Skagablaðið - 12.09.1991, Síða 1
Framkvæmdir við kvkjuna
Uundanfarnar vikur hefur verið unnið að því að steypa upp nýjan vegg umhverfis lóð Akranes-
kirkju. Um leið og gamli veggurinn, sem orðinn var lúinn, víkur verða gerðar breytingar við inn-
gang kirkjunnar. Tröppurnar fyrir framan hana verða stækkaður og komið upp rampi til þess að auð-
velda aðgengi fatlaðra. Trésmiðja Sigurjóns & Þorbergs hefur annast þessar framkvæmdir. Myndin
hér að ofan var tekin í fyrradag er unnið var við mótauppslátt og steypu.
Mteþyrmingar á
máUeysingjum
Vitað er um tvö hrottaleg
dæmi um misþyrmingar á dýrum
sem átt hafa sér stað hér á Akra-
nesi að undanförnu. I báðum til-
vikum áttu börn og unglingar
hlut að máli. Annars vegar var
um að ræða kettling og hins veg-
ar ófleyga dúfuunga.
Unglingar á Akratorgi mis-
þyrmdu kettlingi, sem flækst
hafði þangað, eitt síðkvöldið.
Hentu þeir honum á milli sín og
brenndu með vindlingastúfum.
Vitni voru að þessum atburði.
Þá sást einnig til barna þar sem
þau gerðu sér að leik að kasta
ófleygum dúfungum niður af bíl-
skúrsþaki beint fyrir fætur hunds
sem reif þá í sig og drap. Sam-
kvæmt heimildum Skagabfaðsins
varð hundaeftirlitsmaður bæjar-
ins vitni að þessum atburði. Ekki
náðist í hann í gær.
Dýravinir á Akranesi eru að
vonum slegnir yfir þessum tíð-
indum og þá ekki síður því
hversu illa gengur að koma lög-
um yfir fólk sem misþyrmir
dýrum. í þessum tilfellum var um
ólögráða unglinga að ræða og
þeir því ósakhæfir. Öðru máli
gegnir um fullorðið fólk.
Skagablaðið veit til þess að
fyrir nokkrum misserum var
maður hér í bæ kærður fyrir
hrottalega meðferð á hundi.
Hann fékk aðeins áminningu og
hélt hundinum.
Mallsleg Qðlgun landsmaima síðustu hátfa öld atfaríð í Reykjavik og á Reykjanesi:
Vestiendinpn fækkaoi um 30%
- Vesturfand þó betur sett enpqú kjördæmi þar sem íbúum hefur fækkað um 38 - 64%
Vesturland hefur haldið sínum hlut í íbúaþróun Iandsins síðustu 50
árin betur en þrjú önnur kjördæmi. I tveimur kjördæmum til viðbótar
af þeim átta sem í landinu eru er þróunin svipuð og á Vesturlandi. I
öllum kjördæmum — að Reykjanesi undanskildu þar sem hlutfall
íbúa af heildarfjölda landsmanna hefur tvöfaldast — hefur íbúum
fækkað verulega samanborðið við Reykjavík. Þetta kemur fram í
fréttabréfi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem út kom fyrir
nokkru.
Þegar tölur um mannfjölda á
fslandi árið 1940 eru skoðað-
ar kemur í ljós að 36,21% allra
íbúa landsins bjuggu í Reykja-
vík. Á Suðurnesjum bjuggu
2.86% landsmanna, á Vestur-
landi 8,18%, á Vestfjörðum
10,66%, á Norðurlandi vestra
8,64%, á Norðuriandi eystra
13,92%, á Austurlandi 8,34% og
á Suðurlandi 11,19%.
Veruleg röskun á þessari skipt-
inu varð strax eftir síðari heims-
styrjöldina, þar sem íbúum í
Reykjavík fjölgaði verulega á
sama tíma og fólki fækkaði í öðr-
um kjördæmum. Þróunin hefur
síðan verið Reykjavík og
Reykjanesi mjög í hag. Hvað
Reykjanes áhrærir skipta þétt-
býliskjarnarnir Hafnarfjörður,
Kópavogur, Garðabær og Mos-
fellsbær sköpum í fólksfjölgun-
inni.
Þegar tölur eru skoðaðar fyrir
árið 1990 kemur í ljós að íbúar í
Reykjavík voru 57,09% allra
landsmanna. Hlutfallsleg fjölgun
þar frá 1940 er 57,6%. Alls
bjuggu 5,94% landsmanna í
Reykjaneskjördæmi í fyrra. Þar
er hlutfallsleg fjölgun á hálfri öld
107,7%. Á sama hátt er hlutfalls-
leg fækkun á Vesturlandi 30,5%.
