Skagablaðið - 29.03.1990, Side 4
4
Tillaga VT-teiknistofunnar að fjöl-
nota íþróttahúsi, sem fyrst var kynnt
í lok síðustu viku, hefur fengið góð-
ar undirtektir hvarvetna sem hún
hefur verið sýnd. Tillagan er byggð
á öðrum hugmyndum en þær sem
þegar hafa komið fram í þessum
efnum án þess verið sé að rýra gildi
þeirra.
Fjölnotahús VT-teiknistofunnar
gerir ráð fyrir því að innan veggja
hússins sé hægt að leika knatt-
spyrnu á velli í fullri stærð og halda
þar frjálsíþróttamót. Gert er ráð fyrir
hringlaga hlaupabraut upp á rúm-
lega 300 metra. Að auki hentar hús-
ið vel undir handknattleik, sem hef-
ur verið miðpunktur þeirrar umræðu
sem fram hefur farið um svona hús
síðustu vikur. Síðast en ekki síst
býður húsið upp á geysilega góða
aðstöðu til sýningarhalds og mun
stærri gólfflöt en hér hefur áður
þekkst, mun stærri en t.d. er gert
ráð fyrir í „Kópavogstillögunni" sem
hvað mest hefur verið í umræðunni.
Sem fyrr segir hefur tillagan feng-
ið góðar móttökur, ekki hvað síst
hjá formönnum sérsambanda á
borð við HSf, KSÍ og FRf enda yrði
húsið ekki aðeins bylting fyrir hand-
knattleik heldur einnig fyrir knatt-
spyrnu og frjálsar íþróttir.
Það kitlar óneitanlega hégóma-
girnd okkar Akurnesinga að verða
vitni að þeirri athygli sem tillaga VT-
teiknistofunnar hefur hlotið. Um-
ræða um Akranes hefur síðustu vik-
ur og mánuði verið fremur neikvæð
og helgast af þeirri staðreynd, að
hér hefur ríkt mikið atvinnuleysi um
langt skeið. Ekki hefur það heldur
orðið til þess að lyfta brúnum bæjar-
búa, að Grundartangi virðist hafa
orðið útundan í umræðu um stað-
arval fyrir nýtt álver. Jákvæð athygii
á borð við þá sem tillaga VT-teikn-
istofunar hefur skapað er því kær-
komin um leið og hún undirstrikar
að hér eru til stórhuga og framsýnir
einstaklingar.
Akranes hefur um árabil verið
íþróttabær í hugum fólks og verði
þessi tillaga fyrir valinu er ekki vafi á
að sú ímynd myndi styrkjast enn
frekar því væntanlega yrði tillagan
eftirleiðis titluð „Akranestillagan".
Það hlýtur að auki að vera byr í
segl þeirra VT-manna, að fjölnota-
hús þeirra kostar samkvæmt frum-
áætlunum lítið meira en húsin í
„Kópavogstillögunni", sem fyrst og
fremst miðast við þarfir þess bæjar-
félags, og síðan „Hafnarfjarðartil-
lögunni" þrátt fyrir að vera miklum
mun stærra og hafa meira notagildi.
Tillaga VT-teiknistofunnar byggir á
meiri víðsýni og hlýtur því að eiga
góða möguleika þegar valkostir
verða skoðaðir betur.
Sigurður Sverrisson
Skagablaðið
Skagablaðið
AIR bendirtil að afkoma bæjarsjóðs
hafi ekki verið jafn góð um árabil
Eins og fram hefur komið var
fjárhagsáxtlun Akraneskaup-
staðar samþykkt 27. febrúar sl.
Allir bæjarfulltrúar að undan-
skildum sjálfstæðismönnum
stóðu að áætluninni en þeir sátu
hjá. Athygli vakti, að þeir komu
ekki með neina breytingartillögu
og sýnir það best hve ágæt þessi
fjárhagsáætlun er.
Ársuppgjör
Iú er verið að vinna við árs-
uppgjör 1989 og bendir allt
til að afkoma bæjarsjóðs hafi
ekki verið jafn góð um árabil, þó
N
Kirkjuhvoll er enn til umrœðu á síðum Skagablaðsins.
