Skagablaðið


Skagablaðið - 19.09.1991, Blaðsíða 6

Skagablaðið - 19.09.1991, Blaðsíða 6
6 Skagablaðið Btt hundrað ár liðin frá upjM skipulegra fólks- og fasfie§aflutniiip um Faxaflóanm Brautryðjandinn hét Faxi; „svart ur og sótugur, lítill og ljótur“ Eitt hundrað ár eru um þessar mundir liðin frá því fyrstu skipulegu siglingar á milli Akraness og Reykjavíkur hófust. Hf. Skallagrímur, útgerðaraðili Akraborgarinnar, minnist þessara tímamóta um helg- ina. Svo vill til, að aðstaða Akraborgar í Reykjavíkurhöfn verður á sunnudag flutt frá Grófarbryggju, þar sem hún hefur verið um ára- tugaskeið, að Faxagarði. Þar er aðkoma öll mun auðveldari en við Grófarbryggju, þannig að aukið hagræði ætti að skapast af fyrir þá sem ferðast með skipinu. Það var árið 1891, að Sigfús Eymundsson, ljósmyndari, keypti 20 tonna skip til siglinga um Faxaflóa í samvinnu við fleiri aðila. Svo virðist sem mikil vakn- ing um úrbætur í samgöngumál- um hafi átt sér stað með þjóðinni á þessum tíma. Þetta sama ár voru vígðar brýr yfir Ölfusá og Barnafossa í Borgarfirði svo dæmi séu tekin. Þrjár vikur á leiðinni Skip Sigfúsar, Faxi, var keypt frá Skotlandi. Sigling þess til ís- lands tók 3 vikur og var til þess tekið hversu vel það hefði reynst. Skipsins var beðið með mikilli óþreyju en fólk var ekkert yfir sig hrifið þegar það birtist í Reykjavíkurhöfn. í bókinni „Á Ströndinni í hálfa öld“ þar sem æviminningar Þórðar Guð- mundssonar, skipstjóra, eru raktar segir m.a. að farkosturinn hafi þótt fremur óglæsilegur á að líta; „svartur og sótugur, lítill og ljótur.“ Eigendum skipsins varð það ljóst, að úr þyrfti að bæta. Þeir máluðu skipið, settu á það skjól- borð og buðu að svo búnu al- þingismönnum í skemmtisiglingu upp á Akranes. Ferðin tókst vel og varð þess valdandi að Alþingi ákvað að veita 3000 króna styrk til flóaferðanna. Lífdagar Faxa á íslandi urðu aftur á móti skemmri en efni stóðu til. Skipulegar siglingar frá Reykjavík, m.a. til Akraness og á Brákarpoll, hófust að vorlagi 1891. Örlög skipsins réðust í aftakaveðri í nóvember sama ár, þar sem skipið sökk í Reykjavík- urhöfn. Við tilraunir til þess að lyfta því úr sjó brotnaði það. Neistinn kveiktur Þótt Faxi væri allur hafði neist- inn að því sem síðar urðu skipu- legar siglingar á milli Reykjavík- ur og Akraness þegar verið kveiktur. Vorið 1893 keypti Valdimar Fischer, kaupmaður í Reykjavík, 50 rúmlesta gufuskip frá Dankörku. Skipið hét upp- haflega Einigkeit en nafni þess var breytt í Elín í höfuðið á nýju landshöfðingj afrúnni. Rekstur þess gekk vel og fyrsta árið sem skipið var í ferðum tóku 2716 manns sér far með því. Siglt var jafnt til Suðurnesja og til Akraness, Borgarness og vestur á Mýrar. Skipið hélt uppi áætlun- arferðum allt fram á haustið 1895 er örlög þess réðust í vondu veðri þann 20. september. Það slitnaði þá upp frá festum og sökk síðan djúpt í leir í Straumfjarðarvogi, þaðan sem það átti ekki aftur- kvæmt. Engar skipulagðar ferðir voru um flóann árið 1896 en vorið eft- ir kom þriðja skipið til sögunnar. Það var norskt og hlaut nafnið Reykjavík. Sú nýjung gerðist þetta sumar, að Dalamenn höfðu sérstakan sendimann í ferðum vikulega til Borgarness, sem flutti póst. Reykjavík hélt uppi ferðum til 1907 er það slitnaði upp frá festum í Reykjavíkur- höfn þegar kolaskip rak á það. Reykjavíkina rak upp í kletta og lauk ævi sinni þar. Annað skip með sama nafni var fengið í þess stað. „Tuddinn“ Þetta sama sumar, 1907, var annað skip einnig í Faxaflóaferð- um, Hjálmar. Þetta skip var hæg- fara og hlaut viðurnefnið „tuddinn“ sbr. Hjálmar tudda. Skipið þótti hins vegar mjög Suðurlandið, fyrsta skip Hf. Skallagríms, var í ferðum allt til 1935. stöðugt og var vinsælt á meðal þeirra sem alla jafna voru veikir á sjó. Sigling í Borgarnes tók oft 8-9 tíma. Árið 1908 var tekinn á leigu gufubáturinn