Skagablaðið


Skagablaðið - 29.03.1990, Blaðsíða 6

Skagablaðið - 29.03.1990, Blaðsíða 6
6 Skagablaðið „Til sigurs" - átak Krabbameinsfélags íslands um helgiiia: Safnað á Akranesi á laugardag „Til sigurs“ er yfirskrift átaks nær hápunkti um helgina. Sjón- Krabbameinsfélags íslands, sem varpsþáttur verður í ríkissjón- Akraneskirkja Laugardagur 31. mars Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu Vinaminni (neðri sal) kl.11. Barnakórinn syngur. Myndasýning. Kirkjuskóli yngstu barnanna í umsjón Axels Gústafssonar kl.13. Sunnudagur 1. apríl. Fermingarguðsþjónustur kl. 11 og kl. 14. Mánudagur 2. apríl Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.30. Beðið fyrirsjúkum. Altarisganga fermingarbarna og aðstandenda þeirra kl.19.30. Orgelleikari Einar Örn Einarsson. SÓKNARPRESTUR Okkar hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu INGILEIFAR EYLEIFSDÓTTUR VESTURGÖTU 161, AKRANESI Fyrir hönd sona, tengdadætra, barnabarna og annarra vandamanna Einar Kristjánsson Okkar hjartans þakkir sendum við öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, vinarhug og hjálpsemi við and- lát og útför eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður og tengdasonar BENEDIKTS RÚNARS HJÁLMARSSONAR SANDABRAUT 16, AKRANESI Sérstakar þakkir til Jaðarsbakkabræðra, Knatt- spyrnufélags ÍA, Mfl. kvenna ÍA og góðra vina okkar. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur góða daga. Friðgerður Bjarnadóttir Kolbrún Benediktsdóttir Ásta Benediktsdóttir ívar Örn Benediktsson foreldrar, systkini, tengdamóðir og aðrir vandamenn. varpinu annað kvöld, föstudag, til þess að kynna átakið og þar verður jafnframt safnað fé til efl- ingar rannsóknum og ýmissri þjónustu á vegum félagsins. Hér á Akranesi munu sjálf- boðaliðar síðan ganga í hús á laugardaginn og safna fé til styrktar átakinu. Þar sem fólk er ekki heima verður skilinn eftir gíróseðil, sem fólk getur fyllt út og greitt eftir mánaðamótin. Vart þarf að fjölyrða um mikil- vægi baráttunnar gegn krabba- meini og þátt Krabbameinsfélags íslands í henni á liðnum áratug- um. Eru það því eindregin til- mæli þeirra sem að söfnuninni á Akranesi standa að bæjarbúar taki vel þeim sjálfboðaliðum, sem hafa tekið að sér að ganga í hús á laugardaginn. Ráðgjafi frá SAA á Akra- nesiíapríl Jóhann Örn Héðinsson, ráð- gjafí hjá S.Á.Á. verður hér á Akranesi dagana 2. - 9. apríl nk. Hann mun bjóða íbúum Akra- ness og nærsveita upp á margs konar þjónustu. Jóhann Örn verður með að- stöðu í Bókhlöðunni að Heiðarbraut 40, efri hæð og verður með símatíma frá kl. 13 - 17. Síminn er 12980. Boðið verður upp á fyrirlestra fyrir félagasamtök fyrirtæki. Einnig verður skólunum boðin þjónusta á morgnana. Þeir sem hafa áhuga á að notfæra sér þessa þjónustu hafi samband í síma 12980. Samhliða þessu verður haldið fjölskyldunámskeið fyrir að- standendur alkohólista og aðra áhugamenn helgina 7. og 8. apríl. Fundur hjá Ösp Fundur verður hjá ITC-deild- inni Ösp þriðjudaginn 3. apríl kl. 20.30 í Framsóknarhús- inu. Gestir velkomnir. Upplýs- ingar veita Fanney í síma 11840 og Sigrún í síma 11956. PÍPlILAGUíIR Getum