Skagablaðið - 23.01.1995, Side 2
2 23. janúar 1995
Viðhorf
Skagablaðið
Siðbót í sorpmálum
Það sem vekur einna mesta athygli í tillögum sem fylgja fjár-
hagsáætlun bæjarins að þessu sinni eru hugmyndir bæjaryf-
irvalda um samstarf við Sorpu, sorpsamlag sveitarfélaganna
á höfuðborgarsvæðinu. Tillagan felur í sér að kannaðir verði
möguleikar á samstarfi við Sorpu um eyðingu sorps frá
Akranesi og nærsveitum. Stefnt er að því að niðurstöður
liggi fyrir eigi síðar en í mars svo taka megi upp nýtt fyrir-
komulag við sorphirðu og sorpeyðingu, þyki það álitlegur
kostur.
Tillögunni ber að fagna því hún gefur von um mun skyn-
samlegri hegðun í sorpmálum en til þessa hefurtíðkast á
Akranesi og sambærilegum byggðarlögum.
Meðferð sorpmála á íslandi er ein ástæða þess að íslend-
ingar geta ekki enn að fullu talið sig til siðmenntaðra
þjóða. í huga yfirvalda á íslandi hefur sorp aðeins verið
úrgangur sem losa þarf borgarana við með sem
minnstum tilkostnaði. Sorpið hefur verið grafið í jörðu
niður eða brennt, gjarna í hvarfi frá byggð og umferð-
arbrautum. Það var nú það, segja menn svo þegar þeir
hafa losað sig við ósómann.
En sorp er auðvitað miklu meira en einslitur úrgang-
ur. Mikill hluti sorps er hráefni sem sjálfsagt er að nýta
eins og kostur er. í sorpi eru timbur, málmar, gler og líf-
rænn úrgangur sem breyta má í verðmæti að nýju.
Sorp er heldur ekki eins meinlaust og margir virðast
halda þegar þeir ýta því oní holu í jörðinni og moka yfir. Sorp
getur verið stórhættulegt. Fjölmargar gerðir spilliefna eru
notaðar á heimilum og í fyrirtækjum á Akranesi eins og ann-
ars staðar. Til þessa hafa þessi efni fengið sömu meðferð og
hráefnið sem nefnt var áður; þeim hefur verið rutt oní holu í
jörðinni fyrir ofan bæinn. Og mokað yfir.
Tillaga bæjarráðs um samstarf við Sorpu veitir von um
nokkra siðbót í þessum efnum. íbúar höfuðborgarsvæðisins
hafa átt þess kost nokkur undanfarin ár að flokka sorp sitt
að nokkru leyti og koma því til endurvinnslu eða forsvaran-
legrar eyðingar. Þótt Sorpa sé að mörgu leyti meingallað fyr-
irbæri hafa menn hvergi á landinu komist nær því að fara
með sorp á siðlegan hátt.
Komi til samstarfs við Sorpu hljótum við að ætla að hér
verði hafin ekki síðri sorpflokkun en sú sem stunduð er á
höfuðborgarsvæðinu, hjá eigendum Sorpu. Hugmyndin hlýt-
ur að vera sú að hér verði komið upp flokkunarstöð þar sem
almenningi verður gefinn kostur á að skila endurnýtanlegu
sorpi í sérstaka gáma, spilliefnum í aðra. Jafnframt hlýtur að
hefjast mikill áróðurfyrir því að bæjarbúar endurnýti sjálfir
þann hluta sorpsins sem þeir geta; lífræna hlutann. Með
venjulegt húsasorp verður hins vegar farið eins og hjá Sorpu
nú; það verður urðað.
Takist þetta verður um að ræða mikla framför í meðferð
sorps. En bæjaryfirvöld skulu hafa í huga að breyting af
þessu tagi kallar á ný viðhorf. Yfirvöld munu þurfa að leggja
í vandað kynningar- og hvatningarátak meðal almennings,
því breytingin mun byggja á þátttöku almennings. Og eigi
almenningur að taka þátt, verður að sannfæra hann um gildi
þess að fara svona að. Vanda verður því mjög til breytingar-
innar strax í upphafi.
Gera má ráð fyrir að athugun bæjaryfirvalda á þessum
kosti snúist að miklu leyti um kostnað samanborið við nú-
verandi fyrirkomulag. En ef Skagablaðið má veita bæjaryfir-
völdum dálítið vegarnesti áður en gengið er til verksins:
Kostnaðurinn má ekki skipta sköpum í þessum efnum.
Sannleikurinn er sá að við höfum ekki efni á að halda upp-
teknum hætti í meðferð sorps.
- Garðar Guðjónsson
Búsetukerfið er gott kerfi þar sem viðhaldið er sett íforgang, segir Valdimar í grein sinni. Myndin er
af búsetablokkinni við Lerkigrund.
- leiguöryggi
Búseti
Margt hefur verið rætt um
búsetuíbúðir og ekki alltaf
farið með rétt mál í þeirri um-
ræðu. Ég ætla hér á eftir að
koma á framfæri nokkrum upp-
lýsingum um búseturétt.
Búseti H.S.F. á Akranesi var
stofnaður í júní 1991 og voru
stofnfélagar 32 talsins. Arlegt
félagsgjald í Búseta er 2.500
krónur og nú eru félagar um
70. Búseti á 12 íbúðir að Lerki-
grund 5-7.