Þar bjó 5,94% landsmanna í
fyrra. Þótt um 30% samdrátt sé
að ræða er hann minni en í þrem-
ur kjördæmum.
Vestfirðirnir hafa farið allra
kjördæma verst út úr byggð-
aþróuninni síðustu 50 árin. í
fyrra bjó þar 3,83% landsmanna.
Hlutfallsleg fækkun á 50 árum er
rúm 64%. Á Norðurlandi vestra
bjuggu í fyrra 4.08% íbúa
landsins. Þar er fækkunin 47,2%.
Á Norðurlandi eystra bjuggu í
fyrra 10,22% landsmanna.
Fækkunin á 50 árum nemur
25,6%. Á Austurlandi hefur
fækkunin orðið 38% á sama
tíma. Þar bjuggu í fyrra 5,17%
íbúa landsins. Þá er aðeins
Suðurland ótalið. Þar bjuggu
7,98% landsmanna í fyrra. Hlut-
fallsleg fækkun frá 1940 er
28,7%.
Stækkun Garðavallan
Skrifað und-
irsamning
ásunnudag
Skrifað verður undir fram-
kvæmdasamning á milli Akra
nesbæjar og Golfklúbbsins
Leynis um stækkun Garða-
vallar úr 9 holum ■ 18 næst-
komandi sunnudag.
Samningurinn átti að
leggjast fyrir bæjarráð í
dag og fái hann blessun þess
er ekkert því til fyrirstöðu að
hann verði undirritaður og
slðan staðfestur af bæjar-
stjórn.
Teikning af stækkuninni
verður til sýnis á sunnudag-
inn og mun Hannes Þor-
steinsson, golfvallahönnuð-
ur, útskýra skipulag hennar.
Ibúaþróun á Vesturtandi eins og annais staðar á landinu:
Rutt úr sveit í þéttbýli
Þróun í byggð landsins síðustu 50 árin hefur í
stuttu máli sagt verið úr sveit í þéttbýli. Þetta á
ekki aðeins við um höfuðborgarsvæðið heldur er
þróunin hin sama á Vesturlandi.
Þar hefur íbúatatala Akraness, Borgarness og
Ólafsvíkur nær þrefaldast á 50 árum og tvö-
faldast í Stykkishólmi.
Alls voru fbúar á Akranesi 1.840 árið 1940. í
fyrra voru þeir 5.230. í Borgarnesi bjuggu árið
1940 642 íbúar en voru 1.725 í fyrra. í Ólafsvík
bjuggu árið 1940 473 íbúar en voru 1.216 í fyrra.
Þá fjölgaði íbúum Stykkishólms úr 675 árið 1940
í 1.209 í fyrra.
hnbrotafarakhir í Borgarfirði uppfýstur
Þjófamir vom ung-
menni frá Akranesi
Fjögur ungmenni frá Akranesi hafa viðurkennt að hafa staðið að
baki röð innbrota í Borgarfírði nýverið í samvinnu við félaga sinn frá
Hafnarfirði, sem reyndar hefur haldið mikið til hér á Akranesi.
Rannsóknarlögreglan á Akranesi hefur upplýst málið að fullu. Þýfið
fannst í Hafnarfirði.
Ungmennin hófu innbrota-
hrinuna í söluskálanum
Baulu. Þar náðu þau ekki að
stela miklu þar sem þjófavarnar-
kerfi fór í gang. Við það kom
styggð að hópnum. Þaðan lá leið-
in í Hreppslaug, þar sem engu
var stolið en mikil skemmdar-
verk unnin. M.a. voru brotnar
þar sjö rúður.
Frá Hreppslaug héldu þau að
Kleppjárnsreykjum, þar sem þau
höfðu á brott með sér peninga og
myndbönd þrátt fyrir að þjófa-
varnarkerfi færi í gang. Lokavið-
komustaður þeirra var svo í
þjónustumiðstöðinni í Húsafelli.
Þar náðu ungmennin að stela á
annað hundrað vindlingalengj-
um, auk peninga og sælgætis.
Hópurinn er á aldrinum 12 -
18 ára. Tveir úr honum eru ósak-
hæfir vegna aldurs en barna-
verndaryfirvöld munu hafa af-
skipti af þeim vegna þessa máls.