bætt við okkur verkefnum. JÓ\ IMAKAI i ASlASOX I'ípulttgiiiugaiiicisian S13939 & 985 - 31844 • Kemiskhreinsun • Fatapressun =á\ • Þvottahús-þvoum (((HÍll íllll))) allan þvott '^5írni12503jy • Vönduð þjónusta ^ ^ Fiskbúð Sólveigar Háholti 35 — Sími 13236 ■■■■’ ilýkomnar stórar rækjur, harðfiskur, selspik og hákarl.. . Öll blikksmíði Smíðum einnig úr járni, áli og ryðfríu stáli. BLIKKVERK SF. ÆGISBRAUT 23 S* 11075 Ásgeir Ásgeirsson Aðalheiður Jónsdóttir Hulda Birna Baldursdóttir varð Ásgeiri Ásgeirssyni ekki mikil hindrun í getraunaleiknum um helgina. Hún náði aðeins tveimur leikjum réttum á síðasta seðli á sama tíma og Ásgeir náði fimm leikjum réttum. Það hefur ekki komið fram á þessum vettvangi fyrr en Ásgeir nýtur dyggilegrar aðstoðar starfsfélaga við útfyllingu seðils- ins. Sér í lagi er Hafsteinn Baldursson óspar á góð ráð, einkum þegar Arsenal er á seðlinum. Þeir SR-menn leggja allan sinn metnað í góðan árangur eftir skrykkjótt gengi starfsmanna Þor- geirs & Ellerts. Nýi áskorandinn er Aðlheiður Jónsdóttir og eru spár hennar og Ásgeirs giska líkar. Ásgeir Aðalheiður Arsenal — Everton 1 1 Charlton — OPR 2 2 Chelsea — Derby 1 1 Liverpool — Southampton 1 1 Manch. United — Coventry X X Millwall — Crystal Palace X 1 Norwich — Luton 1 1 Nottm. Forest — Wimbledon 1 1 Sheffield Wed. — Tottenham 2 1 Middlesbrough — Oldham 2 2 Watford — Blackburn 2 X Wolves — Leeds 2 2 Hópleikurinn í getraununum: Tveir hópar efstir Tveir hópar eru nú efstir og jafnir þegar 10 vikum af 13 er lokið í getraunahópleiknum. Þetta eru hópar nr. 278, Rúnar Þór Gunnarsson og félagar, og nr. 996, Guðjón Engilbertsson og félagar. Báðir eru hóparnir með samtals 94 leiki rétta, vel á undan næstu hópum. únar Þór og félagar standa þó betur að vígi því þegar upp verður staðið eftir vikurnar þrettán verða þrjár lökustu vikur hvers hóps dregnar frá. Eins og staðan er nú hefur hópur nr. 278 tveggja leikja forskot á hóp nr. 996 sé tillit tekið til þess. Alls náðu fjórir hópar 10 leikj- um réttum um helgina. Það voru hópar nr. 235, Einar Skúlason og félagar, nr. 245, Tippfélagið Tumi, nr. 996, Guðjón Engil- bertsson og félagar, og nr. 586, Hörður Harðarson og félagar. Næstu hópar á eftir hópum 996 og 278 eru nr. 586 með 88 rétta og síðan hópar 235 og 877, Smári Guðjónsson og félagar, með 87 rétta. Umónýtar rafhlöður Talsvert hefur verið spurst fyrir um það á ritstjórn Skaga blaðsins hvar sé hægt að losna við ónýtar rafhlöður. Til þess að kanna málið sneri blaðið sér til heilbrigðisfull- trúa. ð sögn Guðna Halldórs- sonar taka bensínstöðv- ar yfirleitt á móti þeim í þar til gerða og sérmerkta poka. Sagði Guðni allar bensín- stöðvarnar á Akranesi, að annarri Esso-stöðinni undanskilinni, taka við ónýt- um rafhlöðum. Páskamót í knattspymu? Svo kann að fara að efnt verði til knattspyrnumóts hér á Akranesi um páskana. Tvö aðkomulið verða hér við æfingar um páskana, Leiftur frá Ólafsfirði og Þróttur frá Neskaupsstað. Hefur þeirri hugmynd skotið upp að efna til móts með þátttöku þessara liða svo og að sjálf- sögðu Skagamanna.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.