Stefán Lánis Pálsson Hrekar ósk sina um swr bæjarstjómar vegna fyriispumar um sölu Kiriquhvols:
Eni svör ekki á reiðum höndum?
Hr. rítstjórí.
I 8. tölublaði Skagablaðsins, dagsettu 22. febrúar sl. var birt opið
bréf til bæjarstjórnar Akraness frá undirrituðum. Tilefni þess var
meðal annars tilmæli fjölda fólks hér í bæ þess efnis að komið yrði á
framfæri ákveðnum og eindregnum andmælum kjósenda við fyrir-
hugaða hugmynd nokkurra bæjarfulltrúa um áframhaldandi tilvist
húseignarinnar Kirkjuhvols með sölu til einkaaðila, en um leið að
meina Sjúkrahúsi Akraness að kaupa húsið án nokurra bindandi
kvuða um nýtingu eða niðurrif.
Oskað var skjótra svara,
stuðnings- og flutningsfólks
þeirrar ólánstillögu, sem leiddi til
skjótrar afgreiðslu, þvert á óskir
ráðamanna sjúkrahússins, og af-
greiðslu sölu til einkaaðila með
einstökum skilmálum.
Sé horft til annara mála, þar
sem sala á eignum og eignarhlut-
um Akranesbæjar hefur komið
til tals, hlýtur óhjákvæmilega að
vera ástæða til að draga í efa,
hvort ekki sé full ástæða til að
staldra aðeins við og skoða málin
í víðara samhengi og gera betur
grein fyrir þeim ástæðum sem að
baki liggja. Afgreiðsla þessa
máls er bæjarstjórn ekki til álits-
auka heldur til háðungar.
Þrátt fyrir þrábeiðni mna um að
bæjarfulítrúar þeir sem fyrir sölu
hússins stóðu, færðu einhver rök
fyrir þesum gjörðum sínum „og
hvaða brýn nauðsyn rekur bæjar-
stjórn (með hag bæjarins í huga)
til þess að leggjast á móti hags-
munum Sjúkrahúss Akraness í
þessu máli“ svo og skoðunum
fjölda annars fólks, hef ég engin
svör né viðbrögð fengið.
Þögnin á greinilega að geyma
það sem ég nefni stjórnunarlegt
óhapp. Fyrir hinn almenna kjós-
anda og skattborgara vil ég upp-
lýsa að ekki er söluverð eignar-
innar slíkt að miklu varði bæjar-
sjóð næstu þrjú ár. En sá skilmáli
sem mesta furðu vekur er sá, að
eftir 20 ár í versta falli, skal
sjúkrahúsið eða bæjarsjóður að
undangengnu mati, leysa til sín
húseignina Kirkjuhvol ef eigend-
ur vilja. En trúlega getur Akra-
nesbær líka neitað að framlengja
lóðarleigusamning eftir sama
tíma og þá vandast nú málið.
Mikið var talað um varð-
veislu í upprunalegri mynd, en
nú strax hefur bygginganefnd af-
greitt beiðni um frávik. Hæpið er
að söluverð hússins standi undir
þeim breytingum á aðkeyrslu og
bílastæði sjúkrahússins, sem af
þessum eignarbreytingum leiða.
Þegar svo þar á ofan er vitað að
langflestir íbúar Akraness vildu
að þetta hús hyrfi „hægt og
hljótt" og í staðinn kæmi snyrti-
Iegt opið svæði, er vel skiljanlegt
að þögnin sé talin hæfa best í
þessu tilviki.
Hr. ritstjóri, ég tel samt sem
áður að blaði þínu og þér sjálfum
auk okkar sem skrifum þetta
blað, sé sýnd hin mesta ókurteisi
og vanvirða af opinberum full-
trúum í stjórn Akranesbæjar
með því að ekkert af því fólki,
sem kjörið er til setu í æðstu
stjórn bæjarfélagsins, sjái ástæðu
til að svara erindi sem beint er til
þess í formi opins bréfs á síðum
Skagablaðsins. Því liggur beinast
við að slá því föstu að svör séu
ekki á reiðum höndum og efni
fyrrnefnds bréfs standi óhaggað
og án athugasemda.
