Skagablaðið - 29.03.1990, Side 7

Skagablaðið - 29.03.1990, Side 7
Skagablaðið 7 Togaramir meðtæp700 tomáviku Höfðavíkin landaði sl. fimmtudag 150 tonnum af fiski. Af aflanum voru 70 tonn ufsi, 68 tonn karfi og 12 tonn af öðrum fiski. Kross- víkin kom inn sama dag með 121 tonn. Af því voru 72 tonn ufsi, 23 tonn af karfa, 16 tonn af ýsu og 8 tonn af þorski. Þá landaði Haraldur Böðvarsson 133 tonnum sl. föstudag. Aflinn var 69 tonn ufsi, 52 tonn karfi, 5 tonn þorskur og ýsa og 7 tonn annað. Skipaskagi landaði svo á mánudaginn 90 tonnum. af því voru 32 tonn þorskur, 20 tonn af karfa, 12 tonn ýsa og 9 tonn af ufsa. Annar afli var 17 tonn. Sturlaugur landaði síðan á þriðjudag 180 tonnum. í þeim afla voru 117 tonn af þorski, 27 tonn af karfa, 20 tonn af blálöngu og síðan ýsa, ufsi og annar fiskur. Alls komu því á land 674 tonn þessa 6 daga. — GE. „Uppistaðan vænn þorskur“ „Það er allt gott að frétta af okkur. Við erum að klára túrinn í suðvestan stormi og hann gengur á með dimmum éljum,“ sagði Kristján Pét- ursson, skipstjóri á Sturlaugi H. Böðvarssyni, er Skaga- blaðið sló á þráðinn til hans á mánudagskvöld. Við byrjuðum túrinn í blá- löngu suður af Vest- mannaeyjum en þar var ekki mikið að hafa svo við kippt- um yfir á Eldeyjarbanka og fengum ágætisafla þar, góðan þorsk. Ætli við séum ekki komnir með um 170 tonn. Uppistaðan er vænn þorskur. Við erum að byrja að stíma heim, ælti við verðum ekki í höfn einhvern tímann í nótt (aðfaranótt þriðju- dags),“ sagði Kristján. — GE. Minni loðna boristtil SFAenásíð- ustuvertíð Síldar- og fiskimjölsverk- smiðja Akraness hefur á yfir- standandi loðnuvertíð tekið á móti um 25.000 tonnum af loðnu á móti yfir 30.000 tonnum á sama tíma í fyrra. Valdimar Indriðason, fram kvæmdastjóri SFA, sagði í samtali við Skaga- blaðið, að þarna munaði mestu um haustvertíðina. Hún hefði algerlega brugðist að þessu sinni. Mjölframleiðsla fyrirtækis- ins á þessari vertíð nemur um 4.000 tonnum. Leiðinlegt tíðarfar að undanförnu hefur gert smábátaeigendum erfiðara fyrir að nálgast fiskinn, sem nóg virðist af um þessar mundir. Góður afE en gæftir stirðar Mikil fiskigengd virðist nú spenntir þess dags er slík net vera á netaslóð Akurnesinga. Afli netabáta var góður síðast- liðna viku, þótt ekki aflaðist eins og metvikuna á undan. Gæftir voru nú stirðar og brugðu margir á það ráð að draga upp net sín fyrir helgina vegna mjög slæmrar veðurspár. Nokkrir bátar fóru á sjó á sunnudag í slæmu veðurút- liti en gátu lítið dregið vegna veðurs og urðu að leita aftur til lands í hinu versta veðri. Mikill fiskur var þó í netunum sem náð- ust upp. Hætt er við tjóni á veiðafærum eftir slíkan óveðra- ham auk þess sem fiskur spillist og eyðileggst við slíkar aðstæður. Miðvikudaginn 21. mars drógu flestir tveggja nátta afla. Þá var landað hér 130 tonnum af þorski. Fiskurinn er nú mjög blandaður að stærð. Mikið ber á millistór- um og frekar smáum fiski. „Sex- tomman“, þ.e. net með sex tommu möskva, er ekki leyfð strax hér í Flóanum. Þó heyrst hafi um