Skagablaðið - 23.01.1995, Qupperneq 5
Stjórnmál
23. janúar1995 5
Skagablaðíð
Grundaskóli tekur til sín um helming þess fjármagns sem gert er ráðfyrir til eignfœrðrar fjárfesting-
ar, eða um 40 milljónir aý'84,4 milljónum króna.
Gísli Gíslason bœjarstjóri:
Skuldir aukast en brýnt er að
stemma stigu við aukningu
skulda á nœstu árum. Aðhalds
verður gætt í rekstri án þess að
skorið verði niður.
í hvað fara skattarnir?
Það ræðst á fundi bæjarstjórn-
ar 14. febrúar hvernig ráðstaf-
að verður þeim 510 milljónum
króna sem bæjaryfirvöld hafa
til ráðstöfunar á þessu ári.
Frumvarp að fjárhagsáætlun
var lagt fram á fundi bæjar-
stjórnar í síðustu viku og þar
kom fram að stærstu verkefni
bæjarins á árinu verða áfram-
haldandi bygging Grundaskóla
og greiðsla vegna bæjarskrif-
stofanna í stjórnsýsluhúsinu.
Auk þess voru lagðar fram fjár-
hagsáætlanir hafnarsjóðs, Raf-
veitu Akraness og atvinnuþró-
unarsjóðs.
Áætlað er að útsvarstekjur
verði 404,5 milljónir króna eða
um 80 prósent teknanna. Fast-
eignaskattur á að skila 76,8
milljónum, 14,6 milljónir eiga
að koma úr Jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga og holræsagjald nemur
13,9 milljónum gangi áætlunin
eftir.
Gísii Gíslason bæjarstjóri
sagði þegar hann fylgdi áætlun-
inni úr hlaði á fundi bæjar-
stjórnar að ekki væri urn að
ræða niðurskurðaráætlun þótt
aðhalds væri gætt í rekstri. Hins
myndu skuldir bæjarfélagsins
aukast og langmestur hluti þess
tjár sem áætlaður er til fram-
kvæmda væri tekinn að láni.
Gísli lagði á það brýna áherslu
við bæjarstjórn að stemma yrði
stigu við aukningu skulda á
næstu árum.
Langmestur hluti teknanna
fer í rekstur, eða 366,5 milljónir
króna. Það nemur 72 af
hundraði teknanna og önnur 10
af hundraði fara í að borga af
lánum. Gert er ráð fyrir að tekj-
urnar aukist um 16 milljónir
króna frá áætlun síðasta ár, að
sögn Gísla. Skýringuna á því er
Smiðjuvellir hafa verið til um-
rœðu að undanförnu. Lagt
verður slitlag á þennan botn-
langa þar sem Vignir G. Jóns-
son og fleiri eru til húsa.
að ftnna í hækkun útsvars úr 9
af hundraði í 9,2.
Helstu rekstrarliðir eru þessir
í milljónum króna:
Yfirstjóm sveitarfélagsins: 50,57
Félagsþjónusta: 93,89
Fræðslumál: 72,8
Menningarmál: 23,99
Æskulýðs- og íþróttamál: 49,82
Almenningsg. og útivist: 27,49
Af einstökum liðum innan
málaflokkanna má nefna að
rekstur bæjarskrifstofunnar
kostar tæpar 40 milljónir króna,
rekstrargjöld vegna Brekkubæj-
arskóla verða um 32,5 milljónir,
rekstur Grundaskóla á að kosta
rúmlega 25 milljónir og rekstur
Tónlistarskólans rúmlega 22
milljónir. Um helmingur þess
rekstrarfjár sem áætlað er í fé-
lagsþjónustu fer í rekstur leik-
skólanna. Rúmar 14 milljónir
fara í félagslega aðstoð og 25,4
milljónir í lýðhjálp og lýðtrygg-
ingu.
Af rekstrargjöldum sem falla
undir menningarmál má nefna
að rekstur bókasafnsins kostar
tæplega 10 milljónir króna og
6,3 milljónir fara í rekstur
byggðasafnsins.
Götur og holræsi
Til fjárfestinga eiga að renna
nær 190 milljónir króna. Þar af
fara 104,4 milljónir í svonefnda
gjaldfærða fjárfestingu og þar
eru atvinnumál og gerð gatna og
holræsa í lykilhlutverki.
Um 25 milljónir króna renna
til atvinnumála. Framlag til at-
vinnuþróunarsjóðs er hærra en
fyrr; 19 milljónir króna sem
eiga að renna til greiðslu lána.
Þá er gert ráð fyrir sex milljón-
um til atvinnuátaks sem er
meira en áður.
