Skagablaðið - 29.03.1990, Page 10

Skagablaðið - 29.03.1990, Page 10
flÉ? Skagabladið Gott hjá 4. flokki Fjórði flokkur Skagamanna stóð sig með miklum ágætum í B-úrslitum íslandsmótsins í handknattleik og stóð þar uppi sem sigurvegari eftir harða keppni við sjö önnur lið. Þessi árangur strákanna svarar til 9. sætis yfir landið allt og er langt síðan flokk- ur frá Akranesi hefur staðið sig svo vel. Strákarnir unnu fimm af sjö leikjum sínum í B-úrslitunum. Árni Gautur Arason var þeirra atkvæðamestur í markaskorun, skoraði 40 mörk í leikjunum sjö. Meðfylgjandi mynd var tekin af strákunum og þjálfara þeirra, Pétri Ingólfssyni, í vikubyrjun en einhverja úr liðinu vantar á myndina. Prófkjör Alþýðuflokksins um aðra helgi: Fymim formaður „Borgaranna“ með í baráttunni Fyrrum formaður Borgara- flokksfélagsins á Akranesi, Björn Guðmundsson verður á meðal þátttakenda í prófkjöri Alþýðuflokksins sem fram fer um aðra helgi. Björn sagði af sér formennsku í félaginu í fyrra- kvöld. lls taka 9 manns þátt í próf- kjörinu. í þeim hópi eru báðir bæjarfulltrúar flokksins, þeir Gísli Einarsson og Ingvar Ingvarsson. Auk nafn Björns vekur athygli að sjá nafn Hervars Gunnarssonar, formanns Verka- lýðsfélags Akraness á meðal þeirra sem taka þátt í prófkjör- inu. Aðrir sem taka þátt í því eru þessir: Guðmundur Garðarsson, Sigríður K. Óladóttir, Droplaug Róbertsdóttir, Sigurjón Hannes- son og Hafsteinn Baldursson. dæmisfélag Borgaraflokksins á Vesturlandi vilja að gefnu tilefni taka fram, að ekkert samstarf keniur til greina á milli Borgara- flokks og Alþýðuflokks í komaudi hicjar-og sveitarstjórnarkosn- ■^ctta segir í fréttatilkynningu scm Skagablaðinu barst í fyrra- kvökl fra Borgarafldkknum hér á Ákranesi. í tílkynningunni „Þar sem tni líður senn að prófkjöri Alþýöuftokksins hér á Akranesi og nafn Bjorns Guðmundssonar mun vcra þar á lista telja féiögin nauðsynlegt að fram komi. að hann hefur sagt af sér þvi alfarið í eigin nafní í prófkjörinu en ekki á vegum Borgar- ^»^*^^í^*IMMMMMMMMMM-MMMMMM-MMM—MMBM—MMMMMMMMMMB Listaklúbbur NFFA frun> sýnir hnyndunarveikina Listaklúbbur NFFA frumsýnir á laugardaginn gamanleikinn Imyndunarveikina eftir franska höfundinn Moliére. Nærri lætur að um 50 manns taki þátt í upp- setningu verksins en aðalhlut- verkin eru í höndum þeirra Björns Brimars Hákonarsonar (Bimsó) og Andreu Guðjóns- dóttur. Leikstjóri er Helga Braga Jónsdóttir en leikmynda- og búningahönnuður er Helena Guttormsdóttir. kagablaðið spjallaði við þær stöllur í gær og innti þær eftir því hvernig æfingar og undirbún- ingur fyrir sýningar hefði gengið. „Þetta hefur gengið að mestu stóráfallalaust,“ sagði Helga Braga, sem nú spreytir sig í fyrsta sinn á leikstjórn réttu ári eftir að hún lauk námi frá Leik- listarskóla íslands. Helga sagði æfingar hafa staðið í sex vikur og í raun mætti tíminn ekki vera öllu styttri ef vel ætti að vera. Helena er sömuleiðis í fyrsta sinn að spreyta sig á leiktjalda- og búningagerð. Hefur hún farið ótroðnar slóðir í gerð leiktjalda og búninga og grafið upp ódýrt efni til þess að nota við sýning- una en miklu skiptir fyrir Lista- klúbbinn að uppsetningin kosti ekki morð fjár. Þær Helga Braga og Helena sögðu það báðar skemmtilegt að stíga sín fyrstu spor í þessum nýju hlutverkum innan veggja gamla skólans þeirra. Helga sagði aukinheldur að hún efaðist um að hún hefði tekið að sér leikstjórn hjá nokkrum öðrum skóla en FV svona í fyrstu at- rennu. Þeim bar báðum saman um að það hjálpaði þeim mikið að hafa verið í skólanum því báðar þekktu þær kennara og starfslið frá gamalli tíð. Þetta verk Moliéres, ímyndun- arveikin, er síðasta verkið sem hann skrifaði. Að sögn þeirra stalla á hinn 200 ára gamli texti ekki síður erindi við fólk nú en þá. Þetta verk var síðast sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 1976. Leikritið fjallar um Argon, hinn ímyndunarveika, fjölskyldu hans, ástir þeirra og „ímyndað- ar“ raunir. „í þessu verki setur Moliére fram á gamansaman hátt mikinn sannleika um manneskj- una og veikleika hennar,“ sögðu þær stöllur. Helga Braga sagði ímyndunar- veikina hafa komið sér fyrst til hugar þegar þess var farið á leit við hana að hún fyndi einhvern gamanleik til þess að æfa. Hún hefði leitað áfram en alltaf kom- ið aftur að þessu verki. „Það er mikilvægt fyrir krakk- ana að taka þátt í uppsetningu sem þessari,“ sögðu þeir stöllur. „Þau þroskast og læra að taka til- lit til annarra. Ekki spillir heldur fyrir að texti verksins er þrosk- andi en ekki innihaldslaust blað- ur sem gleymist strax eftir sýn- ingu.“ Sem fyrr segir er frumsýning verksins á laugardag en aðeins verður um sex sýningar að ræða. Þær eru nánar auglýstar inni í blaðinu. fulltrúa á fundi sínum í fyrradag tiltögu, þar sem bæjarstjöra er ness imi liyggingn íþróttamanmirkja. Orðrétt hljóðar tillagan Um síðustu áramót tóku gildi lög um nýja verkaskiptingu rík- is og sveitarfélaga, þar sem m.a. er kveðið á um aö sveitar- stjórnir veiti byggingastyrki tii íþróltafélaga og íþriittasamtaka eftir þvt sem ákveðíð er í fjárhagsáætlun sveitarfélags. Aíþesstt sem kveðið vcrói á um samstarf bæjarins og íþróttahreyfingarinn- ar um byggingu íþróttamannvirkja.“ Stærstur hluti þeirra sem koma við sögu á uppsetningu Listaklúbbs NttA á verki Moliéres, Imyndunar- veikin.

x

Skagablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.