Búseturéttur nemur 10 pró-
sent af kaupverði íbúðar. 90%
kaupverðsins er lánað til 50 ára
á eitt prósent vöxtum. Til þess
að geta keypt búseturétt má
einstaklingur hafa 1.707.352 í
árslaun að jafnaði undanfarin
þrjú ár. Leyfileg eign nemur
1,8 milljónum króna. Hjón
mega hafa 2.134.190 krónur í
árslaun samanlagt, auk 155.551
króna fyrir hvert barn. Leyfileg
eign hjóna er 1,8 milljónir
króna.
Félagi í Búseta fær númer og
eftir því er farið þegar íbúðum
er úthlutað.
Eitt gjald
Kaup á 10 hundraðshlutum í
félagslegri þriggja herbergja
íbúð nema nú um 840 þúsund-
um króna. Mánaðarlegt búsetu-
gjald er 28.515 krónur. Innifal-
in í því eru átta atriði:
1. Afborganir af lánum.
2.Hitaveita.
3.Fasteignagjöld.
4. Tryggingar.
5. Rafmagn í sameign.
6. Rekstrarsjóður
(hússjóður).
7. Sjóður vegna viðhalds
utan húss.
8. Sjóður vegna viðhalds
innan íbúðar.
Með þessu móti eru öll gjöld
af íbúðinni sameinuð í eitt og
allt viðhald er greitt jafnóðum
mánaðarlega.
Til dæmis má nefna að ef
fbúi þarf að mála íbúðina sína
er til bók sem Iagt er inn á
mánaðarlega; um það bil
19.500 krónur á ári.
Vilji búseti selja sín 10 pró-
sent er íbúðin auglýst meðal fé-
laga og í bæjarblaði. Búsetinn
fær þá sín 10 prósent vísitölu-
tryggð þegar fbúðin selst.
Viðhald númer eitt
Búsetakerfið er gott að mínu
mati og viðhald er sett í for-
gang. Hugmyndir eru uppi um
að Búseti kaupi eldri fbúðir,
raðhús og einbýlishús og bjóði
félögum sínum þær til kaups.
Fái félagið úthlutað lánum frá
húsnæðisstofnun eru þessar
hugmyndir opnar.
Margir félagar í Búseta búa
nú í eigin íbúðum en hugsa sér
að selja þær og kaupa búsetu-
rétt þegar þeir vilja minnka við
sig.
Hægt er að kaupa almennan
búseturétt. Þá nemur lánshlut-
fallið 70 prósent til 50 ára á 4,5
prósent vöxtum og 20 prósent
til 25 ára á 4,5 prósent vöxtum
að því gefnu að félagsmaður sé
innan eignarmarka en yfir
tekjumörkum sem getið var um
áður.
Þegar keyptur er 30 prósent
almennur búseturéttur fæst lán
fyrir 70 prósentum til 50 ára á
4,5 prósent vöxtum, sé félags-
maður yfir eignar- og tekju-
mörkum.
- Valdimar erformaður
Búseta á Akranesi
Mín skoðcin
Valdimar Björnsson
„Hugmyndir eru uppi um að Búseti kaupi eldri íbúðir,
raðhús og einbýlishús og bjóði félögum sínum
þær til kaups.“
ÍO
*0
-2
0)1
ro
4*1
•••••••••••
Ritstjóri: Garðar Guðjónsson
Útgefandi og ábm.: Sigurður Sverrisson.
Prentun: Prentverk Akraness hf.
Dreifing: Karl Örn Karlsson, sími 12707.
Verð: Lausasala 220 kr., áskrift greidd með
greiðslukorti 170 kr., annars 200 kr.
Ritstjórn: Skólabraut 21,2. hæð. Opin alla virka daga
kl. 10.00-17.00. Símar 14222 og 12261. Fax: 14122.
Póstfang: Pósthólf 170, 300 Akranes.
Skagablaðið fyrir tíu árum
Iaðalfrétt á forsíðu Skagablaðsins föstudaginn
25. janúar 1985 voru flutt þau tíðindi að íbú-
um Akraness hefði þá fækkað f fyrsta sinn í ára-
tug. Ibúum fækkaði um 60 milli áranna 1983 og
1984. Á árunum 1974-1983 hafði bæjarbúum
hins vegar fjölgað úr 4.514 í 5.349.
Þessar upplýsingar komu fram á bæjarstjórnar-
fundi þar sem rætt var um atvinnuástandið í
bænum. Blaðið hafði eftir oddvitum meirihlut-
ans, þeim Guðmundi Vésteinssyni og Herði
Pálssyni, að fréttir bæjarblaðanna af þessum
málum væru allt of neikvæðar.
Blaðið sagði einnig frá því að Jón Pétursson
hefði fundið heitt vatn í hlíðum Akrafjalls, en
sérfræðingur Orkustofnunar útilokaði að þarna
væri um að ræða heitavatnsæð, taldi hins vegar
að þarna væri um svonefnd fjallavermsl að ræða.
Á baksíðunni kom fram að bæjarstjórn vildi
herða eftirlit með hundum og að yfirlæknir var
óánægður með heimtur í krabbameinsskoðun.
„Konur vilja frekar vera í óvissu en að fara í
skoðun,“ var haft eftir Stefáni Helgasyni.