Verja á 32,8 milljónum króna
í gerð gatna og holræsa en á
móti er áætlað að tekjur verði
5,6 milljónir. Samkvæmt yfirliti
bæjarstjóra er ráðgert að ljúka
við gerð slitlags á Dalbraut,
endurnýja holræsi á Smiðjuvöll-
um að hluta, leggja slitlag á
margumræddan botnlanga við
Smiðjuvelli og leggja gangstétt
við Vallholt. Auk þess þarf að
greiða um 10 milljónir króna
vegna fyrri gatnagerðar við
Garðagrund.
Fimm milljónir eiga að renna
til nýbyggingar holræsa og er
fyrirhugað að hefja fram-
kvæmdir við hreinsun Króka-
lóns og loka úthlaupum sem þar
eru.
Tekið verður lán til þess að
standa straum af kaupum á landi
Innsta-Vogs fyrir um 20 millj-
ónir króna en þar á að verða úti-
vistarsvæði. Énn má nefna að
fimm milljónir eru áætlaðar í
ýmsar framkvæmdir í umhverf-
ismálum og að sögn bæjarstjóra
er áhugi á að meginhluti þess
fjár renni til framkvæmda um-
hverfis Langasand.
40 milljónir í Grundaskóla
Bæjaryfirvöld gera ráð fyrir að
84,4 milljónir króna verði af-
gangs til nýframkvæmda sem
nefnd er eignfærð fjárfesting.
Þar af fer um helmingur í fram-
kvæmdir við E-hluta Grunda-
skóla en framkvæmdum þar á
að ljúka á næsta ári. Nær 30
milljónir króna verða notaðar til
að greiða fyrir nýtt húsnæði
bæjarins í stjórnsýsluhúsinu og
að sögn Gísla Gíslasonar bæjar-
stjóra er gert ráð fyrir að bæjar-
skrifstofurnar verði fluttar
þangað í mars eða aprfl. 7,7
milljónir fara í framkvæmdir
við íþróttamiðstöðina á Jaðars-
bökkurn og aðrar 7 til kaupa á
leiguíbúð.
Nær 30 milljónir krónafara í að greiða fyrir húsnœði bœjarins í
stjómsýsluhúsinu. Gert er ráð fyrir að bæjarskrifstofurnar verði
fluttar þangað í ?nars eða apríl.
Punktar
úr fjárhags-
áætlun
• Gert er ráð fyrir að ráðinn
verði félagsráðgjafi í hálft
starf frá og með 1. maí
vegna atvinnuleysis og lak-
ari kjara almennings.
• Kanna á hvort áhugi er á
því meðal þeirra sem eiga
böm á leikskólum að bjóða
upp á sveigjanlegan opnun-
artfma Gert er ráð fyrir full-
um rekstri skóladagheimilis.
• Efla á starf skólahljóm-
sveitinnar og er gert ráð fyrir
hálfri milljón í því skyni.
• Gera á sérstaka úttekt á
rekstri tónlistarskólans og
íþróttamann virkj a.
• Tvær milljónir króna
renna til minningarsjóðs sr.
Jóns M. Guðjónssonar. Gert
er ráð fyrir að Heiðarbraut
40 verði alfarið undir stjórn
menningar- og safnanefndar.
• Áætlað er að lagðar verði
fram 3,5 milljónir króna
vegna endurbóta á búnings-
klefum Bjamalaugar.
• Fyrirhugað er að færa
rekstur Vinnuskólans yfir á
garðyrkjudeild og að skólinn
hafi aðstöðu í áhaldahúsinu.
• Hækka á framlag til leik-
vallagerðar úr einni milljón
króna í tvær og er ætlunin að
verja fjármagninu til endur-
bóta á leikvöllum í Jörundar-
holti og við Vógabraut.
• Fyrirhugað er að festa
kaup á búnaði til þess að út-
varpa fundum bæjarstjómar.
Öðrum verður jafnframt
boðið að nota sendi og ann-
an búnað til útsendinga.
• Búist er við að bæjaryfir-
völd hafí farið 10-20 millj-
ónum króna framúr fjárhags-
áætlun síðasta árs og verður
ekki bætt úr því á þessu ári.
• Gert er ráð fyrir óbreyttu
verðlagi milli ára og áfram
er treyst á stöðugleika verð-
lags. Áætlunin er miðuð við
að bærinn geti mætt tæplega
fjögurra prósenta hækkun
launa á árinu.
• Stefnt er að því að rekstr-
argjöld verði lægri í ár en í
fyrra, aðallega vegna þess að
12 milljóna króna framlag til
ríkisins í atvinnuleysistrygg-
ingasjóð fellur niður. Ekki er
heldur gert ráð fyrir framlagi
til undirbúningsfélags vegna
orkubús Borgarfjarðar.