slík veiðarfæri í notkun eru slíkt órökstuddar sögusagnir. Þó er ljóst að margir bíða megi liggja í sjó. Veiðar með smáriðnum netum eftir páska ár hvert eru ekki leyfðar með fiskvernd í huga heldur vegna þrýstings frá sjó- mönnum. Þá vonast menn eftir ýsu en ekki fer mikið fyrir þeim afla hér á vorin auk þess sem ýsan er í frekar slöppu ástandi til vinnslu á þeim tíma. Menn fá meira af smáum fiski en sá stóri sleppur frekar því hann tollir síð- ur í smáriðnum netum. Því er það 'að menn geta líka tapað afla með of smáum riðli í netum of snemma lögðum í sjó. Annars er bágt til þess að vita að það sé orðið allsherjarbjarg- ráð á íslandsmiðum að smækka möskva veiðarfæra til höfuðs smáfiski á meðan við úthrópum fiskimenn annarra þjóða sem rányrkjumenn fyrir sama athæfi. Já, hún er iífseig dæmisagan um flísina í auga náungans og bjálk- ann í eigin auga. Línubátarnir fengu steinbrt á grunnslóð en nú eru flestir hætt- um slíkum veiðum og hafa tekið net. Næstu daga mun svo tíðar- farið skera úr um hvert framhald vertíðarinnar verður. Bátur Veiðarf. Afli/kg Róðrar Bresi AK Enok AK Hrólfur AK Ásrún AK Leynir AK Ebbi AK Isak AK Særún AK StapavikSH Net Valdimar AK Net Net Net Net Net Net Net Net Net Bára AK Akurey AK Gáski AK Rún AK Völusteinn Sjöfn AK Sæþór AK Net Net Net Net Net Net Net 25.250 18.890 18.390 16.850 16.790 16.180 14.310 13.730 13.030 12.980 12.700 11.400 10.900 8.160 8.080 7.940 7.420 4 5 4 4 5 5 4 5 4 4 5 5 3 4 3 4 3 Hugrún AK Hafey AK Dagný AK Síldin AK Kópur AK Vigdís Helga Net Flatey AK Sæbjörn AK Stormur AK Markús AK Ver AK Sunna AK Þytur AK Ingibjörg II Máni AK Leifi AK Bergþór AK Net Net Net Net Net Net Net Lína Net Lína Net Margrét AK Lína 6.910 6.880 6.550 6.400 6.340 6.020 5.660 5.380 5.140 5.110 4.940 4.450 4.180 3.930 3.860 3.340 3.200 2.440 Heildarafli Meðalafli í róðri 323.730 2.549 Aðkomumenn sækja í að gera útbáta sína hér Nú þegar þetta eilífa tal um samdrátt á öllum sviðum og at- vinnuraunir Akurnesinga heyrist endalaust hlýtur það að teljast ánægjulegt þegar dugmiklir menn sýna það í verki að þeir telja Akranes ákjósanlegan vett- vang fyrir athafnir sínar. Nú hefur Jón Traustason, eig- andi og útgerðarmaður Stapavíkur SH 132, flutt starf- semi sína til Akraness. Stapavík er 15 lesta bátur. Þá keypti Jón í vetur 6 lesta bát, Dagnýju AK af Ásgeiri Samúelssyni. Sá bátur ber nú nafnið Sjöfn AK og er gerður út hér líka. Ásgeir keypti aftur stærri bát, Ármann SH, sem nú heitir Dagný AK. Þá hafa útgerðir Ás- rúnar AK og Rúnar AK keypt hingað 6 lesta bát til að nýta afla- kvóta hans. Það er því engin kyrrstaða í þessari atvinnugrein á Akranesi, hún vex jafnt og þétt. Loðnuflotim úr höh Loðnuflotinn hélt úr höfn í gær eftir að Höfrungur sprengdi nótina í kasti út af Jökli í fyrrinótt. Skagablaðið hafði ekki frétt neitt frekar af veiðum á þessu svæði er blaðið fór í prentsmiðju en líklega er þarna ný ganga á ferðinni. — GE. 5 3 4 3 3 4 3 3 3 3 3 3 3 2 3 2 4 2 127

x

Skagablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.