborðsstofan verður opin í vetur sem hér segir: Mánudaga - Föstudaga kl. 16 - 23.30 Laugardaga og sunnudaga kl. 14 - 23.30 10% afsláttur á tímum á milli kl. 16 og 19.30 virka daga. Athugið að byrjendamót verður haldið laugardaginn 21. október. Skráning og nánari upplýsingar á Knattborðsstofunni í síma 13360. Billjard - íþrótt sem hentar öllum. Batman á Akranesi! Metað5ÓKnarmynd allra tíma 5i/' i/ægtsé til orða teHið. Aldrei í sögu KviKmyndanna f r mynd orðið eins vinsæl og Batman, þar sem hinn frábæri leiKari Jack Nicholson fer á Kostum. BATMAH, TOPPMYND SEM PÚ VERÐUR AÐ SJÁ - TVSIVAR! AÐALHLUTVERK: JacK Micholson, Michael Keaton, Kim Basinger. Sýnd kl. 21 í kvöld, fimmtudag, annað kvöld, sunnudag og mánudag. BÍÓHÖLL/N

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.