Ég óskaði svara sem fyrst því
kjördagur nálgast nú óðum. Ég
álít óhjákvæmilegt að ítreka
þetta erindi mitt vegna þess
hverjar undirtektir eru og óska
birtingar í Skagablaðinu.
Akranesi 26. mars 1990
Stefán Lárus Pálsson.
Bæjarsjóður Akraness
Rekstrargjöld sem hlutfall af tekjum
1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989
— Áætlun 1 Reikningur
ævinlega megi gera enn betur og
stefnum við sannarlega að því.
Fjármagnskostnaður er mun
lægri en áætiað var eða sem nem-
ur um 10 milljónum. Tekist hefur
að lagfæra greiðslustöðuna á
milli áranna 1988 og 1989.
Megum við því vel við una í
þessu efni og er það ekki síst að
þakka ágætri fjármálastjórn
bæjarstjórans og starfsfólki
bæjarins.
Tekjur
Tekjur bæjarsjóðs eru áætlað-
ar 455 milljónir króna.
Rekstrargjöld eru áætluð 354
milljónir króna.
Rekstrarafgangur er 101 mill-
jón króna sem er 22,2% af heild-
inni, sem er hærri upphæð en
undanfarin ár en það er vegna
nýrra laga um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga.
Rekstur
Stærsti rekstrarliðurinn er enn
sem fyrr launagreiðslur sem
nema 179,4 milljónum króna eða
51% af heildarrekstrargjöldum
en hjá bænum starfa alls rúmlega
300 manns.
Nokkrir stórir rekstrarliðir:
— Til fræðslumála er áætlað að
fari 74 millj. kr.
— Til æskulýðsmála er áætlað
að fari 38 millj. kr.
— Til almannatrygginga og fél-
agshjálpar (m.a. til reksturs
Höfða og dagvistarstofnana)
70 millj. kr.
— Til menningar- og fræðslu-
mála 18 millj. kr.
Of langt væri að telja einstaka
einstaka lögbundna rekstrarliði.
Stærstu viðhaldsverkefni þessa
árs eru sem hér segir:
— Viðgerð á Bjarnalaug 3,4
millj. kr.
— Viðgerð á Bíóhöllinni 3 millj.
kr.
— íþróttahúsið við Vesturgötu
1,7 millj. kr.
Framkvæmdir
Stærstu framkvæmdir þessa árs
eru: Götur, holræsi og umferð-
armál, alls kr. 30,5 millj. Sam-
þykkt var að fara í eftiifarandi
framkvæmdir:
— Garðabraut, botnlangar, 4,4
millj. kr.
— Heiðarbraut, gangstétt, 2,7
millj. kr.
— Jörundarholt 23 - 46 8,9
millj. kr.
— Vesturgata, endi, 5,8 millj.
kr.
— Holræsi, Ægisbraut, frá Still-
holti að Esjubraut, I. áfangi
1,4 millj. kr.
MUNIÐ SKÁTASKEYTIN!
Afgreiðslan í Skátahúsinu
er opin á laugardag frá kl. 14
-18 og á sunnudag frá kl. 10
-18. Sími 11727.
Bíiar eru við Stillholt.
Skóiabraut og Víkurbraut á
sunnudaginn frá kl. 10-18.
— II. áfangi 3,3 millj. kr.
Þá eru áætlaðar til viðhalds
eldri gatna og gangstétta tæplega
5 milljónir króna. Núverandi
meirihluti hefur eingöngu notað
steypu til gatnagerðar og mun
halda því áfram þrátt fyrir að það
sé dýrara en aðrar gerðir varan-
legs slitlags því gæðin eru að
okkar mati ósambærileg.
Dvalarheimilið Höfði: 22,5
millj króna (hluti bæjarsjóðs).
Flutt verður í 25 ný vistrými í
apríl.
Dagvistarstofnun við Lerki-
grund: 18,1 milljón. Áætlað að
taka í notkun á miðju næsta ári.
Fjölbrautaskóli Vesturlands:
7,1 milljón (hluti bæjarsjóðs)
Heilsugæslustöð: 3,6 millj. kr.
(hluti bæjarsjóðs). Tekin í nokt-
un að hluta á næsta ári.