Geraldína. Skip- stjóri þess og einn eigenda var Akurnesingurinn Jón Árnason frá Heimaskaga, alkunnur sæ- garpur. Þetta skip annaðist flóa- ferðir fram í maí er Breiðfirðing- ar misstu sinn flóabát. Var Geraldína þá leigð þangað. Skip- ið hvarf í hafið í aftakaveðri um haustið. Þar fórust þrír menn. Tímamót Tímamót í flóasiglingum urðu vorið 1908 er Ingólfur kom til sögunnar. Þetta var fyrsta skipið sem Islendingar létu smíða og ekki var ætlað til fiskveiða. Ing- ólfur var smíðaður í Björgvin í Noregi og kostaði 66 þúsund krónur. Eigandi skipsins var Gufuskipafélag Faxaflóa. Ingólf- ur var fyrsta vélknúna farþega- og flutningaskipið sem hafði bæði íslenskan skipstjóra og áhöfn. Með Ingólfi jukust mjög allir flutningar á milli Borgarness Upphaflega gerð Laxfoss. Skipinu var síðan breytt eftir strandið 1944. og Reykjavíkur. Vélarbilun varð í skipinu veturinn 1918 og í fram- haldi af því var það selt til Noregs og Gufuskipafélagi Faxa- flóa formlega slitið. í kjölfarið var siglingum um Faxaflóa haldið uppi með ýmsum bátum, sem sumir voru lítt eða illa til þess fallnir að annast um- talsverða fólksflutninga. Árið 1919 keypti Eimskipafé- lag Suðurlands 217 lesta danskt gufuskip sem hlaut nafnið Suður- land. Því var ætlað að sigla víða en endirinn varð sá að skipið var nær einvörðungu í siglingum á milli Reykjavíkur og Borgar- ness. Skipið reyndist farsælt að mörgu leyti þótt það þætti ekki henta vel til mikilla fólksflutn- inga. Stofnun Hf. Skallagríms Eimskipafélag Suðurlands var svo lagt niður 1931 og Suður- landið selt Borgarneshreppi á 63 þúsund krónur árið eftir í tengsl- um við stofnun nýs hlutafélags, Hf. Skallagríms. Skipið hélt nafni sínu og hóf þegar áætlunar- ferðir. Rekstur þess gekk ágæt- lega en þar sem það var komið til ára sinna, smíðað 1891, var farið að huga að kaupum á nýju skipi. Suðurland var þó í ferðum á veg- um Hf. Skallagríms allt fram til ársins 1935 er það var selt. Haustið 1934 var samþykkt að semja við skipasmíðastöð í Ála- borg í Danmörku um smíði nýs skips. Verð þess var 290 þúsund krónur danskar. Hlutafé Hf. Skallagríms var stóraukið og m.a. gerðist ríkið hluthafi auk þess að leggja fram ábyrgðir. Það var þó bundið þeim skilyrðum að hlutfé úr heimabyggð næmi 100 þúsundum króna. Það gekk eftir. Laxfoss tíl Iandsins Nýja skipið hlaut nafnið Lax- foss og kom til Reykjavíkur að- faranótt 11. júlí 1935. Fjöldi manns beið komu skipsins. Lax- foss var 278 rúmlesta skip. Þar var boðið upp á 1. og 2. farrými og m.a. einkaklefa. Á þilfari var rúm fyrir fimm bifreiðar. Skipið gat tekið alls 180 farþega í hverri ferð. Ganghraði þess var 12 sjó- mílur. Laxfoss hóf þegar áætlunar- ferðir á milli Reykjavíkur og Borgarness með viðkomu á Akranesi. Ekki voru þó allir sátt- ir við að farþegarými væri skipt í 1. og 2. farrými. Var því ákveðið að leggja þessa skiptingu af. Við komu skipsins var gefin út föst ferðaáætlun. Siglt var alla daga vikunnar nema mánudaga. Samhliða Laxfossi hélt Fagranes- ið, 80 lesta skip í eigu nokkurra Akurnesinga, úti föstum ferðum á milli Akraness og Reykjavíkur. Fyrir dómstóla Alvarlegar vélarbilanir tóku að gera vart við sig í Laxfossi strax á fyrsta ári. Stóð í stappi við skipasmíðastöðina vegna þessa um langa hríð án þess að samningar tækjust um úrbætur. Að endingu fór málið fyrir dóm- stóla í Kaupmannahöfn árið 1939. Þar var kröfum Hf. Skalla- gríms hafnað. Þrátt fyrir vélarbilanir gekk rekstur Laxfoss allvel. Flutningar á fólki og varningi jukust ár frá ári. M.a. var siglt vikulega til Vestmannaeyja í fyrsta sinn árið 1940. Frátafir vegna þeirra ferða sköpuðu hins vegar óánægju í Borgarnesi. Fagranesið var selt frá Akranesi 1942 og í framhaldi af því var Akurnesingum boðin hlutdeild í Hf. Skallagrími. Ekk- ert var þó úr því þá.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.