Tónlistarskóli: 5 millj. kr.
Æskulúðs- og íþróttamál: 3,6
milljónir króna.
Hafnarsjóður
Áætlað er að framkvæma fyrir
48 milljónir króna og skiptist
upphæðin á milli uppfyllingar við
aðalhafnargarð, öryggisútbúnað-
ar, úrbóta í rafmagnsmálum og
lóðsbáts, sem er í smíðum.
Minni lántökur
I ár er gert ráð fyrir að taka að
láni 39 milljónir króna, sem er
sama upphæð og gert er ráð fyrir
að fari í afborganir af lánum.
Lántakan í ár verður mun minni
en margra undangenginna ára.
Alls verður 16 milljónum króna
varið til þess að bæta greiðslu-
stöðu bæjarsjóðs, sem þýðir
minni fjármagnskostnað.
Lokaorð
Mikil og góð samvinna var við
gerð fjárhagsáætlunar. Álagn-
ingu gjalda var haldið í lágmarki.
Fasteignaskattur á íbúðarhús-
næði á Akranesi er 0,36% og af
iðnaðarhúsnæði 1%. þessi álagn-
ing er í algjöru lágmarki og ef lit-
ið er til flestra annarra sveitarfé-
laga erum við ekki hálfdrættingar
í skattlagningu. T.d. er fast-
eignaskattur á íbúðarhúsnæði
0,421% í Reykjavík og 1,25% á
iðnaðarhúnsæði. Reynt er að
halda uppi miklum framkvæmd-
um enda er það skylda ríkis og
sveitarfélaga að skapa sem mesta
atvinnu þegar samdráttur er hjá
einsiaklingum og fyrirtækjum.
Hér hefur aðeins verið stiklað
á því stærsta því umfang slíkrar
áætlunar er efni í heilt blað. Um
leið og ársreikningar bæjarsjóðs
fyrir 1989 eru tilbúnir verður árs-
skýrslunni dreift í hvert hús eins
og tíðkast hefur á þessu kjörtíma
bili þannig að bæjarbúar geti
fylgst með hvernig skattpeningn-
um þeirra er varið.
LATIÐ
FAGMENN
VINNA
VERKIÐ
PRENTVERK
LAKRANESS HF. J
7. apríl næstKomandi.
Þátttökutilhynningar
5. apríl. Þátttökugjald er kr, 7000,
spyrnufélags IA, JaðarsböKKum, í síma 13311 eða í heimasíma
Knattspyrnufélag ÍA
Á ^ „Tvíefld trygging" VÁTRYQOINOAFÉLAO ÍSLANDS Kirkjubraut 28 Ö 13388 & 13389
MÚRVERK Tek að mér múrverk og flísalagnir. Tilboð eða tímavinna. VIÐAR SVAVARSSON Laugarbraut 14 — Sími 11412 Spónaplötur, allar þykktir ■ Krossviður, þakjárn og stál ■ Margskonar byggingavörur ■ Alhliða byggingaþjónusta TRÉSMIÐJA SIGURJÓNS & ÞORBERGS ÞJÓÐBRAUT 13 — SÍMI 11722
5
A---h
BrOHOilLMN
SÍM111100 (SÍMSVARI)
Ein
geggjuð
(She‘s Out Of
Control)
Sýnum þessa skemmti-
legu grínmynd í síðasta sinn
í kvöld, fimmtudag.
Vitið þið hversu oft á dag
venjulegur unglingsstrákur
hugsar um kynlíf? Tíu
sinnum? Tuttugu sinnum?
Nei, 656 sinnum! Viltu fá að
vita meira? Komdu þá í
kvöld!
Lokasýning í kvöld,
fimmtudag, kl. 21.
Bekkjar-
félagið
(Dead Poets
Society)
Dead Poets Society er
mynd sem óþarfi er að
kynna. Hún var tilnefnd bæði
til Golden Globe og Óskars-
verðlauna í ár. Stórleikarinn
Robin Williams var tilnefndur
sem besti leikarinn og mynd-
in sem mesta myndin.
DEAD POETS SOCIETY
- Ein af stórmyndunum
1990!
Sýnd kl. 21 föstudag,
sunnudag, mánudag og
þriðjudag.